Morgunblaðið - 28.07.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.07.1999, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 1999 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Héraðsdómur Norðurlands eystra Sýknuð af ölvun- arakstri KONA á fimmtugsaldri hefur verið sýknuð í Héraðsdómi Norðurlands eystra af ákæru um ölvunarakstur og gáleysi er hún ók á hross í Glæsi- bæjarhreppi í september 1996. Það var Vátryggingafélag íslands sem stefndi konunni vegna grans um ölv- unarakstur. Lögreglan á Akureyri færði kon- una, eftir komu á slysstað, á lög- reglustöðina til að mæla alkó- hólmagn í blóði hennar og reyndist það vera 3,1%, sem er yfir leyfileg- um mörkum við akstur bifreiðar. Konan bar við að hafa drukkið einn til einn og hálfan bjór u.þ.b. tveimur klukkustundum fyrir slysið en þó ekki í það miklu magni að það gerði hana vanhæfa til aksturs. Hún sagð- ist hins vegar hafa drukkið tvö staup af kirsuberjavíni, 48% að styrkleika, strax eftir slysið til að róa sig. Dómurinn sýknaði konuna á þeim forsendum að áfengismagnið hefði ekki verið mælt fyrr en tveimur klukkustundum eftir að slysið átti sér stað. Blóðsýnið væri því ekki fullnægjandi sönnun þar eð konan hefði neytt áfengis eftir að slysið átti sér stað. Konan var því sýknuð og Vátryggingafélagi íslands gert að greiða málkostnað. Isinn kælir Morgunblaðið/Árni Sæberg • Dæmdur fyrir árás í blíðunni STÖLLURNAR Eyrún Gígja Káradóttir og Anna Friðrika Árnadóttir voru á meðal þeirra fjölmörgu sem lögðu leið sína í miðbæ Akureyrar í gær til að njóta veðurblíðunnar. Vel hefur reynst að kæla sig á ís þegar hitinn er kominn yfir 20 stig og til þess ráðs gripu þær vinkon- urnar einmitt. UNGUR maður hefur verið dæmd- ur í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir líkamsárás á dansleik í KA-heimilinu 27. maí 1999. Sam- kvæmt ákæru mun ákærði hafa sparkað í og hrint manni fram af 160 cm samandregnum áhorfenda- palli með þeim afleiðingum að hann viðbeinsbrotnaði og myndaðist tals- vert misgengi milli brotenda. Ákærði, sem áður hefur verið dæmdur tii sektargreiðslna fyrir skemmdarverk og ölvunarakstur, játaði brot sitt. Ákærði var dæmdur í 8 mánaða fangelsi, en með tilliti til ungs ald- urs og þess að hann samþykkti tjónakröfu þolenda og fór í áfengis- meðferð, var ákveðið að þar af væru 7 mánuðir skilorðsbundnir. Ákærði greiðir auk þess fórnarlambinu bætur að upphæð 362.279 kr. auk vaxta og honum ber einnig að greiða allan sakarkostnað. Ferðafélag Akureyrar Ökuferð í Laugafell FERÐAFÉLAG Akureyrar býður upp á ökuferð um versl- unarmannahelgina, en farið verður síðdegis á föstudag, 30. júlí, í Laugafell þar sem gist verður í skála. Fararstjóri í ferðinni er Guðmundur Gunn- arsson. Guðmundur sagði að á laug- ardag yrði ekið frá Laugafelli suður á bóginn og stefnan tekin á Nýjadal þar sem litið verður á áhugaverða staði en síðan verður ekið suður að Hágöngu- lónum sem svo mjög voru í fréttum síðasta sumar vegna umdeildra framkvæmda. Um kvöldið verður að nýju ekið í Laugafell og gist þar. Á sunnudag verður ekið heim um Skagafjörð og stefnt að því að sækja messu í Ábæj- arkirkju. Eyðibýlið Torljóts- staðir verður skoðað og fallegt árgljúfur sem þar er auk þess sem staldrað verður við á fleiri áhugaverðum stöðum. Ferðafélag Akureyrar er deild í Ferðafélagi Islands og njóta félagsmenn sömu rétt- inda og félagar í FÍ. Ferðin um verslunarmannahelgina er öll- um opin. Meó einu handtaki býröu til boró í miöaftursætinu. Einnig fáanlegt meó kæliboxi. „ Flugsætisboró“ fyrir yngri farþega í aftursæti. Mikió farangursrými sem hægt er aó stækka enn meira. 4 loftpúóar: bílstjóri, farþegi í framsæti og hlióarpúóar. Renault Mégane varvalinn öruggasti bfll ársins í sínum flokki í Evrópu 1998. Grjótháls 1 Sími 575 1200 Söludeild 575 1220 ÁÍltpettaféiJKbií Méqone Scénic Fjarstýró hljómtæki meó geislaspilara, stjórnaó úr stýri. Auóvelt er aó taka aftursætin úr, eitt, tvö eöa öll þrjú. Þau eru ótrúlega létt. Tvö hólf í gólfi fyrir framan aftursæti. Aukabúnaóur á mynd: Álfelgur MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 1999 17 Framkvæmdanefnd Halló Akureyri Geta tekið á móti allt að fimmtán þúsund manns Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson A slysadeild eftir harðan árekstur MIKILL viðbúnaður verður á fjöl- skylduhátíðinni Halló Akureyri. Aukavaktir verða á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri, Lögreglan á Akureyri fær til sín öflugan liðs- styrk og hreinsunardeild bæjarins mun gæta þess að bærinn líti vel út alla helgina. Magnús Már Þorvalds- son og Elís Árnason úr fram- kvæmdanefnd Halló Akureyri sögðu að undirbúningur hátíðarinn- ar hefði verið með svipuðu sniði og undanfarin ár. Þó færi hátíðin í raun sífellt stækkandi og skipulagn- ing og gæsla yrði sífellt öflugri. „Við erum tilbúin að taka á móti jafn mörgum og í fyrra eða um tólf þús- und manns og getum jafnvel tekið á móti allt að fimmtán þúsund manns. Þetta er mögulegt vegna þess hversu t.d. Akureyrarbær hefur sí- fellt komið meira að þessari skipu- lagningu og eins vegna góðs sam- starfs við Fjórðungssjúkrahúsið og Iögregluna," sagði Magnús Már. „Það er í raun takmark okkar allra að taka vel á móti gestum okk- ar eins og góðum gestgjafa sæmir. Við munum meðal annars stöðva fólk áður en það kemur inn í bæinn og afhenda því bækling og kynning- arefni um það sem hér verður í boði, „sagði Magnús enn fremur. Lögreglan á Akureyri mun fá góðan liðsstyrk. Meðal annars koma hingað til Ákureyrar fjórir menn á vegum fíkniefnalögreglunnar. Að sögn Magnúsar munu þeir meðal annars vera með öfluga gæslu á KA-svæðinu, en þar eru tjaldstæði fyrir unglinga og dansleikjahald öll kvöldin. Einnig munu lögreglumenn frá Dalvík og Olafsfirði verða lög- reglunni á Akureyri innan handar. Aukavaktir á sjúkrahúsinu Birna Sigurbjörnsdóttir frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sagði að á þeim bænum undir- byggju menn sig með því að hafa aukafólk á vakt alla helgina. „Við fá- um alltaf til okkar eitthvað af fólki og því er nauðsynlegt að við séum tilbúin að taka á móti þeim fjölda. Annars munar orðið miklu að á KA- svæðinu hafa KA-menn hjúkrunar- fræðing á vakt alla helgina og hann getur sinnt minniháttar skeinum og vandamálum sem upp koma, þetta léttir mikið af okkur,“ sagði Birna. Hún kom líka inn á mikilvægi þess að hafa einn lögreglumann á vakt á sjúkrahúsinu. „Það hefur mikið að segja að hafa hér einn ein- kennisklæddan lögreglumann á vakt, upp á öryggið hérna á sjúkra- húsinu,“ sagði Birna. Dan Brynjarsson sagði að bærinn hefði á að skipa öflugri hreinsunar- deild allan tímann. „Það er náttúru- lega mikilvægt að bænum sé haldið hreinum alla helgina. Við tínum upp rusl, sópum götur og lagfærum blóm og annað sem aflaga getur far- ið þegar margt fólk er samankomið í bænurn," sagði Dan. Þeir Magnús Már og Elís sögðu að veðrið skipti óneitanlega miklu máli varðandi aðsókn. „Ég tel okkur þó betur setta en marga aðra því allir dansleikir hér fara fram innan dyra og veðrið hefur því engin áhrif á þá,“ sagði Elís. Magnús nefndi líka að til væri varaáætlun ef veðrið yrði slæmt. „Við getum, ef með þarf, flutt skemmtiatriði úr mið- bænum inn í íþróttahöll, en auðvitað vonumst við til þess að veðrið verði okkur hliðhollt," sagði Magnús enn- fremur. Forsvarsmenn Halló Akureyri voru sammála um að hátíðin hefði styrkst í sessi undanfarin ár. „Það sem ég tel einna mikilvægast er að hingað kemur fólk orðið ár eftir ár og er farið að líta á þetta sem hreina fjölskylduhátíð. Hingað kemur öll fjölskyldan og við reynum að hafa eitthvað á boðstólum sem höfðar til hvers og eins,“ sagði Magnús Már að lokum. ÖKUMAÐUR bifhjóls var fluttur á slysadeOd Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri eftir harðan árekstur á mótum Skarðshlíðar og Undirhh'ðar í fyrrakvöld. Bifhjólinu var ekið norður Skarðs- hh'ðina en bifreiðinni í suður. Var bílnum síðan beygt austur í Undir- hlíð í veg fyrir bifhjólið. Það lenti á bílnum og kastaðist ökumaður þess í götuna en bifhjólið kastaðist á kyrr- stæða bifreið sem var við gatnamót- in. Meiðsl ökumanns bifhjólsins voru ekki talin alvarleg. Hjólið og bíllinn urðu óökuhæf eftir áreksturinn og þriðji bíllinn skemmdist töluvert. Féll fjóra metra Alvarlegt vinnuslys varð í gær- morgun þegar ungur maður sem var að vinna við endurbætur á þaki Iþróttaskemmunnar á Akureyri féll niður á milli bita tæpa fjóra metra niður á svalir. Hann slasaðist mikið á baki og var fluttur með sjúkraflugi til Reylqavíkur. ABS hemlakerfi. Styrktarbitar í huróum. Þriggja punkta öryggisbelti meó strekkjurum og höggdempurum fyrir alla farþega bílsins, líka aftur í Farangursrými stækkaó meó einu handtaki. Veró 1.678.000 f Góó lesljós í farþegarými, leslampi yfir framsætum, Ijós í farangursrými. Mégane Scénic stækkar þegar þú sest inn í hann: Rýmió kemur á óvart, þú situr hátt og hefur því frábært útsýni. Það er líkt og Renault Mégane Scénic stækki þegar þú sest inn í hann, enda er hann fýrsti fjölnota- bfllinn í flokki bfla í millistaeró. Segja má að Scénic sé í raun þrír bflar, fjölskyldubfll, ferðabfll og sendibfll. Hann er aðeins 4,23 m á lengd en hugmyndarík hönnun og mikið innanrými gerir hann ótrúlega notadrjúgan og hagkvæman fýrir einstaklinga og fjölskyldur. Það er því engin furða þó hann hafi umsvifalaust verið valinn bíll ársins af öllum helstu bílatímaritum í Evrópu þegar hann var kynntur. Hér á landi hefur hann þegar fengið frábærar viótökur. 3 1 Fossháls p B&L 1 " HestHáls •““"““.Griótháls ÁA rzz Vesturlandsvegur RENAULT 60TT FÓIK • SlA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.