Morgunblaðið - 14.08.1999, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.08.1999, Blaðsíða 39
38 LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. VANDI RIKIS- STJÓRNARINNAR RÍKISSTJÓRNINNI er mikill vandi á höndum, þegar horft er til þeirrar stöðu, sem einkavæðing ríkisbank- anna er komin í. Eftir að formlega hefur verið gengið frá sölu á hlutabréfum sparisjóðanna í Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins hf. er Ijóst, að tiltölulega fámennur hópur manna, sem stendur að fyrirtækinu Orca SA, ræður yfir u.þ.b. 28% hlutafjár í bankanum. í sölulýsingu vegna útboðs hlutabréfa í FBA í október á síðasta ári var stefna ríkisstjórnarinnar skýrt mörkuð. Þar segir: „Jafnframt liggur fyrir sú ákvörðun, að leitað verði lagaheimildar til að selja allan hlut ríkissjóðs í FBA fyrir mitt ár 1999 ef aðstæður leyfa. Við þá sölu verður áfram stefnt að dreifðri eignaraðild og sjálfstæði FBA sem samkeppnisaðila á íslenzkum samkeppnismarkaði. í því efni er miðað við, að hlutdeild hvers aðila í frumsölu verði ekki hærri en sem nemur 5-10% hlutafjár í bankanum. Jafnframt verði hugað að skráningu félagsins á hlutabréfa- markaði erlendis til viðbótar skráningu á Verðbréfaþingi ís- lands. Nánari útfærsla sölunnar mun þó ráðast af þeirri reynslu, sem fást mun af þeirri sölu, sem nú fer fram og því sem hagkvæmast þykir á þeim tíma.“ Reynslan af sölu hlutafjár í FBA í kjölfar þessarar sölulýs- ingar var sú, að nokkrir aðilar hófust handa um að safna kennitölum og komust þannig framhjá upphaflegum reglum um hámark hlutafjár til einstakra aðila. Þar voru spari- sjóðirnir á ferð og nú hafa þeir selt fyrirtækinu Orca SA rúmlega 22% hlut sinn í FBA, en aðstandendur Orca hafa til viðbótar keypt nokkurn hlut á markaðnum hér. Þegar kemur að því að selja seinni hlutann af hlutafé ríkis- ins í FBA stendur ríkisstjórnin frammi fyrir því, að verði sá hlutur seldur í dreifðri eignaraðild eins og yfirlýsingar henn- ar miða við, er ljóst, að Orca SA verður ráðandi aðili í Fjár- festingarbankanum. Þótt talsmenn Orca hafi vakið athygli á því á blaðamannafundi í gær, að hlutur fyrirtækisins í FBA skiptist á milli fjögurra hópa, sem hver um sig ætti um 7% í bankanum er ljóst, að hér eftir verður litið á þá sem tengda aðila vegna þess, að þeir mynda sameiginlegt félag um kaup- in. í samtali Morgunblaðsins við Davíð Oddsson á sl. ári talaði hann sérstaklega um einstaka aðila og tengda aðila, þegar hann ræddi um hámark hlutafjáreignar. Ljóst er að eignarhlutur Orca SA fer langt út fyrir þau mörk, sem for- sætisráðherra nefndi, sem eðlilega viðmiðun. Að auki sýnir fengin reynsla að það er ekki nóg að tala um hámark eign- araðildar í frumsölu, eins og segir í sölulýsingunni, heldur verður að binda slíkt hámark í lög. Nú segja sumir: er nokkuð að því að hópur athafnamanna eignist ráðandi hlut í FBA? A móti má spyrja: eftir að hin nýja viðskiptablokk, sem gengur undir nafninu Orca SA, hef- ur eignast 28% í FBA, hvernig mundi þjóðinni hugnast sú þróun, að t.d. Burðarás hf., eignarhaldsfélag Eimskipafélags- ins, eignaðist ráðandi hlut í Landsbanka Islands við einka- væðingu hans og að t.d. Sambandsfyrirtækin gömlu eign- uðust ráðandi hlut í Búnaðarbanka íslands? Eftir viðskiptin nú með hlutabréf sparisjóðanna væri alls ekki hægt að úti- loka slíka þróun, ef ekkert yrði að gert og raunar væri mjög líklegt að mál mundu skipast á þann veg. Þetta er sá vandi, sem ríkisstjórnin stendur frammi fyrir. Ef þjóðin horfðist í augu við, að þrjár viðskiptablokkir hefðu skipt bankakerfinu upp á milli sín með þessum hætti má ganga út frá því sem vísu, að allur almenningur mundi telja það fráleita niðurstöðu á einkavæðingaráformum ríkisstjórn- arinnar. Af þessum sökum er alveg ljóst, að lagasetning, sem trygg- ir dreifða eignaraðild að bönkum er forsenda þess, að ríkis- stjórnin geti hrundið stefnumálum sínum varðandi ríkisbank- ana í framkvæmd. Yfirlýsingar Davíðs Oddssonar eru skýrar í þessum efnum. Framsóknarflokkurinn hefur m.a. með sölulýsingu þeirri í hlutafjárútboði FBA, sem vitnað var til hér að framan tekið undir þessi meginsjónarmið. FBA heyrir undir tvo ráðherra, sjávarútvegsráðherra og við- skiptaráðherra. Það þýðir, að ofangreind sölulýsing er m.a. á ábyrgð Finns Ingólfssonar viðskiptaráðherra sem með henni hefur staðfest stuðning sinn við dreifða eignaraðild að banka- kerfinu. Gera verður ráð fyrir, að framundan sé viðamikið starf af hálfu ríkisstjórnarinnar við undirbúning slíkrar lagasetning- ar. Sala sparisjóðanna á hlutabréfunum í FBA hefur sýnt mönnum í hnotskurn hvað ekki má gerast við einkavæðingu ríkisbankanna. Verkefnið nú hlýtur að vera að snúa þessari þróun við og tryggja í framkvæmd það sjálfsagða og eðlilega markmið að eignaraðild að einkavæddum bönkum verði dreifð. MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 39 Guðmundur Hauksson, stjórnarformaður Scandinavian Holding, se^ist sannfærður um réttmæti þess að selja hlut sparisjóðanna í FBA SCANDINAVIAN Holding, sem er í eigu sparisjóðanna og Kaupþings, hefur selt 22,5% hlut sinn í Fjárfesting- arbanka atvinnulífsins (FBA). Salan hefur vakið mikla athygli bæði vegna þess að nýtt félag, Orca SA í Lúxem- borg, er kaupandi og ekki var upp- lýst strax í upphafi hverjir eru eig- endur þess, og eins vegna þess að margt bendir til þess að salan geti haft áhrif á áform ríkisstjórnarinnar að selja hlut sinn í FBA og ríkisvið- skiptabönkunum. Guðmundur Hauksson var í upp- hafi spurður hvers vegna spari- sjóðirnir og Kaupþing hefðu ákveðið að kaupa stóran hlut í FBA. „Þegar það lá fyrir á miðju síðasta ári að ríkisstjórnin ætlaði að einka- væða ríkisviðskiptabankana og Fjár- festingabanka atvinnulífsins lýstu sparisjóðirnir strax áhuga á því að koma að þessu máli vegna þess að við töldum alveg ótvírætt að það yrði mikið hagræði af því að sameina Kaupþing og FBA. Við töldum jafn- framt að þetta myndi samræmast mjög vel hugmyndum ríkisstjórnar- innar um samruna, hagræðingu, dreifða eignaraðild, sem var klárt markmið okkar, og hugsanlega er- lendra eignaraðila inn í þessa mynd. Auk þess sem ríkissjóður fengi mjög gott verð fyrir sölu hlutabréfanna. Við hófum viðræður við stjórnvöld um þessi mál, sem þau síðar slitu þar sem ríkisstjórnin tók þá ákvörðun að fresta sölunni. Ríkissjóður seldi 49% hlut í bankanum seint á árinu og í framhaldi af því keyptu Kaupþing og Sparisjóður Reykjavíkur talsvert mikið af hlutabréfum sem síðan var selt til dótturfélags okkar. Mark- miðið með þessum kaupum var að finna á ný leið tO að ná fram því stefnumiði okkar að sameina Kaupþing og FBA. Ríkisstjórnin fékk sl. vetur heimild Alþingis tO að selja bréf sem rfldð átti eftir í bankanum og því var lýst yfir að það yrði gert á fyrri hluta árs- ins 1999. Það gerðist ekki og nú hef- ur verið sagt að þau verði seld á síð- ari hluta ársins án þess að enn hafi verið gerð grein fyrir tímasetningum og aðferðafræði." Veruleg hagræðing af sameiningu Hvaða hagræðing felst í sameining Kaupþings og FBA? „I sameiningu þessara fyrirtækja felst veruleg hagræðing og við gerð- um talsvert ítarlega grein fyrir því í fyrra. Hagræðingarmöguleikarnir eru fyrst og fremst fólgnir í því að báðir bankarnir eru mjög traustir og framsæknir. Þeir eru að vinna á mjög líkum grunni þó svo að styrkur þeirra sé ólíkur. Styrkur FBA liggur fyrst og fremst í mjög sterkum efna- hagsreikningi, en styrkur Kaupþings liggur fyrst og fremst í mjög öflugri fjárvörslu og öflugri og traustri við- skiptastofu. Við teljum að með því að sameina kosti þessara banka yrði til gífurlega öflugt fyrirtæki. Hag- ræðingin er fyrst og fremst fólgin í því að báðir aðOar eru að reyna að sækjast eftir styrkleika hins. FBA er að reyna að byggja upp öfluga miðl- unardeOd og viðskiptastofu á sama tíma og Kaupþing er að byggja upp öflugri efnahagsreikning. Sameining- in myndi því flýta fyrir þessari vinnu sem nú er í gangi. Auk þess má sjá fyrir sér einhverja kostnaðarhag- ræðingu samfara sameiningu." Samkvæmt heimOdum Morgun- blaðsins könnuðu sparisjóðirnir möguleika á sölu á hlutabréfum sín- um í FBA strax í desember á síðasta ári nokkrum vikum eftir að þau voru keypt. Hvers vegna var þetta gert ef þið ætluðu ykkur aOtaf að láta reyna á hugmyndina um sameiningu FBA og Kaupþings? „Ég vek athygli á því að við vorum að kaupa hlutabréf sem hafa ákveðið verðgOdi og menn hljóta ævinlega að vera að spyrja sig þeirrar spurningar hvort verð þeirra eigi eftir að hækka eða lækka. I Ijósi þess að menn hafi á þeim tíma metið stöðuna eitthvað óvissa þá kann vel að vera að það hafi eitthvað verið kannað hvort það fengist gott verð fyrir þau.“ Menn átta sig ekki á lögmál- um hlutabréfamarkaðarins Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri og stjórnarformaður Scandinavian Holding, tel- ur að umræða sem skapast hefur um sölu sparisjóðanna í hlut þeirrar í FBA til Orca SA beri keim af því að menn átti sig ekki á því hvaða lögmál gildi eftir að búið er að setja fyrirtæki á markað og viðskipti með hlutabréf þeirra eru orðin frjáls. Hann segir að sparisjóðirnir hafí talið að of mikil áhætta fylgdi því að eiga stóran hlut í FBA þegar engin skýr svör fengust frá ríkisstjórninni um næstu skref í einkavæðingu bankans. Hvers vegna var sú leið farin að stofna dótturfyrirtæki í Lúxemborg, Scandinavian Holding, til að fara með hlut sparisjóðanna og Kaupþings í FBA í stað þess að stofna fyrirtæki hér á landi? „Það hefur verið hlutverk Kaupþings að vera í fararbroddi við að ryðja nýjungum braut á vettvangi fjármálalífs á Islandi. Undanfarin ár hefur lögum verið breytt og boðum og bönnum aflétt þannig að fjár- magnsmarkaður hér á landi lýtur sömu reglum og erlendis. Það sem við erum að gera er að tileinka okkur viðskiptahætti sem lengi hafa þekkst erlendis. Við ákváðum að setja þessi hlutabréf í dótturfélag í Lúxemborg vegna þess að okkur var kunnugt um áhuga erlendra aðOa á að koma að þessu máli með okkur og þeir þekkja miklu betur allt lagalegt umhvei-fi í Lúxemborg heldur en hér á íslandi. Við töldum þess vegna að það kynni að verða þægilegri aðkoma fyrir þá ef þeir kæmu inn með þessum hætti. Þetta var því undirbúningur undir þann möguleika að taka inn í þetta dæmi erlenda aðila.“ Er skattalegt hagi’æði af því fyrir ykkur að selja þetta gegnum dótt- urfélag í Lúxemborg? „Kaupþing og sparisjóðirnir eru að sjálfsögðu íslensk fyrirtæki sem lúta íslenskum skattalögum. Verði sölu- hagnaður greiðum við skatt af hon- um samkvæmt gildandi lögum. Þau fyrirtæki sem staðsett eru erlendis lúta að sjálfsögðu erlendum lögum. Skattahagræðið ræður ekki úrslitum í þessu máli.“ Fengum engin svör frá ríkisstjóminni Hvers vegna tóku þið ákvörðun um það í sumar að selja hlut ykkar í FBA? „Þegar við gengum eftir svörum frá ríkisstjóminni um hvenær og ekki síður með hvaða hætti yrði staðið að sölunni á 51% hlut rfldssjóðs í FBA fengum við engin skýr svör. Okkur þótti óþægOegt að búa við þessa óvissu í ljósi þess að við vorum búnir að festa and- virði þriggja mOljarða í hlutabréfum í bankanum. Þegar athygli okkar var vakin á því að ríkissjóður kynni að hafa frjálsari hendur um sölu á bréfunum heldur en áður var um " talað, þ.e.a.s. að dreifð eignaraðOd væri ekki eins afdráttarlaust skilyrði og áður var rætt um, varð okkur ljóst að það var talsverð áhætta fólgin í þessari fjárfestingu okkar. Spari- sjóðimir geta að sjálfsögðu ekki búið við þá áhættu sem þessar aðstæður skapa. Við kynnum að hafa setið uppi með þriggja mOljarða fjárfestingu án Hefðum Ifk- lega ekki selt bréfin ef við hefðum fengið skýr svör frá stjórnvöldum þess að hafa náð markmiði okkar og búið við þá áhættu að geta ekki selt nema eiga það á hættu að þessi hlutur okkar lækkaði í verði. Þess vegna ákváðum við að freista þess að selja hlutabréfin og innbyrða þann hagnað sem þau gáfu áður en bréfin kynnu að lækka í verði ef að framvinda málsins yrði með öðram hætti en við hefðum kosið.“ Getur þú sagt eitthvað nánar um samskipti ykkar við stjórnvöld í vor og sumar? „Við höfum fyrst og fremst átt sam- skipti við viðsldptaráðherra um þetta mál, en hann fer með bankamál fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Við ræddum við hann í tvígang og hann sett einn starfsmanna sinn í að hafa samskipti við_okkur.“ Áttu þið ekki viðræður við forsætis- ráðherra um þetta mál? „Nei, við leituðum efth’ fundi með forsætisráðherra, en því miður tókst ekki að koma þeim fundi á.“ Nú hafði rikisstjómin lýst því yfir að hún myndi selja 51% hlut sinn í FBA á þessu ári og ekkert hafði kom- ið fram sem benti tO þess að þeirri ákvörðun yrði breytt. Hefði ekki kom- ið tO greina að sjá tO í nokkrar vikur eða mánuði í viðbót og láta reyna á þessar yfirlýsingar áður en þið selduð ykkar hlut? „Eins og ég sagði eram við búnir að bíða nokkuð lengi og ríkisstjómin hef- ur áður frestað áformum um sölu. Þegar við gátum ekki fengið neinar upplýsingar um tímasetningu sölunn- ar eða það form sem yrði á sölunni treystum við okkur ekki til að bíða lengur.“ Hvenær var sú ákvörðun tekin að reyna að selja hlutabréfin? „Þetta átti sér skamman aðdrag- anda. Við ákváðum að kanna grand- völl fyrir sölu í júlímánuði." Orca SA bauð mun betur Hvers vegna er farin sú leið að selja bréfin lokuðum hópi manna í stað þess að bjóða þau upp á markaði? „Það er nú einu sinni svo að á verðbréfamarkaði gOda lögmálin um framboð og eftirspurn. Ef sett er á markað mjög mikið magn af bréfum á skömmum tíma er eins líklegt að verðið lækki. Þetta gera menn því að sjálfsögðu ekki. Auk þess kunna að vera fólgin ákveðið verðmæti í því að selja stóran pakka hlutabréfa í einstökum hlutafélögum og þá gerist það ekki á almennum markaði. Þess vegna var leitað eftir því að selja þessi bréf utan markaðar- ins eins og ávaflt er gert í slíkum við- skiptum. Það era engin dæmi þess að mjög stór sala fari fram í gegnum Morgunblaðið/Arnaldur GUÐMUNDUR Hauksson segir að mikil áhætta hafi fylgt því fyrir sparisjóðina að eiga svo stóran hlut í FBA þegar óljóst hafi verið um næstu skref í einkavæðingu bankans. Morgunblaðið/Árni Sæberg HAGNAÐUR sparisjóðanna af sölu hlutabréfanna í Orca SA er áætlaður 1.300-1.400 milljónir króna. Verðbréfaþingið, a.m.k. ekki á borð við sölu sem hér er um að ræða.“ Það hefur komið fram opinberlega að tveir aðOar sýndu því áhuga að kaupa hlutabréf Scandinavian Hold- ing í FBA, annars vegar Orca SA og hins vegar Eignarhaldsfélagið Hof. Hvers vegna var ákveðið að selja bréf- in tO Orca frekar en tO Hofs? „Það er rétt að við fengum tvö tfl- boð í bréfin og við tókum tOboði þeirra sem buðu hærra. Það er eingöngu verðlagningin sem ræður ákvörðun okkar og engin önnur sjónarmið liggja þar að baki.“ Var mikfll munur á tflboðunum? „Já, það var mildll munur á þeim.“ Var forráðamönnum Hofs gefinn kostur á að hækka tflboð sitt? „Ég get ekki tjáð mig í smáatriðum um hvemig viðræður við hugsanlega kaupendur gengu fyrir sig. Ég tók ekki þátt í þeim persónulega, en get fullyrt að af hálfu Kaupþings var allan tímann haldið á málum með það eitt að leiðarljósi að fá sem hæst verð fyrir þessi bréf.“ Höfðu þið vitneskju alveg frá upp- hafi um hverjir væra eigendur Orca SA? „Persónulega hafði ég ekki hug- mynd um það og mér finnst ósennflegt að Kaupþing hafi í þessu máli lagt mikla áherslu á að þekkja fyrirhugað- an kaupendahóp í smáatriðum. Við reynum ekki að velja úr okkar við- skiptavini. Það er ekki okkar hlutverk. Eftir að hlutabréf koma á markað era þau seld hæstbjóðanda og nákvæm- lega það sjónarmið réð ferðinni hjá okkur.“ Á hvaða verði vora hlutabréfin seld? „Það verður kaupandi að upplýsa. Við eram bundnir af bankaleynd að öllu leyti hvað þessi viðskipti varðar, bæði hvað varðar verð og kaupendur.“ Hver er hagnaður sparisjóðanna af sölu þessara hlutabréfa? „Hann er einhvers staðar á bflinu 1,3—1,4 mi0jarðar.“ Fjármagna sparisjóðimir eða Kaupþing þessi kaup Orca og hvemig er greitt fyrir bréfin? „Ég get ekkert upplýst um ákvæði þessa samnings." Átta sig ekki á lögmálum sem rflya á markaðinum Nú liggur fyrir þessi yfirlýsing forsætisráðherra frá því í ágúst í fyrra um að það gæti verið skynsam- legt að setja reglur sem tryggja dreifða eignaraðild að bönkunum. Veltu stjórnendur sparisjóðanna ekkert fyrir sér að þessi sala, sem fer fram á sama tíma og ríkisstjórnin er að undirbúa sölu á 51% hlut sín- um í FBA og á hlut ríkisins í ríkis- viðskiptabönkunum, gæti sett einka- væðingaráfonn ríkisstjórnarinnar í uppnám? „Nei, því fer fjarri. Við höfum al- veg frá fyrstu tíð gert öllum ljóst hver markmið okkar voru og hvaða óskir við hefðum fram að færa í þessum efnum. Bæði ríkisvaldið og öðram aðilum sem hefði haft áhuga á að koma að þessu máli með okkur var opið að gera það allan tímann. Við leituðum eftir viðræðum við stjórnvöld um þessi mál, en þau áttu aldrei frumkvæði að því að hafa samband við okkur. Það að bíða frekar hefði kallað ..... 1,1 á meiri áhættu eins og ég hef áður sagt og hún var óviðunandi fyrir okkur. Ég vil segja um einkavæðingará- form ríkisstjórnarinnar og þá miklu umræðu sem farið hefur fram í kjölf- ar þessarar sölu að mér finnst um- ræðan hafa borið talsvert mikinn keim af því að menn hafi ekki áttað sig á því hvaða lögmál gilda eftir að búið er að setja fyrirtæki á markað og viðskipti með hlutabréf þeirra era frjáls. Ég tel að umræðan um þessi mál núna sé góð og holl og ég tel að menn þurfi að ígrunda mjög vand- lega öll skref áður en þau era stigin. Þess vegna held ég að þessi sala okkar, sem virðist hafa komið mörg- um í opna skjöldu, sé af hinu góða ef hún getur leitt til þess að menn skilji betur eðli verðbréfamarkaðar á eft- ir. Það hefði verið miklu verra ef ríkisstjórnin hefði verið búin að stíga skref í sölu hlutabréfa í ríkis- viðskiptabönkunum án þess að gera sér að fulla grein fyrir því hvað slíkt getur haft í för með sér. Ég vfl taka fram að ég hef fullan skilning á áhyggjum forsætis- ráðherra um samþjöppun valds í þessum málum. Það er hins vegar svo að ströng lög og mikil höft á við- skiptum með hlutabréf samræmast illa verðbréfaviðskiptum í dag. Ekki liggja almennt kvaðir á fyrirtækjum sem eru skráð á Verðbréfaþingi ís- lands, en tfl að tryggja að þróun við- skiptalífsins sé með eðlilegum hætti þarf að setja ákveðnar skorður því að öllu frelsi eru takmörk sett. Þess vegna er Samkeppnisstofnun útvörður eftirlits í almennu við- skiptalífi og ég skil mjög vel að for- sætisráðherra og aðrir ráðamenn vilji sjá fyrir sér að eitthvert sam- bærflegt eftirlit geti verið með þróun mála í bankakerfinu." Þú telur þá ekkert óeðlilegt við að ríkisstjórnin ákveði nú að staldra við og endurskoða fyrri áætlanir um sölu bankanna? „Ég tel nauðsynlegt að ríkis- stjórnin átti sig á því, sem og Alþingi og almenningur, hvað opinn og frjáls verðbréfamarkaður þýðir.“ Nú kann einhver að spyrja, fyrst fyrirtækjablokk sem stendur á bak við Orca SA, hefur keypt stóran hlut í FBA er þá nokkuð óeðlilegt að fyr- irtækjablokk undir forystu Burð- aráss kaupi Landsbankann og fyrir- tækjablokk undir forystu Sam- bandsfyrirtækja kaupi Búnaðar- bankann. Er þetta framtíðarsýn sem þér lýst vel á? „Nei, almennt er ég á móti blokka- myndun í viðskiptalífinu. Ég tel að hún sé ekki af hinu góða. Ég vil sjá fyrir mér mikla samkeppni því það er ljóst að mestar framfarir í ís- lensku efnahagslífi síðustu ár má rekja tfl aukinnar samkeppni og sterkari og betri fyrirtækja sem kunna að athafna sig í slíku um- hverfi. Nákvæmlega sama þarf að eiga sér stað á fjármagnsmarkaði og það gefur auga leiða að einhver skýr blokkamyndun á þeim markaði væri óheppileg." Erum ekki að stuðla að blokkamyndun En voru sparisjóðirnir ekki að stuðla að slíkri þróun með því að selja hlutabréfin til Orca SA? „Nei, fjarri lagi og mér finnst mjög miður ef menn leggja þennan skilning í gerðir sparisjóðanna. í grundvallaratriðum er málið ein- faldlega það að við keyptum hluta- bréf á almennum markaði og seld- um þau aftur, sem betur fer með umtalsverðum hagnaði. Við teljum ekki að það sé okkar að ákvarða hver kaupandinn sé nákvæmlega.“ Hefur þú sem einn af for- svarsmönnum sparisjóðanna engar áhyggjur af því að þessi sala og það pólitíska uppnám sem hún virðist hafa vakið hafi einhver áhrif á framtíð spari- sjóðanna, t.d. að lögunum um sparisjóði verði breytt og eignarhaldi á þeim verði breytt? „Ég tel nú að menn muni ekki taka neinar ..."".... óvarlegar ákvarðanir í þeim efnum. Við skulum hafa í huga að sparisjóðirnir eru elstu fjármála- fyrirtæki landsins og þau hafa skilað íslensku þjóðlífi miklum verðmætum. Þetta eru staðbundnar stofnanir sem hafa gegnt lykilhlut- verki í sinni heimabyggð, tekið mik- inn þátt í atvinnulífinu og uppbygg- ingu þess, skilað hagnaði, greitt Gott ef þessi sala getur leitt til betri skiln- ings á frjáls- um hlutabréfa- markaði mikla skatta til samfélagsins og stutt rið ýmiss konar menningar- mál. Ég tel að það sé í rauninni leit-~ un að fyrirtækjum sem hafa skilað þjóðfélaginu jafnmiklum verðmæt- um og sparisjóðirnir hafa gert. Þess vegna tel ég fráleitt að láta sér detta í hug að stjórnvöld fari að breyta rekstrarumhverfinu nema þá í fullu samráði við þá sjálfa.“ Þið hafi hagnast vel á sölu þess- ara hlutabréfa og því vaknar sú spurning hvað ætlið þið að gera við þá peninga sem þið eruð nú með í höndunum. Hafa sparisjóðirnir áhuga á að nota þessa fjármuni til að kaupa t.d. hlut í Búnaðarbankan- um? „Það hefur engin ákvörðun verið tekin um það. Við erum rétt að ljúka þessum viðskiptum og ekki er búið að móta neina stefnu til framtíðar í þessum efnum. Sem betur fer hafa mörg dótturfyrirtæki okkar gengið mjög vel. Ég vil sérstaklega nefna Kaupþing í þessu sambandi, sem kemur að þessu máli og spilar stórt hlutverk í þessum viðskiptum öllum. Kaupþing hefur vaxið gífurlega hratt og þarf á miklum fjárhagsleg- um styrk að halda varðandi frekari uppbyggingu. Það kemur til greina að setja meira eigið fé inn í þann banka þó um það hafi ekkert verið ákveðið. Það er allaveg ljóst að þessir fjármunir munu styrkja stöðu sparisjóðanna í heild sinni.“ Er áhugi innan sparisjóðanna á að þeir verði virkir aðilar í þeim breyt- ingum sem verða á bankakerfinu á næstu misserum gangi áform ríkis- stjórnarinnar um einkavæðingu eft- ir? „SparisjóðO’nir hafa tekið þátt í þróun fjármagnsmarkaðar á íslandi alla tíð. Nú á síðari árum með því að brydda upp á nýjungum sjálfir í þjónustu, en jafnframt með því að stofna dótturfélög sem sinna ein* stökum þáttum. Oll þess fyrirtæki hafa gengið mjög vel og spari- sjóðunum hefur vegnað mjög vel. Við munum að sjálfsögðu skoða alla þá möguleika sem kunna að gefast í einkavæðingaráformum ríkisstjórn- arinnar. Ef við teljum að einhver kaup á hlutabréfum ríkisins falli að hagsmunum sparisjóðanna með ein- hverri uppstokkun í huga munum við að sjálfsögðu skoða þau mál vandlega.“ Samstaða milli sparisjóðanna Hafa verið mikil átök innan spari- sjóðanna um þessa sölu? „Nei, það er engan veginn hægt að segja það. Sparisjóðirnir eru sjálfstæðar stofnanir og allt okkar samstarf byggist á því að það hefur hver einstakur sparisjóður rétt til að tjá sig um þessi mál. Þannig að segja má að samstarf sparisjóðanna sé byggt á mjög lýðræðislegum grundvelli. Slíkt fyrirkomulag kallar auðvitað á mikil skoðanaskipti og það kann sitt að sýnast hverjum um þau mál sem eru uppi á borðum á hverjum tíma. Almennt talið er góð samstaða milli sparisjóðanna og við höfum staðið vel og myndarlega á bak við öll verkefni sem við höfum tekið að okkur. Þetta verkefni sem við erum nú að fjalla um er engin undantekning frá því.“ Hefur þú verið beittur pólitískum þrýstingi á síðustu dögum eftir að þetta mál komst í hámæli? „Ég hef margoft verið spurður um þetta á síðustu dögum. Því er til að svara, að það hefur enginn reynt að beita okkur þrýstingi í þá veru að taka ákvarðanir aðrar en þær sem við teljum eðlilegar og bestar fyrir sparisjóðina.“ Þú segir að sú ákvörðun ykkar að selja nú sé ekki síst tilkomin vegna þess að þið fenguð engin svör frá ríkisstjórninni um næstu skref. Tel- ur þú þá að ef óánægja sé innan ríkisstjórnarinnar með þessa sölu að geti hún sjálfri sér um kennt? „Ef okkur hefði verið ljóst hvort og með hvaða hætti ríkisstjórnin hygst selja hlutabréf sín í FBA og að þau áform færu saman við okkar hugmyndir er líklegt að við hefðui? ekki tekið ákvörðun um sölu núna.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.