Morgunblaðið - 14.08.1999, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 6!
FÓLK í FRÉTTUM
Kynþokkafyllstur
karla aldarinnar
BRAD Pitt þótti vænlegastur
til undaneldis.
HUGH Grant ekki ofarlega
á vinsældalistanum.
LESENDUR New Woman Mag-
azine hafa valið kynþokkafyllsta
mann aldarinnar. Skoski sjarm-
örinn Sean Connery þykir bera
af, en könnunin var gerð á Net-
inu og verður birt í september-
hefti blaðsins.
Connery sem nú
er 68 ára að aldri
er þekktastur fyr-
ir hlutverk sitt
sem njósnarinn
James Bond og
skaut hann í
könnuninni mönn-
um á borð við
Harrison Ford,
Mel Gibson og
Brad Pitt ref fyrir
rass. Brad Pitt
getur þó huggað
sig við úrslitin
með því að kon-
urnar sögðu að ef
marsbúar hefðu
hertekið jörðina
væri hann sá jarð-
arbúi sem þær
myndu helst kjósa
að eiga börn með.
Ef Pitt væri ekki
fáanlegur til barn-
eigna var Mel Gib-
son sá sem konurnar höfðu
mestan augastað á.
Þrátt fyrir gott gengi Hughs
Grant í rómantísku gamanmynd-
inni Notting Hill var liann ekki of-
arlega á lista kvennanna í könn-
uninni og sögðu 64% þeirra að
hans tími væri liðinn. Harrison
Ford þótti sætastur af körlum á
miðjum aidri en í kjölfar hans
komu þeir Richard Gere og Kevin
Costner.
Könnunin tók til meira en 16
þúsund lesenda og var ekki ein-
göngu spurt um kynþokkafyllstu
mennina, heldur einnig hvaða líf-
færi væru mikil-
vægust í góðum
karli. Kváðu kon-
urnar upp þann
dóm að hjartað
væri mikilvægasta
líffærið og var
heilabúið í öðru
sæti. Þegar spurt
var um Iíkamlegt
atgervi kom í ljós
að reðurstærð
þótti skipta litlu
máli og var í 20.
sæti yfir þá kosti
sem mest þóttu
prýða karla. Fal-
leg augu, bros og
snotrar hendur
þóttu þar skipta
mun meira máli en
að karlar væru vel
vaxnir niður.
I könnuninni
kom í ljós að kon-
um þykir hroki,
sjálfumgleði, eig-
ingirni og skortur á tiliitssemi og
virðingu verstu þættir í fari
karla. Af jákvæðum eðlisþáttum
var góð kímnigáfa sett í efsta
sætið. Og samkvæmt könnuninni
eiga jakkafataklæddir karlmenn
erfiðara með að heilla dömurnar
því kynþokkafyllsti klæðnaður
karlmanna að mati kvennanna
voru gallabuxur.
SEAN Connery var valinn
kynþokkafyllsti maður
aldarinnar.
er að safna fjórum glösum,
Efl£Íflfl aðgangseyrir
- bara taumlaus gleði!
í tilefni 5 ára afmælis Símans GSM er
viðskiptavinum boðið á magnaða tónleika í
SkautahöLtinni með Landi & Sonum
laugardagskvöldið 14. ágúst. kl. 23.00.
Áður en Land & Synir heiga leik mun
danssveitin Súrefni hita upp.
Komdu og skelltu þér í stemmninguna með
Landi & Sonum, Súrefni og Símanum GSM.
Miða er hægt að fá í verslunum Símans og í
versLunum SkeLjungs og Olís á höfuðborgar-
svæðinu. Fyrstir koma, fyrstirfá.
Takmarkaður mióafjöLdi.
18 ára aLdurstakmark.
Vímulaus skemmtun.
SÍMINN-GSM
WWW.GSM.IS