Morgunblaðið - 21.09.1999, Blaðsíða 1
213. TBL. 87. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Að minnsta kosti 269 fundnir látnir eftir öflugan jarðskjálfta á Taívan
Ottast að tala látinna
muni hækka verulega
Taipei. AFP, AP, Reuters.
Björgunarmenn hjálpa fólki að koniast út úr hrundu húsi í Taipei í gærkvöldi.
Reuters
AP
Míkhafl Gorbatsjov mætir
fréttamönnum við hótel sitt, er
hann kom frá sjúkrahúsinu.
Raísa
Gorbatsj-
ova látin
Miinster, Moskvu. Reuters.
RAISA Gorbatsjova, eiginkona
Míkhaíls S. Gorbatsjovs, íyrrver-
andi leiðtoga Sovétríkjanna, andað-
ist í gær á sjúkrahúsi í Múnster í
Þýskalandi eftir langvarandi bar-
áttu við hvítblæði. Var hún á sex-
tugasta og áttunda aldursári.
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
sendi Míkhail Gorbatsjov samúðar-
kveðjur sínar og tilkynnti að Raísa
Gorbatsjova yrði jarðsett í Nov-
odevichy-grafreitnum í miðborg
Moskvu nk. fimmtudag. Grafreitur-
inn er hvílustaður ýmissa stór-
menna rússneskrar sögu.
Míkhaíl Gorbatsjov hefur fengið
sendar samúðarkveðjur hvaðanæva
og í samúðarskeyti Jóhannesar Páls
páfa sagði að vonast væri til að hann
gæti fundið styrk á þessari erfiðu
stundu. Bandarísku forsetahjónin
sögðust í skeyti sínu til Gorbatsjovs
vera „sorgmædd" og Helmut Kohl,
fyrrverandi kanslari Þýskalands,
sagði Raísu hafa haft mikil áhrif á
þróunina í Sovétríkjunum.
Forseti Islands, Olafur Ragnar
Grímsson, sendi í gær samúðar-
kveðjur sínar til Míkhaíls Gorbatsj-
ovs og minntist Raísu Gorbatsjovu
sem mikilhæfrar konu, þeirrar virð-
ingar sem hún naut á Islandi og
þátttöku hennar í hinum sögulega
leiðtogafundi sem haldinn var hér á
landi árið 1986.
■ Dáð á Vesturlöndum/28
AÐ minnsta kosti 269 höfðu fundist
látnir í gærkvöldi, eftir að öflugur
jarðskjálfti reið yfir Taívan í gær.
Talið er að hundruð manna séu föst
í rústum hrundra húsa og óttast er
að tala látinna muni hækka veru-
lega. Tugir manna hafa verið fluttir
á sjúkrahús með alvarleg meiðsl.
Samkvæmt mælingum taívanskra
vísindamanna var skjálftinn 7,3 stig
á Richter-kvarða og mun hann vera
sá öflugasti á Taívan á þessari öld.
Miklar skemmdir urðu á mannvirkj-
um og víða varð rafmagns- og síma-
sambandslaust.
Jarðskjálftinn varð laust fyrir
klukkan tvö um nótt að staðartíma,
en upptök hans voru við borgina
Puli á miðhluta Taívans. Talið er að
borgin Taichung á miðri eyjunni
hafi orðið verst úti, en þar hrundu
margar byggingar og miklar
skemmdir urðu á vegum.
A fréttamyndum frá CNN-sjón-
varpsstöðinni mátti sjá fólk sem var
fast í rústum hrópa á hjálp, og
björgunarmenn hjálpa fólki í nátt-
fötum að klifra niður stiga út úr
gluggum á húsum.
Fólk hvatt til að
sýna stillingu
Yfir 200 eftirskjáiftar hafa riðið
yfir. I mörgum bæjum var gripið til
neyðarráðstafana og fólk var hvatt
tO að hafast við utandyra. Lee
Teng-hui, forseti Taívans, hvatti al-
menning til að sýna stillingu og
sagði að yfirvöld hefðu gripið til
allra mögulegra ráðstafana til að
bregðast við hamförunum.
I höfuðborginni Taipei, sem er á
nyrsta hluta eyjarinnar, hrundi tólf
hæða hótel og voru yfir 100 manns í
byggingunni. Tekist hafði að bjarga
um fimmtíu manns úr rústunum í
gærkvöldi. Kona sem bjargaðist
hvatti björgunarmenn til dáða. „Eg
bjó á níundu hæð, sem nú er fjórða
hæð,“ sagði hún. Skjálftinn mældist
um 4 stig á Richter-kvarða í Taipei
og rafmagnslaust var í stórum hluta
borgarinnai- í gærkvöldi. Tilkynnt
var að skólar, opinberar skrifstofur
og fjármálamarkaðh í höfuðborg-
inni yrðu lokuð á morgun.
Michael Armstrong, gestur á hót-
eli í Taipei, sagði í viðtali á CNN-
sjónvarpsstöðinni að hann hefði
vaknað við jarðskjálftann. „Jörðin
virtist hristast í um það bil hálfa
mínútu. Eftir að aðalskjálftinn gekk
yfir hélt hótelið áfram að skjálfa,"
sagði Armstrong.
Mælingum ber
ekki saman
Mælingum vísindamanna á krafti
jarðskjálftans bar ekki saman í
gær. Vísindamaður við kínversku
jarðskjálftastofnunina sagði að
skjálftinn hefði verið 7,5 stig á
Richter-kvarða, talsmaður banda-
rískrar jarðfræðistofnunar taldi
skjálftann hafa verið 7,6 stig á
Richter, en franska jai-ðskjálfta-
stofnunin fullyrti að hann hefði ver-
ið 8,1 stig. Til viðmiðunar má nefna
að jarðskjálftinn í Tyrklandi í síð-
asta mánuði mældist 7,3 stig, en þá
fórust yfir 15 þúsund manns.
Fyrir ári reið skjálfti, sem mæld-
ist 6,2 stig, yfir héraðið Chiayi á
suðurhluta Taívans, með þeim af-
leiðingum að fimm manns létust.
Jarðskjálftafræðingar hafa varað
við því að fleiri öflugir skjálftar
kunni að verða á þessu svæði.
Friðargæslulið
komið til A-Tímor
Dili, Jakartu, SÞ, AFP, AP, Reuters.
FYRSTU sveitir alþjóðlegs friðar-
gæsluliðs komu til Austur-Tímor í
gærmorgun og mættu þær engri
mótspyrnu. Flutningavélar frá
Ástralíu lentu á 20 mínútna fresti á
flugveilinum í höfuðborginni Dili í
gær og fluttu þangað um 1.200 her-
menn frá Ástralíu, Nýja-Sjálandi og
Bretlandi, auk farartækja og her-
gagna.
„Þetta hefur verið upplífgandi
dagur. Allt hefur gengið mjög vel
fyrir sig,“ sagði Duncan Lewis, tals-
maður ástralska hersins, í gær, en
Ástralar fara fyrir friðargæslulið-
inu. Fyrsta verk friðargæslusveit-
anna var að ná flugvellinum og
höfninni í Dili á sitt vald. Fylgdust
indónesískir hermenn með úr fjar-
lægð og sýndu fulla samvinnu. Búist
var við að um 2.300 hermenn frá
Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Bretlandi,
Frakklandi, Filippseyjum og Taí-
landi yrðu komnir til Dili í dögun í
dag. Nær allir íbúar hafa yfirgefið
borgina, sem er í rústum.
Friðargæslusveitirnar mættu
engri mótspyrnu af hálfu vopnaðra
sveita andstæðinga sjálfstæðis, sem
staðið hafa fyrir ofbeldisverkum á
Austur-Tímor undanfarnar þrjár
vikur. Fregnir herma að sveitirnar
hafi myndað með sér samtök. Sagði
leiðtogi þeirra, Joao da Silva Ta-
vares, í gær að liðsmenn þeirra
myndu ekki gera árásir á friðar-
gæsluliða.
Málefni flóttamanna
forgangsverkefni
Fyrstu friðargæslusveitirnar
fundu hópa flóttamanna, sem vopn-
uðu sveitimar höfðu hrakið frá
heimilum sínum. Höfðu margir
þeirra leitað skjóls í kofum úr
pappakössum og plastpokum. Sagði
Peter Cosgrove hershöfðingi, yfir-
maður friðargæsluliðsins á Austur-
Tímor, að það væri forgangsverk-
efni að leysa vanda flóttamannanna.
Samkvæmt upplýsingum frá
Rauða krossinum hafa nær allir íbú-
ar Austur-Tímor neyðst til að yfir-
gefa heimili sín vegna ógnaraldar-
innar. Talið er að um 600 þúsund
manns séu í felum á svæðinu og að
um 200 þúsund hafi flúið til Vestur-
Tímor og nálægra eyja. Talsmaður
skrifstofu SÞ á Áustur-Tímor,
David Wimhurst, sagði í gær að
dreifing mikils magns hjálpargagna
myndi hefjast eins fljótt og auðið
væri.
Schröder stendur við niðurskurð
Olga meðal
Græningja
GERHARD Schröder, kanslari
Þýskalands, sagði í gær að stjórn
sín myndi halda niðurskurðar-
áformum sínum til streitu þrátt fyr-
ir hrikalega út-
komu stjómar-
flokkanna í kosn-
ingum í Saxlandi
um helgina. Jafn-
aðarmannaflokkur
Schröders (SPD)
hlaut einungis
10,7% atkvæða og
Græningjar 2,6%
og náðu þar með
ekki inn á þing sambandslandsins.
„Við getum ekki breytt stefnunni,“
sagði Schröder en tók fram að
greinilega væri nauðsynlegt að út-
skýra hana betur fyrir kjósendum.
Þetta er fimmti kosningaósigur
flokksins í röð frá því að stjóm
Schröders tók við fyrir 11 mánuðum.
Joschka Fischer, utamíkisráð-
herra Þýskalands, sagði í gær að
hætta væri á að Græningjar „þurrk-
uðust út pólitískt“. Fischer sagði
flokkinn hafa verið að missa fylgi allt
frá 1997 og að tilvera Græningja
væri í hættu ef ekkert breyttist.
Hafa yfirlýsingar Fischers kynt und-
ir vangaveltum um að hann muni
reyna að ná völdum í flokknum. Um
helgina birti tímaritið Der Spiegel
grein þar sem því er haldið fram að
hófsamari öfl innan flokksins hafi í
hyggju að reyna að steypa leiðtogum
flokksins, Gunda Röstel og Antje
Radcke. Þær sögðust hins vegar
báðar í gær ætla að sitja sem fastast.
■ Versta útkoma/30