Morgunblaðið - 21.09.1999, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 21.09.1999, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RHSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆH1 ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Geitungar valda usla í kennsluhúsnæði HÍ við Aragötu Hvimleiðar heimsóknir í kennslustundir TRUFLUN hefur orðið undan- farið á kennslu í Hagnýtri fjöl- miðlun við Háskóla Islands vegna geitunga sem sækja inn um glugga kennsluhúsnæðisins í Aragötu. Guðbjörg Kolbeins lektor segir þónokkurn ama af þessum óboðnu gestum. „Það er ekki hægt að opna glugga án þess að geitungar komi inn og trufli kennsiu. Eitt skiptið voru fimm geitungar inni í húsinu í einu.“ Guðbjörg kveður geitungana valda usla með heimsóknum sín- um. „Maður veit aldrei á hverju maður á von. Sumir eru sjúklega hræddir við geitunga og þetta er því mjög hvimleitt. Maður reynir að halda áfram eins og ekkert hafí í skorist en það gengur erf- iðlega." Þrátt fyrir „fárið“ hefur ekki frést af nema einni meintri stungu meðal nemenda. Leitað hefur verið að geitungabúum í nágrenni hússins en ekkert fund- ist, enn sem komið er. Fyrsti Netbank- inn á Islandi FYRSTI bankinn á íslandi sem starfar eingöngu á Netinu, „Net- bankinn", tók formlega til starfa í gær. Fyrirtækið sem er á ábyrgð og í eigu Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, verður rekið sem sjálfstæð rekstrareining innan SPRON. Yfírlýst stefna bankans er að bjóða ávallt bestu vaxtakjör og að sögn forsvarsmanna hans verða innlánsvextir umtalsvert hæm og útlánsvextir nokkuð lægri en áður hefur þekkst hér á landi. Þetta er unnt með lítilli yfírbyggingu, miklu aðhaldi í rekstri auk þess sem Netbankinn rekur engin útibú. Að- gengi að bankanum verður eingöngu í gegnum Netið, tölvupóst, síma, sjálfsafgreiðslutæki (snertibanka og hraðbanka) og fax. Erfðavísir sem veldur meðgöngu- eitrun staðsettur ÍSLENSKUM vísindamönnum hefui- tekist að staðsetja erfðavísi sem veld- ur meðgöngueitrun en sjúkdómurinn veldur dauða 60.000 kvenna árlega í "••heiminum. Rannsóknh' á orsökum meðgöngu- eitrunar hófust fyrir um áratug. Læknamir Reynir Amgrímsson og Reynir Tómas Geirsson hjá kvenna- deiid Landspítalans skipulögðu rann- sókn á sjúkdómnum og stóð hún yfír á árunum 1993-1996. Rannsóknin náði til 2.585 kvenna sem greindust með sjúkdóminn á ámnum 1984-1993. í ljós kom að sjúkdómurinn var fjöl- skyldulægur hjá um 20% kvennanna. Fyrir um tveimur áram hófst sam- starf Islenskrar erfðagreiningar og kvennadeildar Landspítalans þar sem farið var út í stóra rannsókn og gerð var kembileit í erfðaefni 343 kvenna og ættingja þeirra. Með arfgerðar- - •^reiningu tókst að staðsetja erfðavísi á tiltölulega þröngu svæði á litningi 2 og þykir sýnt að erfðavísar svæðisins tengist sjúkdómnum með óyggjandi hætti. ■ íslenskum/10 19 stiga hiti í Hörgárdal ÓVENJU hlýtt hefur verið í veðri að undanförnu miðað við árstíma og má rekja hlýindin til austanvinda sem bera með sér hlýtt loft úr suðri. I gær mæld- ist 19 stiga hiti á Nautabúi í Skagafírði og Möðruvöllum í Hörgárdal, 18 stiga hiti var á Akureyri og léttskýjað og 17 stiga hiti í Reykjavík. Utlit er fyrir áframhaldandi austlæga átt og hlýindi næstu daga. Björn Einarsson veðurfræð- ingur segir að þessu valdi víð- áttumikil lægð við írland sem beini hlýjum austlægum vind- um til landsins. Mestur hiti í september í Reykjavík hefur mælst 18,5 stig. Björn segir að náttúruleg skýring á hlýindun- um sé hin víðáttumikla lægð við írland. Þetta sé óskastaða fyrir Sunn- og Norðlendinga en hins vegar liggi þoka yfir Austur- landi og þar hafi víðast verið um 10 stiga hiti. Athygli vekur að á Hveravöllum var um miðj- an dag í gær 12 stiga hiti. Um helgina er von á lægð upp að landinu. Ljósmynd/Landhelgisgæslan Páll Geirdal, stýrimaður á TF-SIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, fylgir þeim Pétri Erni Sverrissyni og Kristni Stefánssyni að þyrlunni þar sem þeir félagarnir fundust um 5 km suður af Landmannalaugum í gær. Bankinn mun til að byrja með ein- göngu þjónusta launþega. Ætlunin er m.a. að bjóða upp á debetkorta- reikning með stighækkandi vöxtum, sparireikninga með markaðstengdri ávöxtun, afborgunarsamninga, veltukort hliðstæð því sem SPRON hleypti af stokkunum í mars sl., og fasteignalán til allt að 30 ára. Ekki krafist ábyrgðarmanna Ólíkt því sem tíðkast í hefðbundn- um bankaviðskiptum krefst Net- bankinn ekki ábyrgðarmanna, held- ur er væntanlegum viðskiptavinum gert að fylla út umsókn á Netinu og að lokinni eignakönnun og greiðslu- mati, er úthlutað lánaheimild til við- skiptavinarins, sem tryggð er tryggingabréfi í fasteign. Að því fengnu getur viðkomandi gengið að lánaheimildinni visri og það eina sem hann þarf að gera er að senda tölvupóst um upphæð og lánstíma og lánið er afgreitt um hæl. Lánsheimildinni má ráðstafa á milli ólíkra reikninga en tfi að við- halda henni þurfa viðskiptavinir að senda bankanum afrit af skatt- skýrslu sinni árlega. ■ Stefnan/22 Umfangsmikil leit í nærri sólarhring að tveimur mönnum hlaut farsælan endi Fundust við góða heilsu eftir villur í þoku ÞAÐ urðu fagnaðarfundir við flugskýli Land- helgisgæslunnar á sjöunda tímanum í gær þegar þyrla Landhelgisgæslunnar kom með mennina tvo, sem umfangsmikil leit hafði verið gerð að í nærri sólarhring uppi á sunnanverðu hálendinu. Fjölskyldur mannanna biðu eftir þeim í oívæni og hrósuðu happi yfir því að hafa heimt þá heila úr villum. Mennirnir, sem eru alvanir fjallgöngumenn, fundust um fimm kílómetra suður af Land- mannalaugum laust fyrir klukkan 18 í gær. Þeir voru þá á leið í Landmannalaugar, en höfðu villst í þoku á sunnudag og hafst við í svefnpok- um sínum aðfaranótt mánudags á ókunnugum stað. Þar héldu þeir kyrru fyrir frá kl. 16 á sunnudag til kl. 15 í gær. Jeppabifreið þeirra fannst mannlaus vestan við Hrafntinnusker skömmu eftir klukkan 15 í gær og var leitarmönnum fjölgað eftir því sem leið á leitina uns þeir voru orðnir á annað hundr- að seinnihluta dags í gær, úr björgunarsveitum í Ámes- og Rangárvallasýslu og Reykjavík. Enn- fremur voru Skaftfellingar tilbúnir að senda menn á vettvang. Villugjarnt í skarðinu við Hrafntinnusker Annar mannanna, Pétur Öm Sverrisson, sagði í samtali við Morgunblaðið við komuna til Reykjavíkur í gær að það væri vel þekkt að villu- Suðurnimur fyárihuer £ tinnu- A«SkáIi F.í. siir ;Reykjaíjöli Höföavatn Háalda V“nd“sil KSSs,*- __________________ B=,.’ŒSkallFI Tvemenningar I Blálioúkur Reykjadalir Hrafntimift- ýó ftratut finnst Skalli i___________________,_Ae .'Söðull L'ri,.ö_ % -<-------------- Bíll tvemenn- inganna finnst gjarnt væri í skarðinu við Hrafntinnusker. Hefði hnausþykk þoka orðið til þess að hann og félagi hans, Kristinn Stefánsson, villtust. „Við vorum að koma úr skálanum [í Hrafntinnuskeri] að morgni sunnudags og vorum búnir að átta okkur á því að við værum villtir. Það átti ekki að vera nema í mesta lagi 45 mínútna gangur að bílnum,“ sagði Pétur Öm, en jeppanum höfðu þeir lagt um 2-3 km frá skálanum í Hrafntinnuskeri. Hann sagði að þeir félagar hefðu verið með áttavita en ekki GPS-staðsetningartæki og bætti við að það hefði verið það sem þá í raun vantaði. Þegar þyrla Landhelgisgæslunnar fann mennina vora þeir komnir á ról og voru komnir inn á stikaða gönguleið áleiðis til Landmanna- lauga í blíðskaparveðri. „Við áttum eftir um klukkustundargang inn í Landmannalaugar og höfðum þá verið á ferðinni í um tvo tíma,“ sagði Pétur Örn. Þeir Pétur Öm og Kristinn höfðu hringt í eig- inkonur sínar á laugardaginn og sagst vera á leið í Hrafntinnusker og ætluðu næst að láta vita af sér morguninn eftir. Þegar það brást reyndu eiginkonur þeirra og ættingjar að hafa samband við þá í bílasíma þeirra með reglulegu millibili fram eftir degi en árangurslaust. Var þá haft samband við Landmannalaugar og þaðan var hringt í Lögregluna á Hvolsvelli þaðan sem eftirgrennslan hófst fyrst. Um klukkan 22 á sunnudagskvöld var leit síðan hafin, sem lauk seinnihluta dags í gær. Fjölskyldum þeirra Péturs Arnar og Kristins varð ekki svefnsamt aðfaranótt mánudags er þær biðu í óvissu um afdrif þeirra félaga en nutu mikils stuðnings lögregluþjóns úr Reykjavíkur- lögreglunni sem dvaldi hjá þeim í gær og studdi fjölskyldurnar þar sem þær höfðu komið saman heima hjá Pétri Erni. Að sögn móður Péturs Arnar hafði lögregluþjónninn mjög róandi áhrif á ættingjana og skráði niður allar vísbendingar sem komið gætu að gagni við leitina og veitti þeim upplýsingar um gang mála í leitinni. Jeppabifreið þeirra félaga er ennþá við Hrafntinnusker og hennar verður vitjað síðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.