Morgunblaðið - 21.09.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999 35
Foreldrar veljast til starfa í barnabekkjum
B ekkj ar sy stkin
verða sterkur hópur
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Nemendur í Grunnskóla Flateyrar styrkja hér andann með því að
kynna sér þorramatinn.
Hver er þáttur foreldra
í að vinna gegn fordóm-
um og að efla umburð-
arlyndi hjá skólabörn-
um? Hvers vegna ætti
einhver að vilja vera
bekkjarfulltrúi?
„ÉG VIL gjarnan vera bekkjar-
fulltrúi," sagði foreldri barns á
fundi með kennara og foreldrum í
bekk þess. Setningin heyrist
sjaldan en í ljós kom að ísinn var
brotinn og fleiri vildu vera með.
Gildi bekkjarfulltrúans er meira
en í fyrstu virðist; hann hlúir að
sambandi foreldra, bekkjarsystk-
ina og kennara á áhrifaríkan hátt
og vinnur að því að efla (liðs)and-
ann í bekknum.
Bekkjarfulltrúar veljast oftast
til starfa núna í lok september og
eru flestir foreldrar vanir að skor-
ast undan starfinu, telja sig -ekki
hafa tíma til að sinna starfi í
bekkjum barna sinna. íslensk
hefð er fyrir því að foreldrar eldri
barna verða sérlega latir í skóla-
starfínu, og samvinna foreldra við
bekkinn rofnar um leið og líf
barnanna verður flóknara. For-
eldrarnir hverfa úr starfinu og
sjón þeirra á bömin dofnar.
Bekkjarfulltrúar geta styrkt
traustið milli bekkjarsystkina og
foreldra þeirra. Afleiðingin er að
auðveldara er að glíma við
vandamál sem hætta er á að upp
komi í hverjum bekk eins og ein-
elti og annað ofbeldi. Hlutverk
bekkjarfulltrúa er því að treysta
tryggðaböndin. Hlutverk hans er
að halda sambandinu lifandi.
Margt er t.d. unnið með því að
kynnast, vera málkunnugur öðr-
um foreldrum barna í bekknum.
Félagsráðgjafi sagði í viðtali við
Morgunblaðið að það væri mjög
mikilvægt að foreldrar bekkjar-
systkina kynntust vel í bekkjar-
starfínu, „hugsunin er að við eig-
um börnin saman. Ef eitt sparkar
í annað á ég ekki barnið sem
sparkaði og hinn barnið sem var
sparkað í, heldur eigum við þau
saman og finnum jákvæða lausn á
málinu vegna þess að ég þekki
barnið og foreldra þess vel.“ (Mbl.
17/11 98, bls. 36).
Foreldrar bekkjarsystkina búa
yfir miklum hæfileikum og geta
veitt þeim innsýn í ýmislegt sem
þau færu annars á mis við. Auður-
inn er mikill og gjafirnar geta
verið margar (og þurfa ekki að
leiða til neinna útgjalda). Það
kostar ekkert að fara í hjólaferð
eða á skauta á tjörnina, félagsvist
eða að halda bekkjarkvöld, aðeins
frumkvæði, og lítið að hittast á
kaffihúsi einu sinni á önn. Á hinn
bóginn eflir það samstöðuna,
skapar öryggi og leiðir til víðsýni.
Getur a.m.k. komið í veg fyrir
misskilning.
Meginmarkmið nýrrar
aðalnámskrár er að gera börnin
að góðu fólki, efla með þeim um-
burðarlyndi og að hjálpa þeim til
að glíma við fordóma sína. Ef til
vill hafa foreldrar eitthvað að
mörkum að leggja í þessu efni?
Áhugi og forvarnir
Hvað er bekkur í grunnskóla?
Hann er hópur barna og umsjón-
arkennari og það sem gerist í
hópnum hefur djúp áhrif. Börnin
eru á mótunarárum sínum og
þurfa að rækta samskiptin milli
sín og anriarra, og foreldrar barn-
anna, sem standa næstir þessu
hópi, geta lagt sitt lóð á vogar-
skálarnar til að það heppnist. Það
er ekki skylda og ábyrgðin er ef
til vill óljós en líf barnanna verður
að öllum líkindum bærilegra ef
foreldrar eru með á nótunum og
það getur komið í veg fyrir þján-
ingu einstakra barna því í barna-
hópum getur grimmdin náð yfir-
tökum (e.t.v. sökum þekkingar-
skorts á afleiðingunum).
Áhersla er á foreldrastarfið í
nýrri aðalnámskrá grunnskóla (í
almennum hluta bls. 44-47); „ ...
á samstarf í einstökum bekkjar-
deildum eða samkennsluhópum
og árgöngum bæði um nám, vel-
ferð nemenda, bekkjaranda og
meginviðmiðanir í uppeldisstarfi
skólans." „Reynslan sýnir að
öflugt foreldrastarf og sterk sam-
staða um grundvallarviðmið er
besta forvörnin gegn hvers kyns
vá, t.d. fíkniefnum."
Markmiðin eru göfug í
aðalnámskránni og hugtökin
mörg, eins og sjálfsmynd, virðing,
umburðarlyndj, háttvísi,
sjálfsagi ... Á hinn bóginn nást
þau ekki alveg nema foreldrar
gefi, af fúsum og frjálsum vilja,
börnunum eitthvað af. sér. Hafi
áhuga og góðan vilja.
Gögn handa fulltrúanum
Vel heppnað starf foreldra ger-
ir bekkinn sterkari. Starfið þarf
ekki að vera mikið, aðeins eitt-
hvað sem hefur gildi, eitthvað á
hverri önn. Umhyggja er starf
bekkjarfulltrúans. Foreldrafélög-
in í skólunum hjálpa honum iðu-
lega með hugmyndir og einnig
hafa landssamtökin Heimili og
skóli safnað upplýsingum handa
bekkjarfulltrúum og útbúið möpp-
ur undir nafnir Foreldrabankinn
og einnig opnað heimasíðuna
www.heimskol.is sem geymir
gagnlegar upplýsingar.
Foreldrastarfið í bekkjum
styrkir hópinn og börnin verða
öruggari.
skólar/námskeið
myndmennt
■ MYND-MÁL myndlistaskóli
Málun, teiknun. Undirstöðuatriði og
tækni. Bytjendur og framhaldsfólk.
Upplýsingar og innritun kl. 15—21 alla
daga. Símar 561 1525 og 898 3536.
Rúna Gísladóttir, listmálari.
nudd
■ www.nudd.is
tungumál j
■ FULLORÐINSFRÆÐSLAN
SCHOOL OF ICELANDIC,
GERÐUBERGI 1, R.
Síðdegis- og kvöldnámskeið hefjast 20.
sept. í ensku, spænsku, frönsku, sænsku,
þýsku. Morgun- og kvöldnámsk. í
íslensku fyrir útlendinga. Sími 557 1155.
a
Lagerlausnir
Bjóðum allar
tegundir lagerlausna.
Lagerlausn frá Ofnasmiðjunni
er góð fjárfesting til framtíðar.
CONSTRUCTOR GROUP
GLOBAL STORAGE SOLUTIONS
| ^Ofnasmiðjan
Háteigsvegi 7 105 Reykjavík Sími 511 1100
Viðbótargisting á
30. janúar og 6. febrúar
.rá kr. 54.955
Kanaríeyjaferðir Heimsferða hafa
fengið frábærar undirtektir í vetur
og nú þegar er uppselt á marga vin-
sælustu gististaðina. Við höfum nú
tryggt okkur viðbótargistingu á
hreint frábærum kjörum í 2 ferðir í vetur, hinn 30. janúar og 6.
febrúar og bjóðum nú 15 viðbótareiningar á hinum vinsælu
gististöðum, Paraiso Maspalomas og Tanife á einstöku verði. Þú
getur valið um 2, 3 eða fleiri vikur og að sjálfsögðu nýtur þú
traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann.
, Aðeíns 15
íbúðir á þessu
frábæra verði
Verð kr.
54.955
M.v. hjón með 2 böm, 2-14 ára,
6. febrúar, 2 vikur, Tanife og Paraiso
Maspalomas.
Verð kr.
69.990
M.v. 2 í íbúð, Tanife og Paraiso
Maspalomas, 6. febrúar, 2 vikur.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is
Enski boltinn á Netinu ýS) mbl.is
ALL7y\/= G/TTH\4\£} A/ÝT7—
Alfa 156 2.0 T.S BMW 320i Audi A4 Turbo M-Benz C200
Loftpúðar 4 6 4 4
ABS hemlar Já Já Já Já
Vél / hestöfl 2.0 16v /155 hö 2.0 12v /150 hö 1.8 20V/150 hö 2.0 16v /136 hö
4 diskahemlar Já Já Já Já
Stærð LxB 4.43x1.75 4.47 x 1.73 4.48x1.73 4.52 x 1.72
0-100 km/klst 8.3 sek. 9.9 sek. 8.5 sek. 11.0 sek.
Geislaspilari Já Nei Nei Nei
Verð í Bretlandi 2.384.000 2.596.000 2.572.000 2.624.000
Verð á íslandi 2.180.000 3.150.000 2.620.000 3.165.000
ALFA ROMEO 156
“Nýr konungur f milliklassa” (Autocar 1.98) Þessi margverðlaunaði og frábæri bfll hefur fengið
frábærar vlðtökur f Evrópu og á íslandl. Elgum nú nokkra bfla tll afgrelðslu strax.
1.6 lítra 16 ventla vélln skilar heilum 120 hestöflum og kostar aðeins 1.790.000.
Opið á laugardögum kl 13-17
Istraktor 20
BlLAR FYRIR ALLA
SMTðTb1iT2 garðabæ sImi 5 4 0 0 Tö*0