Morgunblaðið - 21.09.1999, Blaðsíða 58
'58 ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Pað var fyrir tve/mur
og hálfum klukkutíma!
j Hann sagði henni að
hann kœmí be/nt upp
eftir seinni fréttirr'
Ætti ég að vekja hann?
EG6ÉTEKKIGERT
UPP A MILLIBUXNM
EÐAPILS SEM
EINKENNIS-
BUNINSS
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Simi 569 1100 • Simbréf 569 1329
Stillum
okkur saman
Frá Ásgerði Halldórsdóttur:
SAMVINNUVERKEFNIÐ „Still-
um okkur saman“ verður á Sel-
tjarnamesi dagana 18.-26. septem-
ber þar verður kynnt vímuvamará-
ætlun Seltjam-
arnesbæjar.
Félagsmála-
ráð stofnaði
haustið 1995
samráðshóp um
áfengis- og fíkni-
efnamál. T0-
gangur hópsins
var að auka sam-
vinnu og sam-
ræma forvamar-
starf þeirra aðila á Seltjarnamesi
sem vinna með bömum og ungling-
um. Samráðshópinn skipa aðilar
sem starfa á vegum bæjarfélagsins
að málefnum barna og unglinga og
að auki fulltrúar frá skólunum,
Iþróttafélaginu Gróttu, kirkjunni,
heilsugæslu og lögreglunni svo ein-
hverjir séu nefndir.
Fyrsta verk hópsins var að kynna
sér foreldraröltið í Arbæjarhverfi.
Eftir að fulltrúar þaðan ásamt lög-
reglu höfðu farið í gegnum kosti
þess að hafa foreldrarölt ákvað hóp-
urinn að halda kynningarfund með
foreldrum nemenda í Valhúsaskóla.
A þessum fundi var kynnt hvemig
útfærslan á foreldraröltinu væri í
Arbæ. Yfir hundrað manns sóttu
fundinn og þar var ákveðið að fara
út í foreldrarölt á nesinu. For-
eldraröltið hefur nú verið starfrækt
undanfama vetur og hefur foreldra-
félagið í Való í samvinnu við æsku-
lýðsfulltrúa séð um framkvæmd
þess.
Veturinn 1997 lagði hópurinn til
að ráðinn yrði forvamarfulltrúi á fé-'
lagsmálaskrifstofu sem hefði yfir-
umsjón með forvamarfræðslu á
nesinu. Sigrún Magnúsdóttir for-
varnarfulltrúi var ráðinn í fram-
haldi af tillögu hópsins og geta Selt-
imingar leitað til hennar um ráð-
leggingar og meðferðarúrræði varð-
andi áfengis- og fíkniefnavandamál.
Þar sem hópurinn vinnur að fyr-
irbyggjandi þáttum fannst honum
rétt að beita sér fyrir því að ráðinn
yrði til Valhúsaskóla námsráðgjafi,
sem myndi fylgjst með þróun hvers
og eins nemenda í samvinnu við
bekkjarkennara. Með þessu vildi
hópurinn að hægt yrði að grípa inn í
hjá þeim nemendum sem hefðu
stundað nám sitt en væru nú algjör-
lega orðnir áhugalausir. Þannig
væri hægt á fyrstu stigum að grípa
inn í með samvinnu skóla og for-
eldra. Vitað er að námsáhugi dalar
og hverfur um leið og börn era farin
að fikta eða neyta fíkniefna.
Samráðshópurinn hefur hist 3-4
sinnum á ári, endurnýjun verður í
hópnum á hverju ári eins og geng-
ur. Aðilar hafa náð að kynnast og
nú starfar hópurinn að því að við-
halda samvinnu og samræmingu í
áfengis- og fíkniefnavörnum.
Nesbúar takið virkan þátt í dag-
skrá vikunnar. Með kveðju fyrir
hönd samráðshópsins.
ÁSGERÐUR HALLDÓRSDÓTTIR,
viðskiptafræðingur.
Er þetta skoðun
þjóðkirkjunnar?
Frá Ragnari Ragnarssyni:
TILEFNI þessara skrifa er grein sr.
Ragnars Fjalars Lárassonar í Morg-
unblaðinu 14. sept sl. þar sem kenni-
maðurinn sá sig knúinn til að tjá sig
um grein Ólafs Þ. Stephensen úr
Lesbók Morgunblaðsins 4. þ.m.
Mig setur hljóðan. Ef eitthvað er
að marka orð kennimannsins er stór
hluti þjóðai-innar sem sagt brenglað-
ur og haldinn sjúkdómi sem viðkom-
andi getur ekki ráðið við. Svo þetta
er sú virðing sem þjónar kirkjunnar
bera fyrir okkur, sóknarbömum sín-
um. Þetta er þá álit sálusorgara okk-
ar á meðbræðrum og -systrum sín-
um. Hér verð ég að spyrja: Er þetta
einnig skoðun þjóðkirkjunnar sjálfr-
ar? Eftir margra ára mjög ánægju-
legt og gefandi starf með kirkjunnar
mönnum var stungan þessi sár og
djúp. Það var síst af öllu úr þessari
átt sem ég vænti rýtings í bakið, en
enginn veit sína ævina fyrr en öll er.
Er presturinn búinn að gleyma
upphafi Jóhannesar guðspjalls: „I
upphafi var orðið, og orðið var hjá
Guði, og orðið var Guð; það var í
upphafi hjá Guði. Allir hlutir eru
gjörðir fyrir það, og án þess varð
ekkert líf, sem til er orðið. I því var
líf, og lífið var Ijós mannanna; og
ijósið skín í myrkrinu, og myrkrið
hefir ekki tekið á móti því.“ Já, varp-
ar ekki Jóhannes einmitt einna bestu
ljósi á okkur mennina með þessum
orðum. Orðið kom nefnilega frá Guði
og við skulum ekki gleyma því að a 11-
ir hlutir eru gjörðii- fyrir það og án
þess varð alls ekkert. Og ekki síst.
Myrkrið hefur ekki og getur aldrei
tekið við ljósinu. Hví talar kennimað-
urinn þá um sjúkdóm. Hvaða hroða-
lega sjúkdómi eru þá svartir haldn-
ir? Og hvað svo með örvhenta?
Hvaða hræðilega sjúkdóm hafa þeir
hlotið í vöggugjöf? Er þetta brengl-
un sem viðkomandi getur ekki ráðið
við? Mikið lifandis ósköp á blessaður
maðurinn enn mikið eftir ólært.
Að þessu sögðu beini ég orðum
mínum beint til Sr. Ragnars Fjalars
Lárussonar.
Sr. Ragnar Fjalar. Kristin trú hef-
ur verð stoð mín og stytta um ævina.
Við trú mína segi ég aldrei skilið,
hvað sem raular og tautar. Það er
hins vegar með miklum söknuði að
ég segi skilið við kirkjuna mína.
Kirkjuna sem ég er skírður inn í og
hefi hlotið vígslur í síðan. Þér er það
að þakka að ég sé nú ljósið og segi
mig úr þjóðkirkjunni.
RAGNAR RAGNARSSON,
framkvæmdastjóri Samtakanna ‘78.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda biaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.