Morgunblaðið - 21.09.1999, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999 69
sufaJ i?&;
- EINA BlÓIÐ MEÐ
i, KRINGLUf
FYRIR
990 PUNKTA!—:------. e . . eoo „„„„
FERDU i BÍÓ Kringlunm 4-6, simi 588 0800
THX DIGITALI t
ÖLLUM SÖLUM
30^0
CEIUISb *** DV
KIOMAN ,
KUBRICK *** mbl
EYES WIDE SHIIT
Loksins, loksins er
biöin á enda.
Umtalaöasta mynd
siðari ára er komin
www.samfllm.is
FYRIR
990 PUHKTA
FERÐU i BÍÓ
Snorrabraut 37, simi 551 1384
Loksins. loksins
er biöin á enda.
Umtalaðasta
mynd síðari ára
er komin
Sýnd kl. 5, 8 og 11.
i. 16 ára.
KVIKMYNDAHATIÐ 1999
Kl. 5, 9 og 11. b.í. 12 Kl. 6.50. b.í.16.
www.samfilm.is
Sýnd kl. 9 og 11.
B. i. 16
Gíraffakoss
ÁTJÁN mánaða gíraffakálfur
kyssir hér umsjónarmann sinn
þegar hann er leiddur í ný heim-
kynni í Taronga dýragarðinum í
Sydney í Ástralíu. Kálfurinn, sem
er kvenkyns, var fluttur úr
Western Plains dýragarðinum í
Ástraliu, 400 km vestur af Sydn-
ey í því skyni að taka þátt í að-
gerðum sem eiga að stuðla að
fjölgun gíraffa í dýragarðinum í
framtíðinni.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Haust-
tónleikar
Harðar
Torfasonar
HÖRÐUR Torfason hélt sína
árlegu hausttónleika 1 Islensku
óperunni á föstudagskvöldið.
Undanfarin 23 ár hefur hann
haldið tónleika að hausti og
falla þeir iðulega vel í kramið
hjá fólki og eflaust margir sem
bíða spenntir haustsins ár
hvert. Hörður er menntaður
leikari og leikstjóri og ber öll
sviðsframkoma hans þess
merki. Sviðið í Óperunni var
smekklega útfært á föstudags-
kvöld og skapaði glæsilega
umgjörð um tónleikana. Hörð-
ur er þekktur fyrir að koma
víða við í lögum sínum og láta
sér ekkert mannlegt óviðkom-
andi og snertir áheyrendur
auðveldlega með tónlistar-
flutningi sínum. Hausttónleik-
arnir voru að þessu sinni, sem
ávallt, velheppnaðir og var
Herði ákaft klappað lof í lófa
að þeim loknum.
Hörður Torfa söng og spilaði
berfættur á tónleikum
sfnum á föstudag.
Orðabækurnar
Eiturörvar milli
Ensk-íslensk & íslensk-ensk vasabrot svört ...................... 1.390 kr.
Ensk-íslensk & íslensk-ensk gul...................................1.890 kr.
Ensk-íslensk (34.000 uppflettiorð) rauð..........................2.190 kr.
Oasis og Blur
BRESKU sveitirnar Oasis og Bl-
ur hafa lengi eldað grátt silfur
saman og þurfti ekki að koma á
óvart þegar Damon Albarn lét
miður skemmtileg ummæli falla
um keppinauta sína í nýjasta blaði
NME. „Mér fannst það synd þeg-
ar myndir af þeim fóra að birtast i
tímaritunum Hello og OK!. Fyrir
mér voru það skelfileg svik við allt
sem þeir stóðu fyrir,“ segir Al-
barn. „Ég skal ekki segja hvert
þeir halda úr þessu. Það kemur
mér ekki við. En mér finnst það
bara ekki mjög gæfulegt að vera í
tímaritinu OK!.“ Þrátt fyrir að að-
aldeilurnar á milli sveitanna hafi
átt sér stað fyrir fimm áram fljúga
eiturörvamar enn á milli þeirra.
Þegar „Beinakollurinn11 sagði skil-
ið við Oasis nýverið lét Noel
Gallagher hafa eftir sér: „Mér
mislíkar ekki svo glatt við fólk.
Fyrir utan aulann í Blur. Hann lít-
ur út eins og ruslakarl þessa dag-
ana, en gangi honum vel.“
Islensk-ensk (35.000 uppflettiorð) rauð......................2.190 kr.
Ensk-íslensk & íslensk-ensk rauðar tilboð ................... 3.990 kr.
Ensk-íslensk & íslensk-ensk rauðar í gjafaöskju .............4.590 kr.
Sænsk-íslensk & íslensk-sænsk gul............................2.400 kr.
Dönsk-íslensk & íslensk-dönsk gul ........................... 2.400 kr.
Ítölsk-íslensk & íslensk-ítölsk gul.......................... 3.600 kr.
Frönsk-íslensk & íslensk-frönsk gul 1996 útgáfa..............2.990 kr.
Spænsk-íslensk & íslensk-spænsk gul ......................... 1.790 kr.
Þýsk-íslensk & íslensk-þýsk gul 1997 útgáfa.................. 2.990 kr.
Ódýrar og góðar orðabækur fyrir skóla, skrifstofur og ferðalög
Fást hjá öllum bóksölum