Morgunblaðið - 21.09.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999 29
ERLENT
Reuters
Bill Bradley
neytti maríjúana
Washington. Daily Telegraph.
BILL Bradley, sem keppir um það
við AI Gore, varaforseta Bandaríkj-
anna, að verða útnefndur forseta-
frambjóðandi Demókrataflokksins í
kosningunum á næsta ári, viður-
kenndi um helgina, að hann hefði
reykt maríjúana.
Bradley sagði í sjónvarpsviðtali á
sunnudag, að hann hefði reykt
kannabisefni en ekki nýlega. Var þá
vexið að leita álits hans á George
Bush ríkisstjóra, sem er langlíkleg-
astur til að verða frambjóðandi
repúblikana, en hann neitar að
svara því hvort hann hafi neytt
kókaíns.
Bradley var spurður hvort hann
teldi, að frambjóðendur ættu að
svara er þeir væru spurðir hvort
þeir hefðu neytt fíkniefna, til dæm-
is kókaíns. Svaraði hann því játandi
og kvaðst
sjálfur hafa
neytt maríjú-
ana nokkrum
sinnum. Gaf
hann í skyn,
að það hefði
hann gert
ungur maður.
Kosninga-
sérfræðingar
repúblikana
telja nú, að
Bradley gæti
orðið Bush
erfiðari andstæðingur í forseta-
kosningunum en Gore. Enn sem
komið nýtur Gore þó meira fylgis
meðal demókrata en Bradley en í
skoðanakönnunum dregur sífellt
saman með þeim.
Bill Bradley
Frelsisher Kosovo verður
borgaraleg öryggissamtök
'istina. Reuters, AFP.
Skýjareið
HESTVÖRÐUR hollenska hers-
ins var við æfíngar í gær en í dag
tekur hann þátt í athöfn í tengsl-
um við kynningu á fjárlögum hol-
Ienska ríkisins. Ætla mætti, að
hér væri riðið skýjum ofar en svo
er þó ekki. Það er nefnilega mik-
ilvægur þáttur í þjálfun hross-
anna að venja þau við eld og
eimyrju og til þess eru meðal
annars notaðar reyksprengjur.
Heiðursvörður á hesti má ekki
eiga það á hættu, að hrossin
fælist skyndilega.
---♦♦♦---
Koivisto
vill ekki
í NATO
BÚIST var við því í gær, að sam-
komulag yrði undimtað á hverri
stundu milli Friðargæsluliðs Atl-
antshafsbandalagsins (NATO) og
Frelsishers Kosovo (UCK) um
ft’amtíðarhlutverk Frelsishersins.
Samkvæmt því verður hann ein-
göngu borgai-aleg öryggissamtök.
Fyrr í gær hafði hvorki gengið né
rekið í samningaviðræðum við
UCK og þá fékk hann tveggja sól-
arhi-inga frest til að afvopnast.
Jafnframt var hann varaðaur við,
að hann væi-i að tefla stöðugleika í
héraðinu í tvísýnu með því að þrá-
ast við að fallast á skilmála NATO.
Wesley Clark, yfirmaður hei-afla
NATO, fór til Pristina í gær til að
í-eyna að þrýsta á Frelsisherinn um
að halda sig við fyrri samþykktir og
er það til marks um hve alvai-legum
augum NATO leit málið.
Samkvæmt samkomulagi NATO
og UCK sem undh-ritað var í júní
sl. féllst UCK á að afhenda öll vopn
sín og leggja formlegar hersveitir
sínar niður á miðnætti sl. sunnu-
dag. Michael Jackson, yfirmaður
friðai-gæsluliðsins, varaði forystu
UCK við því í gær að ef ekki yrði
komist að samkomulagi eins fljótt
og auðið er gæti það stofnað stöð-
ugleika í héraðinu í tvísýnu, sem og
forystu UCK sjálfri.
UCK heyri sögunni til
Leiðtogar NATO og UCK höfðu,
fyi-h- helgina lýst því yfir að Frels-
isherinn myndi heyra sögunni til
frá og með sunnudeginum, en ekk-
ert hefur enn verið upplýst um hver
hlutur liðsmanna UCK verður inn-
an hins borgai-alega lögregluliðs,
sem í eiga að vera alls 10.000 menn.
Embættismenn NATO ei-u taldh-
vilja að fyrrum liðsmenn UCK í lið-
inu, sem fái að bera vopn, verði
ekki fleiri en 200 en Ijóst er að for-
ysta UCK vilji sjá mun fleh-i og hef-
ur ekki farið dult með þá skoðun
sína að hún vill stofna sjálfstætt
í-íki með eigin her. Hafa leiðtogar
Frelsishersins ekki viljað hverfa
frá kröfu sinni um að löggæsluliðið
myndi kjarnann að framtíðarher-
sveitum héraðsins.
Östöðvandi alnæmisfár í Afríku
Er að eyðileggja sum samfélög
en leiðtogarnir loka augunum
Hclsinki. Morgunblaðið.
MAUNO Koivisto, fyrrverandi for-
seti Finnlands, segist ekki skilja
hvers vegna um það sé rætt í al-
vöx-u, að Finnar sæki um aðild að
Atlantshafsbandalaginu, NATO.
Hélt hann því fram í viðtali við
finnska ríkissjónvarpið, að smáríki
eins og Danmörk og Noregur hefðu
engin áhrif í bandalaginu.
Reiðastur er Koivisto NATO fyr-
ir loftárásirnar á Júgóslavíu, sem
hann kallar mistök enda hafi þær
strítt gegn öllum alþjóðalögum. Þá
kom einnig fram hjá honum, að
hann teldi Slobodan Milosevic, for-
seta Júgóslavíu, vera mjög hæfan
mann.
Koivisto sagði, að ástæðan fyrir
því, að hann beitti sér fyrir aðild
Finnlands að Evrópusambandinu,
hefði verið öryggishagsmunir
landsins en síður efnahagslegir
hagsmunir. Sagði hann sambandið
þurfa að huga betur að öryggismál-
unum en það hefði gert.
Lusaka. Reuters.
EKKERT virðist geta stöðvað al-
næmisfaraldurinn í Afi-íku enda láta
flestir leiðtogar ríkjanna í hinni
svörtu álfu sem þeir viti ekki af hon-
um. Kom þetta fram á stórri alnæm-
isráðstefnu, sem haldin var í Lusaka
í Zambíu og lauk um helgina.
A 11. ráðstefnunni um alnæmi og
kynsjúkdóma, ICASA, voi-u nefnd-
ar ýmsar ástæður fyrir því hve
ástandið í Afríku er skelfilegt. Ein
af þeim er áhugaleysi stjói-nvalda í
álfunni, önnur ónóg, alþjóðleg að-
stoð og sú þriðja og ekki sú sísta er
mikið og útbreitt skeytingarleysi
meðal almennings. Þótt sjúkdómur-
inn fari hamföi-um og leggi æ fleir í
valinn, hefur lítil sem engin breyt-
ing orðið á kynhegðun fólks.
Mikil óöld og átök hafa lengi
hrjáð Afríku en það vill gleymast,
að alnæmið er margfalt stórvirkara
en byssukúlurnar og sprengjurnar.
Talið er, að styrjaldarátök hafi
kostað 200.000 Afríkubúa lífið á síð-
asta ári en þá féllu fyrir alnæminu
og sjúkdómum, sem því fylgja,
tvær milljónir manna. I möi-gum
x-íkjanna hefur sjúkdómurinn
kvistað niður hina menntuðu milli-
stétt, lækna, verkfræðinga, lög-
fræðinga og kennara, og á lands-
byggðinni dregst matvælafram-
leiðslan saman eftir því sem fleiri
bændur falla í valinn. í þessum
ríkjum er ekki um að ræða neinar
framfarir, heldur afturför á öllum
sviðum.
Veislan hjá Gaddafi
skemmtilegri
Þegar boðað var og boðið til ráð-
stefnunnar í Lusaka kom í Ijós, að
leiðtogar Afríkuríkjanna voru upp-
teknir og höfðu öðrum hnöppum að
hneppa. Þurftu margir þeirra að
sitja veislu hjá Muammar Gaddafi
Líbýuleiðtoga.
Fulltrúar alþjóðlegra hjálpar-
og fjármálastofnana á ráðstefn-
unni sögðu, að reyndu leiðtogar
Afríkuríkjanna að loka augunum
fyrir alnæminu, myndi það leiða til
þess, að þeir hefðu yfir æ færra
fólki að segja auk þess sem efna-
hagslegar framfarir heyrðu sög-
unni til.
Áætlað er, að alnæmið hafi deytt
11 milljónir manna í Afríku og 22
milljónir að minnsta kosti eru smit-
aðar. Arið 2005 mun alnæmið eitt
gleypa meira en helming alls kostn-
aðar við heilbrigðiskerfið í Kenía og
tvo þriðju af útgjöldunum í
Zimbabwe. I Zambíu eru nú 20%
allra karlmanna á aldrinum 19 til 49
ára sýkt eða komin með full alnæm-
iseinkenni.
SAVEfi
Hægt að
leggja saman
Mikið úrval göngu- og hlaupabrauta ásamt mesta úrvali landsins
af allskyns þrek- og æfingatækjum. Aðeins topp-merki.
WESLO
CADENCE 935EX
Rafdrifin göngu- og hlaupabraut
Hraði 0-13 km/klst.
Fjaðrandi bretti sem minnkar álag á liðamót.
Einfaldur hæðarstillir, vandaðurtölvumælir,
statíf fyrir vatnsbrúsa og handklæði.
Hægt að leggja saman og því hentug
fyrir heimili og vinnustaði.
Stgr. 108.370,
kr. 114.073.
Stærð: L 144 x br. 70 x h. 133 cm.
RAÐGREfDSLUR
ÖD
EUROCARD
raðgrciöslur
ÖRNINNP'
STOFNAÐ1925
- ÞREKTÆKJADEILD -
Skeifan 11, sími 588 9890