Morgunblaðið - 21.09.1999, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
Frá vigslumessunni i Langholiskirkju.
Tvö orgel
vígð
NÝ ORGEL voru vígð í Lang-
holtskirkju og Neskirkju á
sunnudag. Vígslumessa var í
Langholtskirkju klukkan 11 og
vígslutónleikar klukkan 16:30,
þar sem bandaríski organleikar-
inn Peter Sykes lék. Hátíðar-
messa hófst í Neskirkju klukkan
16 og kl. 20:30 voru hátíðartón-
leikar, þar sem sænski orgelleik-
arinn Anders Bondeman lék á
nýja orgelið.
I Neskirkju leikur Lenka
Mátéová, organisti í Fella- og
Hólakirkju, á nýja orgelið klukk-
an 18 í dag. Og í Langholtskirkju
verður dagskráin í dag þessi:
Kl. 12-12.30 - Opið hús - Há-
degistónleikar: Árni Arinbjarnar-
son, organisti Grensáskirkju. KI.
20 - Kór/orgeltónleikar: Kór og
Gradualekór Langholtskirkju,
stjórnandi Jón Stefánsson, organ-
leikari Kári Þormar - Frumflutt
verkin: Laudate Dominum eftir
Oliver Kentish (Davíðssálmur 150
- 1993/8) fyrir barnakór og orgel
Davíðssálmur 100. „Öll veröldin
fagni fyrir Drottni!" eftir
Tryggva Baldvinsson fyrir Gra-
dualekór Langholtskirkju og org-
el „Eg vil vegsama Drottin" eftir
Árna Harðarson (1997) a capella
fyrir Kór - og Gradualekór Lang-
holtskirkju „Dies Irae“ eftir Árna
Egilsson (endurskoðað í feb. ‘99)
fyrir kór og orgel.
■ Umsagnir/31
Frá hátíðarmessunni í Neskirkju.
Forstjóri Kaupþings um viðræður hóps íslenskra fjárfesta við enska knattspyrnufélagið Stoke
Líklegra en ekki
að af kaupum verði
Forstjóri Stoke segir viðræður standa yfír við tvo aðila -
skuldir félagsins tæplega hálfur milljarður
HÓPUR íslenskra fjárfesta hefur
staðið í viðræðum við forráðamenn
enska knattspymuliðsins Stoke City,
sem nú leikur í annarri deild, um að
kaupa ráðandi hlut í félaginu og sagði
Sigurður Einarsson, forstjóri Kaup-
þings, í gærkvöldi að hann teldi lík-
legra en ekki að af kaupunum yrði.
Búist er við að skýrast muni á mið-
vikudag hvort áf kaupum verði. í
stuttri írétt á netmiðlinum Team
Talk kemur fram að Stoke City hafi
staðfest að eiga í viðræðum við tvo
aðila um kaup á knattspymufélaginu.
„Við eigum nú í viðræðum við tvo
aðila, sem sýnt hafa áhuga, en viljum
ekki segja meira þar sem það gæti
stefnt viðræðunum í hættu,“ var haft
eftir Jez Moxey, forstjóra Stoke, í
Team Talk.
Sigurður sagði að ekki væri orðið
ljóst hvenær hópurinn legði fram til-
boð, en staðfesti að fulltrúi frá Kaup-
þingi hefði farið til Stoke um helgina
ásamt fulltrúa hópsins, sem vill fjár-
festa í knattspymufélaginu. Fulltrú-
ar Kaupþings hefðu verið töluvert í
Englandi „vegna þessa og svipaðra
mála“ og hefði sá kostur, að semja
við Stoke, komið upp fyrir nokkrum
mánuðum.
Sigurður neitaði því ekki að ís-
lenski hópurinn hefði ákveðinn frest
til að leggja fram tilboð án þess að
rætt yrði við aðra og gæti farið svo
að hann yrði framlengdur. Hann
sagði að ákveðið hefði verið að segja
ekkert um nöfn eða upphæðir að svo
stöddu.
Stuðningsmenn sagðir vilja
kaupa hlut
Stuðningsmenn Stoke eru nú að
reyna að safna saman fé til að kaupa
hlut í félaginu samkvæmt heimildum,
en ekki er ljóst hvaða stöðu þeir
munu hafa.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins leiðir Kaupþing viðræðumar
fyrir íslensku fjárfestana. Haraldur
Haraldsson, stjórnarformaður
Áburðarverksmiðjunnar, er einn
fjárfestanna og sagði hann í gær að
hann gæti staðfest að viðræður við
Stoke City stæðu yfir, en hvernig
þær gengju vissi hann ekki. Ásgeir
Sigurvinsson, tæknilegur ráðgjafi
KSI, færi alfarið með málið og myndi
koma með það fyrir stjórn hjá sér:
„Það er minn hópur, áburðarverk-
smiðjuhópurinn, sem væri þar um að
ræða, ef þetta verður úr.“
Hai-aldur kvaðst ekkert nánar hafa
fylgst með málinu: „Eg hef nóg ann-
að að gera en að láta boltann rúlla ...
Eftir því sem ég best veit verður
þetta í gangi þangað til á miðviku-
dag. Þá verð ég með stjórnarfund og
mun vita eitthvað írekai-.“
Haraldur sagði að Ásgeir hefði sitt
umboð í þessu máli: „Þetta kom á
fjörurnar hjá honum og hann leitaði
til mín um hvort ég hefði áhuga,“
sagði Haraldur. „Eg sagði að ég hefði
alltaf áhuga ef hægt væri að græða
peninga og ef það væri í heiðarlegum
og góðum rekstri væri ég alltaf til.
Eg treysti engum betur en honum.“
Ásgeir Sigurvinsson sagði að ekki
væri „tímabært að vera nokkuð að
velta sér upp úr þessu máli“ og bætti
við: „Þetta er ekki rétti tíminn til
þess. Ég get ekki staðfest eitt eða
neitt... Tíminn leiðir það í ljós hvort
það verður einhver frétt eða ekki.“
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru Elvar Aðalsteinsson,
sem var eigandi veitingastaðarins
Mirabelle, Gunnai' Andrés Jóhanns-
son, forstjóri Fóðurblöndunnar hf.,
og Þorvaldur Jónsson skipamiðlari
einnig meðal þeirra, sem hafa hug á
að leggja fé í kaup á hlut í enska
knattspyrnufélaginu. Óstaðfestar töl-
ur, sem heyrst hafa í þessu sam-
bandi, eru að það muni kosta eitthvað
á milli 600 milljóna og eins milljarðs
fyrir hópinn að fá ráðandi hlut í
Stoke City.
Guðjón Þórðarson verst sagna
í DV í gær var sagt að í áætlun
Kaupþings um kaupin sé gert ráð
fyrir þvi að Guðjón Þórðarson, þjálf-
ari íslenska karlalandsliðsins í knatt-
spymu, taki að sér þjálfun Stoke
verði af samningum. „Eg get ekkert
sagt, en það er ánægjulegt að menn
skuli hafa þann metnað að prófa eitt-
hvað þessu líkt,“ sagði Guðjón í sam-
tali við Morgunblaðið. Hann vildi
ekkert segja um þær vangaveltur að
hann yrði þjálfari liðsins ef af þessum
kaupum yrði.
Stoke City hefur verið rekið með
tapi undanfarin ár og var tapið á síð-
asta rekstrarári, sem lauk í maí, ein
milljón sterlingspunda (um 118 millj-
ónir króna). I frétt dagblaðsins The
Sentinel, sem gefið er út í Stoke,
sagði að þetta væri mikið áfall fyrir
hið skuldsetta félag og myndu heild-
arskuldir þess nú fai’a yfir fjórar
milljónir punda (rúmlega 470 milljón-
h’ ki’óna).
Félaginu hefur oft tekist að vega
upp á móti tapi með því að selja leik-
menn, en fyrir utan söluna á Lárusi
Orra Sigurðssyni, sem fór til West
Bromwich Albion fyrir 350 þúsund
pund (rúmlega 41 milljón króna), er
varla hægt að tala ufii að liðið hafi
selt leikmann fyrh’ umtalsverða upp-
hæð undanfarin tvö ár.
Fjárhagsstaða versnað eftír
fall í aðra deild
Þetta er ástæðan fyrir fjárhags-
vanda liðsins ásamt því að aðsókn að
leikjum þess hefur hrunið frá því að
það féll úr fyrstu deild í aðra fyrir 16
mánuðum. Liðið er nú í tólfta sæti
annarrar deildarinnar (sem í raun er
sú þriðja) með 11 stig eftir átta um-
ferðir og hefur unnið þrjá leiki, gert
tvö jafntefli og tapað þremur leikj-
um.
Jez Moxey greindi frá fjárhags-
stöðu félagsins þegar hann tilkynnti
söluna á Lárusi Orra fyrir helgi.
Sagði hann að búast mætti við svip-
aðri útkomu í peningamálum félags-
ins á næsta ári. Að hans sögn mun fé-
lagið heldur ekki hagnast mikið á söl-
unni á Lárusi Orra þegar til þess er
tekið að félagið hans á Islandi fær
fjórðung vegna ákvæðis í samningi
verði hann seldur áfram og þá hafi
Lárus Orri sjálfur fengið „veglega
upphæð“.
Lið Matthews, Banks og Shiltons
Ymsir þekktir leikmenn hafa leikið
með Stoke og má þar nefna Stanley
Matthews og markmennina Peter
Shilton og Gordon Banks. Liðið hefur
leikið á nýjum velli frá árinu 1997.
Völlurinn heitir Britannia og tekur
24.054 áhorfendur. Ekki liggur ljóst
fyrir hvenær félagið var stofnað. Því
heíúr lengi verið haldið fram að það
hafi verið stofnað árið 1863, en elstu
heimildir, sem fundist hafa, eru frá
árinu 1868 þegar tveir lærlingar við
Járnbrautarfélag Norður-Stafford-
skíris stofnuðu félagið Stoke
Ramblers ásamt nokkrum félögum
sínum. Stoke lék fyrsta deildarleik-
inn haustið 1888 og beið þá lægri hlut
fyrir West Bromwich Albion, 0-2.
Stærsti sigur Stoke í deildarleik var
gegn WBA árið 1937,10-3. Stoke var
síðast í efstu deild á árunum 1979 til
1985. Stærsta stund Stoke var senni-
lega þegar liðið vann deildarbikarinn
á Englandi árið 1972. Félagið náði
lengst í efstu deild tímabilið 1935 til
1936 þegar það varð í 4. sæti. Félagið
hefur þrisvar orðið meistari í
næstefstu deild, árin 1933, 1963 og
1993. Stoke hefur tvisvar komist í
Evrópukeppni félagsliða, UEFA-bik-
arínn, árín 1972 og 1974. Liðið leikur
í rauð- og hvitröndóttum treyjum,
hvítum buxum og hvitum sokkum
með rauðum þverröndum.
Lárus Orri gekk til liðs við Stoke
frá Þór á Akureyri seint á árinu 1994.
Aðrir íslendingar, sem komið hafa
við sögu hjá félaginu, eru Þorvaldur
Örlygsson og Kristján Sigurðsson,
bróðir Lárusar Orra, sem er með
samning við unglingalið Stoke.
■
Manchester 22. - 25. október
Brussel 19. - 22. nóvember
í haust bjóöum viö upp á
helgarferöir til Manchester og
Brussel á hagstæöu veröi.
Báðar þessar borgir státa af
ótrúlegri fjölbreytni í
skemmtana- og menningarlífi.
Samvinnuferðir
Landsýn
Á ve rð i fyrir þ ig !