Morgunblaðið - 21.09.1999, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.09.1999, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Rækjufarmur Erlu hefur verið auglýstur til sölu í Kanada Dugar upp í launa- kröfiir áhafnar ARMUR skipsins Erlu hefur verið auglýstur til sölu, en skipið var kyrrsett í Kanada í byrjun ágúst- mánaðar. Skipið er í eigu sömu að- ila og gerðu út Odincovu. I máli gegn eigendum skipanna fyrir Al- ríkisdómstóli Kanada var úrskurð- að að auglýst skyldi nauðungarsala á farminum með almennu útboði. Einnig stendur til að bjóða skipið sjálft upp til að borga laun sjó- manna á Odincovu en óvíst er að af því verði vegna þess að Sjóvá-Al- mennar gera kröfu um fyrsta veð- rétt í skipinu. Að sögn Gregorys F. Kirby, lög- manns Aiþjóðaflutningsverka- mannasambandsins í Kanada, er farmur Erlu um það bil 135.300 kg af frystri rækju sem nú er geymd í kæligeymslu í Argentia á Nýfundnalandi. Tilboðsfrestur er til föstudagsins 24. september nk. og skal kaupandinn greiða allt kaupverðið á skrifstofu Alríkis- dómstóls Kanada í St. John’s á Nýfundnalandi, þegar gengið hefur verið frá sölunni. Kaupandi ber ábyrgð á og kostn- að af farminum frá viðtöku kaup- verðsins og skal það vera greitt að fullu innan tíu virkra daga frá því að tilboðsgjafi hefur fengið tilboð sitt staðfest. Til greiðslu launa „Skipið var kyrrsett 6. ágúst og frá staðfestingu dómsins á kyrr- setningu hefur útgerðarmaðurinn fjögurra vikna frest til að leysa sinn vanda áður en málið fer aftur fyi-ir dómstóla. Hinn 8. september sl. fór málið þangað og þar var úr- skurðað að aflinn skyldi boðinn upp,“ segir Kirby. Hann kveðst ekki vilja leggja mat á verðmæti farmsins en takist að selja hann renni andvirðið m.a. til greiðslu launa skipverja á Erlu, sem eru fjórtán talsins, flestir Rússar. Að sögn Borgþórs Kjærnested hjá Alþjóðaflutningsverkamanna- sambandinu var stefnt að því að skipið Erla yrði boðið upp eftir að aflinn hefði verið seldur. „Það átti að bjóða skipið upp til þess að greiða laun sjómanna á Odincovu. Það verður hins vegar ekki vegna þess að Sjóvá-Almennar eiga íyrsta veðrétt í skipinu. Lögfræð- ingar þeirra hafa bent á að skipin tvö séu hvort í eigu síns íyrirtæk- isins, en staðreynd málsins er sú að sama fyrirtækið átti þau þangað til útgerðarmaður þeirra stofnaði skúffufyrirtæki sem er nú skráður eigandi Odincovu. Það getur vel verið að Sjóvá-Almennar hafi lögin með sér í þessu máli en mér finnst það vera siðlaust af þessu fyrirtæki að sjá til þess að þessir lánlausu sjómenn^ verði strandaglópar áfram á Islandi,“ segir Borgþór. Við lítum á björtu hliðarnar Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Það er mikið sungið í Hlíðabæ og ágætist píanóleikari er í hópnum sem leikur undir söngnum. ÞEGAR Hlíðabær, sem er dagvist fyrir minnissjúka, var heimsóttur var þar glatt á hjalla. Hljómsveit lék fyrir dansi og fólk fékk sér snúning. I Hlíðabæ er mjög heimilislegt og hlýlegt en húsið er gamalt, virðu- legt einbýlishús í grónu íbúðar- hverfi. I Hlíðabæ geta minnissjúkir komið og dvalið yfir daginn á rúm- helgum dögum. Að sögn Sólrúnar Einarsdóttur hjúkrunarfræðings sem þar starfar miðar starfsemin að því að viðhalda eins og hægt er þeirri færni sem einstaklingurinn hefur og skapa öryggi og vellíðan. „Að vakna til ákveðinna verkefna á hverjum degi er mikilvægt fyrir alla, það gildir líka fyrir fólkið sem kemur í Hlíðabæ," segir hún. „í Hlíðabæ er dagurinn vel skipulagður. Boðið er upp á fjöl- breytta dagskrá sem skiptist í vinnu, skemmtun og hvfld,“ segir Ingibjörg Pétursdóttir, iðjuþjálfi heimilisins. Leitast er við að koma til móts við getu og áhugasvið hvers og eins þannig að allir fái viðfangs- efni við hæfi, nýti sínar sterku hlið- ar og njóti þess að vera þátttakend- ur í starfi og leik. Þess vegna var í upphafi lögð áhersla á að meta getu einstaklinganna og kynna sér áhugamál þeirra fyrr og nú,“ segir Ingibjörg. „Það er auðvitað mjög mikilvægt að vera með raunhæfar væntingar og gefa fólki tækifæri til að upplifa eitthvað jákvætt," bætir Sólrún við. „Það hefur sýnt sig að þótt fólk muni ekki eftir því hvað það hefur verið að gera þá situr tilfinningin af jákvæðri upplifun eftir og veldur vellíðun." Viðfangsefnin í Hlíðabæ eru margs konar, allt frá lestri úr dag- blöðum til ferðalaga bæði innan- bæjar og utan. Af daglegum verk- efnum má nefna vinnu ýmiss konar á vinnustofu heimilisins, létt heimiL isstörf, bakstur og matseld. A sumrin eru þeir sem hafa áhuga á garðrækt oft afkastamiklir við að hirða garðinn. „Við höldum okkur I formi með leikfími, sundi, göngu- ferðum og dansi svo eitthvað sé nefnt,“ segir Ingibjörg. „Það er líka mikið sungið og í hópnum er ágætis píanóleikari sem spilar undir söngnum og jafnvel dansi, þá er nú oft líf í tuskunum. Ekki má gleyma ljóðahópnum þar sem ljóðaunnend- ur í Hlíðabæ lesa upp ljóð og fara með ljóð sem þeir kunna.“ Þær Sólrún og Ingibjörg leggja áherslu á að starfsemin sé einnig mikilvæg fyrir aðstandendur, þeir fái tíma til að sinna eigin þörfum og leitast sé við að veita aðstandend- um stuðning til að takast á við þau vandamál sem upp kunna að koma. „Það eru auðvitað þung örlög að fá Alzheimer-sjúkdóminn og getur verið óbærilegt fyrir bæði sjúkling- inn og aðstandendur. Þess vegna kæmi það örugglega mörgum á óvart hvað hér rfldr mikill léttleiki og gleði þrátt fyrir að líka sé verið að takast á við erfiðleika inn á milli. Okkar mottó er: Líttu á björtu hliðarnar og njóttu lífsins eins og hægt er.“ ■ Brýnt að veita/36 Morgunblaðið/Ingimar Ragnarsson Innlyksa kópur sætir færis við yfirfallið á tjörninni við Nauthólsvík. Systurnar Katrín, Bryndís og Margrét Ingimarsdætur fylgjast með ásamt móður sinni, Lori Raguarsson. Innlyksa kópur (og hópur) í Nauthólsvfk Varð frelsinu fegnastur HONUM varð greinilega ekki um sel litla kópnum sem varð inn- lyksa í nýgerðri tjörn í Nauthóls- vík á sunnudaginn var. Hafði hann synt inn í tjörnina á flóði en ekki gætt að sér og lokast þar inni þegar fjaraði út. Bryndís Ingimarsdóttir hafði farið út að hjóla kiukkan átta um morguninn og uppgötvaði selinn í tjörninni. Hún hjólaði allt hvað af tók heim til sín og lét foreldra sína vita. „Bryndís kom másandi og blásandi heim og sagði okkur frá selnum og við keyrðum öll þangað út eftir,“ segir Ingimar Ragnarsson, faðir Bryndísar, sem festi eftirvæntingarfulla bið kópsins á filmu. „Þegar við komum að vantaði aðeins tíu sentímetra upp á að kópurinn kæmist út. Og við bið- um þarna í rigningunni í heila klukkustund áður en kópurinn gat og lagði í að synda út. Hann bara beið þarna við yfirfallið og varð frelsinu fegnastur. Það fyndnasta við þetta var nú, fannst mér, að þær mæðgur biðu svo Iengi eftir því að selur- inn kæmist út að það flæddi að þeim líka! Þær voru jafnfastar og selurinn og þurftu á endanum að vaða í land,“ segir Ingimar. Stóra fíkniefnamálið Eignafærslur rannsakaðar EFNAHAGSBROTADEILD ríkis- lögreglustjóra hefur hafið rannsókn á þeim þáttum stóra fíkniefnamáls- ins er varða eignafærslur og meint efnahagsbrot þeirra manna sem handteknir hafa verið, en lögreglan í Reykjavík hafði áður rætt við embætti ríkislögreglustjóra um að- stoð í málinu. Fimm menn á þrítugsaldri sitja nú í gæsluvarðhaldi í tengslum við málið eftir að tvítugur maður var á föstudagskvöld úrskurðaður í gæsluvarðhald til 16. október. Hann var handtekinn í Reykjavík en tveir menn á þrítugsaldri, sem eru eftir- lýstir í gegnum Interpol í Evrópu vegna málsins, hafa ekki náðst enn. Þrír aðilar vinna nú að því að upplýsa málið, þ.e. lögreglan í Reykjavík, tollgæslan og efnahags- brotadeild ríkislögreglustjóra. Toll- gæslan hefur tekið aukinn þátt í rannsókn málsins. Lést í bílslysi MAÐURINN, sem lést er hann varð fyrir bifreið á Breiðholtsbraut síðastliðið föstudagskvöld, hét Matthías Jón Þorsteinsson, 56 ára, til heimilis að Yrsufelli 7 í Reykja- vík. Hann fæddist 29. október árið 1942 og lætur eftir sig tvö uppkom- in börn. Á ÞRIÐJUDÖGUM Fyrstu mínúturnar skipta höfuðmáli / B13 Hugdjarfir og hugrakkir / B2 Fylgstu með nýjustu f réttum www.mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.