Morgunblaðið - 21.09.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999 13
FRÉTTIR
Aukin hagkvæmni í
íslenskri kornrækt
Bygg er sú korntegund sem ræktuð er á
Islandi. Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins hefur þróað íslensk afbrigði, eða yrki,
af byggi sem eru harðgerð og fljótþroska.
KORNRÆKT færist í vöxt á ís-
landi og er bygg sú korntegund sem
ræktuð er hér. Mestallt byggið er
notað sem skepnufóður en þó þekk-
ist að það sé þurrkað og malað og
notað til dæmis í brauð.
Tvær gerðir byggs eru ræktaðar
hér á landi, svokallað sex raða bygg
og tveggja raða bygg. Ræktun sex
raða byggs hefur gengið vel á Norð-
urlandi en ekki eins vel á Suður- og
Vesturlandi þar sem meira er um
hvassviðri, því korn sex raða byggs-
ins getur fokið af í miklu roki.
Ræktun tveggja raða byggsins hef-
ur gengið betur á Suður- og Vestur-
landi því kornið fýkur ekki eins auð-
veldlega af því, gallinn hefur hins
vegar verið sá að það er ekki eins
fljótþroska og sex raða byggið.
Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins hefur unnið við kynbætur á
byggi og þróuð hafa verið afbrigði,
eða svokölluð yrki, af tveggja raða
bygginu sem eru bæði fljótþroska
og harðgerð og henta ís-
lenskum aðstæðum því vel.
Jónatan Hermannsson, til-
raunastjóri á Korpu, segir
að næsta vor megi búast við
því að þessi íslensku yrki
fari í almenna notkun. Með
enn frekari kynbótum megi
vænta þess að meira öryggi
verði með uppskeru og því
megi búast við sífellt meiri
hagkvæmni í innlendri
framleiðslu á byggi.
Kornrækt hefur tvöfald-
ast á þremur árum
Jónatan segir að sífellt fleiri
bændur stundi nú kornrækt
og að hún hafi tvöfaldast hér á landi
á síðustu þremur árum. Hann áætl-
ar að nú séu framleidd hér um
10-15% af því korni sem notað er til
skepnufóðurs. Hann segist vona að í
fyrirsjáanlegri framtíð verði hægt
að rækta hér á landi um helminginn
af því korni sem notað sé til fóðurs
fyrir svín og nautgripi.
Flestir bændur sem rækta kom
nota það til að fóðra sínar eigin
skepnur en þó er sala á íslensku
byggi á innanlandsmarkaði hafin að
einhverju leyti. En verð á innfluttu
Morgunblaðið/Jim Smart
Islenskur kornakur.
korni er lágt og segir Jónatan að
heimsmarkaðsverð á korni hafi
aldrei verið lægra en nú. Islenska
kornið sé selt á sama verði og á
meðan það sé svona lágt sé spurn-
ing hvort bændur treysti sér til að
framleiða kom til sölu. Hann segist
þó gera ráð fyrir því að heimsmark-
aðsverðið eigi eftir að hækka og
þegar það gerist verði hagkvæmara
að framleiða íslenskt korn.
Jónatan segir kosti þess að rækta
korn hér á landi vera tvímælalausa.
Það sé að sjálfsögðu gott að fram-
leiða og nota innlent skepnufóður
og auk þess sé gott fyrir landið
sjálft að það sé unnið upp á þennan
hátt. Þegar korn og gras sé ræktað
til skiptis á sama landskika fáist
betri uppskera og segir hann kom-
ræktunina stuðla að betri ræktun-
armenningu á Islandi þar sem hún
komi bændum til að endurvinna
túnin og rækta betra fóður.
Framkvæmdastjórn ÍSÍ segist ekki úrskurðaraðili 1 máli kylfíngs
Stjórn GSÍ hnekkí
úrskurðinum
FRAMKVÆMDASTJÓRN ÍSÍ
tók á fundi sínum um helgina fyrir
erindi lögfræðings ungs kylfings
sem áhugamennskunefnd Golfsam-
bands Islans svipti áhugamanna-
réttindum sínum í golfi í sex mán-
uði, vegna þess að hann hafði veitt
viðtöku verðlaunum sem vom verð-
mætari en nefndin hafði ákveðið að
áhugamenn mættu taka við. Lög-
fræðingur kylfingisins sendi stjórn
Golfsamband Islands bréf í gær, í
kjölfar svars framkvæmdastjórnar,
og óskaði þess að stjórn GSI sæi til
þess að úrskurður áhugamennsku-
nefndarinnar verði felldur úr gildi
þegar í stað.
Lögfræðingur kylfingsins hafði
vísað málinu til ÍSI og farið fram á
að sambandið úrskurðaði um lög-
mæti þeirrar málsmeðferðar sem
kylfingurinn hlaut hjá áhuga-
mennskunefndinni. Ellert B.
Schram, forseti ÍSÍ, segir að fram-
kvæmdastjórnin hafi á fundi sínum
rætt erindið en enginn efnisúr-
skurður verið felldur vegna þess.
Fíkniefnamál
á fsafírði
Hald lagt
á hass og
amfetamín
LÖGREGLAN á ísafirði lagði
hald á 12 grömm af amfetamíni
og tæp 2 grömm af hassi, auk
áhalda sem talin eru hafa verið
notuð við fíkniefnaneyslu við
húsleit í íbúðarhúsi á Suður-
eyri aðfaranóttt síðastliðins
laugardags. Efnin voru falin á
ýmsum stöðum í húsinu. I hús-
leitinni lagði lögreglan einnig
hald á haglabyssu og skotfæri.
Karlmaður, sem bjó einn í hús-
inu, var handtekinn og færður
á lögreglustöðina á Isafirði þar
sem hann var yfirheyrður en
neitaði að kannast við hin hald-
lögðu efni. Manninum var
sleppt að loknum yfirheyrslum,
en lögreglan hefur tekið málið
til rannsóknar.
Honum var hins vegar falið í sam-
ráði við formann laganefndai- ÍSÍ
að svara bréfi lögfræðings
kylfingsins.
Geta ekki breytt ákvörðun
„Við höfum sjálfstæð valdsvið
eins og hjá öðrum, framkvæmda-
stjómin hefur framkvæmdavaldið
en dómsvaldið er í höndum dóm-
stólanna. Því verður að fara aðra
leið en að skrifa okkur til að fá
fram breytingu á úrskurði áhuga-
mennskunefndar Golfsambands Is-
lands. Við getum ekki einhliða
breytt þeim ákvörðunum," segir
Ellert.
Hann segir að í svarbréfi
íþrótta- og ólympíusambands ís-
lands komi m.a. koma fram að al-
menna reglan sé sú að hægt sé að
skipa sérstakar aganefndir sem
kveða upp viðurlög við brotum {
keppni og að því leyti sé úrskurður
áhugamennskunefndar í samræmi
við þá almennu reglu. „Þegar hins
vegar um er að ræða svo mikla
refsingu, eða sex mánaða keppnis-
bann, má deila um það hvort ekki
sé eðlilegt að þolandinn fái ein-
hvern málskotsrétt eða geti komið
fram andmælum. Það er hins vegar
aðeins skoðun okkar. Við bendum
hins vegar á dóms- og refsiákvæði
ISI sem lögfræðingur kylfingsins
ætti að skoða betur, því að þar er
kveðið á um málsmeðferð sem lýt-
ur að því þegar íþróttamenn eru
taldir óhlutgengir vegna áhuga-
mannareglna. Ennfremur vísum
við til þess að dómstólakerfið hjá
hreyfingunni er allt til endurskoð-
unar og verða lagðar fram tillögur
á næsta þingi hennar um breyting-
ar. I framhaldinu myndu mál af
þessu tagi skoðuð í slíku sam-
hengi,“ segir Ellert.
Hann segir að vilji lögfræðingur
kylfingsins hnekkja ákvörðun
áhugamennskunefndar verði hann
að óska þess að málið sé tekið upp
að nýju innan áhugamennsku-
nefndarinnar en ennfremur hafi
fólk innan íþróttahreyfingarinnar
farið hina almennu dómstólaleið,
telji það mannréttindi vera brotin á
sér.
„í hreyfingunni er líka til dóm-
stólakerfi sem má láta reyna á og
öll mál innan hreyfingarinnar sem
ágreiningur er um hljóta að geta
farið þá leið. Það er hins vegar ekki
mitt að segja til um hvaða niður-
stöðu dómstólar komast að,“ segir
Ellert.
Lögfræðingur kylfingsins, Sól-
veig Ólafsdóttir veitti svari fram-
kvæmdastjómarinnar viðtcku í
gær og sendi þegar stjórn Golf-
sambands íslands erindi, þar sem
þess er óskað að stjórnin sjái til
þess að úrskurður áhugamennsku-
nefndarinnar í máli kylfingsins
verði þegar í stað úr gildi fellur.
Reiki-, heilunar- og
sjálfstyrkingarnámskeið ^
Námskeið í Reykjavík:
28.-30. sept. 1. stig kvöldnámskeið
16.-17. okt. 2. stig helgarnámskeið
Skráning á námskeið í síma 553 3934 kl. 10-12 virka daga.
Guðrún Óladóttiry reikimeistari.
Úttekt á 2000-hæfni vélbúnaðar
og hugbúnaðar rikisaðila
Laga þarf um
1200 vélar
NIÐURSTÖÐUR úttektar á 2000-
hæfni vélbúnaðar ríkisaðila sýna að
rúm 62% einmenningstölva eru án
vandamála en 18% þurfa sérstakra
aðgerða við til að verða 2000-hæfar.
Rúmlega 1.200 tölvur féllu, flestar á
því að ráða ekki við að kanna hvaða
ár í klukku er hlaupár og hvort
klukka fer rétt yfir næstu áramót.
Þá sýna niðurstöður prófana á 2000-
hæfni hugbúnaðar að mrn 40% af
heildinni er án vandamála en af-
gangurinn er með einhver vanda-
mál eða óþekkta hæfni til að takast
á við árið 2000.
Uttektin var unnin upp úr gögn-
um sem urðu til í könnun sem Ríkis-
endurskoðun vinnur nú að á notkun
ólöglegs hugbúnaðar hjá ríkisaðil-
um. Gögnum úr 6.824 einmennings-
tölvum var safnað vélrænt í upplýs-
ingakerfum 257 ríkisaðila á tímabil-
inu frá 14. apríl tO 31. ágúst 1999.
Niðurstöðumar byggjast þannig á
raungögnum og birtast því í fyrsta
skipti upplýsingar um 2000-hæfni
vél- og hugbúnaðar ríkisaðila, sem
byggjast á öðru en sérstökum fyrir-
spurnum eða skoðanakönnunum.
Uttektin náði eingöngu til tölva með
stýrikerfunum DOS, Windows,
Mac/OS, OS2 og nær því ekki til
allra þátta sem valdið geta vand-
ræðum þegar árið 2000 gengur í
garð.
Við úrvinnslu gagna var notast
við gagnagrunn GASP sem geymir
upplýsingar um 2000-hæfni rúm-
lega 19.000 mismunandi forritsút-
gáfa. Prófun á hæfni vélbúnaðar í
einmenningstölvum sýnir að 62,4%
af heildinni er án vandamála en 18%
þarf sérstakra aðgerða við til þess
að verða 2000-hæfar. Þau 19,2%
sem eftir standa eru tölvur sem
ekki voru prófaðar með GASP hug-
búnaðinum í úttektinni. Af þeim
1.231 vél sem ekki er 2000-hæf féllu
næstum allar á prófum sem kanna
hvaða ár í klukku er hlaupár og
hvort klukka fer rétt yfir áramótin
1999/2000. Leysa má vandamál
meiri hluta vélanna með sérstökum
hugbúnaði án mikils tilkostnaðar.
Niðurstaða prófunar á þeim hug-
búnaði sem GASP þekkir sýnir að
40,2% að heildinni er án vandamála,
19,2% er með vandamál, 26,9%
minniháttar vandamál og 13,7%
með óþekkta 2000-hæfni. Líklegt er
talið að ekki þurfi að lagfæra allan
hugbúnað með vandamál þar sem
hluti hans er ekki lengur í notkun.
Auk þess mun eitthvað að þeim
hugbúnaði ekki skipta máli fyrir
rekstur ríkisaðila.
Þrjú frábær fyrirtæki
. Mjög þekktur skyndibitastaöur á besta stað í borginni.
Mikiö útstreymi. Selur einnig ís og sælgæti. Lottó á staðnum.
Lokar kl. 20.30 á kvöldin. Góður vinnutími. Staður sem allir
þekkja og selst af sérstökum ástæðum.
2. Heimabakarí með landsþekktar kleinur sem eru seldar í
helstu stórmörkuðum borgarinnar. Frábær og gefandi vinna
fyrir duglega aðila. Öll tæki sem þarf og viðskiptasamböndin
fylgja með.
3. Bifreiöaverkstæði á frábærum stað í sama húsi og
landsþekkt varahlutaverslun. Viðgerðir, smurning og hjól-
barðaviðgerðir. Mjög snyrtilegt verkstæði og góð vinnuað-
staða. Mikið af tækjum. Mikil vinna og vinnusamningur við
mjög stóran aðila.
Mikið af fyrirtækjum á skrá. Þú ert ávallt velkominn.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASALAN
SUÐURVE R I
SlMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.