Morgunblaðið - 21.09.1999, Qupperneq 20
MORGUNBLAÐIÐ
20 ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999
Námsstefna
um beina markaðssetningu
á Hótel Sögu, Súlnasal,
30.9. og 1.10. 1999
Dagana 30. september og 1. október mun ÍMARK, í samstarfi við
íslandspóst og Norðurlandadeild XPLOR, standa fyrir áhugaverðri námsstefnu
um beina markaðssetningu. í boöi er eins og hálfs dags námsstefna þar sem
fram koma íslenskir jafnt sem erlendir fyrirlesarar. Námsstefnunni mun síðan
Ijúka á föstudegi með kokkteilboði. Námsstefnustjóri er Hallur Baldursson,
framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Yddu.
Keith Davidson
forseti XPLOR International
Sævar Karl Ólason
verslunarmaður
Steve Walpole
hönnunarstjóri CMB auglýsinga-
stofunnar í London
Helga Þóra Eiösdóttir
framkvæmdastjóri Vildarkorta Flugleiöa
Sverrir Hauksson
framkvæmdastjóri Markhússins
v og
É
Skráning er til 23. september á heimasíðu félagsins, www.imark.is,
með tölvupósti imark@imark.is eða i síma 511 4888 eða 899 0689.
Vinsamlegast tilkynniö þátttöku sem fyrst þar sem sætafjöldi er takmarkaður
og búast má við mikilli aðsókn.
Félagar í ÍMARK greiða 14.900 kr. en aðrir 21.400 kr. Innifalinn er léttur
hádegisverður og kaffiveitingar. Til þess að fá aðgöngumiða á félagsverði
þarf viðkomandi að hafa greitt félagsgjald ÍMARK fyrir starfsárið 1999-2000.
Hægt er að greiða gjaldið við innganginn.
PÓSTURINN
Isrfi °p|N kejíf| hf
ÍSMVASÍÍ
Radisson S4S _
I M A R K
FÉLAG ISLENSKS MARKAÐSFÓLKS
Mflrat smátf *p^ytT
VIÐSKIPTI
Búnaðarbanki og Landsbanki hækka vexti um 0,6%
Hvatt til reglu-
bundins sparnaðar
LANDSBANKINN og Búnaðar-
bankinn tilkynntu í gær um vaxta-
hækkanir sem taka gildi í dag í
kjölfar 0,6% vaxtahækkunar
Seðlabanka íslands frá því síðast-
liðinn föstudag. Búnaðarbankinn
hækkar óverðtryggða skuldavexti
og innlánsvexti um 0,6% og
Landsbankinn hækkar einnig
vexti óverðtryggðra innlána og út-
lána almennt um 0,6%. I tilkynn-
ingu frá bankanum kemur fram að
vegna þeirrar áherslu bankans að
hvetja viðskiptavini til reglubund-
ins sparnaðar hækki vextir óverð-
tryggðrar lífeyrisbókar nokkru
meira, eða um 1%. Jafnframt muni
Landsbankinn bjóða félögum í
Vörðuklúbbi bankans sérstök kjör
á reglubundnum sparnaði.
„Með þessum hækkunum vaxta
er Landsbankinn að bregðast við
ákvörðun Seðlabankans í síðustu
viku um að hækka vexti sína í við-
skiptum við innlánsstofnanir.
Eðlilegt er við núverandi aðstæð-
ur, bæði vegna hækkandi verð-
bólgu og útlánaaukningar í banka-
kerfinu, að bregðast við með
hækkun skammtímavaxta. Sam-
hliða er nauðsynlegt að hvetja til
aukins spamaðar eins og lögð er
áhersla á við vaxtaákvörðun bank-
ans,“ segir í tilkynningunni.
I Markaðsyfírliti Landsbankans
í gær segir að í ljósi þeirrar þenslu
sem nú ríki þurfi að auka þjóð-
hagslegan sparnað með öllum til-
tækum ráðum. Reka þurfi ríkis-
sjóð með meiri afgangi en gert
hafi verið ráð fyrir og sveitarfélög
verði að draga úr umsvifum sínum
eins og nokkur kostur er. Einnig
þurfi bankakerfið að gæta fyllstu
varúðar í útlánum og leitast við að
hemja innlenda eftirpum og leggj-
ast þannig á sveif með stjórnvöld-
um í þeirri erfiðu glímu sem
framundan sé.
Mikilvægt að taka merki um
hækkandi verðlag alvarlega
Búnaðarbanki íslands hf. hefur
ákveðið að hækka óverðtryggða
skuldavexti frá og með deginum í
dag um 0,60 prósentustig. Jafn-
framt hækka vaxtakjör óverð-
tryggðra innlánsreikninga í mám
uðinum um 0,60 prósentustig. I
tilkynningu frá Búnaðarbankan-
um segir að með vaxtabreytingum
sínum vilji bankinn koma til móts
við þá stefnu Seðlabanka og ríkis-
stjórnar að reyna að slá á þenslu
og viðhalda stöðugleikanum í
efnahagslífinu. Því hækki bankinn
útlánsvexti til samræmis við
vaxtabreytingar Seðlabankans.
í tilkynningu bankans segir að
mikilvægt sé að taka merki um
hækkandi verðlag alvarlega, sér-
staklega þegar haft sé í huga að
undanfarin ár hafi hagstæð geng-
isþróun haldið aftur af verðbólgu.
„Gengi krónunnar hefur
styrkst um eitt prósent að meðal-
tali á ári undanfarin 3-4 ár.
Vaxtahækkunin nú styður við
krónuna, en til lengri tíma litið
verður ekki hjá því komist að ná
jöfnuði í utanríkisviðskiptum.
Olíklegt er að gengi krónunnar
geti styrkst frekar og þannig
haldið áfram að halda aftur af
verðhækkunum. Háir vextir og
hækkandi gengi krónunnar veikja
samkeppnisstöðu atvinnulífsins
og draga úr styrk efnahagslífsins.
Óheppilegt er ef slíkt ástand varir
lengi. Mikilvægt er að slá á þensl-
una í þjóðfélaginu. Ahrifaríkasta
leiðin í þeim efnum er aukið að-
hald í rekstri ríkis og sveitarfé-
laga. Vaxtahækkanir einar og sér
duga tæplega til að viðhalda stöð-
ugleika efnahagslífsins," segir í
tilkynningu Búnaðarbankans.
Dagskrá
BBffl rivoli da§ur hiá Nvheria
Manage. Anything. Anywhere™ JLM I 11 y B 1 1 I
NÝHERJI
Sími: 569 7700
Komdu og sjáðu hvernig Tivoli getur
einfaídað tilveruna í tölvudeildum fyirtækja,
sparað bæði tíma og peninga. IVIeð Tivoli
er hægt á einfaldan hátt að stjórna flóknu
tölvuumhverfi jafnt hjá smærri sem stærri
fyrirtækjum.
Fjölbreytt dagskrá er í boði og hvetjum við
stjórnendur og starfsfólk tölvudeilda til að
koma á þessa hálfsdags kynningu í boði
Tivoli og Nýherja.
Staður og stund
Fimmtudagurinn 23. september á Hótel
Loftleiðum (bíósal) frá kl. 13:00 - 17:00.
Eftir dagskrá verður boðið uppá léttar
veitingar.
Skráningarform og nánari upplýsingar liggja
á heimasiðu Nýherja (www.nyherji.is).
Allar nánari upplýsingar veitir Jökull M.
Steinarsson (jokull@nyherji.is). Þátttaka
er ókeypis en skráning nauðsynleg.
13:00 Kynning áTivoli IT Director útgáfu 2.1
- Lækkaðu heildar rekstrarkostnaðinn (TC0)
- Yfirlit aðgerða
- Yfirlit nýjunga
13:40 Hugbúnaðarstjórnun með IT Director:
- Lotus Notes Domino
- MS Exchange
- MS SQL server
- Symantec Norton Antivirus
14:00 Tivoli IT Director sýning
- Stjórnskjár með einföldum “drag'n drop'' skipunum
- Helstu aðgerðir sýndar
14:20 Kaffihlé
14:30 Resolve-IT fyrir IT Director - þjónustuborð (helpDesk)
15:20 Kaffihlé
15:30 Tivoli Data Protection - afritunar- og gagnageymslukerfi
15:45 Tivoli NetView IT Director edition - net-eftirlit
16:00 Kaffihlé
16:10 Tivoli Enterprise
17:00 Léttar veitingar
Fyrirlestrar eru ýmist á ensku eða íslensku. Dagskrá getur breyst.