Morgunblaðið - 21.09.1999, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999
MYNPBÖND
Vind-
högg hjá
William-
son
Kennaraliðið
(The Faculty)__
llrol Ivekja
★
Leikstjóri: Robert Rodrignez. Hand-
rit: Kevin Williamson. Aðalhlutverk:
Elijah Wood, Clea DuVall, Josh Hart-
nett og Robert Patrick. (100 mfn)
Bandaríkin. Skífan, september 1999.
Bönnuð innan 16 ára.
KENNARALIÐIÐ sver sig í
hefð innrásarmynda sem lýsa
lúmskri árás geimvera á mann-
kynið, þar sem
geimveran er
ósýnileg og því
einkar hryllileg.
Geimveran leyn-
ist þá innan í
saklausum borg-
urum eða tekur á
sig mannlega
mynd með öðr-
um hætti. Þessar kvikmyndir ala
með sér mikla ofsóknarkennd því
skrímslin eru óþekkjanleg en um
leið allt um kring. Frægasta
dæmið um þessa tegund kvik-
mynda er „Invasion of the Body
Snatchers".
Kennaraliðið er nauðaómerkileg
viðbót við þessa hefð og athyglis-
verð fyrir þær sakir einar að hér
er Kevin Williamson, handritshöf-
undur „Screarn", að slá enn eitt
vindhöggið en ljóminn fór fljótt af
ferli hans. Það er reyndar augljóst
að hann er að reyna að skapa hlið-
stætt verk við „Scream“ innan vís-
indafantasíugeirans en tilraunir
hans til að skapa sjálfsvísandi
tengsl við þekkt verk hefðarinnar
fara hér út um þúfur.
Heiða Jóhannsdóttir
Napurleg
gaman-
mynd
Bráðfyndið
(Dead Funny)_____
riainanmynd
★y2
Leikstjóri: John Feldman. Aðalhlut-
vcrk: Elizabeth Pena og Andrcw
McCarthy. (94 mín) Bandaríkin. Skíf-
an, ágúst 1999. Bönnuð innan 16 ára.
ÞESSI svarta kómedía fjallar
um unga konu sem kemur heim úr
vinnunni og fínnur unnusta sinn
steindauðann af
völdum sam-
úræjasverðs.
Hún leggur höf-
uðið í bleyti og
reynir að átta sig
á hvað hefur
gerst.
Segja má að
atburðarás þess-
arar gamanmyndar sé spunnin í
kringum einn stóran gálgabrand-
ara. Allt sem gerist milli upphafs-
ins og endisins er vægast sagt
stórfurðulegt, hvort sem litið er til
framferðis leikaranna eða fram-
rásar sögunnar. En undarlegheitin
skýrast ágætlega í lokin þegar
þegar skrýtlan er botnuð með svo
napurlegum hætti að áhorfandinn
veit ekki hvort hann á að hlæja eða
gráta.
Ætli hugmyndin hafi ekki kviknað á síðustu mynd hjónakornaima, Eyes Wide Shut?
George Michael
í breskum
slúðurblöðum
Langar að samrekkja
Cruise og Kidman
BRESKU slúðurblöðin duttu í
lukkupottinn á laugardag þegar
poppstjaman George Michael stóð
við loforð um að veita þeim opinská
viðtöl gegn því að þau fjölluðu á
samúðarfullan hátt um nettónleika
sem haldnir verða til stuðnings
flóttamönnum í Kosovo. í viðtölun-
um viðurkenndi hann að hann hefði
ekki notið kynlífs með kvenmanni í
áratug og að hann hefði áhuga á að
njóta kynlífs með Tom Cruise - og
eiginkonu hans Nicole Kidman.
Hann sagði einnig að höfðað hefði
verið mál gegn honum upp á einn og
hálfan milljarð króna af lögreglu-
manninum í Beverly Hills, sem
handtók hann fyrir sjálfsfróun á op-
inberum vettvangi í fyrra. Slúður-
blöðin Sun, Mirror, Daily Star og
Express settu öll Michael á forsíðu
og helguðu honum 3 til 5 blaðsíður
fyrir játningar sínar.
Eina slúðurblaðið sem
hann sniðgekk var
Daily Mail.
„Eg hefði áhuga á að
sofa þjá Tom... og
Nicole,“ sagði hann í
Mirror. Og ef hann gæti
valið konu frá hvaða
tíma sem væri hefði
Elizabeth Taylor orðið
fyrir valinu. Þá sagði
hann um málshöfðun
lögregluþjónsins
Marcelos Rodriguezs
gegn sér að hún væri
„hlægileg" og hét því
að ekki yrði úr neinni
málamiðlun. „Þetta er
sígilt dæmi um banda-
rísk lög þar sem þau eru hvað fárán-
legust,“ sagði hann og bætti við:
„Mig grunar að þetta
eigi aldrei eftir að fara
fyrir dómstóla."
Aðspurður hvort
hann hefði dregið ein-
hvém lærdóm áf þess-
ari reynslu svaraði
hann: „Eg mun aldrei
aftur nota almennings-
salerni."
George Michael mun
koma fram á nettón-
leikunum „NetAid“ á
Wembley ásamt David
Bowie, Bono og Robbie
Williams 9. október
næstkomandi. Tónleik-
arnir verða sýndir
beint á slóðinni
www.netaid.org og eru
þeir styrktir af Þróunarhjálp Sam-
einuðu þjóðanna.
George Michael lang-
ar að kynnast Cruise
og Kidman nánar.
VAKORT
Eftlrlýst kort nr.:
4543-3700-0022-1781
4543-3700-0027-9888
4507-4300-0022-4237
4507-4500-0026-7523
4548-9000-0053-6690
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og visa á vágest
ViSA
BBM
VISA ISLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Þau bera hitann og þungann af sýningunni; Jó-
hann Sigurðarson leikari, Melkorka Tekla Ólafs-
dóttir leikstjóri og Arnar Jónsson leikari.
Jón Páll Björnsson
sýningarstjóri,
Stefán Baldursson
þjóðleikhússtjóri,
Jóhann Sigurðar-
son leikari, Mel-
korka Tekla Ólafs-
dóttir leikstjóri,
Kristján Þórður
Hrafnsson, Hlín
Gunnarsdóttir leik-
mynda- og bún-
ingahönnuður og
Arnar Jónsson leik-
ari fögnuðu 50.
sýningu Abel Snor-
ko býr einn á laug-
ardagskvöld.
Abel Snorko er vinsæll
í LOK nóvember á síðasta ári var
leikritið Abel Snorko býr einn,
eftir Eric-Emmanuel Schmitt,
frumsýnt á litla sviði Þjóðleik-
hússins. Mikil aðsókn var að leik-
ritinu allt síðasta leikár og var
því ákveðið að halda sýningum á
því áfram nú í vetur. Síðastliðið
laugardagskvöld var það sýnt í
50. sinn og var tilefninu fagnað
ákaft að tjaldabaki af aðstand-
endum og leikurum sýningarinn-
ar sem eru að vonum ánægðir
með þær miklu vinsældir sem
sýningin á að fagna. Arnar Jóns-
son og Jóhann Sigurðarson fara
með hlutverk í sýningunni og
hafa hlotið einróma lof, jafnt
gagnrýnenda sem áhorfenda fyr-
ir.
Bamastærðir
Kr. 8.900.-
<fe>Columbia
Sportswear Company*
www.columbia.com
HREYSTI
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
--Skeifúnni 19 - S. 5681717-
Heiða Jóhannsdóttir
Opið mánud,- föstud. kl. 9 - 18, laugard. kl. 10 - 16