Morgunblaðið - 21.09.1999, Page 64
^64 ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Risavaxið sjálf
í Laugardalshöll
EIN stærsta poppstjarna Breta,
Robbie Williams, hélt tónleika ■
Laugardalshöll siðastliðinn föstu-
dag. Robbie hefur verið ofarlega
á evrópskum vinsældalistum og í
eftirlæti hjá sjónvarpsstöðinni
MTV, enda þekktur fyrir mikla
útgeislun og eftirtektarverða
framkomu. Til að botna eitthvað í
manninum er nauðsynlegt að
~*>-þekkja lítillega til sögu hans í
sviðsljósinu síðastliðin ár. Willi-
ams hóf feril sinn í drengjasveit-
inni Take That, sú sveit var einna
vinsælust stráka- og stelpna-
hljómsveitanna sem tröllriðu tón-
listarheiminum fyrir nokkrum ár-
um. Robbie féll aldrei inn í þann
hóp, að margra mati, hann var
grófastur af þeim félögum, reifst
og skammaðist auk þess sem hann
var gjarnastur á að lenda í vand-
ræðum. Það kom því fáum á óvart
er hann yfirgaf sveitina árið 1996.
' Við tók mikill ólifnaður, m.a. var
hann í slagtogi við Oasis-bræð-
urna Noel og Liam Gallagher en
gerði lítið af tónlist, gaf út smá-
skífuna Freedom, lag eftir Geor-
ge Michael, við lítinn fögnuð,
kannski vegna þess að flestir
bjuggust við Bretapoppi frá
Robbie sem naut þá hvað mestra
vinsælda, hann fitnaði og var mik-
ið á milli tannanna á bresku tón-
listarpressunni sem var búin að
afskrifa hann þegar önnur smá-
skífa hans, Old Before I Die, kom
út árið 1997. Sú smáskífa lagði
grunninn að vinsældum Robbie
Williams en síðan þá hefur hann
verið hátt á breskum og evrópsk-
"um vinsældalistum. Robbie hefur
verið þekktur fyrir að einblína á
sjálfan sig og fyrir að vera
skemmtikraftur frekar en tónlist-
armaður, hann veit af þessu og
notfærir sér út í ystu æsar. Tón-
leikar hans í Laugardalshöll
hófust á hinu þekkta stefi Moz-
arts, Also Sprach Zarathustra, við
slökkt þ'ós en við tók lagið Let me
entertain you eftir glyssveitina
Kiss frá áttunda áratugnum.
Áhorfendur svo að segja trylltust
þegar Robbie Williams kom fram
klæddur jakkafótum og með
bindi. Sviðsframkoma hans auk
laga og einkum útsetninga dregur
mjög dám af glysi og sjálfsupp-
hafningu rokkara á áttunda ára-
tugnum, sinfónísk rafmagnsgítar-
stef og fastur taktur einkennir oft
tónlistina, m.a.s. heyrðist stef frá
hljómsvcitinni Spinal Tap í lok
eins Iagsins, það eina sem vantaði
voru eldsprengjur. Tónleikarnir
róuðust svo mjög eftir fyrstu tvö
Iögin og stóð það nokkuð lengi,
fyrri hluti tónleikanna fór allur í
hálfballöður og þótt smellir eins
og Life Through a lens og Angels
hafi komið inn á milli dugði það
ekki til að rífa áhorfendur nægi-
lega upp í byijun. Williams sjálfur
hafði þó gott tak á áhorfendum,
lét þá syngja hvern í kapp við
annan, líkt og Bubbi Morthens
gerði á stórtónleikum áður fyrr,
klæmdist við þá og minntist lítil-
lega á árekstur sinn við sjón-
varpsmenn deginum áður með
bros á vör. Það var þó ekki fyrr
en rétt fyrir hlé að áhorfendur
tóku almennilega við sér, eftir að
Robbie hafði cspað upp áhorfend-
ur á pöllunum sem margir hveijir
komu niður í kjölfarið og lögin No
Regrets og Angels hljómuðu náð-
ist upp mögnuð stemmning. Eftir
hlé kom stjarnan fram íklædd
íþróttabol og greinilegt var að nú
átti fjörið að hefjast, hann tók
lögin Song 2 eftir Blur, mikið
rokklag og Should I Stay Or
Should I Go sem Clash gerði vin-
sælt fyrir löngu og skömmu
seinna var hápunktinum náð þeg-
ar lagið Millenium hófst, vin-
sælasta lag Robbie sem virðist
ætla að afla honum vinsælda f
Bandaríkjunum. Williams lét
áhorfendur gera handahreyfingar
sem flestir þekktu og það var kátt
í höllinni þegar Robbie gekk
snögglega af sviði og tónleikunum
lauk. Flestir höfðu á orði að þeir
hefðu verið í styttra lagi og
klöppuðu áhorfendur lengi og
reyndu að fá stjörnuna aftur á
svið. Síðar kom í ljós að plast-
flösku hafði verið kastað í mann-
inn og neitaði hann að koma aftur
fram. Williams hefur verið þekkt-
ur fyrir slæmt skap og hefur hann
oftar en einu sinni gengið út frá
tónleikum eða viðtölum þegar hon-
um hefur mislíkað eitthvað. Engu
að síður fengu aðdáendur góða
tónleika, Robbie Williams er mikill
skemmtikraftur og á hátindi ferils
síns. Það sem skortir á tónlistar-
hæfileika er bætt upp með sviðs-
framkomu og persónutöfrum og
er afar erfitt að láta sér leiðast á
tónleikum með manninum.
Gísli Árnason
LIKA SKOR.
STEINAR WAGGE
KRINGLUNNI
Hátíð í Vesturbænum
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Rauða Ijónið í broddi svarthvítrar fylkingar
KR-inga og lúðrasveit í bakgrunni.
Allar kynslóðir komu saman í skrúðgöngunni
enda slógu hjörtun í takt.
Skrúð-
ganga í
svarthvítu
ÞAÐ VAR hátíð í Vesturbænum á
laugardag þegar 31 árs bið eftir
meistaratitlinum var á enda. Stuðn-
ingsmenn liðsins byrjuðu daginn
snemma á KR-kránni Rauða ljóninu
og fór svo í skrúðgöngu að KR-vell-
inum í Frostaskjóli fyrir leik liðsins
við Keflavíkur í Landssímadeildinni.
Að leik loknum voru KR-ingar
krýndir íslandsmeistarar í knatt-
spymu árið 1999, á aldarafmæli fé-
lagsins, og tók svo við glaumur og
gleði langt fram undir morgun.
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Gengið var framhjá heimili
Ingibjargar Sólrúnar Gísladótt-
ur borgarstjóra og heilsaði hún
upp á göngufólk en enginn fékk
eins blíðar móttökur hjá borg-
arstjóra og Rauða Ijónið.
KR-INGARNIR Stefán Sveins-
son og Jóhann Kristjánsson eiga
heima í austurbænum en mæta
á alla leiki KR og létu sig
ekki vanta í skrúðgönguua.