Morgunblaðið - 03.12.1999, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 03.12.1999, Blaðsíða 42
42 FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1999 43 lltagttiMjifeifr STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. YIÐRÆÐURNAR í SEATTLE UPPHAF nýrrar lotu alþjóðlegra viðskiptaviðræðna hefur ekki farið snurðulaust af stað. Tugir þúsunda mótmælenda lögðu undir sig borgina Seattle á norðvest- urströnd Bandaríkjanna, þar sem viðræðurnar fara fram, og varð að aflýsa setningarathöfn ráðstefnunnar af þeim sökum og lýsa yfir útgöngubanni tvær nætur í röð. Mótmælendurnir virðast vera litskrúðugur hópur ólíkra sjónarmiða og eiga líklega það eitt sameiginlegt að vilja vekja athygli á málstað sínum með eftirminnilegum hætti. Mótmæli hafa ekki einskorðast við Seattle því einnig kom til harðra átaka milli lögreglu og þúsunda mótmælenda í London í byrjun vikunnar. Pá hafa verið haldnar mótmæla- göngur víða um Evrópu á síðastliðnum vikum og mánuðum. Ekki síst hafa franskir bændur verið herskáir og meðal annars beint spjótum sínum gegn bandarískum skyndibit- astöðum. Mótmæli sem þessi endurspegla annars vegar ótta við afnám viðskiptaverndar er fjölmargar atvinnugreinar víðs vegar um heim hafa notið góðs af og hins vegar vaxandi kröfur um að fleiri þættir verði teknir inn í viðskiptavið- ræðurnar sem fara fram á vegum Heimsviðskiptastofnun- arinnar, WTO. Þess er m.a. krafist að í ríkara mæli verði gerðar kröfur um aðbúnað vinnuafls og hins vegar að um- hverfissjónarmið verði sett á oddinn. Að hluta til beinist gagnrýnin einnig að WTO sjálfri og starfsháttum stofnunarinnar og má segja að sú gagnrýni eigi að mörgu leyti rétt á sér. Allt of mikil leynd hvílir yfir starfsemi WTO og þá ekki síst þegar kemur að því að hún úrskurði í deilumálum milli ríkja. Undir þá gagnrýni hafa margir stjórnmálamenn tekið, enda eru víðast hvar gerðar auknar kröfur um gegnsæi stjórnsýslunnar og greiðan að- gang almennings og fjölmiðla að upplýsingum. Það ætti að vera hagur WTO að leggja spilin á borðið og gefa umbjóð- endum stofnunarinnar, íbúum þeirra ríkja er eiga aðild að henni, aukna innsýn og þar með skilning á því starfi sem fer fram innan veggja hennar. Annað ýtir einungis undir misskilning og tortryggni. Hins vegar má velta því fyrir sér hvort WTO sé rétti vettvangurinn til að fjalla um umhverfismál og aðbúnað vinnuafls. Afnám viðskiptahindrana og lækkun tolla í milli- ríkjaviðskiptum hefur leitt til stóraukinnar hagsældar í heiminum á undanförnum áratugum. Það er gífurlegt hagsmunamál heimsbyggðarinnar allrar að haldið verði áfram á þeirri braut og frekari skref stigin í þá átt að tryggja frjálst flæði vöru og þjónustu á milli ríkja. Vernd- armúrar og ofurtollar kunna að þjóna hagsmunum ein- stakra atvinnugreina og hagsmunaaðila en þeir rýra kjör almennra neytenda. Það eru ekki síst fátækustu lönd heims, sem eiga allt sitt undir því að geta selt vörur sínar til ríkari landa. Fjölmörg dæmi eru um það á þessari öld að ríki hafi brotist út úr fá- tæktinni með markvissri sókn á útflutningsmarkaði. Eitt besta dæmið um það eru ríki suðausturhluta Asíu, sem á skömmum tíma hafa skipað sér í hóp efnaðri ríkja heims. Hættan er sú að ef farið verður út á þá braut að skilyrða frjáls viðskipti með margbreytilegum reglum um umhverf- isvernd og aðbúnað starfsfólks að settar verði reglur sem einungis ríku löndin geta uppfyllt. Eftir sætu þróunarlönd- in, sem yrðu útilokuð frá mörkuðum fyrir annað en hráefni, þar sem þau hefðu ekki efni á að uppfylla þær ströngu kröf- ur sem fest hafa sig í sessi á Vesturlöndum. Vilji iðnríkin bæta ástand mála í þriðja heiminum hljóta að vera til betri leiðir en að reisa „siðferðilega" viðskiptamúra. Þeir sem krefjast annars eru í raun ekki að gera neitt annað en að standa vörð um hagsmunahópa í iðnríkjunum á kostnað fá- tæks starfsfólks í þróunarríkjunum. Fá riki eiga meira undir útflutningsviðskiptum en ís- land. Sú hagsæld sem við búum við í dag er byggð á því að við fáum aðgang að erlendum mörkuðum fyrir sjávarafurð- ir okkar. Við eigum því að skipa okkur sess með þeim þjóð- um, sem berjast fyrir því að frelsi í viðskiptum verði aukið, enda þekkjum við sjálf hvernig það er að verða skotspónn samtaka er vilja að sala á sjávarfangi lúti „siðferðilegum“ reglum. Það er líka ekki síður hagur íslenskra neytenda að þau höft sem enn eru í gildi, t.d. hvað varðar landbúnaðar- afurðir, verði afnumin. Viðskipti á milli ríkja eiga eftir að breytast gífurlega á næstu árum. Sú bylting sem er í uppsiglingu með auknum netviðskiptum á eftir að hafa meiri breytingar í för með sér en flestir gera sér grein fyrir. Það má ekki leyfa sérhags- munaöflum að torvelda þá þróun. Forsendur sigra í landhelgismálinu MARGIR hafa ritað um landhelgismálið, það er útfærslu íslensku fisk- veiðilögsögunnar úr 3 sjómílum, eins og hún var 1901, í 200 sjómílur eins og hún varð 1975. Sumir hafa gert það til að slá sig til riddara, einkum á kostnað annarra, aðrir til þess að verja málstað og málflutning, sem ekki stenst sögulega gagnrýni. Davíð Ólafsson, fyrrverandi fiskimálastjóri, alþingismaður og seðlabankastjóri, hefur hins vegar ritað sögu landhelgismálsins til að draga það fram, sem hann veit sann- ast og réttast. Hið íslenska bók- menntafélag gefur bók hans út að til- hlutan Alþjóðamálastofnunar Háskóla Islands. Yflrburða þekking Saga landhelgismálsins frá hendi Davíðs Ólafssonar er meira virði en hetjusögur eða tilraunir til málsvarn- ar fyrir áfanga á leið til 200 mílnanna, vegna þess að Davíð ritar söguna af yfirburða þekkingu, hógværð og festu. Þeir, sem kynntust Davíð Ól- afssyni, vita, að þar fór einstaklega grandvar og ráðagóður maður, sem af einlægni bar hag þjóðar sinnar fyr- ir brjósti. Hann ritar ekki sögu land- helgismálsins til að draga taum eins eða neins heldur í því skyni að leggja í hendur lesanda greinargóða lýsingu á flókinni lagalegri, vísindalegri og stjórnmálalegri baráttu, sem varð svo hörð á köflum, að beitt var þving- unum og valdi. í raun er ómetanlegt, að Davíð Ól- afssyni skuli hafa enst aldur og kraft- ur til leggja grunn að þessari bók og rita hana að mestu leyti. Efniviðurinn er ekki árennilegur fyrir þá, sem koma að honum með litla reynslu aðra en felst í fræðilegi-i þjálfun. Ekki er algengt, að embættismenn, sem í störfum sínum fjalla um mikil- væga hagsmuni þjóðarinnar, setjist niður að loknu heilladrjúgu ævistarfi og færi síðari kynslóðum fróðleik um viðfangsefni sín og úrlausn þeirra. Að sjálfsögðu skipta þessi viðfangsefni misjafnlega miklu, en þó hafa allir eitthvað fram að færa til þeirrar heildarmyndar, sem nauðsynlegt er að draga, til að átta sig á þróun þjóð- mála og forsendum margs, sem þykir sjálfsagt og eðlilegt í samtímanum. Væri hollt fyrir marga að átta sig á því, að starfsskilyrði þeirra og frelsi til að láta að sér kveða að eigin vild hafa orðið til vegna áralangrar bar- áttu manna, sem misstu aldrei sjónar Saga landhelgismálsins frá hendi Davíðs Ól- afssonar er meira virði en hetjusögur eða til- raunir til málsvarnar fyrir áfanga á leið til 200 mílnanna, segir Björn Bjarnason, vegna 3ess að Davíð ritar söguna af yfírburða þekk- ingu, hógværð og festu. á takmarki sínu, þótt þeir hafi þurft að fara krókaleiðir til að ná því. Einstakt gildi landgrunnslaganna Enginn getur lesið bók Davíðs Ólafssonar án þess að sannfærast um einstakt gildi land- grunnslaganna frá 1948 og hina djúpvitru hug- myndafræði, sem lá þeim að baki. I henni fólst, að einhliða aðgerð- ir, studdar traustum lag- arökum og byggðar á Björn vísindalegum rannsókn- Bjarnason um væru vænlegastar til árangurs við útfærslu fiskveiðilög- sögunnar. Það yrði erfitt að ná al- þjóðasamkomulagi um friðunarað- gerðir, sem dygðu til að koma í veg fyrir ofveiði. Samhliða því sem þess- ari stefnu var fylgt lögðu íslensk stjórnvöld kapp á að vinna fylgi við útfærslu fiskveiðilögsögunnar á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna. Þau beittu auk þess stjórnmálalegum vopnum sínum. Telur Davíð, að aðild Islands að Atlantshafsbandalaginu ^NATO) hafi verið eitt sterkasta vopn Islendinga fyrir stækkun fiskveiði- lögsögunnar. Lýsing Davíðs Ólafs- sonar á stefnumótuninni í landhelgis- málinu og hvernig síðan var unnið að því að hrinda stefnunni í framkvæmd minnir á atburði frá miðri 19. öld, um hundrað árum áður en landgrunns- lögin voru samþykkt. íslendingar mótuðu þá stefnu um eigin stöðu inn- an danska ríkisins. Þeir rökstuddu þá stefnu og héldu fast við hana á lög- fræðilegum forsendum. Valdi var aldrei beitt heldur haldið uppi sam- ræðum og leitað eftir samningum, þar til yfir lauk með stofnun lýðveldis 1944. Við getum auðveldlega stiklað á ár- tölum og atburðum í landhelgisbar- áttunni frá 1948 til 1975, þegar að sið- ustu var fært út í 200 mílur, sem síðan var viðurkennd alþjóð- aregla með hafréttar- sáttmálanum nokkrum árum síðar. Hvert skref kostaði átök bæði innan lands og við erlendar þjóðir. Lokamarkið var sett á þeim tíma, sem Davíð Ölafsson lýsir í frásögn sinni, en henni lýkur í upphafi sjöunda áratugarins, þegar samningar höfðu náðst við Breta vegna útfærsl- unnar í 12 sjómílur. Annarlegir hagsmunir Davíðs Ólafs- Saga sonar af landhelgismálinu lýsir vand- aðri hagsmunagæslu, þar sem íslend- ingar tefla fram traustum rökum til að ná skýru markmiði. Sagan minnir okkur einnig á þá staðreynd, að hér voru stjórnmálamenn, sem báru ekki aðeins hagsmuni Islands fyrir brjósti, þeim var ósárt, að landhelgismálið yrði til þess að spilla samskiptum okkar við Atlantshafsbandalagið og aðildarríki þess. I bók sinni kemst Davíð meðal annars þannig að orði: „Fyrrgreind afstaða ráðherra Al- þýðubandalagsins var einkennandi fyrir afstöðu flokksins yfirleitt til landhelgismálsins. Þeir töldu að mál- ið væri hreint innanríkismál og hvorki væri nauðsynlegt né mætti ræða það við nokkurn erlendan aðila, nema ef vera skyldi á vettvangi Sam- einuðu þjóðanna, og ekki fara fyrir Alþjóðadómstólinn. Síst af öllu mætti taka málið upp innan OEEC [Efna- hagssamvinnustofnunarinnar], Atl- antshafsbandalagsins eða Evrópur- áðsins þar sem heþst var að vænta skilnings á málstað íslands; sósíalist- ar höfðu á sínum tíma verið andvígir þátttöku Islands í þessum samtökum. Öðru máli gegndi um Sameinuðu þjóðirnar því að þar voru Sovétríkin og fylgiríki þeirra fyrir. í þessari stefnu þeirra skein í gegn fylgispekt við sósíalísku ríkin sem jafnan var grundvallaratriði í stefnu þeirra þeg- ar kom til utanríkismála.“ Nú á tímum, þegar þátttaka í al- þjóðasamstarfi og málflutningur á þeim vettvangi er helsta úrræði smá- þjóða til að láta að sér kveða og gæta hagsmuna sinna, vekur lýsing eins og þessi á afstöðu Alþýðubandalagsins furðu. Enn eimir þó eftir af þessum gamla hugsunarhætti í íslenskum stjórnmálum og á hann til dæmis sinn þátt í því, að íslenskum vinstrisinnum hefur ekki tekist að sameinast í einn flokk. Lýsing Davíðs á átökum krata og kommúnista um landhelgismálið í vinstristjórn Hermanns Jónassonar vegna útfærslunnar í 12 mílur 1. sept- ember 1958 staðfestir þennan djúp- stæða ágreining. Þótt Lúðvík Jóseps- son, Alþýðubandalagi, hafi eignað sér útfærsluna naut hann og flokkur hans þess ekki í alþingiskosningum í júní 1959, þegar Alþýðubandalagið tapaði um 20% af fylgi sínu og Lúðvík náði ekki kjöri en fór inn sem upp- bótarmaður. Sjálfstæðisflokkurinn, sem var í stjórnarandstöðu, varð sig- urvegari kosninganna, sem lögðu grunn að 12 ára stjórnarforystu flokksins. Fyrsti kafli Sumii- töldu, að landhelgismálið hefði ráðið mestu um, að Sjálfstæðis- flokkurinn hvarf úr ríkisstjórn 1971. Viðreisnarstjórn hans og Alþýðu- flokksins hefði ekki barist nægilega harkalega fyrir stækkun landhelg- innar. Andstæðingar flokkanna sam- einuðust þá um að færa landhelgina út í 50 sjómílur. Þá börðust þeir einn- ig undir slagorðinu: Samningar eru svik. Varð það til í andstöðunni við, að samið var við Breta um 12 mílurnar 1961. Slagorð af þessu tagi á ekki upp á pallborðið nú á timum nema meðal öfgamanna, sem vilja ekkert á sig leggja fyrir frið. Bók Davíðs Ólafssonar spannar að- eins fyrsta kaflann í sögu landhelgis- málsins, sem verður ætíð talið til stærstu viðfangsefna íslenskra stjórnmála á tuttugustu öldinni. En í þessum kafla sögunnar er grunnur allra síðari aðgerða lagður, því að hugmyndafræðin og strategían breyttist ekki. Framhjá þessari merku bók getur enginn gengið, sem vill hafa það, sem sannara reynist í sögu landhelgismálsins, eða ætlar að skrifa síðari kafla þessarar sögu. Höfundur er menntamálaráðherra. Seljendur netþjónustu segja ókeypis nettengingu kippa fótunum undan rekstrinum Hagræðing að auknum netsam- skiptum segja talsmenn tilboðsins Element hf. (krokur.is) EST hf. (est.is) Gagnaveitan ehf. (gagnaveitan.is) Hringiðan ehf. (vortex.is) Hugur-ísl. Forritaþróun hf (if.is) Islandia Internet ehf. (islandia.is) ísl. Internetþj. ehf. (europe.is) Margmiðlun hf. (mmedia.is) Netheimur ehf. (xnet.is) Nettækni ehf. (nt.is) \ Nýherji hf. (itn.is) Prím ehf. (prim.is) Skima hf. (skima.is) Skýrr hf. (skyrr.is) Tölvun - Tölvuþj. Vestm. hf. (eyjar.is) Tölvuþj. Akraness hf. (aknet.is) Tölvuþj. Snerpa ehf. (snerpa.is) Vér Tölvubændur hf. (veda.is) Seljendur Net-aðgangs á íslandi Tilboð íslandsbanka og Islandssíma um ókeypis tengingu við Netið hefur valdið minni netþjón- ustufyrirtækjum ákveðn- um áhyggjum. Talsmað- ur samtaka þeirra segir að leitað verði álits Samkeppnisstofnunar vegna tilboðsins. HAGUR íslandsbanka er annars vegar sá að við- skiptavinir bankans nýta sér í auknum mæli Netið í samskiptum við bankann og hins vegar að nýir viðskiptavinir bætist í hópinn, segir Jón Þónsson, framkvæmdastjóri útibúasviðs íslandsbanka, aðspurður um hvaða hag bankinn hafi af því að bjóða ókeypis nettengingu í samvinnu við Islandssíma. Tilboð fyrirtækjanna var kynnt í fyrradag. Bjöm Davíðsson, framkvæmdastj óri _ netþj ónustufyrir- tækisins Snei’pu á Isafirði, sem annast meðal annars nettengingar, segir að fyrirtækið muni vegna þessa endur- skoða viðskipti sín við íslandsbanka. Jón Þórisson kvaðst ekki reiðubúinn að gefa upp hversu mikill kostnaður bankans verðui- vegna þessarar nýju þjónustu, það væri bundið trúnaði, en hann sagði að þetta væri allra hagur. Bankinn sæi sér hag í því að fleiri nýttu sér Netið, Islandssími sæi hagnað í því að fá til sín meiri umsvif og þeir sem tengdust þyrftu ekki að greiða íyrir tenginguna. „í dag stunda um 20% við- skiptavina viðskipti sín við okkur um Netið. Með því að fá fólk til að nota Netið í auknum mæli þurfum við ekki að fjölga fólki og getum tekist á hendur ný verkefni, til dæmis í fjánnálaráð- gjöf og þjónustu, þai' sem við gætum aukið tekjur okkar, “ segir Jón enn- fremur. Hann segir bankaþjónustuna á Netinu hafa aukist mjög, ekki síst síðustu misserin, og nú hafi viðskipta- menn bankans um 30 möguleika til samskipta við íslandsbanka um Netið. Tímaskekkja að tvírukka neytendur Eyþór Amalds, framkvæmdastjóri Íslandssíma, segir það tímaskekkju að tvínikka neytendur, þ.e. bæði fyrir tenginguna og skrefagjöld. „Það er rakkað skrefagjald og það á að duga fyrir kostnaði. Þetta er því verðlækk- un,“ segir Eyþór. Hann segir þetta mikla breytingu á þjónustu á net- markaðnum og kveðst eiga von á því að aðrir aðilar mæti þessari samkeppni með útspili í nýrri og bættri þjónustu. Eyþór kveðst eiga von á því að margir sem ekki hafa verið tengdir Netinu heima fyrir muni verða sér úti um tengingu, þar sé vaxtarmöguleikinn. Um 3.500 manns höfðu skráð sig síð- degis í gær. Ekki er skilyrði fyrirþeng- ingu að menn séu viðskiptavinir íslan- dsbanka. Þeir Eyþór og Jón nefndu einnig að með þessai’i þjónustu væru fyrirtækin að skapa sér velvild al- mennings sem vonandi skilaði sér með einhverjum hætti. Björn Davíðsson hjá Snerpu á ísa- firði segir að innhringiþjónusta sé ekki nema hluti rekstrarumfangs Snerpu en ljóst sé að tilboð íslandsbanka og Islandssíma muni breyta ýmsu fyrir fyrirtækið. „Við erum ekki í neinni að- stöðu til að bregðast við þessu tilboði nema að veita góða þjónustu. Við sjá- um heldur ekki hvaða ávinning bank- inn telur sig hafa af því að gefa þessa þjónustu. Við vitum að hún kostar pen- inga og við hljótum að velta því fyrir okkur hvaðan þeir peningar koma. Það má líka spyrja hvort bankinn hyggist halda þessari skuldbindingu áfram eft- ir tiltekinn tíma óg í hvaða stöðu er hann þá að setja notendur sem vilja nota tilboðið núna.“ Meðal nýjunga sem Snerpa hefur boðið er svonefnd vefsía, búnaður sem getur útilokað ákveðnar heimasíður, t.d. klámsíður, eftirlitskerfi sem eig- endur tölvukerfa geta tekið upp og með því takmarkað aðgang og komið til dæmis í veg fyrir að Netið sé mis- notað á vinnustöðum eða skólum. Björn segir ljóst að fyrirtækið verði að bæta sér upp hugsanlega veltuminnk- un ef stoðum verður kippt undan einu horni fyrirtækisins eins og hann orðaði það. „Við erum í viðskiptum við Islandsbanka og við hljótum að endur- skoða það, ég veit ekki hvort svo er háttað um fleiri en það kæmi mér ekki á óvart.“ Sfanda frammi fyrir erfiðri ákvörðun Guðmundur Unnsteinsson, fram- kvæmdastjóri netþjónustufyrirtækis- ins Hringiðunnar og fonnaður Félags endursöluaðila internetþjónustu, tjáði Morgunblaðinu að netþjónustufyrir- tæki, sem ekki eru í eigu símafyrir- tækja, stæðu frammi fyrir erfiðri ákvörðun og ákveðnum örlögum. Inn- an vébanda félagsins eru nærri 20 net- fyrirtæki. „Þessi fyrirtæki hafa ti-yggt sér ákveðna veltu og tekjur með áskriftar- gjöldum til að greiða laun og byggja upp starfsemi í þessum geira,“ segir hann. „Ef þessi þjónusta Islandsbanka og Islandssíma verður metin lögmæt og nær fram að ganga er kippt fótun- um undan því sem þessi netþjónustu- fyrirtæki hafa verið að þróa síðustu fimm árin. Við höfum þegar rætt við Samkeppnisstofnun til að láta á það reyna hvort það er hægt með þessum hætti að kippa þannig stoðunum undan heilli atvinnugrein. Hún er ekki ný og við hefðum kannski ekki getað sagt mikið ef þetta hefði gerst fáum mánuð- um eftir að netþjónustufyrirtækin hófu starfsemi." Guðmundui- kvaðst þó ekki búast við að áskrifendur myndu flykkjast frá fyrirtækjunum. Margir netnotendur væru það skynsamir að sjá að þeir fengju ekki þá þjónustu sem fæst í dag með áskriftargjöldunum, svo sem að- stoð við uppsetningu forrita eða vegna vandamála sem upp kynnu að koma í tölvunum. „Ef þetta tilboð nær fram að ganga er ekki greitt fyrir nettenging- arnar en notendur munu gi-eiða sér- staklega fyrir hvert símtal þegar leita þarf aðstoðar og þetta eru ekki stutt sím töl. Ég held að þjónustan verði með allt öðrum hætti og það er ekkert til sem heitir ókeypis, ef tenging er gefin verður að greiða sérstaklega fyr- ir annað í staðinn." Guðmundur benti einnig á að netþjónustufyrirtækin veittu ýmsa aðra þjónustu og víðtæk- ari en gert yrði hjá íslandsbanka og Íslandssíma. Guðmundur sagði að félagið myndi vinna að því að fá úr því skorið hjá Samkeppnisstofnun hvort tilboð áður- greindra fyrirtækja væri löglegt. Kvaðst hann vona að bráðabirgðaúr- skurður fengist fyrir jólin. Kærunefnd.jafnréttismála birtir úrskurði um rétt þriggja feðra hjá ríkinu og Reiknistofu bankanna til launa og fæðingarstyrks í fæðingarorlofi Synjun um laun í fæðingarorlofí brot á jafnréttislögum Kærunefnd jafnréttismála hefur komist að þeirri niðurstöðu í kærumálum 3rigg;ia feðra sem beint var til nefndarinnar að feðurnir hafi allir átt rétt til launa í fæðingarorlofí sem þeir tóku. TVEIMUR kærumálanna var beint gegn fjármálaráð- herra en í hinu þriðja var um að ræða kæru Sam- bands íslenskra bankamanna, fyrir hönd föður sem starfar hjá Reiknist- ofu bankanna, gegn Reiknistofunni. I öðru kærumálinu gegn fjármála- ráðherra fór starfsmaður hjá Rann- sóknastofnun uppeldis- og mennta- mála þess á leit við kærunefnd jafnréttismála að hún kannaði og tæki afstöðu til þess hvort synjun Ríkisbókhalds á beiðni hans um að njóta sama réttar til launagreiðslna í tveggja mánaða fæðingarorlofi hans og mæður í starfi hjá ríkinu njóta bryti gegn ákvæðum jafnréttislaga. Vitnaði Ríkisbókhald með synjun sinni til reglugerðar frá 1989 um barnsburðarleyfi starfsmanna ríkis- ins þar sem segir að rétt til launa í barnsburðarleyfi eigi fastráðnar konur sem starfað hafi í þjónustu ríkisins samfellt í 6 mánuði fyrir barnsburð en þar er ekkert fjallað um rétt karla í þjónustu ríkisins. I bréfi fjármálaráðuneytisins til kærunefndarinnar er synjunin rök- studd, m.a. vísað til þess að með lög- um um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins frá 1996 hafi verið horfið frá því fyrirkomulagi að kveða á um launagreiðslur til starfsmanna í veikindaforföllum og fæðingarorlofi í reglugerð. Þess í stað sé gert ráð fyrir að til viðbótar lagaákvæðum um lágmarksrétt skuli samið um slíkt í kjarasamningum. Ekki hafi enn verið samið við neitt stéttarfélag um rétt ríkisstarfsmanna til launa- greiðslna í fæðingarorlofi. Kærandi eigi því eingöngu rétt til greiðslna í fæðingarorlofi frá Tryggingastofnun. Ekki enn verið samið um rétt til launa í fæðingarorlofi Kærunefndin bendir á í niðurstöðu sinni að ekki hafi enn verið samið um rétt ríkisstarfsmanna til launa- greiðslna í fæðingarorlofi og um- rædd reglugerð frá 1989 taki því enn til barnsburðarleyfis starfsmanna ríkisins. Vitnar nefndin til Hæsta- réttardóms frá 5. febrúar 1998, þar sem föður sem starfaði hjá ríkinu var dæmdur réttur til greiðslu launa í fæðingarorlofi, og kemst nefndin að þeirri niðurstöðu að dómurinn verði ekki skilinn svo að réttur feðra til greiðslna í fæðingarorlofi geti ráð- ist af því hvort móðir sé einnig rík- isstarfsmaður. „Að mati nefndarinnar er sá skilningur í andstöðu við 65. gr. stjórnarskrárinnar að mismuna körlum innbyrðis á þennan hátt. Réttur föður til launa í fæðingar- orlofi hlýtur að byggjast á atvinnu- þátttöku hans sjálfs en ekki maka hans. Með hliðsjón af framangreindu og þá sérstaklega dómi Hæstarétt- ar frá 5. febrúar 1998 er það niðurs- taða kærunefndar jafnréttismála að synjun Ríkisbókhalds á að greiða A laun í fæðingarorlofi hans í sam- ræmi við ákvæði reglugerðar nr. 410/1989 brjóti í bága við 4. gr. jafnréttislaga sbr. 3. gr. sömu laga. Kærunefnd beinir þeim tilmælum til fjármálaráðherra að kæranda verði greidd laun í fæðingarorlofi hans,“ segir í niðurstöðum nefndar- innar. í hinu málinu sem beint var gegn fjármálaráðherra reyndi á rétt starfsmanns hjá embætti Sýslu- mannsins í Hafnarfirði en Ríkisbók- hald hafði synjað beiðni hans um leiðréttingu launa í tveggja mánaða fæðingarorlofi sem hann tók 1997. Svipaðar röksemdir voru hafðar uppi í þessu máli og hinu fyrrnefnda og komst kærunefndin að þeirri nið- urstöðu að synjun Ríkisbókhalds á að greiða föðurnum laun í fæðingar- orlofi hans bryti í bága við ákvæði jafnréttislaga. Er þeim tilmælum beint til fjármálaráðherra að kær- anda verði greidd laun í fæðingar- orlofi hans. Átti rétt til launa og fæðingarstyrks í kæru Sambands ísl. banka- manna var þess farið á leit við kær- unefndina að hún kannaði og tæki afstöðu til þess hvort synjun Reikn- istofu bankanna í október 1998 á greiðslu fæðingarstyrks og launa til starfsmanns Reiknistofunnar, í 14 daga fæðingarorlofi hans, bryti gegn ákvæðum jafnréttislaga. Reiknistofan synjaði kröfum föð- urins að höfðu samráði við samninganefnd bankanna, m.a. á þeirri forsendu að bankamenn í fæðingarorlofi feðra eigi ekki rétt á greiðslu launa á grundvelli ákvæðis 6.2.1 í kjarasamningi bankamanna. í umræddu ákvæði segir að kona skuli eiga rétt á að vera fjarverandi í sex mánuði vegna barnsburðar og njóta fullra launa fyrstu þrjá mán- uði sé hún fastráðin. í niðurstöðu kærunefndar er m.a. bent á að ekki skipti máli í þessu sambandi að eiginkona föðurins tók 6 mánaða fæðingarorlof á launum frá öðrum atvinnurekanda. Einnig er bent á að 14 daga viðbótarorlofs- réttur föður sé sjálfstæður réttur sem skerði á engan hátt fæðingar- orlofsrétt móður heldur sé fyrst og fremst ætlað að hvetja feður til töku fæðingarorlofs. Kærunefndin telur að breyttir tímar og breytt löggjöf hafi kollvar- pað þeim grundvelli sem umrætt ákvæði í kjarasamningi banka- manna var upphaflega reist á. „Með vísan til framangreinds er það álit kærunefndar jafnréttislaga að með því að takmarka ákvæði 6.2.1 í kjarasamningi banka og sparisjóða og Sambands íslenskra bankamanna frá 3. apríl 1997 við konur sé ekki verið að vinna að jafnrétti kynja eða að því að bæta stöðu kvenna á vinn- umarkaði. Nefndin telur þ.a.l. að sú túlkun rúmist ekki innan þess svigr- úms sem 3. gr. jafnréttislaga veitir til jákvæðrar mismununar gagnvart konum. Samkvæmt því er það álit kærunefndar jafnréttismála að synj- un Reiknistofu bankanna á að greiða A laun í 14 daga fæðingarorlofi hans, sem eru innan þeirra 3ja mánaða sem ákvæði 6.2.1. kveður á um, mis- muni konum og körlum með þeim hætti að ekki samrýmist 1. tl. 1. mgr. 6. gr. jafnréttislaga, sbr. 4. gr. sömu laga,“ segir í áliti kærunefnd- ar. Kærunefnd kemst einnig að þeirri niðurstöðu að kostnaður vegna fæð- ingar barns hljóti að jafnaði að lenda á föður jafnt sem móður, búi faðir- inn á heimili barnsins. Er þeim til- mælum beint til Reiknistofu bank- anna að kæranda verði greiddur fæðingarstyrkur og laun í 14 daga fæðingarorlofi hans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.