Morgunblaðið - 23.01.2000, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 2000 23
er að krakkarnir eru með þessari
vinnu að fjármagna frístundir sínar.
Þeir vilja eiga fyrir hljómtækjum
hvers konar, fötum og þess háttar.
Aðrar kannanir hafa sýnt að þeir
eru ekki að leggja með sér til rekst-
urs heimilisins. En samhliða mikilli
vinnu eiga þeir tæpast frístundir
sem heitið geta. Það er líka afar at-
hyglisvert að unglingar frá tekju-
hærri heimilum eru í meirihluta
þeirra sem vinna mikið með námi.“
Er einhver skýring á því?
„Það kemur ekki fram í okkar
könnun, en kenningamar eru fyrir
hendi. Unglingamir frá efnameiri
heimilunum em vanir meiri vellyst-
ingum og gera meiri kröfur til efna-
legra gæða heldur en þeir sem koma
frá efnaminni heimilum. Ein skýring
sem nefnd hefur verið er sú að for-
eldrar unglinga frá efnameiri heim-
ilunum eru betur tengdir í þjóðfé-
laginu. Eiga þar af leiðandi
auðveldar með að koma bömum sín-
um í störf. Það kann að vera sitthvað
til í því. Ein skýring kann enn frem-
ur að liggja í grundvallarhugarfari,
„mentalíteti", unglingar frá efna-
meiri heimilum fá mikla hvatningu
til að vinna fyrir sér þar sem þeirra
umhverfi byggist á slíku. Ekki svo
að skilja að ekki sé unnið þrotlaust
og baki brotnu á efnaminni heimil-
um, heldur em unglingar af þeim
efnameiri aldir upp við að sjá af-
rakstur skila sér í aukna neyslu."
Merkileg kynjaskipting
Guðbjörg heldur áfram og segir
að sérkennileg kynjaskipt í hinum
ýmsu störfum hér á landi haíi skorið
sig nokkuð úr. “Hér á landi fara
nánast eingöngu í stúlkur í sum
störf og eingöngu drengir í önnur.
Þú sérð t.d. ekki stúlkur ýtandi
kerrum í stórmörkuðum og ekki
stráka að passa böm. Á hinum
Norðurlöndunum er mjög algengt
að bæði kynin hlaupi í öll störf. Hér
á landi kemur í ljós að það em stúlk-
umar sem em fleiri á vinnumarkað-
inum og þær vinna einnig meira og
lengur heldur en drengirnir. Menn
spyrja sig hvemig á þessu standi.
Það virðist vera úr meiru að moða
íyrir stúlkurnar þegar störfin em
svona kynbundin og ég veit ekki
hvort það er ríkjandi skoðun eða
ekki, en ég hitti í vikunni atvinnu-
rekanda sem sagði skýringuna vera
að hann og aðrir atvinnurekendur
vildu aðeins ráða stúfkur í þessum
aldurflokki, þær væm miklu sam-
viskusamari og traustari starf-
skraftar. Svo liggur í augum uppi að
bamapíur era fleiri heldur en kerr-
ukarlar svo dæmi séu tekin um vinn-
uframboðið.
Aðrar kannanir hafa sýnt fram á
algengara er að drengirnir hafi va-
sapeninga heldur en stúlkur og auk
þess ríflegri vasapeninga í þeim til-
vikum þar sem bæði kyn njóta slíks.
Auk þess hafa kannanir sýnt að for-
eldrar em fúsari til að greiða dýrar
íþróttir fyrir stráka og kaupa handa
þeim dýrari búnað. Ef til vill þurfa
því stúlkur fremur að vinna fyrir sér
þar sem foreldrarnir em sparari við
þær. Spurningin vaknar líka hvort
stúlkumar séu að fá lægri laun og
þurfi því að vinna lengur eða meira
til að uppskera það sama.“
Engir samningar
Loks nefnir Guðbjörg til atriði
sem kalla á nánari skoðun. í ljós
kemur í könnuninni, að eigi færri en
82% barna og unglinga á umrædd-
um aldri hafa ekki starfssamning af
nokkm tagi. „Hvað finnst stéttar-
félögunum um þetta? Em þessir
unglingar í stéttarfélögum? Hver
eru réttindi unglinga sem ganga
bara inn af götunni til vinnu? Þau
hafa ekkert atvinnuöryggi og era í
raun ofurseld vinnuveitendum sín-
um. Þetta ástand er verst á Islandi
af öllum Norðurlöndunum."
Hvernig verður tekið á þessu?
„Vinnueftirlit ríkisins hefur haft
frumkvæði að gerð þessarar könn-
unar og hún hefur velt spumingun-
um upp. Það sem við munum gera er
að koma þessum upplýsingum á
framfæri við þá sem vinna að má-
lefnum þess aldurshóps sem hér á í
hlut. Það em atvinnurekendur, for-
eldrar og aðrir aðstandendur ungl-
inganna að þeim sjálfum ógleymd-
um. Okkar hlutverk er að finna þá
vinnustaði þar sem úrbóta er þörf
og gera kröfur um að gengið verði í
verkið."
vasKhugi
A L H L I Ð A
VIÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR
l Fjárhagsbókhald
I Sölukerfi
) Viðskiptamanna
kerfi
I Birgðakerfi
I Tilboðskerfi
I Verkefna- og
pantanakerfi
I Launakerfi
I Tollakerfi
Vaskhugi ehf. Siðumúla 15 - Simi 568-2680
Dísa í World Class segir:
„Loksins sýnilegur
árangur!"
„Loksins kom krem þar sem virknin
finnst þegar það er borið á húðina og
jafnframt sjáanlegur munur! Ég mæli
eindregið með Silhouette fyrir konur á
öllum aldri og eftir barnsburð er það al-
veg nauðsynlegt.
Nýja Body Scrubið er kærkomin
viðbót og tvöfaldar virkni Silhouette-
kremsins á húðina.“
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Switzerland
I
Auðveldasta og hagkvæmasta leiðin til
að eignast sparifé er með áskrift og nú
getur þú búið til þitt eigið verðbréfasafii
úr innlendum og erlendum verðbréfum
fyrir allt ffá 5.000 kr. á mánuði!
Með áskrtft
að verðbrófasjódum VÍBfœrðu:
• 40% afslátt af gengismun
• val um 15 mismunandi sjóði
• lægsta kostnað sem völ er á hérlendis
ráðgjöf sérfræðinga við val á verðbréfum
Nú getur þú einnig keypt
erlend hlutabréf í áskrift!
Agla E. Hendriksdóttir,
deildarstjóri Einstaklingsþjónustu
E @E IKNIK
á netið með VIB
Nú getur þú farið beint á nýja
Netreikninn okkar á vib.is og gert
nákvæma áætlun um fiárfestingar
þínar. Sjáðu með eigin augum
hvað mismunandi kostir geta þýtt
fyrir heildarávöxtun þína
Þannig virkar Netreiknir:
1. Þú slærð inn aldur þinn og t.d. hvenær þú vilt fara á eftirlaun.
2. Þú velur hve mikiðþú vilt spara mánaðarlega.
3. Þú slærð inn hver núverandi eign þín er.
4. Þú velur hlutfall hlutabréfa, skuldabréfa og erlendra
hlutabréfa.
5. Þú slærð inn á hve löngum tíma þú vilt taka út inneignina.
6. Netreiknir reiknar fyrir pig.
Þú fmrð niðurstöðurnar.
VÍB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA
Kirkjusandi. Sími: 560 8900. www.vib.is
Útíbú íslandsbanka. Sími: 575 7575
allt á einum stað
Líka þú getur
gerst áskrifandi að
milljónum hjá okkur
il'kjusandi -