Morgunblaðið - 23.01.2000, Page 30
30 SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTIÁ SUNNUDEGI
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fyrirliðar Elements hf. á Sauðárkróki, f.v. Páll Kolbeinsson framkvæmdastjóri og Gunnar Þór Gestsson rekstrarstjóri hugbúnaðarsviðs.
VINNA í FJAR VINNSL U
UMLANDALLT
vœsDmftmNNuiiF
Á SUNNUDEGI
► Páll Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Elements hf., er fæddur í
Reykjavík árið 1964. Hann er stúdent frá Menntaskólanum í
Reykjavík og lauk BS-prófí í viðskiptafræði frá Wisconsin-háskóla
árið 1989. Páll vann sem verkefnisstjóri hjá Sljórnunarfélagi ís-
Iands íþrjú ár og var síðan íþrótta- og tómstundafulltrúi á Sauðár-
króki frá 1993 eða þar til hann tók við starfí framkvæmdastjóra
Elements hf. í júlí síðastliðnum. Páll lék körfuknattleik með KR,
Tindastóli og landsliðinu og þjálfaði lið Tindastóls um skeið. Hann
er nú bæjarfulltrúi í Skagafirði. Eiginkona Páls er Þórunn Péturs-
dóttir stuðningsfulltrúi og eiga þau þijár dætur.
► Gunnar Þór Gestsson, rekstrarstjóri hugbúnaðarsviðs Elements
hf., er fæddur árið 1971 á Sauðárkróki. Hann er stúdent frá
Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki og lauk hagfræðiprófi frá
Háskóla íslands árið 1995. Gunnar vann hjá ýmsum fyrirtækjum
á Sauðárkróki en að námi loknu tók hann að sér að stjórna
tölvuvæðingu Kaupfélags Skagfirðinga. Gunnar tók til starfa
hjá Elementi hf. árið 1997 þegar fyrirtækið keypti tölvudeild KS.
Kona Gunnars Þórs er Guðný Guðmundsdóttir bankastarfs-
maður og eiga þau tvær dætur.
eftir Helga Bjarnason
UNNIÐ er að uppbygg-
ingu Elements hf. á
Sauðárkróki sem tölvu-
og hugbúnaðaríyrir-
taekis á almennum
markaði eftir að hátæknihluti fyrir-
tækisins var skilinn frá því og seldur.
Starfsmenn Elements vinna í fjar-
vinnslu inni á tölvum viðskiptavina
sinna og segja stjórnendur fyrirtæk-
isins að ekki skipti öllu máli hvar fyr-
irtæki af þessu tagi eru. Element er
orðið stærsta hugbúnaðarfyrirtækið
utan höfuðborgarsvæðisins og stefnt
er að áframhaldandi uppbyggingu,
meðal annars með þátttöku í Fjöl-
neti ehf. sem leggur ljósleiðaranet
um Sauðárkrók.
Stofnað upp úr deildum KS
Meginhluti starfsemi Elements
hefur orðið til við þróunarstarf í
tveimur deildum Kaupfélags Skag-
firðinga. Upphafið má rekja til árs-
ins 1992 er stofnað var skynjarasvið
á rafmagnsverkstæði KS í þeim til-
gangi að þróa kæligasskynjara. Sér-
stakt hlutafélag, Element-Skynjara-
tækni hf., var stofnað um framleiðslu
á skynjurum og tengdum vörum á
árinu 1996 og ári síðar keypti fyrir-
tækið tölvudeild KS. Stofnað var til
tölvudeildarinnar vorið 1995 þegar
Gunnar Þór Gestsson kom heim frá
námi og fékk það verkefni að stýra
tölvuvæðingu kaupfélagsins. Starfs-
menn voru orðnir þrír þegar tölvu-
deildin rann inn í Element-Skynj-
aratækni rúmum tveimur árum
síðar.
Element-Skynjaratækni starfaði á
báðum sviðunum í tæp tvö ár eða þar
til síðastliðið vor að hátæknihlutinn
var seldur. Eftir stendur tölvu- og
hugbúnaðarfyrirtækið Element hf.
og tók Páll Kolbeinsson við fram-
kvæmdastjórn fyrirtækisins á þeim
tímamótum. '
Að sögn Páls felst starfsemi fyrir-
tækisins í því að aðlaga og reka
tölvukerfi fyrir fyrirtæki og stofnan-
ir um land allt. Mesta áherslan er
lögð á hugbúnaðarvinnu og er Gunn-
ar Þór Gestsson, sem stjómaði
tölvudeild KS, rekstrarstjóri hug-
búnaðarsviðs. Páll segir að fyrirtæki
úti á landi vilji gjaman geta fengið
alla þjónustu á sama stað. Þess
vegna hafi einnig verið stofnað
tæknisvið til að veita þjónustu á sviði
vélbúnaðar og annars skrifstofubún-
aðar.
Unnið með osta
og skuldabréf
Element starfar í nánum tengsl-
um við Streng, Opin kerfi og
Nýherja og er mest unnið með Nav-
ision-viðskiptahugbúnaðinn.
Stærstu verkefnin em á Sauðár-
króki og í Reykjavík en Element er
einnig með verkefni fyrir fyrirtæki á
Egilsstöðum, Höfn, Blönduósi,
Hvammstanga og í Borgamesi.
„Fyrirtækið er stofnað upp úr tölvu-
deild Kaupfélags Skagfirðinga sem
hefur með höndum mjög fjölbreytt-
an rekstur. Við þurftum að búa til
sérlausnir fyrir þetta fyrirtæki og
komið hefur í ljós að þær nýtast öðr-
um. Við höfum því verið að selja þá
þekkingu sem varð til við tölvuvæð-
ingu KS til kaupfélaga og annarra
fyrirtækja um allt land,“ segir Gunn-
ar Þór þegar hann er spurður um
möguleika fyrirtækisins.
Starfsmenn Elements hafa hann-
að í Navision-viðskiptakerfinu hug-
búnað sem sér um afreikning og
skýrslugerð fyrir afurðastöðvar og í
framhaldi af því framleiðslukerfi
sem veitir stjómendum nákvæmar
upplýsingar um stöðu mála í fram-
leiðslu og sölu.
Meðal verkefna sem fengist hafa
út á þessa þekkingu nefnir Gunnar
uppsetningu nýs upplýsingakerfis
hjá Osta- og smjörsölunni í Reykja-
vík.
Annað stórt verkefni hjá Elementi
er af öðram toga. Fyrirtækið er þátt-
takandi í verkefni með Fjárvaka og
Opnum kerfum um að sefia upp nýtt
skuldabréfakerfi fyrir Ibúðarlána-
sjóð. Fjárvaki ehf., sem er dótturfé-
lag Kaupfélags Skagfirðinga, fékk
þetta verkefni hjá Ibúðarlánasjóði
eftir útboð. Fyrirtækið hyggst nota
við það indverskan hugbúnað fyrir
banka og fjármálafyrirtæki, sem
nefnist Flex Cube. Hjá Elementi
hefur einnig verið þróað tímaskrán-
ingarkerfi í Navision en það vinnur
úr upplýsingum stimpilklukku. Það
kerfi er verið að setja upp á nokkram
stöðum á höfuðborgarsvæðinu.
Með báða fætur á jörðinni
Element stækkar nokkuð ört. Þar
era nú þrettán starfsmenn en fyrir
skiptingu fyrirtækisins vora þeir ell-
efu, þar af sjö við hátæknihlutann
sem var seldur. Að sögn Páls hefur
veltan aukist úr 43 milljónum á árinu
1997 í rúmlega 80 milljónir á síðasta
ári og ef einungis er litið á veltuna af
hugbúnaðarvinnunni sést að hún
hefur meira en tífaldast á milli ára.
Element lagði mikla orku og fjár-
muni í þróun á meðan fyrirtækið
starfaði á hátæknisviðinu. Páll segir
að það hafi bitnað á afkomunni á síð-
asta ári en eftir skiptinguna sé rekst-
urinn að snúast aftur til betri vegar.
Kaupfélag Skagfirðinga á meiri-
hluta hlutafjár eða 55%, og hinn hluti
hlutafjárins er í eigu um 30 aðila,
meðal annars lífeyrissjóða og starfs-
manna. Páll segir að eigendahópur-
inn hafi orðið til þegar fyrirtækið var
í annarri starfsemi og býst við að
hann breytist í takt við breyttan
rekstur. Sjálfur hefur hann áhuga á
að koma á eignatengslum við sam-
starfsfyrirtæki Elements í tölvu-
heiminum og að gefa fleiri starfs-
mönnum kost á að eignast hlut.
Stjómendur fyrirtækisins hafa
hug á að stækka það enn meira á
næstu árum, takmarkið er fimmtán
starfsmenn í ár og 20% aukning
veltu. „Við ætlum að reyna að vera
með báða fætur á jörðinni. Teljum
farsælla að fara rólega í sakirnar og
gera hlutina þeim mun betur,“ segir
Páll. Skipulag fyrirtækisins er komið
í það horf sem stjómendur þess vilja.
„Við skiptum verkum með okkur
þannig að menn nái að einbeita sér
að þeim verkefnum sem þeir eiga að
vinna að,“ segir Gunnar.
Mest unnið í fjarvinnslu
Flest eða öll vaxandi tölvufyrir-
tæki eiga í vandræðum með að fá
hæft fólk til starfa. Páll segir að EI-
ement fari ekki varhluta af því. „Við
eram með traust starfsfólk sem á
rætur hér í Skagafirði en þurfum að
bæta við og leitum mjög stíft um
þessar mundir. Einkum höfum við
verið að horfa til þess að fá til baka
ungt fólk sem farið hefur suður, fólk
sem hægt er að tengja aftur við
heimahagana,“ segir Páll. Gunnar
bætir því við að minni hreyfing sé á
fólki hjá fyrirtækjum á Sauðárkróki
en á höfuðborgarsvæðinu. „Þegar
menn era komnir til okkar á annað
borð era minni líkur á að þeir hlaupi
eitthvert annað. Við leitum einmitt
að starfsfólki sem við getum byggt á
til frambúðar," segir hann.
Vegna umfangsmikilla verkefna á
höfuðborgarsvæðinu hyggst Elem-
ent koma þar upp starfsstöð. Til-
gangurinn er að nýta betur tímann
hjá mönnunum sem vinna við verk-
efni í höfuðborginni. Annars era öll
verkefni Elements, hvar sem er á
landinu, að mestum hluta unnin frá
höfuðstöðvum fyrirtækisins á Sauð-
árkróki. Element er með fjar-
vinnslulínur inn í öll fyrirtækin sem
það þjónar. Starfsmennirnir fara
þannig inn á tölvur viðskiptavinanna
og vinna þar frá sinni eigin tölvu.
„Það skiptir ekki máli hvar þjónustu-
fyrirtæki í hugbúnaði er, hvort það
er hér á Sauðárkróki, erlendis, á höf-
uðborgarsvæðinu eða í sama byggð-
arlagi og viðskiptavinurinn. Ég held
reyndar að það sé best að vinna hér á
skrifstofunni, hér er meira næði en í
höfuðborgarstreitunni og minni
traflun en hlýst af því að vera inni í
fyrirtækjunum í eigin persónu," seg-
ir Gunnar Þór. Páll segir að erfiðast
sé að sannfæra stjórnendur fyrir-
tækja og stofnana um að unnt sé að
vinna með þessum hætti. „Þó fá þeir
þjónustuna fyrr en ella, umferðin er
greiðari um símalínumar en Miklu-
brautina. Það tekur okkur aðeins
nokkrar sekúndur að komast í sam-
band og notendumir sjá breyting-
amar jafnóðum inni á tölvukerfun-
um,“ segir hann.
Páll og Gunnar segja að vel hafi
gengið að vinna með þessari tækni.
„Við höfum þurft að tileinka okkur
ný vinnubrögð og eram orðnir vanir
þeim." Þeir segjast þó þurfa að koma
við í fyrirtækjunum til að sýna sig og
•kynnast aðstæðum. „Fyrirtæki í
hugbúnaðarþjónustu þarf að þekkja
vel aðstæður notandans. Við leggj-
um metnað okkar í að gera það vel og
veitum jafnframt ráðgjöf um skipu-
lagið, sé þess óskað, enda era hjá
okkur starfsmenn sem hafa mikla
reynslu af því að vinna í fyrirtækjum
af þeirri gerð sem við vinnum mest
fyrir,“ segir Gunnar.
Ljésleiðaranet á Sauðárkréki
Element hf. er aðili að fyrirtæki
sem hyggst leggja ljósleiðaranet um
Sauðárkrók og jafnvel viðar um
Skagafjörð. Fyrirtækið heitir Fjöl-
net ehf. og auk Elements standa At-
vinnuþróunarfélag Skagafjarðar og
Fjárvaki að félaginu. Á netinu verð-
ur flutt tölvusamband og sjónvarps-
merki. Þegar er byrjað að tengja fyr-
irtæki og stofnanir við Fjölnetið,
markmiðið er að fjölga þeim í ár og
jafnvel að hefja tengingu heimila.
Langtímamarkmið félagsins er að
tengja saman öll fyrirtæki, stofnanir
og heimili á Sauðárkróki með þess-
um hætti. Miðjan í Ijósleiðaranetinu
er í húsnæði Élements og þaðan er
kerfið rekið.
Páll og Gunnar Þór segja að Fjöl-
netið muni hafa heilmikla þýðingu
fyrir byggðarlagið. Flutningsgeta
eykst. Sem dæmi um það nefna þeir
að hraði í tengingum verði fimmtán-
hundraðfalt meiri en í venjulegu
ISDN-sambandi. Samtenging fyrir-
tækja og stofnana skapar ýmsa
möguleika, til dæmis samnýtingu
hugbúnaðar og vélbúnaðar og era
þess þegar farin að sjást merki. Al-
mennir íbúar fá hagkvæmt, öflugt og
stöðugt samband við umheiminn,
bæði tölvusamband, símasamband
og aðgang að sjónvarpsmerkjum.
Það gerir aftur að verkum að fólk
getur unnið meira heima hjá sér.
„Við erum einfaldlega að taka þátt
í samkeppninni. Koma upp tækni-
væddu umhverfi sem gerir fyrir-
tækjum og fólki hér kleift að keppa á
lands- og alþjóðamarkaði," segja
Páll og Gunnar.
Áfram sókn
Element hf. er að öllum líkindum
stærsta hugbúnaðarfyrirtækið á
landsbyggðinni og þar er stefnt að
frekari landvinningum. „Það þýðir
ekki annað en að sækja fram. Eg er
sannfærður um að við getum gert
jafnvel og aðrir. í þessari atvinnu-
grein er unnt að vinna hvar sem er
á landinu og Sauðárkrókur hefur
upp á ýmislegt að bjóða,“ segir
Páll.