Morgunblaðið - 23.01.2000, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJA
ÍDAG
Jörundur
inn kristni
á Akranesi
Fyrsti ábúandi að Görðum var Jörundur
inn kristni Ketilsson. Stefán Friðbjarn-
arson minnir á að hinum megin Hval-
fjarðar, að Esjubergi, byggði Örlygur
Hrappsson fyrstu kirkju landsins sem
kunn er af heimildum.
FYRSTI ábúandi að Görðum á
Akranesi, sem sögur fara af, er Jör-
undur Ketilsson inn kristni, sonur
Ketils Bresasonar landnámsmanns.
í Landnámabók (Hauksbók) segir:
„Hann hélt vel kristni til dauðadags
og var einsetumaður í elli sinni.“ I
bókinni Akraneskirkja 1896-1996
eftir Gunnlaug Haraldsson segir:
„Má jafnvel ætla, að Jörundur hafi
hlotið prestsvígslu á írlandi áður
en hann kom hingað út með skyld-
fólki sínu og síðan lifað munklifi í
elli sinni í Jörundarholti" (en svo
hétu Garðar framan af, en tóku síð-
ar nafn af akuryrkju, sem stunduð
var á Akranesi á fyrstu öldum
byggðar í landinu).
Asólfur Alskik Konálsson, syst-
ursonur Jörunds, kom frá íralndi
til Austfjarða við tólfta mann. Undi
hann lítt hag sínum innan um heiðið
nábýli eystra og flytzt og að Innra-
Hólmi, hið næsta Jörundi frænda
sínum. í tilvitnaðri bók um Akra-
neskirkju segir um Asólf: „Hann
var einnig kristinn maður og það
hafa landnámsmennirnir Þormóður
og Ketill Bresasynir vafalaust ver-
ið, þótt Landnámabók geti þess
ekki. Þeir vóru norrænir menn að
uppruna, en höfðu búið um ein-
hvern tíma á Irlandi og jafnvel alist
þar upp. Voru bræðurnir án efa
nokkuð við aldur, þegar þeir námu
hér land um 880, enda Eðna, dóttir
Ketils, þá þegar gift kona á Irl-
andi.“
Enn segir Gunnlaugur Haralds-
son:
,Aðrir menn sem Landnámabók
getur um að hafi komið frá Suður-
eyjum og Irlandi og settust að hér
um slóðir, vóru vafalítið einnig
kristinnar trúar, enda hafði kristin
menning blómstrað í heimalöndum
þeirra um aldir. Og á Kjalarnesi,
handan Hvalfjarðar, höfðu kristnir
menn af ættlegg Ketiis flatnefs
hreiðrað um sig, m.a. bróðursonur
Ketils, Örlygur Hrappsson, sem á
Esjuberi lét reisa fyrstu kirkju sem
kunn er af heimildum. A nesjunum
beggja megin Hvalfjarðar vóru þvi
landnám kristinna manna."
Garðar urðu snemma höfuðból.
Þar sátu bændahöfðingjar og goð-
orðsmenn. Meðal þeirra var Þórður
Skúlason, afkomandi Egils Skalla-
grímssonar á Borg í beinan karl-
legg. Hann er fyrsti Garðaprestur,
sem heimildir kunna að nefna, goð-
orðsmaður með prestsvígslu. Hann
hafði staðarforráð á Görðum með
vissu 1143 og trúlega nokkru fyrr
(fæddur fyrir 1100). Það er gaman
að geta þess vegna sögulegs sam-
hengis, að hann var tengdasonar
Markúsar Skeggjasonar, lögsögu-
manns, sem ásamt Gissuri ísleifs-
syni Skálholtsbiskupi kom á löggjöf
um tíund og hjálp við bágstadda,
samanber hugvekju síðasta sunnu-
dags.
Sterkar líkur standa til þess að
kristinn siður hafi fest rætur á
„nesjunum beggja megin Hval-
fjarðar" þegar á landnámsöld (870-
930). Talið er að Ketill fíflski á
Kirkjubæ á Síðu og Örlygur gamli
á Esjubergi hafi reist kirkjur á
jörðum sínum á þessum tíma. Síð-
ar, en þó þegar í frumkristni, risu
kirkjur í Görðum (Akranesi) og að
Innra-Hólmi. Þær hafa vafalítið
verið reistar af hinum írsku og
kristnu landnemum, sem vænta má
að hafi haldið fast við kristna trú
sína i hinu heiðna samfélagi nor-
rænna manna uns kristni var lög-
tekin árið þúsund, segir í kaflanum
„Kirkjur og frumkristni“ í nefndri
afmælisbók um Akraneskirkju.
Við Byggðasafnið í Görðum á
Akranesi, sem hefur margt fagurt
og forvitnilegt að geyma, er minnis-
varði um kristið landnámsfólk á
þessu svæði, gjöf frá írlandi.
Landfræðileg mörk hins forna
Garðaprestakalls féllu að mestu
saman við það sem talið er að hafi
verið landnám bræðranna Þormóðs
og Ketils Bresasona, þ.e. hið foma
Akranes. Ketill lét síðan nokkurn
hluta lands síns í hendur Bekans,
sem bjó að Bekansstöðum, eða land
allt norðan Berjadalsár, þ.e. Skil-
mannahrepp. Hann var kristinn
maður af keltneskum ættum.
Allt er þetta löngu liðin saga. Ár-
ið 2000 er gengið i garð. Þúsund ár
eru liðin frá því að kristni var lög-
tekin að Lögbergi við Öxará á
Þingvöllum. Tvö þúsund ár frá því
Kristur fæddist í Betlehem. En í ei-
lífðinni eru þúsund ár dagur ei
meir. Og íslands saga 21. aldar,
sem í hönd fer, verður framhald
þess, vex af rót þess, sem á undan
var komið. Nýr kapítuli í þjóðar-
sögu, sem þau semja saman sem
öldina lifa, skemmri eða lengri
tíma.
Kristnisaga, tengd Görðum á
Akranesi, spannar nær alla þjóðar-
söguna. Goðorðsmaðurinn og
presturinn Þórður Skúlason - niðji
höfundar Höfuðlausar og tengda-
sonur lögsögumannsins sem kom á
tíund - er löngu genginn til feðra
sinna. En kirkjan hans, kirkja þjóð-
arinnar, er enn að verki í öllum
byggðum bólum landsins. Klukkur
hennar kalla enn til tíða. Stefán frá
Hvítadal lýsir kalli þeirra með
þessum orðum: Kirkjan ómar öll, -
býður hjálp og hlíf, - þessi
klukknaköll - boða ljós og líf.
© ÚTFARARÞJÓNUSTAN
10 ára
1990 - 2000
Persónuleg þjónusta
Aðstoðum við skrif minningarrgreina
Sími: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is
áSZ
Rúnar Geirmundsson
útfararstjóri
Sigurður Rúnarsson
útfararstjóri
Fréttir á Netinu
VKIMKAMH
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Myndlyklar
og metnaður
EG hef verið að velta því
fyrir mér á þessari tækniöld
hvenig það megi vera, að
Stöð 2 bjóði áskrifendum
sínum upp á myndlykla þar
sem einungis er hægt að
horfa á eina stöð í einu (séu
fleiri en eitt sjónvarpstæki á
heimili) og að ekki sé hægt
að horfa á Sýn og taka upp
dagskrá Stöðvar 2. Mér
sýnist þessi annars ágæta
stöð, reyni að fylgjast með
nýjungum á öðrum sviðum
og finnst að þeir ættu að
taka á þessum máli sem
fyrst, það hljóta að vera til
fullkomnari myndlyklar og
hafi stöðin einhvem metnað
til handa áskriféndum sín-
um, ættu þeir að kippa
þessu í liðinn. Annað sem ég
hef verið að velta vöngum
yfir á Stöð 2 er einokun!!
Þeir eru duglegir að tala um
einokun á Ríkissjónvarpinu,
en mér ftnnst til háborinnar
skammar að þegar lands-
leikir í knattspymu eða öðr-
um íþróttagreinum eru
sýndir á Sýn, þannig að fólk
neyðist ti! að kaupa áskrift
að þeirri stöð langi þá að sjá
landsleiki (ég veit að ekki
allir landsleikir eru á Sýn).
Þá er áskriftin orðin ansi
dýr eða ca kr. 5.500 á meðan
Ríkissjónvarpið er með
áskrift upp á rúmar 2.000
kr. og innifaldir í því eru all-
ir merkilegir íþróttavið-
burðir. Einnig vil ég taka
undir umræðuna um dag-
skrána, þar sem allur metn-
aður Stöðvar 2 fer í frétta-
tíma sína og að keppast við
Ríkissjónvarpið á þeim vett-
vangi. Nú er það svo að Rík-
issjónvapið hefur greinilega
lagt meiri metnað í helgar-
dagskrá sína, á meðan Stöð
2 sefur værum blundi og er
orðið sjaldgæft að maður
horfi á þá stöð á föstudag-
og laugardagskvöldum. Það
væri gaman, ef fleiri myndu
tjá sig um þetta mál.
Kristín Jónsdóttir.
Kauphækkanir og
þingmenn
ÞINGMENN! Mér verður
oft á að hugsa til hvers em
þingmenn? Það má kannski
snúa þessu við og spyrja,
hafa þingmenn gert sér
grein fyrir til hvers þeir eru
á þingi? Það er kannski nóg
að nefna eitt dæmi: Þing-
menn höfðu fyrir nokkrum
árum skammtað sér
skammarlega háar kaup-
hækkanir (svipaða og ný-
lega). Þetta var í bæði skipt-
in gagnrýnt, en fljótlega
lyppaðist þetta niður eins og
sæmir kúgaðri þjóð, þá var
haft eftir þingkonu (það
eina eina sem ég man að
hafa heyrt frá henni!) Hvað
kemur þetta eiginlega al-
menningi við, þótt við fáum
kauphækkun?! (Hafa þing-
menn ekki valið kjarabót?)
Vesalings þingkonan
gleymdi Jónasi Kristjáns-
syni ritstjóra, sem hakkaði
hana í sig, en hún er nú samt
orðin ráðherra í dag.
Svekktur kjósandi.
Létt 96,7 góð stöð
HELGA hafði samband við
Velvakanda og vildi hún
lýsa yfir ánægju sinni með
útvarpsstöðina Létt 96,7.
Segist hún hlusta mikið á
þessa stöð á leiðinni í vinn-
una og er hún mjög ánægð
með lagavalið.
Tapað/fundid
Blátt geisla-
diskahulstur
BLÁTT geisladiskahulstur
fannst á miðjum Laugavegi
fimmtudaginn 20. janúar sl.
Hulstrið er fullt af geisla-
diskum. Upplýsingar í síma
551-8205.
Lítil Bibh'a glataðist
LÍTIL svört Biblía með
rennilás glataðist fyrir
skömmu. Bókin er áletruð
Fanny Kristín Tryggva-
dóttir með gylltum stöfum.
Ef einhver veit hvar bókin
er niðurkomin, er sá hinn
sami beðinn að hafa sam-
band við Fanny Kristínu í
síma 555-4595.
Gsm súniog
taska týndust
I bytjun janúar týndist
svart veski með GSM-síma,
lyklum og kreditkorti,
sennilega á Astro. Finnandi
vinsamlega hafið samband
við írisi í síma 557-7271.
Mjög sérstök
gullkeðja fannst
MJÖG sérstök gullkeðja á
úlnlið fannst við Þingholts-
stræti fimmtudaginn 20.
janúar sl. Upplýsingar í
síma 552-9877 eða 552-8897.
Svart veski týndist
LÍTIÐ, svart veski týndist
sl. sunnudagskvöld eða
mánudag. Skilvís finnandi
hafi samband í síma 561-
2166 eða 862-3554.
Dýrahald
Kettlinga vantar
heimili
SEX gula kettlinga vantar
góð heimili. Kettlingarnir
eru kassavanir. Upplýsing-
ar í síma 566-6834.
BRIDS
Umsjðn Gnðmundur
Páll Arnarson
LESANDINN spilar þrjú
grönd í suður og fær út
spaðagosa. AV hafa ekkert
sagt:
Suður gefur;. allir á hættu.
Norður
A D974
¥ KD6
♦ D843
* 106
Suður
♦ 8
V Á542
♦ K7
* ÁKG875
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 lauf
Pass lspaði Pass 21\jörtu
Pass 3tfgiar Pass 3grönd
Pass Pass Pass
Þú dúkkar fyrsta slaginn.
Austur kallar og vestur spil-
ar næst spaðatíu. Þú leggur
á, austur tekur með kóng,
spilar ásnum og meiri
spaða. Þér til nokkurrar
furðu þá hendir vestur
tveimur tíglum. Hann hefur
því byrjað með G10 tvíspil í
spaða. Nú, jæja; þú átt slag-
inn á spaðaníu blinds og
...gerir hvað?
Spilið er úr áttundu um-
ferð undankeppninnar á
Bermunda. I leik Brasilíu
og Póllands gerði Brasilíu-
maðurinn Villas-Boas sig
sekan um slæm mistök þeg-
ar hann spilaði nú lauftíunni
úr borði. Þetta er spila-
mennska sem sjaldan ei
refsað fyrir, en í þetta sini
var gjaldið hátt:
Norður
* D974
¥ KD6
* D843
* 106
Austur
|||| A ÁK8652
¥93
llll ♦ ÁG65
+ D
Suður
♦ 8
¥ Á542
♦ K7
* ÁKG875
Austur átti drottninguní
blanka og eftir þetta bruð
var engin leið að fá nem:
átta slagi. Á hinu borðini
spilaði Pólverjinn Kwieciei
laufsexunni, en ekki tíunni
og vann spilið auðveldlega.
Hvað gerðir þú?
Vestur
AG10
¥ G1087
♦ 1092
*9432
Víkverji skrifar...
Víkverja kom alls ekld á óvart að
íslenska landsliðið í handknatt-
leik skyldi tapa með átta marka mun
gegn Svíum í fyrsta leik Evrópu-
mótsins á föstudaginn.
Þorbjöm Jensson, þjálfari íslenska
liðsins, lét raunar hafa eftir sér hvað
eftir annað áður en hann hélt utan að
það styttist örugglega í fyrsta sigur-
inn á Svíum í langan tíma; það er auð-
vitað rétt að eftir því sem töpin verða
fleiri hlýtur að styttast í sigur - því
einhvem tíma hlýtur ísland að ná að
sigra Svíþjóð aftur. En að gera sér
vonir um að sigra í Króatíu var al-
gjörlega óraunhæft. Lið Svía er ein-
faldlega miklum mun betra en hið ís-
lenska um þessar mundir. Þess
vegna mátti alls ekki, að mati Vík-
veija, einblína um of á leikinn við
Svía. Auðvitað eiga menn alltaf að
reyna að gera sitt besta en tap í
fyrsta leik gegn þessu fimasterka og
frábærlega vel samæfða liði má ekki
verða til þess að slá „strákana okkar“
út af laginu með framhaldið í huga.
xxx
Fram hefur komið í Morgunblað-
inu að undirbúningur íslenska
liðsins var ákaflega lítill fyrir þessa
keppni. Síðustu átta mánuði fyrir
keppnina lék liðið til dæmis aðeins
fjóra leiki og það gefur augaleið að
samæfing getur ekki verið mikil þeg-
ar svo er. Þótt æft sé og æft verða lið
að taka þátt í leikjum, alvöruleikjum,
til að slípa leikkerfi og ýmsa þá hluti
sem þurfa að vera í lagi þegar komið
er út í baráttu sem Evrópukeppnina.
Kristján Arason, fyrrverandi lands-
liðsmaður, benti á það í þættinum ís-
land í bítið í vikunni að það er alls
ekki sambærilegt að spila landsleiki á
undirbúningstímanum eða leiki við
einhvers konar úrvalslið, eins og ís-
lenska liðið þurfti því miður að gera í
tvígang á síðustu dögunum fyrir mót.
Víkveiji er sammála því sem Þor-
bergur Aðalsteinsson, fyrrverandi
landsliðsþjálfari, sagði í Morgunblað-
inu á föstudaginn að ekkert benti til
þess að íslenska liðið næði langt í
keppninni. Jóhann Ingi Gunnarsson,
sem einnig er fyrrverandi þjálfari
liðsins, sagði á sama stað að litlar
væntingar væru gerðar til liðsins og
hann teldi að allir yrðu himinlifandi
ef það næði árangri sem tryggði sæti
á næstu heimsmeistarakeppni. „Ég
tel óraunhæft að fara fram á eitthvað
meira, til dæmis sæti á Ólympíuleik-
um. Ég bendi á að Króatar, sem eru
ólympíumeistarar, eru ekki búnir að
tryggja sér sæti í þá keppni. Þeir eru
á heimavelli og ég tel líklegt að hann
fleyti þeim langt. Síðan er spurning
hvort þeir þola álagið og spennuna
sem keppninni fylgir. Það gæti hjálp-
að íslenska liðinu."
Víkveiji er á því að íslenska liðið
tapi einnig fyrir Rússum í riðl-
inum, eigi hins vegar að sigra Portú-
gala (en sá leikur fór fram í gær,
laugardag) og Dani en leikurinn við
Slóvena verði í jámum. Liðið ætti því
að geta náð þriðja sæti í riðlinum.
Þetta er alls ekki svartsýnisraus í
Víkverja heldur raunsæi, að hans
mati. Auðvitað hvetur hann strákana
í huganum og vonar að þeir standi sig
sem allra best en liðið er því miður
ekki nægilega sterkt um þessar
mundir til að ná einhverjum stór-
kostlegum árangri á Evrópumeist-
aramótinu. Það er mergurinn máls-
ins.
XXX
Víkverja fannst sorglegt að sjá
hvemig komið er fyrir Diego
Armando Maradona, argentínska
knattspymujöfrinum sem töfraði alla
unnendur þeirrar fögm íþróttar upp
úr skónum um árabil. Hann er langt
leiddur af eiturlyfjaneyslu og ekki
var sjón að sjá hann í sjónvarpsviðtali
sem spilað var á Stöð 2 í vikunni. Það
var tekið þegar hann lenti á Kúbu,
þar sem Maradona ætlar að freista
þess að segja skilið við eiturlyfja-
drauginn fyrir fullt og allt, á þar til
gerðu sjúkrahúsi. Vonandi nær þessi
frábæri knattspyrnumaður heilsu á
ný-