Morgunblaðið - 23.01.2000, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 2000 5 7
FÓLK í FRÉTTUM
sandi. Við þurftum alveg að æfa okk-
ur sérstaklega í flissi.
- Þið haSð ekki faríð í vettvangs-
ferð að fylgjast með unglingum ?
„Nei, við erum ekki það gamlar!"
segir Hafdís Huld og skellihlær.
Fastar í gelgjuhamnum
Þrautreynda leikkonan Álfrún
Helga Ömólfsdóttir bætist nú í um-
ræðuhópinn, en hún lék litlu stelpuna
í Svo á jörðu sem á himni eftir Krist-
ínu Jóhannesdóttur auk annarra
aukahlutverka í kvikmyndum og ótal
hlutverka á sviði. Hún segir okkur að
Guðrún sem ekki kemst í spjallið leiki
í kvikmyndinni 101 Reykjavík sem
Baltasar Kormákur tók upp í sumar.
Hafdís Huld og Álfrún komast
strax í gott stuð við það að rifja upp
lokapartí myndarinnar. „Við létum
eins og smástelpur því við komust
ekki úr gelgjuhamnum, og við þrjár
áttum alveg dansgólfið,“ segir Hafdís
Huld. „Svo keyrði Huldar okkur heim
og þegar við sátum í flisskasti aftur í
sagði hann: „Mér líður bara eins og ég
sé að skutla heim persónum sem ég
hef sjálfur skrifað," segja þær og
hlæja mjög mikið.
Inga Li'sa: Það er alveg sérstök tál-
finning að sjá persónumar lifna við.
- Hvemig var annars að leika í
myndinni, stelpur?
„Það var mjög gaman,“ segja þær
báðar.
Alfrún: Við fengum alveg að sleppa
okkur og vera algjörar gelgjur sem er
mjög ijarri því sem við erum vana-
lega!
Hafdís Huld: Það er líka mjög
óvenjulegt að eiga að vera komin níu
mánuði á leið, og því margt nýtt til að
pælaí.
Álfrún: Mín heitir Tóta og hún er
komin styttra á leið. Og er að berjast
við að ákveða hvort hún setti að láta
eyða fóstrinu eða ekki. Og margt í
kringum það er býsna óhugnanlegt.
- Eruð þið ólíkar týpur í myndinni?
Hafdís Huld: Nei, þær eru bestu
vinkonur og eru með sömu takta. Og
báðar með alvarlegar áhyggjur af líf-
inu. En munurinn er aðallega sá að
Silja mín verður ólétt fyrr, og er eig-
inlega farin að sætta sig við það.
Álfrún: Já, hún er orðin ábyrgðar-
fuU, svona í samræmi við ástandið
sem hún er í.
Hafdís Huld: Þó að Siija hafi róast
miðað við Tótu eftir að hún varð
óirísk er ekki hægt a kalla hana
ábyrgðarfulla, því að þá myndi hún
varla hanga keðjureykjandi í spilasal
komin níu mánuði á leið.
Með persónuna í marga hringi
- En hvernig stóð Inga Lísa sig?
Álfrún: Ótrúlega vel finnst mér, á
þessum löngu tökudögum. Hún var
ólétt og stjómaði úr hægindastólnum
sínum með kakó á brúsa...
Hafdís Huld: ...og samlokur með
hnetusmjöri og sultu!
Meirí hlátur.
Álfrún: Hún var rosalega þolin-
móð.
Hafdís Huld: Sérstaklega þegar við
vorum komnar í gelgjuhaminn.
Álfrún: Mér finnst samt undirbún-
ingurin aðaltíminn. Þá köfuðum við
alveg ofan í persónumar og fórum
með þær í marga hringi. Það var
rosalega áhugavert.
- Hvernig fóruð því að því að Gnna
ykkar karakter?
Álfrún: Við unnum í bákgmnni
stelpnanna og það hjálpað ótrúlega
mildð.
Hafdís Huld: Ég var farin að
þekkja persónumar svo vel að í sum-
um atriðunum fann ég virkilega til
með þeim.
Inga Lísa: Þær vom allar svo sann-
færandi að maður sat bara grátandi
yfir mónítómum.
- Eitthvað að lokum ?
Álfrún: Lengi lifi gelgjumar! Eða
þó! Ég er farin að blóta miklu meira
envanalega!
Hafdís Huld: Það tók nokkra daga
að skiija við Silju, og hætta að segja
„kiikkað“.
Inga Lísa: Þetta var góður tími
þótt prógrammið væri strangt, við
hefðum lítinn tíma og margt að huga
að. Ég var komin í ham undir lokin og
hefði alveg verið til í taka upp í mánuð
í viðbót.
„0, já,“ andvarpa Álfrún og Hafdís
Huld sem nærast greinilega ennþá á
góðum minningum.
Þar sem
ferskleikinn
býr
KVIKMYNDAHÁTÍÐ sem kennd
er við Sundance var opnuð í Park
City í Utah í nítjánda sinn á
fimmtudag en hún hefur vaxið að
virðingn og verðleikum með
hverju árinu sem líður. Á hátíð-
inni er ár hvert bæði hægt að
finna stúrmyndir úr verksmiðjum
Hollywood sem og frumlegar og
ferskar myndir eftir úháða leik-
stjúra og hefur margur þeirra
fyrst hlotið viðurkenningu einmitt
á Sundance. Sumir leikstjúrar og
leikarar hafa jafnvel freistað þess
eftir nokkrar misheppnaðar til-
raunir til að verða vinsælir í
Hollywood að vinna fyrir lítið
sem ekkert kaup að myndum sín-
um og vonast til að þær komist á
hátíðina í Utah sem verði síðan
stökkpallur fyrir þá í peningalaug
Hollywood.
Aðsókn eykst ár frá ári
Síðan Robert Redford Sun-
dance-stofnunin túk yfir Kvik-
myndahátíðina í Utah árið 1985
hafa seld sæti á hátíðinni farið úr
15.750 árið 1985 og í 135.922 árið
1999.
Sem dæmi um kvikmynd sem
varð vinsæl í kjölfar sýningar
hennar á Sundance má nefna Sex,
Lies And Vidiotapes sem varð ár-
ið 1991 algjör smellur ef svo má
að orði komast. Einnig má nefna
myndina The Brothers McMullen
eftir Ed Burns sem var sýnd þar
árið 1994. En hvað sem því lfður
má enn finna myndir á Sundance
sem væru jafnvel hvergi annars
staðar sýndar ef hátíðarinnar nyti
ekki við, svo súrstakar og úhefð-
bundnar eru þær og það er ein-
mitt það sem er svo gaman og
öðruvísi við hátíðina. Það er
gulltryggt að einhver myndanna
sem á hátíðinni er sýnd verður
vinsæl og dreift af stúrum Holly-
wood-verksmiðjum en einnig að
þar verður sýnd mynd sem verður
minnst lengi fyrir ferskleika og
jafnvel fyrir að leggja öðrum Ieik-
stjúrum línurnar f framtíðinni.
Nokkrar af þeim myndum sem
sýndar verða á hátfðinni í ár hafa
þegar vakið töluverða athygli og
er myndin American Psycho með-
al þeirra auk The Tao of Steve
með Donal Logue sem er vfst
sprenghlægileg. Myndin Hamlet
með Ethan Hawke verður líka
frumsýnd á hátfðinni.
Einnig verður þar að finna
myndina Rated-X sem leikarinn
Emilio Estevez leikstýrir og leik-
ur í ásamt brúður sfnum Charlie
Sheen en myndin er byggð á sögu
frægra klámmyndakúnga.
AP
Á Sundance-kvikmyndahátíðinni verða margar myndir frumsýndar og
ýmislegt um að vera.
air terra Irumara
Kr. 9.990,-
max loftpúðar í hæl og tábergi.
air tuned max kr. 9.690,-
loftpúði í hæl og táhergi.
air terra humara kv. kr. 9.990,-
max loftpúðar í hæl og tábergi.
Vertu með t valinu!
Vinsældalisti þar sem
þu hefur áhrif!
Sundance-kvikmyndahátíðin hafin
SKHAKEtMIN
mbl.is
Listinn er valinn á mbl.is
Listinn er óformleg vinsældakönnun
og byggist á vali gesta mbl.is.
cortez kv. kr. 6.990,-
bringyagame stærðir 36-38,5
3.990
NIKE BUÐIN
Laugavegi 6 JUST DO IT Sími 562 3811