Morgunblaðið - 29.02.2000, Side 1
50. TBL. 88. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Mikið hefur dregið úr virkni gossprungunnar í Heklu
Enn gýs úr
tveimur
eldgígum
Hraun fossar niður hlíðina
MIKIÐ hefur dregið úr gosvirkni í Heklu frá því á laugar-
dagskvöldið er gosið náði hámarki á fyrstu tveimur klukku-
stundunum eftir að það hófst. Lítið hefur sést til eldstöðvar-
innar síðan en jarðskjálftamælar sýna að eldvirknin hefur
minnkað mikið. Jarðfræðingar sem komust að rótum Heklu í
gær segja þó að enn gjósi úr tveimur gígum við tind fjallsins
og renni hraun úr báðum. Syðri gígurinn er þó sýnu virkari og
í honum eru reglulegar sprengingar á einnar til fimmtán sek-
úndna fresti. Þrír hraunfossar renna þar niður hlíðina.
HEKLUGOS
Veltur fram eins
og belti á jarðýtu
BLAÐC
■ Forystugrein/38
Eldgosið í Heklu hófst klukkan
18:17 á laugardag. Hálftíma áður
sýndu þenslumælar breytingar sem
mátti túlka þannig að kvika væri að
þrýsta sér hratt upp efst í gosrás
Heklu. Ragnar Stefánsson,
jarðskjálftafræðingur á Veðurstofu
íslands, segir að þá hafi Aimanna-
vörnum og fleirum verið gert við-
vart um að gos myndi örugglega
hefjast innan 20-30 mínútna. Þetta
gekk eftir, þrýstilétting kom fram á
þenslumælum klukkan 18:17, sem
þýddi að jarðskorpan hafði opnast
og gosefni voru byrjuð að þeytast
upp úr jörðinni.
Fyrstu táknin um væntanlegt gos
komu fram mun fyrr, eða um klukk-
an 17, en þá vildi svo til að Páll Ein-
arsson, prófessor í jarðeðlisfræði
við Háskóla Islands, var að skipta
um pappír í sírita jarðskjálftamæl-
anna á Raunvísindastofnun.
Gosið var öflugast fyrstu tvo
klukkutímana. Skammvinnt þeyti-
gos lyfti gosmekkinum í um það bil
Morgunblaðið/Rax
Ármann Höskuldsson tekur
öskusýni við hraunjaðarinn.
9 kílómetra hæð og barst askan til
norðausturs yfir Hofsjökul með
stefnu á Eyjafjörð og Skagafjörð.
Talsverð flúonnengun hefur
mælst í ösku sem fallið hefur úr
Heklugosinu en hún getur verið
hættuleg skepnum sem eta af jörð
sem aska fellur á eða drekka vatn
sem mengast hefur.
Vísindamenn treysta sér ekki til
að spá fyrir um lok gossins, hvort
það muni standa yfir í daga eða vik-
ur. Ragnar Stefánsson telur að ör-
ari gos í Heklu séu væntanlega
tákn um almenna aukningu eld-
virkni í landinu.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Strókur Heklugoss og gossprungan blöstu þannig við Vestmannaeyingum, klukkustund eftir að gosið hófst.
Jörg Haider segir af
sér flokksformennsku
Vín. AP, AFP.
'JÖRG Haider sagði í gærkvöldi af
sér formennsku í Frelsisflokknum
í Austurríki, að sögn fréttastof-
unnar APA. Sagt var að við for-
mennskunni tæki Susanne Riess-
Passer varakanslari sem er 39 ára
og mjög handgengin formanninum
fráfarandi. Haider sagðist ekki
vilja „hindra störf stjórnarinnar".
Þátttaka Frelsisflokksins í sam-
steypustjórn með íhaldsflokki
Wolfgangs Schussels hefur valdið
hörðum viðbrögðum víða um heim
og hafa verið rifjuð upp ýmis já-
kvæð ummæli Haiders um Hitler
Vill ekki „hindra
störf stjórnarinnar“
og gagnrýni flokksins á innflytj-
endur í Austurríki í því sambandi.
Evrópusambandið hefur markvisst
hundsað fulltrúa Austurríkis.
„Ég vil koma í veg fyrir að ráð-
herrar okkar verði sakaðir um að
þurfa að bera allt undir „skugga-
kanslarann" í Kárnten," sagði
Haider.
í leiðara Der Kurier í gær sagði
að ríkisstjórnin væri sammála um
að ekki væri lengur hægt að una
ástandinu. Segði Haider af sér
„hefðu erlendir gagnrýnendur
færri ástæður til að beina spjótum
sínum að stjórninni".
■ Austurrísk gildi/30
■ Lagalegar varnaraðgerðir/31
MORGUNBLAÐIÐ 29. FEBRÚAR 2000