Morgunblaðið - 29.02.2000, Blaðsíða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Um sýnd-
armarkað
Getur verið að sýndarmarkaðurinn
og táknaskilmingar verðbréfa-
drengjanna marki endalok
markaðarins, úrkynjun kans?
MUNURINN á
sýndogreynd
vefst ekki fyrir
verðbréfadrengj-
unum. Hver á
fætur öðrum koma þeir í sjónvar-
pið og spá fyrir um gengi hluta-
bréfa í fyrirtækjum á markaði.
Kauptu í þessu en seldu í hinu,
segja þeir og tala eins og sá sem
valdið hefur. Og þannig er það líka
á markaði, vit er vald, að þekkja
upplýsingamar, að kunna að afla
þeirra og miðla þeim á réttan hátt
er lykillinn að gróðanum.
Þetta er eins konar sjónvarps-
leikur eða íþrótt. Þátttakendur em
allir í sama búning og sama ald-
ursflokki. Leikvöllurinn er mark-
aðstorgið og reglurnar einfaldar,
framboð og eftirspum. Til að ná
árangri þarftu að vita hvað hefur
áhrif á þessi lögmál en ekki sakar
að geta sýnt einhver tilþrif líka,
svona eins og þegar menn skora
með hælnum í knattspymu - hér
felast þau í
frasólógískri
útfærslu á af-
komutölum og
stjómunarað-
VIÐHORF
Eftir Þröst
Helgason
ferðum sem erfitt er að hafa eftir.
Sigurvegari er síðan sá sem spáir
réttast fyrir um gengi bréfanna.
En hér er þó ekki allt sem sýn-
ist. Markaðurinn er í gagnvirkum
tengslum við fjölmiðla og því er
leikurinn einn af þeim þáttum sem
hafa áhrif á hann. Daginn eftir að
verðbréfadrengirnir hafa þulur
sínar yfir í kassanum rýkur gengið
upp á bréfunum sem þeir mæltu
með, en hin falla. Spádómurinn
gengur því að sjálfsögðu eftir, að
minnsta kosti þann daginn, enda
áhrif miðilsins mikil. Hvort ein-
hveijar raunveralegar ástæður
réttlæta hækkun eða lækkun á við-
komandi bréfum er annað mál og
óháð þessu; gengi bréfa þarf ekki
að eiga sér neina forsendu í innra
virði fyrirtækis.
Hér vakna siðferðilegar spum-
ingar sem stjómendur viðkomandi
sjónvarpsþátta ættu ef til vill að
leiða hugann að. En hvað þýðir
þessi gagnvirkni markaðar og fjöl-
miðla í raun? Hún þýðir að á mark-
aði hafa skilin milli sýndar og
reyndar máðst burt, þau era úrelt,
tilheyra hugsunarhætti síðustu
kynslóða fyrir upplýsinga- og
fjölmiðlabyltingu. Sjónvar-
pskynslóðin, sem verðbréfadreng-
imir tilheyra, gerir ekki þennan
greinarmun, í hennar huga er
táknbylurinn á skjánum jafn-
raunveralegur og snjóbylurinn úti
á götu. Það sem þyrfti að hafa í
huga er að áhrif beggja era hin
sömu, þeir geta byrgt okkur sýn á
hlutina.
Það hefur í raun orðið til sýnd-
armarkaður sem er að hluta til
annars eðlis en hinn hefðbundni
markaður. Sýndarmarkaðurinn
lýtur sömu lögmálum og sýndar-
veraleikinn sem franski menning-
arrýnirinn Jean Baudrillard talar
um. I sýndarveraleikanum hefur
veraleikinn horfið á bak við þykkt
net tákna. Við eram flækt í þessu
neti sem myndar eins konar vera-
leikalíki. Þar sem veruleikinn er
horfinn höfum við einungis táknin
tii að reiða okkur á í þessu líki
hans, en vandamálið er að táknin
vísa ekki til frummyndarinnar
(horfins veraleikans) heldur á sig
sjálf og hugsanlega hvort annað.
Hér hafa mörkin milli sýndar og
reyndar máðst burt þannig að
myndimar sem við sjáum á sjón-
varpsskjánum - hellisvegg sýnd-
arveraleikans - era jafnraunvera-
legar og veruleikinn sjálfur.
Hægt er að nefna óteljandi
skýringai'dæmi um sýndarverana
en sjálfur hefur Baudrillard haldið
því fram (á svolítið öfga- og mót-
sagnakenndan hátt) að Pers-
aflóastríðið hafi aldrei átt sér stað 1
raun og vera, það sem við sáum í
sjónvarpinu vora einungis tákn-
myndir stríðs. Fréttamenn CNN í
beinni útsendingu frá vettvangi
viðurkenndu enda að hafa þurft að
fylgjast með fréttatíma stöðvar-
innar til þess að vita hvað væri að
gerast; fréttamennirnir sögðu
fréttir byggðar á því sem þeir sáu í
fréttum en vora þó sjálfir á vígvell-
inum. Stríðið átti sér stað í sjón-
varpinu og fyrst fréttamennimir
sáu það þar töldu þeir að það væri
raunveralegt. Fréttimar sem þeir
sendu okkur vora hins vegar bara
tákn um tákn, eftirmynd af eftir-
mynd (sem hugsanlega átti sér
frammynd í kvikmyndum um
stríð).
Flóabardaginn var sem sé stríð í
táknheimum og það sama á við um
sýndarmarkaðinn, þar geysar ann-
ar eyðimerkurstormur. A sýndar-
markaði skortir frammyndina á
bak við virði fyrirtækjanna, rétt
eins og það virtist ekki vera nein
frammynd á bak við fréttir CNN
frá Persaflóa. Gengi bréfanna er
byggt á tákngildi þeirra, táknlegri
skírskotun til hugtaka á borð við
„þekkingu", „vísindi", „tækni“ og
kannski umfram allt „glæsta fram-
tíð“. Það geysar ímyndastríð þar
sem hjörtu kaupenda era brædd
með útspekúleraðri en hófstilltri
retórík. í stað vöra eða framleiðslu
era orð, orð sem vekja væntingar.
Hvort varan verður einhvem tím-
ann að veraleika skiptir í sjálfu sér
engu máli á meðan hægt er að nota
fjölmiðla til að endurframleiða
væntingar um hana og hlaða hana
táknlegu gildi. Samkvæmt einni af
grandvallarreglum verðbréfa-
markaðarins, sem kynnt var sem
meirafíflsreglan (e. „bigger fool
theory of investing") hér í blaðinu
fyrir skömmu, má lengi teygja lop-
ann því að markaðurinn er fullur
af fiflum sem vilja kaupa á of háu
verði og svo enn meiri fíflum sem
munu kaupa á enn hærra verði.
Það geysar sem sé táknstríð á
markaði. Eins og í Flóabardagan-
um era sigurvegarar og fórnar-
lömb í þessu stríði. Það era alltaf
einhverjir að græða og einhverjir
að tapa, gengi hækkar og gengi
lækkar. En liggur eitthvað meira
undir niðri? Hvaða sögu segir allt
þetta sjónarspii í kringum mark-
aðinn okkur? Hvað merkir það að
skil sýndar og reyndar hafa máðst
út á markaði?
Að mati Baudrillards snerist
Flóabardaginn ekki um viljann tii
valds heldur um endalok fyrirbær-
isins stríðs. Eftir hran austan-
tjaldsblokkarinnar var Persa-
flóastríðið tilraun Bandaríkja-
manna til að enduríramleiða gildi
kalda stríðsins en stríðið varð
aldrei annað en innantómt tákn
um stríð.
Getur verið að sýndarmarkað-
urinn og táknaskilmingar verð-
bréfadrengjanna marki endalok
markaðarins, úrkynjun hans?
Mun markaðurinn ef til vill leys-
ast upp í þessu ofhlaðna sjónarspili
sem við verðum vitni að þessa dag-
MENNTUN
Námsráðgjöf - Nýlega komu út bækur um námsráðaöf hjá Háskólaút-
gáfunni. Námsráðgjafínn getur verið lykill að samstarfí milli skóla og
heimilis. Gunnar Hersveinn spurði Guðrúnu Friðgeirsdóttur um þetta.
Brottfall minnkar
með jafningjastarfi
Morgunblaðið/Ásdís
Jafningjastarf í skólum getur verið kjarninn í forvarnarstarfi,"
segir Guðrún Friðgeirsdóttir, náms- og uppeldisráðgjafi.
HVERJAR eru þarfir
nemenda í grunn- og
framhaldsskólum? Vita
námsráðgjafar svarið?
Guðrún Friðgeirsdóttir hefur
skrifað bók til að kynna foreldrum
og skólafólki faglega náms- og
starfsráðgjöf og starfsfr
æðslu í grunn- og framhaldsskól-
um og einnig um hlutverk náms-
ráðgjafa. Hún fjallar
t.d. um jafningjastarf í skólum,
sorg og einelti. Hún skrifar:
„Námsráðgjafi verður að hafa
haldgóða þekkingu á eðli og orsök-
um eineltis og kunna aðferðir til að
stemma stigu við því. Námsráð-
gjafi getur gegnt mikilvægu hlut-
verki í samstarfi við aðra starfs-
menn skólans, nemendur og
foreldra, til að efla forvarnir og
þekkingu til að takast á við þetta
samfélagslega böl sem veldur
langvarandi óhamingju margra
einstaklinga og kostar samfélagið
mikið."
Guðrún Friðgeirsdóttir er náms-
og uppeldisráðgjafi. Hún var lengi
menntaskólakennari og var náms-
ráðgjafi við öldungadeild Mennta-
skólans við Hamrahlíð, og hefur
einnig verið skólastjóri Bréfaskól-
ans. Hún lauk meistaraprófi í ráð-
gjafarsálfræði frá University of
British Columbia í Kanada árið
1984. „Ég hef alltaf verið tengd
uppeldisstörfum," segir hún, „og
mig langar tO að miðla einhverju af
því. Hún telur að nemar í námsráð-
gjöf geti nýtt sér bókina og einnig
margir sem stundi þessi störf en
um 40% þeirra sem gera það eru
ekki sérstaklega menntaðir til
þess.
„Hlutverk námsráðgjafa er að
aðstoða nemendur, kennara, skóla-
stjórnendur og foreldra," segir
Guðrún, „þeir hafa menntun til að
takast á við minniháttar andleg
vandamál nemenda, og geta vísað
þeim á aðra aðila ef vandinn er af
alvarlegum toga.“ Hún segir að al-
varleg mál eins og þau sem tengj-
ast eiturlyfjum, ofbeldi, nauðgun,
fátækt og öðrum félagslegum
vandamálum, þarfnist mikils tíma.
Námsráðgjafar eru þó ekki litlir
sálfræðingar eða geðlæknar.
Hlutverk þeirra er að aðstoða
við nám, en það tengist ávallt óhjá-
kvæmilega andlegri líðan. Sam-
starf þeirra við kennara og for-
eldra er því mjög mikilvægt. „Til
dæmis er mjög mikilvægt fyrir
kennara að vita ef nemandi hefur
misst foreldri eða ef foreldrar eru
• Að nemendur
fínni til ábyrgðar og
láti sig aðra varða
að skilja eða ef hann býr við sorg af
öðrum ástæðum.“ Vitneskjan get-
ur bæði komið í veg fyrir óþægindi
fyrir nemandann og kennarann.
Þannig er samstarf allra mikilvægt
og námsráðgjafinn getur gegnt
lykilhlutverki í því.
Að stöðva brottfall nýbúa
Jafningjastarf er nokkuð sem Guð-
rún kynnir í bókinni; „Jafningja-
starf byggist á þeirri þekktu stað-
reynd að nemendur í
framhaldsskólum oefstu bekkjum
grunnskólans leita oftast til jafn-
ingja, vina sinna, þegar þeir kljást
við vonbrigði, áhyggjur, kvíða eða
standa frammi fyrir vandamálum.
Fyrir unglinga skiptir jafningja-
hópurinn miklu máli. Það er eitt
höfuðeinkenni aldursskeiðsins."
Jafningjastarf er þýðing á enska
heitinu Peer Helping. Orðið peer
getur þýtt jafn eða jafningi og peer
group þýðir hópur fólks á sama
aldri, með svipaða stöðu, áhugamál
o.fl. (bls. 98).
Guðrún rekur upphaf jafningja-
starfs til skóla í Kanada en það hafi
þaðan rutt sér til rúms um allan
heim, sumir segja að það hafi farið
sigurför um heiminn. „Sumir
hætta í skóla vegna þess að þeir
eiga enga vini þar, það má koma í
veg fyrir það með jafningjastarfí.
Einnig mætti stöðva 100% brott-
fa.ll nýbúa úr íslenskum skólum
með jafningjastarfi með því að
stuðla að vináttu og félagsskap.“
Allir læra af jafningjastarfinu að
hennar mati, þeir finna til ábyrgð-
ar og læra að láta sig aðra varða.
Það þarf að byggja þessa nemend-
ur upp, uppörva þá og leiðbeina.
Nemendur, sem vinna í jafn-
ingjastarfi, eru sjálfboðaliðar sem
láta sér annt um líðan annarra
nemenda. Þeir hafa fengið sér-
staka þjálfun til að verða betur
fæiir um að styðja við bakið á fé-
lögum sínum, svo sem í að hlusta,
uppörva og hjálpa þeim við nám og
tfi að finna lausnir á vandamálum
eða hjálpa þeim til að leita sér að-
stoðar hjá sérmenntuðu fólki. (bls.
98).
Guðrún gerir góða grein fyrir
jafningjastarfinu í bókinni. Hún
hefur fengið tækifæri til að prófa
þetta kerfi, eða fyrir nokkrum ár-
um með einum hópi nemenda í
MH. Háskólaútgáfan gefur bókina
út en þess má geta að hún sendi
einnig frá sér bókina Ráðgjöf í
skólum, handbók í félagsráðgjöf og
námsráðgjöf, eftir Guðrúnu Helgu
Sederholm. I inngangi þeirrar
bókar stendur m.a.: „Handbókin
er samin í þeim tilgangi að kynna
vinnulag mitt sem félagsráðgjafa
og námsráðgjafa í grunn- og fram-
haldsskólum, í rúman áratug. Með-
al annars með það fyrir augum að
það megi gagnast þeim sem eru að
hefja störf sem ráðgjafar ungs
fólks og einnig þeim sem hafa
starfað við ráðgjöf í einhvern
tíma.“
Starfsmenn Fræðslumiðstöðv-
ar Reykjavíkur horfa nú
fram á veginn í ljósi nýrrar upp-
lýsingatækni og vilja koma auga
á hvemig best sé að þróa skól-
ann. „ Við blasa opin rými, bása-
landslag og einstök lokuð, mis-
stór afdrep en opið á milli
þeirra,“ skrifaði Gerður G. Ósk-
arsdóttir fræðslusljóri til dæmis í
hugleiðingu í desember í blað
miðstöðvarinnar um framtíðar-
skólann.
Eftir innihaldi blaðsins að
dæma munu eftirfarandi þættir
verða meira áberandi í skóla-
starfi en hefur verið undanfarið:
Hugmyndaauðgi, frumkvæði og
gagnrýnin hugsun, auk fæmi í að
leysa vandamál, taka ákvarðanir,
hafa yfirsýn og skipuleggja verk.
Núna í febrúar gaf Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur út yfirlit
með markmiðum borgarinnar
um málefni grunnskóla 2000-
Sjö stunda
skóladagur
og máltíð
2003, en í starfsáætlun fræðslu-
mála fyrir árið 2000 em sett
markmið til þriggja ára. Hér er
stiklað á nokkmm atriðum:
► „Á næstu þremur ámm
verði allir grunnskólar í Reykja-
vík einsetnir og skóladagur nem-
enda um 6-7 klukkustundir.
Dagurinn verði brotinn upp með
hádegishléi með máltíð, heitri
og/eða kaldri."
► „Síðdegis eigi nemendur í
1.-4. bekk kost á dvöl í skóla-
dagvist frá kl. 14:00 til 17:00, eða
þar um bil. Nemendur á öllum
aldri eigi jafnframt völ á margs
konar tómstundastarfi og aðstoð
við heimanám.“
► „Á næstu þremur ámm
leggi skólar áherslu á þríhliða
samninga nemenda, skóla og for-
eldra um námið og að nýta netið í
samskiptum sínum við foreldra."
► „Skólar leggi einnig
áherslu á náin tengsl við hverfið
sem skólinn er hluti af, þ.m.t.
íbúa í hverfinu, atvinnulíf, menn-
ingarstofnanir og félagasamtök,
auk náttúrannar umhverfís skól-
ann.“
► „Á næstu ámm verði unnið
að þróun kennsluhátta þannig að
skipulag námsins verði nem-
endamiðaðra en nú er og aukin
áhersla lögð á þemanám og sam-
vinnu nemenda, sbr. aðal-
námskrá gmnnskóla."
► „Gerðir verði sérstakir
skólasamningar við hvera skóla
um markmið og heildarrekstur
og skólarnir geri árlega rekstr-
aráætlun."