Morgunblaðið - 29.02.2000, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 67
FÓLK í FRÉTTUM
Heimildamynd um samkynhneigða á tímum þriðja ríkisins
Mismunun,
ofsóknir o
fjöldamor
Bandarísk heimildamynd um ofsóknir
þýskra nasista gegn samkynhneigðum
fyrir og á stríðsárunum vann til verðlauna
____á kvikmyndahátíðinni í Berlín._
Rósa Erlingsdóttir sá myndina og mætti á
blaðamannafund með leikstjórum hennar
sem báðir eru samkynhneigðir gyðingar.
I Grein 175 er sögð saga homma og lesbía undir ógnarstjórn þriðja ríkisins í Þýskalandi. Saga þeirra er saga um
þjóðfélagslega mismunun, ofsóknir og fjöldamorð.
KVIKMYNDIN Grein 175
(Paragraph 175) vann til
Bangsa-verðlaunanna i
flokki heimildamynda á
sérstakri dagskrá kvikmyndahátíð-
arinnar í Berlín þar sem sýndar eru
myndir er lúta að málefnum sam-
kynhneigðra. í myndinni er sögð
saga homma og lesbía undir ógnar-
stjórn Þriðja ríkisins í Þýskalandi.
Saga þeirra er saga um þjóðfélags-
lega mismunun, ofsóknir og fjölda-
morð. Reyni maður að gera sér í
hugarlund þjáningar þessa fólks
finnst manni saga þess ekki endilega
frábrugðin sögu fórnarlamba Hel-
fararinnar, en samt er eitthvað mjög
sérstakt við hana. Þó svo að saga
samkynhneigðra hafi ekki beinlínis
verið þöguð í hel hefur heldur lítið
farið fyrir henni í pólitískri og þjóð-
félagslegri umræðu, en skýrasta
merki þess er að eftirlifandi fórnar-
lömb þessara ofsókna hafa ekki enn
hlotið neinar skaðabætur frá þýska
ríkinu. Samkynhneigðir eiga rétt á
að fjallað sé um þjóðfélagslega mis-
munun þeirra og þess vegna sýnir
myndin ekki eingöngu löngu liðna
atburði, heldur lifandi einstaklinga
sem segja sögu sem á fullt erindi við
samtímann.
Þeir sem urðu vitni að ofsóknum
nasista gegn hommum og lesbíum
og/eða þeir sem upplifðu þrælkunar-
vinnu og pyntingar vegna kyn-
hneigðar sinnar eru nú komnir mjög
til ára sinna. Enn fleiri fórnarlömb
eru dáin án þess að nokkur kærði sig
um heyra sögu þeirra. Leikstjórum
myndarinnar, þeim Rob Epstein og
Jefferey Friedman, tókst að finna
fimm einstaklinga, fjóra menn og
eina konu, sem voru tilbúin til að
leggja sitt af mörkum við gerð
myndarinnar. Sá árangur er af
mörgum talinn merkilegastur, að fá
þetta fólk til þess að tala um næstum
ólýsanlegar hörmungar fyrir framan
kvikmyndatökuvélina. Þau segja áð-
ur ósagða sögu um hluta af mann-
réttindabrotum þriðja ríkisins.
Sögulegar staðreyndir
Fram að valdatöku Hitlers var þó
mjög sjaldan gripið til refsiákvæða
vegna laganna. A millistríðsárunum
var Berlín höfuðborg samkyn-
hneigðra af báðum kynjum. Arið
1935, tveimur árum eftir að Hitler
komst til valda, var greininni breytt
í grein 175a. Viðbótin kvað á um að
hefði fólk minnsta grun um sam-
kynhneigð karlmanna væri því skylt
að tilkynna slíkt og að vikomandi
yrði tafarlaust sviptur borgaraleg-
um réttindum sínum.
Samkynhneigð kvenmanna var
ekki talin eins alvarleg þar sem kon-
ur voru taldnar meira veikgeðja en
karlmenn og þess vegna væri aðeins
um „tímabundinn galla“ að ræða.
Nasistar vonuðu að hægt væri að
koma í veg fyrir eða jafnvel lækna
fyrrnefndan galla með öflugri póli-
tískri fjöldskyldustefnu er höfðaði til
kvenna. Göbbels sagði eitt sinn að
samkynhneigðir karlmenn gerðust
sekir um mun alvarlegri glæp eða
þann að ræna þýska kynstofninn
börnunum sem hann ætti tilkall til.
Á tímum þriðja ríkisins voru um
hundrað þúsund karlmenn teknir
fastir og dæmdir til fangavistar á
grundvelli greinar 175a. Tíu til
fimmtán þúsund voru merkt bleik-
um þríhyrningi og fluttir í út-
rýmingarbúðir. Aætlað er að um
sextíu prósent þeirra hafi látið lífið í
búðunum. Lögin voru í fullu gildi allt
til ársins 1969.
Enn blæðandi sár
Við kynnumst Frakkanum Pierre
Seel við útganginn á lestarstöð í
París. Hann segist ekki vilja tala um
nasismann. „Haldið þið virkilega að
ég geti talað um þennan tíma?“ Sá
sem tekur viðtölin er þýskur sagn-
fræðingur að nafni Klaus Mueller.
Klaus er samkynhneigður ungur
maður sem vinnur á safni í New
York sem helgað er Helförinni. En
hann er Þjóðverji og Pierre Seel sér
í honum andstæðing.
Áhorfandinn finnur að Seel vill
tala, en hann veit ekki hvernig hann
á að finna réttu orðin, sem brýst út í
reglulegum reiðiköstum gegn Klaus
Mueller. Hann öskrar á hann ýmist
á frönsku eða þýsku að hann hafi
aldrei ætlað að tala þýsku aftur, að
hann hafi aldrei farið til Þýskalands
eftir stríðið. Hann brestur reglulega
í grát á meðan hann segir okkur frá
elskuhuga sínum, sem þýskir nasist-
ar myrtu berum höndum fyrir fram-
an augu hans í vinnubúðunum í
Schirmeck. Líkinu hentu þeir síðan
til varðhundanna og neyddu Pierre
Seel til að horfa á hundana rífa í sig
líkama ástvinar síns. Að því loknu
nauðguðu hermennirnir Seel.
Gad Beck, samkynhneigður gyð-
ingur, minnist fyrstu ástarinnar í lífi
sínu og blómaskeiðs næturlífsins í
Berlín á millistríðsárunum. Hann
minnist einnig ofsókna gegn gyðing-
um fyrir og við upphaf stríðsins og
hvernig skólafélagarnir breyttust úr
V/SA
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4543-3700-0029-4648
4543-3700-0036-1934
Afgreiöslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Islandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og vísa á vágest
VISA (SLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
bömum í áróðursmaskínu nasista
klædd brúnum búningum Hitlers-
æskunnar á aðeins tveimur mánuð-
um. Hann hittir draumaprisinn, sem
næsta dag er numinn á brott af nas-
istum. Þeir hittust aldrei aftur.
Heinz Dörner sýnir myndir frá
þeim tíma þegar hann var skátafor-
ingi. Hann var handtekinn fyrir
mótspymu gegn Hitlers-æskunni og
dvaldi alls átta ár í fangelsum og í
vinnubúðum. í þessari mynd talaði
hann grátandi í fyrsta skipti um
þessi ár. Albert Becker, ljósmyndari
og dyggur þýskur þegn, var dæmd-
ur til fangelsisvistar fyrir samkyn-
hneigð sína. Eftir að hafa afplánað
dóminn gekk hann af fúsum og
frjálsum vilja í þýska herinn og
vinnur sem ljósmyndari.
Epstein og Friedman fylgja minn-
ingunum eftir með undurfögrum
myndum af nöktum, ungum og fal-
legum karlmönnum í guðsgrænni
náttúmnni. Myndir af fanatískum
fjöldahreyfingum nasista sem fylgja
í kjölfarið virka sem æpandi mót-
sögn. Annette Eick segir sögu les-
bíuhreyfingarinnar í Berlín, en hún
var látin óáreitt frá 1920 fram að síð-
ari heimsstyrjöld. Undir sögu Eick
syngur Marlene Dietrich á hvíta
tjaldinu, ungar „pin-up-girls“ dansa
uppáklæddar í jakkafötum og ham-
ingjan skín úr andlitum þeirra.
Þýsk stjórnvökl ósamvinnuþýð
Árið 1997 hittu Friedman og Ep-
stein Klaus Mueller á kvikmyndahá-
tíð í Amsterdam þar sem þeir
ákváðu að ráðast til samvinnu við
gerð heimildamyndar um ofsóknir
þýskra nasista gegn samkynhneigð-
um. Friedman og Epstein segja
persónulegar ástæður hafa kveikt
áhuga þeirra gagnvart þessu við-
fangsefni. En fyrir fáeinum árum
gerðu þeir félagar heimildamynd um
fyrsta samkynhneigða borgarstjóra
Los Angeles, Havery Milk, sem var
skotinn til bana af fanatískum and-
stæðingi homma og lesbía. Þeir
vildu segja sögu samkynhneigðra í
Þýskalandi Þriðja ríkisins. Hvað er
það sem gerir eina manneskju að
hetju og aðra að villimanni og af
hverju finnst fólki almennt óþægi-
legt að fjallað sé um svokölluð „grá
svæði“ mannlegrar reynslu eru
spurningar sem leikstjórarnir leitast
við að finna svör við. Að þeirra mati
er mesti ávinningur myndarinnar að
samkynhneigðir fái tækifæri til að
segja sögu sína sem manneskjur
með ólíkan bakgrunn rétt eins og
allir aðrir. Friedman og Epstein eru
Beint flug á miðvikudögum frá 12.07-30.08.
Verð frá *kr. 27.535 fyrir fullorðna og böm 2-11 ára *kr. 22.850
Vika í Róm frá ‘kr. 47.335 á mann á hótel Stella í 2m herb.
Urval af góðum hótelum í hjarta Rómar.
íslenskur fararstjóri
Skoðunarferðir
Góð kjör fyrir hópa.
Barcelona
Beint flug á miðvikudögum frá 12.07-30.08.
Verð frá *kr. 27.390 fyrir fullorðna og börn 2-11 ára *kr. 22.720
Vika í Barcelona frá *kr. 49.490 á mann á hótel
De L'Arc í 2m herb.
Úrval af góðum hótelum í hjarta Barcelona.
íslenskur fararstjóri
Skoðunarferðir
Góð kjör fyrir hópa.
Flogið með nýlegri og glæsilegri Boeing 737-400. Véiin er
glæsilega innréttuð með öllum nýjustu þægindu, s.s.
sjónvarpskjám við hvert sæti o.s.fr.
TERRA
fSU
NOVA
-Spennandi valkostur-
*Flugvallargjöld innifalinn
Stangarhyl 3A ■ 110 Reykjavik
Simi: 587 1919 & 567 8545
Fax: 587 0036 • www.terranova.is
Bandaríkjamenn. Þeim var synjað
um styrki frá Þýskalandi við gerð
myndarinnar en fengu þess í stað
lán frá kvikmyndasjóði Berlínar-
borgar, sem þeir borga til baka með
vöxtum. Auk þess þurfa þeir félagar
að borga þýska ríkinu fyrir að birta
gamlar áróðursmyndir frá valdatíð
Hitlers. Á skjalasafninu í Washing-
ton er einnig að finna sumar af þess-
um myndum og afnot þeirra eru
ókeypis. Ef myndirnar eru hins veg-
ar notaðar í Þýskalandi komast þeir
ekki hjá því að borga fyrrnefnt
gjald. Augljóst er að blaðamönnum
þykja þetta óhugnanlegar upp-
lýsingar, sem hægt var að finna í
hverju þýsku blaði daginn eftir, rétt
eins og um væri að ræða alveg nýjar
fréttir. í mynd Epsteins og Fried-
mans eru vissar eyður, en ef myndin
ýtir við þýskum kvikmyndagerðar-
mönnum fylla þeir jafnvel í þær á
komandi árum.
Barcelona
kr. 27.500
Alicante
kr. 27.500
Malaga
kr. 29.900
London
kr. 7.900
Heimsferðir bjóða vikulegt flug
til Barcelona, Alicante og
London og tvö flug í viku til
Malaga í allt sumar. Njóttu
þess að fljúga beint í fríið í
sumar, á lægsta verðinu.
Tilboð gilda ef bókað fyrir 15.
mars, tilboð til Alicante gilda
fyrir Félag húseigenda á Spáni.
Flugvallarskattar kr. 2.490
bætast við fargjald. Flugsæti til
London er verð aðra leiðina.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð,
sími 595 1000.
www.heimsferdir.is