Morgunblaðið - 29.02.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 29
VIÐSKIPTI
Hraðfrystihús Eskifjarðar hf.
Hagnaður af reglulegri
starfsemi minnkar um 80%
Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. Úr ársreikningi 1999
Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöld Afskriftir Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) Hagnaður af reglulegri starfsemi Óreglulegar tekjur, nettó 2.101 1.946 268 142 29 74 2.986 2.389 268 (166) 142 70 -29,6% -18,5% 0,0% -79,6% +5,7%
Hagnaður ársins 103 212 -51,4%
Efnahagsreikningur 31.12.99 31.12.98 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna Eigið fé Skuldir 5.229 4.405 +18,7%
1.405 3.824 1.263 3.142 +11,2% +21,7%
Skuidir og eigið fé samtals 5.229 4.405 +18,7%
Kennitölur og sjóðstreymi 1999 1998 Breyting
Eiginfjárhlutfall Veltufjárhlutfall Veltufé frá rekstri Milljónir króna 26,9% 0,65 86 28,7% 0,75 433 -80,1%
OZ.COM kynnir
nýj a samskiptalausn
HAGNAÐUR Hraðfrystihúss Esk-
ifjarðar hf. minnkaði á milli áranna
1998 og 1999. Hagnaður af reglu-
legri starfsemi dróst saman um 80%
en hann var 29 milljónir króna árið
1999 en 142 milljónir árið 1998.
Hagnaður ársins er um 102,9
milljónir, samanborið við 212,2 millj-
ónir króna árið áður. Meginástæður
minni hagnaðar eru þær að veiðar á
uppsjávarfiskum, loðnu og kol-
munna, gengu mjög illa seinni hluta
ársins, að því er fram kemur í til-
kynningu frá íyrirtækinu, auk þess
sem rækjuveiðar gengu illa og af-
urðaverð á loðnu hefur verið lágt.
Veiðar á loðnu hafa gengið vel eft-
ir áramót og skip Hraðfrystihúss
Eskifjarðar, Jón Kjartansson og
Hólmaborg, fengu tæp 30 þúsund
tonn í flottroll áður en veiðar í nót
hófust að nokkru marki, að því er
fram kemur í tilkynningu. Verð á
lýsi og mjöli er lágt um þessar
mundir, sérstaklega lýsisverð og
nokkur óvissa ríkir um verðþróun-
ina á næstunni, að því er fram kem-
ur í tilkynningunni. Verð á bolfis-
kafurðum er hagstætt og
rækjuveiðar virðast vera að glæðast.
Esther Finnbogadóttir hjá grein-
ingardeild Kaupþings segir afkomu
Hraðfrystihúss Eskifjarðar ekki
eins slæma og menn bjuggust við.
„Það er ljóst að veiði brást og af-
urðaverð var lágt. Það mátti því
búast við slöku uppgjöri." Hagnaður
af reglulegri starfsemi minnkar um
80% á milli ára og segir Esther það
frekar í áttina að því sem við mátti
búast og vísar til óreglulegra tekna
félagsins. „Sveiflur eru eðlilegar í
uppsjávarfiski en árið í ár fer mun
betur af stað hjá Hraðfrystihúsi
Eskifjarðar," segir Esther.
Aðalfundur Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar verður haldinn 30. mars nk.
Stjórnin mun þar leggja til að
greiddur verði 5% arður til hluthafa
eða um 20,9 milijónir króna.
OZ.COM hefur sett á markað sam-
skiptalausn undir nafninu mPres-
ence, og er það víðtæk þjónusta fyr-
ir þráðlaus viðskipti um Netið sem
fjarskiptafyrirtæki geta boðið við-
skiptavinum sínum. Lausnin verður
kynnt formlega í tengslum við
Wireless 2000 sýninguna í New Or-
leans í Bandai-íkjunum í þessari
viku, en með þessu má segja að
OZ.COM taki heimsfrumkvæði á
sviði þráðlausra netviðskipta, segir
Skúli Valberg Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri OZ.COM, í samtali
við Morgunblaðið.
„Það má segja að þetta sé önnur
framsetning af iPulse hugbúnaðin-
um sem OZ.COM hefur þróað. Það
sem er lykilatriði í þessu er að
iPulse er hluti af þessari lausn, en
hún er framsett á þann hátt að það
er OZ.COM sem hýsir lausnina
þannig að fjarskiptafyrirtæki geta
keypt hana hjá OZ og boðið hana
sínum viðskiptavinum.
Fjarskiptafyrirtækin fá þá að-
gang að iPulse ásamt viðbótareigin-
leikum sem við komum til með að
bæta í þessa þjónustu jafnt og þétt.
Þetta væru þá nýjar lausnir frá OZ
eða þá frá öðrum netfyrirtækjum
sem hafa áhuga á að taka þátt í
þessari heildarframsetningu sem
við höfum kallað „Mobile Presence"
eða „mPresence" á ensku,“ segir
Skuli.
í fréttatilkynningu frá OZ.COM
segir að mPresence sé hannað með
samskipti einstaklinga í fjarskipta-
kerfum í huga, og bjóði m.a. upp á
hraðar og öruggar sendingar skila-
boða. „mPresence tengir notanda á
auðveldan hátt við seljendur vöru
og þjónustu á Internetinu, lausnin
inniheldur alhliða notendaskrá,
einnig samhæfða gjaldfærslu við
viðkomandi símfyrirtæki og pers-
ónulega þjónustu fyrir notendur.
Þessa eiginleika geta t.d. síma- og
farsímafyrirtæki sniðið að þörfum
sinna eigin viðskiptavina,“ segir í
tilkynningunni.
Þar segir einnig að meginmark-
mið með mPresence sé að færa
þægindi samskipta og viðskipta
sem Netið býður upp á yfir á þráð-
lausa netmarkaðinn. „mPresence
gerir notendum einnig kleift að
nýta til fulls og stjórna aðgengi sem
þeir vilja að aðrir hafi að þeim um
hin ýmsu samskiptanet," segir í til-
kynningunni.
Þar segir einnig að OZ.COM hafi
átt í nánu samstarfí við sænska
fjarskiptafyrirtækið Ericsson, og
þegar iPulse var kynnt hafi komið í
ljós verulegur áhugi fjarskiptafyr-
irtækja á að geta boðið upp á heild-
arlausnir fyrir viðskiptavini sína.
„Svarið við þessum kröfum er
mPresence sem tengir saman þjón-
ustu á síma-, farsíma og netmörk-
uðunum, sem raunar eru óðum að
renna saman í einn. mPresence er
samhæft öllum nýjustu samskipta-
stöðlunum, s.s. SMS, WAP, GPRS
og W-CDMA (3G),“ segir í tilkynn-
ingunni. Skúli Valberg segir einnig
að mPresence muni bæta sam-
keppnisstöðu fjarskiptafyrirtækja
um allan heim, ekki síst þeirra sem
eru smærri í sniðum og hafi ekki
burði til að reka það kerfi sjálf sem
þráðlaus netþjónusta krefjist.
Viltu starfa í alþjóðlegu
fjármálaumhverfi?
- y
r
Lúxernborg er ein af hetstu miðstöovum fjárméiaumsyífe í tvrópu
og þar reka um 220 bankar fré 50 bjóðiöndum starfsemi sína.
Kaupthing Bank Luxembourg
leitar að starfsmönnum
Kaupthing Bank Luxembourg vill ráða til sín metnaðarfulla starfsmenn;
sjóðsstjóra og lögfræðing/endurskoðanda.
Sjóðsstjóri þarf að hafa til að
bera hæfni og háskólamenntun
auk þess sem reynsla af
fjármálamarkaði er æskileg.
Lögfræðingur/endurskoðandi
þarf að vera sérfræðingur í
fjárhagsskipan fyrirtækja og
einstaklinga.
Ef þú ert lögfræðingur, endurskoðandi eða með menntun og reynslu
sem nýtist á fjármálamarkaði, er nú kjörið tækifæri til þess að sækja um
vinnu hjá Kaupthing Bank Luxembourg. Þar myndir þú bætast í hóp 19
starfsmanna af 7 þjóðernum sem starfa hjá íslenskum banka í hjarta
Lúxemborgar. Á verkefnasviði Kaupthing Bank Luxembourg eru m.a.
alþjóðleg einkabanka- og fyrirtækjaþjónusta. Bankinn hefur að leiðarljósi
að veita fjárfestum nýja möguleika í alþjóðlegu umhverfi.
Skriflegar umsóknir skulu berast fyrir
20. mars tih
Kaupthing Bank Luxembourg S.A.
12 Rue Guillaume Schneider
L-2522 Luxembourg.
KAUPTHING BANK
L U X L M I! () II RC