Morgunblaðið - 29.02.2000, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristj án
Kristján Edelstein, Helga Arnalds, Þórhallur Sigurðsson, Herdís Jónsdóttir, Ingvar Björnsson og Þórarinn
Blöndal; hópurinn sem stendur að leikbrúðusýningunni um Gosa.
Leikfélag Akureyrar og 10 fíngur
Gosi á leik-
brúðusýningu
ÆFINGAR standa nú yfir á Gosa,
sem er leikbrúðusýning eftir hinni
sígildu sögu um samnefndan spýtu-
strák og ævintýri hans en það er
Leikfélag Akureyrar í samvinnu við
leikhúsið 10 fíngur sem sér um sýn-
inguna.
Höfundur sýningarinnar er leik-
brúðumeistarinn Helga Amalds.
Hún er menntuð í leikbrúðulist bæði
í leikhúsháskólanum í Barcelona á
Spáni og í Tékklandi og hefur á síð-
BÚDARVOGIR
• Verðútreikningur kr/kg
• 30 verðminni kr/kg
• Stór upplýsingaskjár
KvnningarverÖ
frá kr. 29.700 án vsk.
ustu árum rekið eigið brúðuleikhús,
10 fingur.
Um er að ræða fullbúna sýningu á
sviði og er hún full af leikhúsbrellum
og sjónrænu ævintýri. Ljós skipa
stóran sess í þessari sýningu og geta
áhorfendur búist við að sjá ýmislegt
sem þeir hafa ekki áður séð á sviði.
Leikstjóri er Þórhallur Sigurðs-
son, leikstjóri við Þjóðleikhúsið og
einn reyndasti leikstjóri landsins.
Auk Helgu taka þátt í sýningunni
tveir aðrir leikarar/leikbrúðustjóm-
endur, þau Herdís Jónsdóttir og
Þórarinn Blöndal, en fjöldinn allur af
leikbrúðum kemur við sögu.
Jafnframt sýningunni á Gosa mun
Helga bjóða kennurum og öðm
starfsfólki leik- og gmnnskóla upp á
námskeið um brúðuleikhús.
Sýnt verður fyrir leik- og grann-
skóla í miðri viku, en um helgar em
opnar sýningar. Framsýning verður
laugardaginn 4. mars kl. 14.
Eldtraustir
skjalaskápar
á heildsöluverði
Umboðs og heildverslun
Netfang gagni@centrum.is.
Refurinn og Krákur reyna
að tæla Gosa.
SíÖumúla 13, sími 588 2122
Þdra Hrafnsdottir og synir
flutt í íbúð sína sem stdr-
skemmdist í eldsvoða fyrir jol
Morgunblaðið/Kristján
Ágúst Hilmarsson, sölufulltrúi hjá Frigg á Norður- og Austurlandi,
Þóra Hrafnsdóttir og Hjörtur Sigurðsson, verslunarstjóri 10-11 á
Akureyri, en þeir Agúst og Hilmar afhentu Þóru þvottavél og
þurrkara þegar verslunin var opnuð í gær.
Allir boðnir og
búnir að rétta okk-
ur hjálparhönd
ÞÓRA Hrafnsdóttir og synir
hennar, þeir Guðbjörn og Þor-
valdur, eru nýlega flutt inn í
íbúð sína við Tjarnarlund á Ak-
ureyri en hún stórskemmdist í
eldsvoða skömmu fyrir jól. Frá
þeim tíma hefur verið unnið
hörðum höndum við að koma
íbúðinni í samt horf og um síð-
ustu helgi flutti fjölskyldan inn.
„Menn hafa lagt nótt við dag
við lagfæringar enda voru
verkefnin næg og nú er allt að
komast í samt lag, við erum
reyndar enn að taka upp úr
kössum en þetta kemur allt,“
sagði Þóra, en hún fékk í gær
afhenta þvottavél og þurrkara í
verslun 10-11 sem opnuð var í
Kaupangi í gærdag. Frigg gaf
þvottavél og þvottaduft og
fleira en 10-11 gaf þurrkarann.
„Það hefur farið ákaflega vel
um okkur, en strákarnir mínir
eru afskaplega fegnir að vera
komnir heim,“ sagði Þóra en
hún hefur verið í leiguíbúð og
búið hjá móður sinni siðustu
vikur. „Það hafa allir verið
boðnir og búnir að aðstoða
okkur og við erum því þakklát.
Eg er svo lánsöm að eiga góða
að, við erum átta systkinin og
ég hef lítið þurft að leita út
fyrir þann hóp. Fólk af landinu
öllu hefur lagt okkur lið eftir
brunann og við vorum nú síðast
að fá sendan fatapakka frá
Laugarvatni," sagði Þóra en þá
hefur, svo dæmi séu nefnd,
Rafiðnaðarsambandið gefíð
henni tvær saumavélar þannig
að saumaherbergið er komið í
lag og bekkjasystkin bræðr-
anna í Lundarskóla stóðu fyrir
fjársöfnun og afhentu þeim fé
svo þeir gætu endurnýjað dótið
sitt.
„Við erum eiginlega orðlaus
yfír því hvað allir eru boðnir
og búnir að rétta okkur hjálp-
arhönd, fólk er afskaplega al-
mennilegt og ég kem varla í
verslun hér á Akureyri öðruvísi
en mér sé boðinn afsláttur,"
sagði Þóra.
Skúlptúrsýning
í Ketilhúsinu
NEMENDUR Myndlistaskólans á
Akureyri hafa unnið þrívíð verk und-
ir handleiðslu Stefáns Jónssonar
myndlistamanns. Veridn verða til
sýnis í Ketilhúsinu en sýningin var
opnuð fyrir helgi, á , föstudaginn 25.
febrúar - og stendur hún til 3. mars
næstkomandi. Hún er opin daglega
þessa daga frá kl. 12-18.
Eftirtaldir nemendur era með
verk á sýningunni: Anna Katrine,
Arnfríður Arnardóttir, Birgir Rafn
Friðriksson, Halldóra Helgadóttir,
Ingunn St. Svavarsdóttir (Yst), Jó-
hanna Björk Benediktsdóttir, Sunna
Björg Sigfríðardóttir, Tinna Ingvar-
sdóttir og Þrándur Þórarinsson
...fljújíufrekar
Bókaðu í síina 570 3030 oj 4(0 7000
Fax 570 3001 • websalesðairiceland.js • www.fluyfelaj.is
FLUGFELAG ISLANDS