Morgunblaðið - 29.02.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 63
Safnaðarstarf
BRÉF
Beygjuljós
gætu
bjargað
Frá Guðmundi Bergssyni:
ÞAÐ hefur mikið verið í umræð-
unni að undanförnu að gera mislæg
gatnamót á Kringlumýi-i og Miklu-
braut en það eru ekki til peningar í
þetta stórvirki svo það verður ekki
ráðist í það á næstunni. Auk þess að
vera rándýrt leysir það aðeins
vandamál þessara einu gatnamóta
þótt þau séu hættulegust, enda er
umferðin mest þar. Hvernig á því
stóð að beygjuljós voru aðeins sett
af Miklubrautinni en ekki inn á
hana þegar ljósin voru sett upp hef-
ur enginn fengið svör við sem eftir
hefur leitað, enda er þetta ekki
hægt að skýra. Þess vegna væri það
eðlileg ráðstöfun að farið væri strax
að koma upp beygjuljósum og ekki
bara á þessum gatnamótum heldur
allt frá Grensásvegi að Lönguhlíð,
auk þess Kringlumýri-Suðurlands-
braut þar sem hafa orðið margir
árekstrar og slys. Það gæti verið
góð fjárfesting hjá tryggingafélög-
unum að lána til þessara fram-
kvæmda til að flýta fyrir þeim, svo
mikil sem útgjöld þeirra eru á
gatnamótum sem liggja að Miklu-
brautinni og mest fyrir að það hefur
vantað beygjuljós. Menn eru að
troða sér og komnir langt út og
verða að halda áfram, en þeir sem
eiga réttinn, þ.e. þvert yfir, halda
sínu striki og fara sumir yfir á rauð-
skjóttu. Vonandi eigum við eftir að
sjá beygjuljós inn á Miklubraut af
öllum þessum götum á þessu ári,
því það er ekkert eins aðkallandi í
umferðarmálum í Reykjavík og trú-
lega ekkert sem dregur eins úr
árekstrum og slysum og einmitt
þetta, enda er umferð um Miklu-
braut og göturnar sem að henni
liggja sennilega með því mesta sem
gerist á höfuðborgarsvæðinu, að
minnsta kosti á mestu álagstímum.
Miklabrautin er svo full af bílum
stundum að það er bíll við bíl eins
og það væri veggur. Væri ekki van-
þörf á að fara að breikka hana, ef
það er þá hægt, nema brjóta niður
hús.
GUÐMUNDUR BERGSSON,
Sogavegi 178, Reykjavík.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 10-14. Léttur hádegisverð-
ur framreiddur. Mömmu- og pabba-
stund í safnaðarheimilinu kl. 14-16.
Dómkirkja. Barnastai'f í safnaðar-
heimilinu kl. 14 fyrir 6-7 ára börn, kl.
15.30 fyrir 8-9 ára börn og kl. 17 fyr-
ir 10-12 árabörn.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
Langholtskirkj a. Langholtskirkj a
er opin til bænagjörðai- í hádeginu.
Þriðjudagar eru sérstaklega helgað-
ir húsvitjunum og starfi með sjálf-
boðaliðum. Svala Sigríður Thomsen
djákni annast og hefur umsjón með
því starfi og er til viðtals í Langholts-
kirkju frá kl. 10-16. Öllum velkomið
að líta inn eða hafa samband í síma
520-1314 eða 862-9162. Lestur pass-
íusálma kl. 18. Sorgarhópur kl.
20.30-21.30 í Guðbrandsstofu.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
kl. 6.45. Fullorðinsfræðsla kl. 20.
Bæn, íhugun og samtal. „Þriðjudag-
ur með Þorvaldi" kl. 21. Lofgjörðar-
stund í kirkjuskipi.
Neskirkja. Litli kórinn, kór eldri
borgara, kl. 16.30 í umsjón Ingu J.
Backman og Reynis Jónassonar.
Nýir félagar velkomnir.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar
í safnaðarheimilinu kl. 10-12. Hitt-
umst, kynnumst, fræðumst. Ásta Jó-
hannsdóttir garðyrkjufræðingur tal-
ar um umhirðu garða.
Breiðholtskirlga. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænarefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans. Æsku-
lýðsstarf á vegum KFUM & K og
kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Starf aldraðra kl.
11.15. Leikfimi ÍAK, heimsókn í
Hjallakirkju kl. 12. Léttur málsverð-
ur, helgistund og samvera. Kl. 17
TTT, 10-12 ára starf á vegum
KFUM og K og Digraneskirkju.
Fella- og Hólakirkja. Foreldra-
stund kl. 10-12. Kyrrðar- og bæna-
stund kl. 12.10-12.25. Organisti
kirkjunnar leikur á orgelið frá kl. 12.
Þakkar- og bænarefnum má koma til
presta og djákna kirkjunnar. Léttur
hádegisverður í safnaðarheimilinu
að lokinni bænastund. Starf fyrir 9-
10 ára stúlkur kl. 15-16. Starf fyrir
11-12 ára stúlkur kl. 16.30-17.30.
Æskulýðsfélagið fyrir 8. bekk kl. 20-
22.
Grafarvogskirkja. Opið hús eldri
borgara kl. 13.30-16. Kyrrðarstund.
handavinna, söngur, spil og spjall.
Kaffiveitingar. Kirkjukrakkar í
Rimaskóla kl. 18-19 fyrir 7-9 ára
börn. KFUK fyrir stúlkur 9-12 ára
kl. 18-19. Æskulýðsstarf fyrir ungl-
inga 15 ára og eldra kl. 20-22.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldramorg-
unn í safnaðarheimilinu Borgum í
dag kl. 10-12. Kyrrðar- og fyrir-
bænastund í dag kl. 12.30. Fyrir-
bænarefnum má koma til prests eða
kirkjuvarðar.
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl.
10-12.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30. Opið hús fyrir
8-9 ára böm kl. 17-18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús
fyrir 10-12 ára börn í Vonarhöfn,
Strandbergi, kl. 17-18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
kl. 17-18.30 fyrir 7-9 ára börn.
Lágafellskirkja. Foreldramorg-
unn kl. 9.30-11.30. Umsjón Þórdís og
Þuríður.
Ffladelfía. Samvera á vegum
systrafélagsins kl. 20. María Péturs-
dóttir talar. Allar konur innilega vel-
komnar.
Landakirkja Vestmannaeyjum.
Kl. 16.30 kirkjuprakkarar, 7-9 ára
krakkar í leik og lofgjörð.
Grindavíkurkirkja. Foreldra-
morgunn kl. 10-12.
Borgameskirkja. TTT, tíu-tólf
ára starf, alla þriðjudaga kl. 17-18.
Helgistund í kirkjunni sömu daga kl.
18.15-19.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomn-
ir.
Hvammstangakirkja. Æskulýðsf-
undur í kvöld kl. 20.30 á prestssetr-
inu.
Hólaneskirkja Skagaströnd. Kl.
10 mömmumorgunn í félagsheimil-
inu Fellaborg. Kl. 16 KFUM og
KFUK fyrir börn 9-12 ára.
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar
þriðjudaga kl. 10-12.
Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíu-
skóli í kvöld kl. 20.
Trúðurinn Úlfar
í Vitanum
Rás 1 . Kl. 19.00
www.ruv.is/vitinn
- Gæðíivara
Gjafavara — matar- og kaffislell
Allir verðflokkar. .
Heimsfrægir liönmióir
m.a. Gianni Versace.
r,c"A VERSLUNIN
Laugnvegi 52, s. 562 4244.
í tilefni af 100 ára afmæli
Miele hafa Eirvík og Miele ákveðið
að efna til happadrættis. í verðlaun
er hinn glæsilegi Mercedes-Benz
A-Lína frá Ræsi.
EIRVIK,
Mercedes-Benz
Suðurlandsbraut 20 - 108 Reykjavik - Sími 588 0200 - www.efrvik.fs
Ryksugan
Ending - öryggi - einfaldleiki
létt, meðfærileg og
ótrúLega öflug
rykmaurarriir hata hana
hún er gul, bLá, græn
eða rauð
r
ekki
eftir því...
að hafa ekki drifið þig i
danskennslu og orðið
góður dansari???
Sex vikur
Síðustu 6 vikna
námskeiðin í
Break,
Freestyle,
Salsa,
Social foxtrot,
Gömlu dönsunum
og Línudansi
hefjast sunnudaginn 5. mars.
Innritun í síma 551 3129
kl. 16-19 daglega.
Þrjú frábær fyrirtæki
1. Gjöfull bar og fjömargir háspennu spilakassar sem gefa eigandan-
um ótrúlega góðar tekjur á hverjum mánuði án fyrirhafnar. Vel
staðsettur í eigin húsnæði sem einnig er til sölu. Hægt að yfirtaka
hagstæð lán. Traustar og öruggar tekjur. Laust strax ef vill.
Eruð þið tvær góðar saman sem viljið jafnvel fara út í smárekstur?
Til sölu er matsölustaður sem selur kaffi og heimilismat á daginn.
Vel staðsettur innan um fyrirtæki og stofnanir. Lokað á kvöldin
og um helgar. Auðvelt fyrirtæki sem margir geta séð um án þess
að vera vinna á kvöldin og um helgar. Auk þess gefur það ágæt-
lega af sér.
3. Eitt þekktasta framköllunarfyrirtæki borgarinnar til sölu. Sér einnig
um margskonar þjónustu varðandi Ijósmyndir, stækkanir og jafnvel
innrömmun. Engin sérþekking en kennsla fylgir með. í ár verður
meira Ijósmyndað en nokkurt annað ár og bullandi tekjur af slíkri
starfsemi. Hentar jafnvel hjónum eða fjölskyldu. Ef þig vatnar
traustar framtíðartekjur þá er þetta dæmið.
Mikið af stórum fyrirtækjum á skrá.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASALAIM
SUÐURVE R I
SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Léttur og nieðfærilegnr
GSM posi
mcð iniibyggðum prcntara
Hiíðasmára 10 T Er með lesara fyrir
Sími 544 5060 [ snjallkort og segulrandarkort.
Fax 544 5061
Hraðvirkur hljóðlátur prentari.