Morgunblaðið - 29.02.2000, Side 2

Morgunblaðið - 29.02.2000, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tugir manna leituðu barna sem lentu undir snjóhengju í Biskupstungum Grafin í fönn í tvo tíma Morgunblaðið/Kristinn Frændsystkinin Níels Magnús Magnússon og Melkorka Rut Bjarnadóttir ásamt mæðrum sínum, Guðrúnu Poulsen og Kristínu Heiðu Kristinsdóttur. Níels og Melkorka voru grafin í fönn á meira en tveggja metra dýpi. „VIÐ vorum að leika okkur uppi á þaki á fjárhúsinu og hoppuðum niður í snjóinn fyrir neðan og þá datt snjór ofan á hann fyrst og svo mig,“ segir Melkorka Rut Bjarnadóttir, 11 ára, sem lenti undir snjódyngju í gær við bæinn Austurhlíð í Biskupstungum ásamt frænda sínum, Níelsi Magnúsi Magnússyni, 14 ára, en frændsystk- inin voru grafin í fönn á tveggja til þriggja metra dýpi, í um tvær klukkustundir. „Við héldum að þau væru úti í fjár- húsi að leika sér, fórum svo að svip- ast um eftir þeim og fundum þau hvergi,“ segir Kristín Heiða Krist- insdóttir, móðir Melkorku. „Þá átt- uðum við okkur á því að þau hefðu getað orðið undir snjónum sem hafði fallið þarna." Kristín Heiða segir að aðstæður hafi verið mjög erfiðar og óljósar. Snjórinn féll yfir mjög stórt svæði og vissu þau ekki hvort börnin væru í raun undir honum. Kallað var á björgunarsveitir Laugarvatns og Biskupstungna og fólk á næstu bæj- um, sem allt brá skjótt við og byrjuðu tugir manna undir eins að moka. Kristín Heiða segir það hafa tekið óratíma því bæði hafi snjórinn verið harður og svæðið stórt. Tíminn svo lengi að líða Þéttur og harður snjórinn mynd- aði hjúp utan um börnin og höfðu þau einhvers konar öndunarrými. Níels var aðeins ofar en Melkorka og gátu þau kallast á til að byrja með, Mel- korka söng til að róa sig eins og henni var einu sinni kennt, en smám saman liðu þau svo út af. „Snjórinn var svo harður að við gát- um ekki hreyft okkur til að reyna að grafa okkur út. Tíminn var mjög lengi að h'ða fyrst og það var alveg ískalt en svo bara sofnaði ég,“ segir Níels. Kristín Heiða segir að skelfingin hafi verið ólýsanleg vegna þess hve langur tími var liðinn. „Ég reyndi í lengstu lög að trúa því að þau væru ekki þarna. Svo þegar ég sá í höfuðið á honum, hélt ég að þau væru dáin.“ Bömin sluppu ótrúlega vel úr þessum háska, vom flutt á Sjúkrahús Reykjavíkur með minniháttar meiðsl og höfð þar til eftirlits í nótt. Lést í bíl- slysi við Ólafsvík FIMMTÁN ára gamall piltur lést í bílslysi á Útnesvegi, skammt vestan Ólafsvíkurennis, rétt fyrir kl. 15 sl. laugardag. Pilturinn hét Adam Bednerek og var pólskur en hafði búið ásamt foreldrum sínum í Ólafs- vík í þrjú ár. Tildrög slyssins vora þau að tveir bílar rákust saman á veginum en hann var mjög háll. Pilturinn sem lést var farþegi í öðram bílnum. Bíl- stjórinn slasaðist en ekki lífshættu- lega. Hann var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavík- ur. í hinum bílnum var barnshafandi kona ásamt sex ára gamalli dóttur sinni, sem sat í barnastól í aftursæti bifreiðarinnar. Konan marðist og var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunn- ar til Reykjavíkur en stúlkan slapp án meiðsla. ---------------- Rán framið í söluturni RÁN var framið í söluturni í Vestur- bergi í Breiðholti í gærkvöldi og komst ræninginn undan með nokkra tugi þúsunda, að sögn lögreglunnar. Maðurinn ógnaði afgreiðslustúlku með hamri og sló annan mann með hamrinúm fyrir utan söluturninn en sá hafði reynt að skerast í leikinn. Var hann fluttur á slysadeild Sjúkra- húss Reykjavík en að sögn lögreglu hlaut hann ekki alvarlega áverka. Málið er í rannsókn hjá lögreglunni en stúlkan gat gefið greinargóða lýs- ingu á ræningjanum. Fyrstu tveir mánuðir ársins Aldrei fleiri látist í umferðarslysum TÍU manns hafa látist í umferðar- slysum hér á landi það sem af er þessu ári og segist Öli H. Þórðar- son, framkvæmdastjóri Umferðar- ráðs, ekki vita til þess að svo margir hafi áður látist í umferðarslysum á Metaðsókn að mbl.is METAÐSÓKN var að mbl.is í gær, en klukkan 21 í gærkvöldi höfðu 49.000 heimsóknir borist forsíðu vefjarins. Einnig var óvenju mikil aðsókn um helgina, 28.000 manns á laugardag og 30.000 á sunnudag. Þeir sem fóra inn á forsíðu mbl.is um helgina og í gær skoðuðu nær all- ir fréttir í fullri lengd. Mest aðsókn er jafnan að mbl.is á mánudögum, eða um 40.000-43.000 manns að jafnaði. Aðra virka daga skoða um 35.000-40.000 manns vef- inn, en heldur færri á laugardögum og sunnudögum, eða um 25.000 manns. fyrstu tveimur mánuðum ársins. „Svo mörg dauðsföll höfum við ekki séð fyrstu tvo mánuði ársins í okkar skrám,“ segir hann og bendir á að febrúarmánuður sé ekki einu sinni liðinn. „Og ef við lítum á veturinn í heild, þ.e. frá 1. október sl. til febrúarloka, hafa fjórtán manns látist í umferðar- slysum á því tímabili í vetur. Sá vet- ur sem kemst næst því er veturinn 1985 til 1986 en þá létust þrettán manns í umferðarslysum,“ segir Óli H. Þórðarson. ----------------- Tvær nauðg- anir kærðar TVÆR nauðganir vora kærðar til lögreglu í Reykjavík aðfaranótt sl. sunnudags. Báðar leituðu konurnar sem fyrir ofbeldinu urðu til neyðarmóttöku fórnarlamba kynferðislegs ofbeldis. Rannsókn málsins stendur yfir og vill lögreglan ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu. Benedikt Einar Bjöm Ragnarsson Kristjánsson Gíslason Létust í slysinu á Kjalarnesi MENNIRNIR sem létust í umferð- arslysinu á Kjalarnesi síðastliðið föstudagskvöld hétu Benedikt Ragnarsson, Björn Gíslason og Einar Kristjánsson. Benedikt Ragnarsson var starfs- maður vélsleðadeildar bílaleigunn- ar Geysis, til heimilis á Borgar- tanga 2, Mosfellsbæ. Benedikt var 31 árs gamall og lætur eftir sig sambýliskonu og sex ára son. Bene- dikt var farþegi í hópferðabifreið- inni. Björn Gíslason, til heimilis í Háa- gerði 41, Reykjavík, lögreglumaður og forstjóri Bátafólksins, hefði orð- ið 37 ára i gær. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn á aldrinum fjögurra til fimmtán ára. Björn var bílstjóri hópferðabifreiðarinnar. Einar Kristjánsson skipstjóri var til heimilis í Dalhúsum 86, Reykja- vík. Hann var 71 árs gamall. Hann lætur eftir sig fjóra uppkomna syni og sambýliskonu. Einar var öku- maður jeppans. Rannsókn á Kjalarnes- slysinu stendur yfir RANNSÓKN stendur yfir á orsök- um slyssins á Vesturlandsvegi síð- astliðið föstudagskvöld þegar rúta og jeppi lentu saman með þeim af- leiðingum að þrír létust og 13 slasað- ir voru lagðir inn á spítala. Fjórir voru ennþá á Sjúkrahúsi Reykjavík- ur í gær og þar af einn talsvert mikið slasaður en þó ekki í lífshættu. Flest- ir farþeganna úr hópferðabílnum voru þó útskrifaðir af spítala sl. laug- ardag. Vitni, sem ók á eftir jeppan- um, hefur skýrt lögreglu frá því að áður en slysið varð hafi hann séð jeppann rása á veginum. Rannsóknarnefnd umferðarslysa skoðar vettvang slyssins og ökutæk- in. Fulltrúar nefndarinnar fylgjast jafnframt með framgangi rannsókn- arinnar. Jóhannes Gunnarsson, lækninga- forstjóri á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, segir að það hafi reynt sérstaklega mikið á móttöku sjúklinganna vegna þess hve margir hafi lent í slysinu. Hann segir að þetta sé í raun í fyrsta sinn sem reyni á hópslysaáætlun spítalans að ráði og allt hafi gengið vel. iitiMmíurM.igsm - -r " i ■* Víkingsstúlkur einar á toppnum / B6 Ungur Njarðvíkingur slær í gegn í Bandaríkjunum / B1 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is 7IÐÍUDC Heimili

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.