Morgunblaðið - 29.02.2000, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Krapamyndun í Ölfusá
Sclfossi. Morgunblaðið.
MIKILL krapi berst niður Ölfusá og síðdegis í gær
var hann farinn að hlaðast upp fyrir neðan Ölfusár-
brú. Hækkaði í ánni því krapinn hefur fyrir-
stöðuáhrif fyrir neðan brúna. Þegar leið á daginn
brast stíflan en óðara byrjaði krapi að hlaðast fyrir
að nýju.
Við brúarstöplana var krapahrönglið komið upp á
bakkabrúnina. Undanfari flóða í ánni er jafnan að
klaka- og krapastífla myndast neðan brúarinnar
auk þess sem asahláka hefur komi í kjölfarið. Ekki
er ljóst hvort sú atburðarás verður en óneitanlega
sýnir Grástrengur, eins og Guðmundur Danielsson
rithöfundur nefndi ána, nú hvers hann er megnugur
fái hann réttar aðstæður.
Innanlandsflug lá að miklu leyti niðri
Áætlun 1.700
manna raskaðist
INNANLANDSFLUG var fellt nið-
ur að miklu leyti bæði í gær og á
sunnudag vegna veðurs og er talið
að ferðaáætlun um 1.700 manna hafi
raskast.
Ófært var til Akureyrar allan
sunnudag og fram til klukkan 14:30
í gær, en þá hófu bæði íslandsflug
og Flugfélag íslands flug þangað.
Ó-fært var til ísafjarðar allan
sunnudag og í allan gærdag. Einnig
urðu tafir á flugi til Egilsstaða,
Sauðárkróks, Húsavíkur, Siglu-
fjarðar og Vestmannaeyja.
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugfélagi íslands og íslandsflugi
var orðið fært á flestalla áætlunar-
staði félaganna seinni parinn í gær,
nema ísafjörð og Vestmannaeyjar.
Farnar voru aukaferðir með þá far-
þega, sem orðið höfðu fyrir töfum,
fram til miðnættis.
Búist við röskun
á flugi í dag
Búist er við að einhver röskun
verði á flugi Flugfélags Islands fyrri
partinn í dag, vegna þess að ekki
var hægt að flytja alla þá sem höfðu
tafist í gær. Hins vegar er búist við
að flug íslandsflugs verði sam-
kvæmt áætlun í dag, ef veður leyfir.
Nokkrar af áætlunarferðum hóp-
bifreiða voru einnig felldar niður
vegna veðurs í gær og á sunnudag.
Ferðum Norðurleiðar, Austurleiðar
og áætlunarferðum vestur á Snæ-
fellsnes var aflýst á sunnudag og
ferðum Norðurleiðar var einnig af-
lýst í gær.
------------------
Tvær lægðir
á leiðinni
STÓRHRÍÐ var í gær á norðan-
verðu landinu og snjóaði einna mest
á Patreksfirði, en í dag er gert ráð
fyrir að veðrið gangi niður. Ekki
verður þó um langt hlé að ræða því á
miðvikudag er spáð vaxandi austan-
átt og hvassviðri og snjókomu sunn-
anlands með kvöldinu og um helgina
er von á annarri lægð að landinu.
Hitinn náði í gær fimm stigum á
Höfn í Hornafirði, að sögn Björns
Sævars Einarssonar, veðurfræðings
hjá Veðurstofu Islands, og var yfir
frostmarki vestur á Húnaflóa. Gera
má ráð fyrir frosti um allt land í dag.
Björn sagði að lægðin, sem kæmi
seint á morgun með snjókomu sunn-
anlands, færi fyrir sunnan landið og
yrði norðvestlæg átt á fimmtudag
og él norðan- og austanlands, en úr-
komulítið sunnan- og vestanlands. A
föstudag má búast við hægviðri, en
um helgina er spáð suðlægri átt með
slyddu eða rigningu og hlýindum.
Andlát
V oru sólarhring í
snjóhúsi á Tröllhálsi
FJÓRIR menn á vélsleðum fundust
skammt norður af þjónustumiðstöð-
inni á Þingvöllum síðdegis í gær eftir
að hafa látið íyrirberast í sólarhring í
snjóhúsi á Tröllhálsi. Helgi Jóhann-
esson var einn fjórmenninganna og
sagði þegar Morgunblaðið náði sam-
bandi við hann á heimili hans í
Hveragerði að það hefði tognað úr
ferð sem hefði átt að vera „skottúr í
huggulegu veðri“, en engum þeirra
hefði þó orðið meint af.
Með Helga voru Ásgeir Ásgeirs-
son, Jóhann Garðarsson og Olafur
Óskarsson, allir frá Hveragerði.
Hann sagði að þeir hefðu fyrst lagt af
stað frá húsi, sem þeir væru með í
Borgarfirði, fyrir hádegi á sunnudag,
en snúið við vegna veðurs: „Svo rofar
til og við leggjum aftur af stað um há-
degið og allt gengur vel austur á
Tröllháls. Þá gerir algjörlega glóru-
vitlaust veður. Klukkan hefur þá ver-
ið um hálffjögur. Það endaði þannig
að við grófum okkur í fönn og það
slaknaði ekki á veðrinu í sólarhring.
Það var ekki fyrr en klukkan var far-
in að ganga fjögur að fór að rofa til og
við fórum á stjá.“
Túninn lengi að líða
Helgi sagði að þeir hefðu hímt í
snjóhúsinu með teppi undir sér og
svefnpoka yfir sér: „Okkur leið ekki
vel, en ekki illa heldur. Við vorum vel
klæddir og vorum á róli af og til að
moka frá munnanum og viðra okkur
og hreyfa til að halda á okkur hita.
Þetta var ekki alslæmt, þótt tíminn
hefði verið lengi að líða.“
Hann sagði að þeir fjórmenning-
amir væru vanir vetraraðstæðum og
hefðu verið mörg ár á ferðinni: „En
það var ekki um neitt að velja þegar
veðurhamurinn var svona,“ sagði
hann. „Það var nánast ekki stætt á
Tröllhálsinum og yfir gengu þrumur,
eldingar og allt lék á reiðiskjálfi."
Kölluðust á í snjóhúsinu
Hann kvaðst aldrei hafa lent í öðru
eins og væri þetta í fyrsta skipti, sem
hann hefði sofið í snjóhúsi. Það hefði
hins vegar gengið ágætlega að koma
sér fyrir. Þeir hefðu ekki þurft að
hlaða húsið, heldur grafið sig niður
og síðan inn á við. Meðan þeir biðu
eftir að veðrinu slotaði náðu þeir að
sofa til skiptis, en kölluðust reglulega
á án þess þó að taka skipulegar vaktir
og blunduðu í mesta lagi 10 mínútur í
senn.
„Okkur varð ekki verulega kalt, en
náttúrulega fann maður fyrir kulda,“
sagði hann, nýkominn úr heita pott-
inum í gærkvöldi. „Þegar maður ligg-
ur svona lengi fer að bráðna snjór í
gegnum gallann þótt hann sé vandað-
ur. Okkur varð því hálfkalt þótt það
gerði okkur ekki neitt og nú eru allir í
góðu standi.“
Að sögn Helga snjóaði stanslaust
frá því þeir urðu að gera hlé á ferð-
inni á sunnudag fram að hádegi í gær.
Þá hélt hins vegar áfram að skafa og
um þrjúleytið fór að rofa til. Þá þurfti
að berja úr beltunum á vélsleðunum
áður en farið var af stað því að allt var
frosið fast eftir hríðina. Þeir höfðu
mat meðferðis, en engar græjur til að
hita vatn eða annað. Helgi sagði. að
þeir hefðu líka verið með bæði NMT-
og GSM-síma. Ekki hefði verið hægt
að ná sambandi gegnum NMT-sím-
ann þar sem þeir sátu fastir.
Ef ekkert hefði verið að færi hefðu
þeir ekki átt eftir nema kortérs ferð á
Þingvelli. Þaðan var fórinni síðan
heitið yfir Hellisheiði og Mosfells-
heiði til Hveragerðis. Hann sagði að
þá hefði verið farið að gruna að hafin
væri leit að þeim og síðan hefðu þeir
hitt á leitarmennina á Þingvöllum
upp úr klukkan fjögur í gær. Kvaðst
Helgi vilja koma á framfæri þakklæti
til björgunarsveitamannanna sem
lögðu á sig að leita þeirra.
Þjónusta númer eitt!
Igg -» • . m
MM ; *
wm
Opnunartlmi: Mánud. - föstud. kl. 9-18
laugardagar kl. 12-16
BÍLAÞING HEKLU
Ni/Mr-r dH f nwtvJvM Ulvf/il
Laugavegi 174,105 Reykjavík, sími 569-5500
wwv;.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is
Til sölu Audi A4 station
nýskráður 19/12/1996 sjálf-
skiptur, 1800 vél, silfurgrár
ekinn 30,000 km. Ásett verð
2.190.000. Ath, skipti á ódýrari.
Nánari upplýsingar hjá Bíla-
þingi Heklu, sími 569 5500.
JÓN DAN
JÓN Dan Jónsson, rit-
höfundur og fyrrver-
andi ríkisféhirðir, er
látinn, tæplega 85 ára
að aldri.
Foreldrar Jóns voru
Jón Einarsson, út-
vegsbóndi á Brunna-
stöðum á Vatnsleysu-
strönd, og kona hans
Margrét Pétursdóttir.
Jón fæddist 10.
mars 1915. Hann
brautskráðist frá
Verzlunarskóla Is-
lands 1933, starfaði
um skeið hjá sælgæt-
isgerðinni Freyju og verksmiðj-
unni Vífilfelli hf., en hóf störf í rík-
isfjárhirzlum síðla árs 1946. Hann
varð ríkisféhirðir 1956 og gegndi
því starfi til ársloka 1977, er hann
lét af störfum á eftirlaunum.
Jón vakti fyrst athygli sem rit-
höfundur árið 1956 með smásagna-
safninu Þytur um nótt og enn á ný
tveimur árum síðar með skáldsög-
unni Sjávarföll. Árið 1960 komu út
eftir hann skáldsög-
urnar Nótt í Blæng og
Bréf að austan, undir
samheitinu Tvær
bandingjasögur, og
sex árum síðar fyrsta
ljóðabók hans, Ber-
fætt orð. Þekktastur
er Jón fyrir skáldsög-
ur sínar, en auk frum-
raunanna eru þessar
helstar: Atburðirnir á
Stapa (1973), Síðasta
kvöld í hafi (1977),
Stjörnuglópar (1980),
1919 - Árið eftir
spönsku veikina
(1987) og smásagnasafnið Sögur af
sonum (1989). Einnig skrifaði Jón
nokkrar barnabækur og samdi
leikrit, þ.á m. Brönugrasið rauða,
sem sýnt var hjá Leikfélagi Akur-
eyrar (1969).
Eftirlifandi eiginkona Jóns er
Halldóra Elíasdóttir og eiga þau
fjögur uppkomin börn.
■ Jón Dan/35
SVEINN BJÖRNSSON
SVEINN Björnsson,
verkfræðingur og fyrr-
verandi forstjóri SVR,
lést í gær, 73 ára að
aldri.
Sveinn fæddist í
Reykjavík 23. júní
1926. Foreldrar hans
voru Þórunn Halldórs-
dóttir húsmóðir og
Björn Benediktsson
netagerðarmeistari.
Sveinn lauk stúdents-
prófi frá MR 1946 og
BS-prófi í iðnaðarverk-
fræði frá Illinois Inst-
itute of Teehnology í
Chicago 1951. Að loknu námi starf-
aði hann fyrst hjá netagerð föður
síns. Hann var verkfræðingur hjá
Iðnaðarmálastofnun íslands 1953-
1955 og frakvæmdastjóri stofnuni ar
frá 1955-1971. Árið 1971 varð Sveinn
framkvæmdastjóri Iðnþróunar-
stofnunar íslands og forstjóri Iðn-
tæknistofnunar árið
1978. Árið 1983 tók
hann við starfi for-
stjóra SVR og gegndi
því til ársloka 1994.
Sveinn gegndi ýms-
um trúnaðarstörfum á
starfsferli sínum. Hann
var formaður BMM
1962-1966, sat í stjórn
Stj órnunarfélagsins
1961-1968, í stjóm
Rannsóknarráðs ríkis-
ins 1965-1979 og for-
maður þess 1972-1975.
Auk þess sat hann í
stjóm Verkfræðingafé-
lags íslands um tíma. Sveinn var
varaborgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins 1970-1983 og sat á því
tímabili í fjölmörgum nefndum á
vegum Reykjavíkurborgar.
Eiginkona Sveins er Helga Grön-
dal læknafulltrúi. Þau eignuðust
fimm böm.