Morgunblaðið - 29.02.2000, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Um 50
manns veð-
urtepptir á
Laugarhóli
Drangsnesi. Morgunblaðið.
50 manns eru veðurtepptir á Laugar-
hóli í Bjarnaríirði. Hópurinn sem um
ræðir kom á Laugarhól á fostudag til
að dvelja þar yfir helgi við að renna
sér á snjóbrettum. Þetta eru alvant
snjóbretta- og útivistarfólk. Áttu þau
góðan dag á Laugarhóli á laugardeg-
inum og gekk allt vel fyrir sig.
Á sunnudag var veðrið orðið
slæmt. Snjóblásari frá Hólmavík fór
norður og opnaði leiðina sem reynd-
ar lokaðist strax aftur. Lagði rútan
af stað með fólkið en þrátt fyrir að
snjóblásarinn væri á undan henni þá
hafðist ferðin seint. Kófið var svo
mikið að ekki sást út úr augum og
voru þau ekki komin langt þegar bíl-
stjórinn missti rútuna út af veginum
og þar sat hún föst. Var þá ákveðið
að drífa alla aftur í Laugarhói. Var
fólkið flutt með 3 jeppum til baka og
gekk það vel. Að vísu þurftu bílarnir
að fara nokkrar ferðir til að koma öll-
um hópnum í hús.
Samkvæmt upplýsingum frá Jóni
Elíassyni rekstrarstjóra vegagerð-
innar á Hólmavík gætu þau orðið að
dvelja á Laugarhóli fram á miðviku-
dag ef veðurspáin helst.
Björgunarsveitarmenn frá
Drangsnesi eru á leið norður í Bjam-
arfjörð á snjósleðum með mat fyrir
hópinn en eins og gefur að skilja er
farið að ganga á nestið sem tekið var
með frá Reykajvík.
--------------
Aldrei fleiri
laus störf á
höfuðborgar-
svæðinu
LAUS störf á höfuðborgarsvæðinu
hafa aldrei verið fleiri í janúar, að
því er fram kemur í könnun Þjóð-
hagsstofnunar á atvinnuástandi í
janúar 2000. Æskileg fjölgun starfs-
fólks hefur ekki mælst meiri á höf-
uðborgarsvæðinu á þessum árstíma,
eða alls um 470 manns sem er um
0,8% af vinnuaflinu þar.
I atvinnukönnunum í janúarmán-
uði síðustu ára var eftirspumin 0,3%
árið 1998 og 0,6% árið 1999. Eftir-
spumin er áberandi mest í þjónustu
við atvinnurekstur, eða um 4,8% af
vinnuaflinu í þessum greinum.
Mikil eftirspurn eftir
vinnuafli í byggingariðnaði
Jafnframt er eftirspurnin mikil í
t.d. byggingarstarfsemi, þar sem
hún mælist um 1,6% og í iðnaði þar
sem eftirspumin er að jafnaði í hin-
um ýmsu greinum um 1,1% af
mannaflanum. í verslun og veiting-
arekstri nam eftirspurnin um 0,3%.
Sammerkt með öllum þeim könnun-
um sem gerðar hafa verið er að eft-
irspurnin er mest í þjónustu við at-
vinnurekstur og þá einkum í
upplýsingaiðnaði og tæknigreinum.
-------------------
Rafmagns-
truflanir á
Vestfjörðum
VEGNA veðurs voru truflanir á raf-
magni frá Orkubúi Vestfjarða á
sunnudag en eftir að samband komst
á við Landsvirkjun í gærmorgun
vora þær úr sögunni.
Að sögn Stefáns Atla Ástvaldsson-
ar, starfsmanns Mjólkárvirkjunar,
vora traflanir aðallega á sunnudag
og þá á öllu orkuveitusvæðinu.
„Landsvirkjunarlínan tolldi ekki inni
og þá þurfti að keyra díselvélarnar
og skammta rafmagn á öllum stöð-
um,“ sagði hann. Veðrið var farið að
skána í gær og átti hann von á að erf-
iðleikamir væra úr sögunni nema á
Súðavík, þar sem keyra þurfti dísil-
vél en línan tolldi ekki inni.
Þrír vélsleðamenn lentu í hrakningum og grófu sig í fönn við Geitafell
Utanríkisráðherra um ákvörðun umhverfísráðherra varðandi álver á Reyðarfírði
Ekki ástæða til að breyta um
stefnu varðandi virkjunina
HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkisráðherra og
fyrsti þingmaður Austurlands, telur ekki ástæðu
til að breyta markaðri stefnu varðandi mat á um-
hverfisáhifum Fljótsdalsvirkjunar þrátt fyrir að
umhverfisráðherra hafi ógilt það ferli sem var í
gangi varðandi umhverfismat á álveri á Reyðar-
firði. Hann segir Ijóst að sá tímarammi sem menn
hafi sett sér hafi raskast og ná þurfi samkomulagi
um nýjan ramma.
Halldór sagðist telja hugmyndir um að setja
Fljótsdalsvirkjun í lögformlegt umhverfismat frá-
leitar. ,Alþingi er búið að taka ákvörðun í þessu
máli og það er að mínu mati rangt að vísa því eftir
það til embættismanna og síðan í framhaldi af því
til úrskurðar umhverfisráðherra. Það má hins
vegar vel vera að það skapist svigrúm til frekari
athugana og rannsókna sem menn telja nauðsyn-
legt að verði farið í,“ sagði Halldór.
Farið að reglum í hvívetna
„Það er aftur á móti alveg Ijóst að sá tímarammi
sem var fyrir hendi í þessu máli er ekki lengur til
staðar og þetta mun seinka málinu. Aðalatriðið er
það að hér er farið að reglum í hvívetna og allt gert
í samræmi við þau lög sem hafa gilt og gilda í land-
inu um þetta mál. Þetta sannar líka í eitt skipti fyr-
ir öll að þarna er farið að reglum. Sú gagnrýni,
sem hefur komið fram á ríkisstjómina og þá sér-
staklega á umhverfisráðherra um að ekki sé fylgt
þeim leikreglum sem gilda í okkar samfélagi, á
ekki við nein rök að styðjast," sagði Halldór.
Halldór sagði mikilvægt að menn hefðu í huga í
umræðu um umhverfismat að tilgangurinn með
umhverfismati væri ekki að koma í veg fyrir fram-
kvæmdir heldur að leggja mat á gildi fram-
kvæmdanna. Alþingi hefði lagt mat á gildi þess að
Fljótsdalsvirkjun yrði reist.
Halldór sagði að næsta skref í málinu væri að ná
niðurstöðu um nýjan tímaramma til að vinna eftir.
Morgunblaðið/Golli
Mennirnir, sem leitað var að, komust af eigin rammleik til byggða. Frá vinstri: Helgi Sigursveinsson, Jón Valgeir Kristensen og Þórhallur Kristjánsson.
ÞRÍR vólsleðamenn lentu í miklum
hrakningum við Hellisheiði í
óveðrinu á sunnudaginn. Mennirn-
ir, sem hugðust skemmta sór á
vólsleðunum sínum í nokkra
klukkutíma enduðu með að villast í
slæmu veðri og þurftu að grafa sig
í fönn við Geitafell, þar sem þeir
dvöldu 114 klukkustundir, eða allt
þar til veðrinu slotaði og þeir gátu
haldið til byggða. Umfangsmikil
leit hófst að mönnunum siðdegis á
sunnudag og stóð hún þar til menn-
irnir komu fram í Þrengslum í
gærmorgun.
„Ég tel okkur ekki hafa verið
lífshættu, en við vorum allir mjög
kaldir og blautir, sagði Jón Valgeir
Kristensen, einn af vélsleðamönn-
unum.
Um klukkan níu í gærmorgun
voru mennirnir þrír, þ.e. Jón Val-
geir, Þórhallur Kristjánsson og
Helgi Sigursveinsson, komnir að
Litlu kaffistofunni, en þeir eru allir
af höfuðborgarsvæðinu og á aldr-
inum 35 til 45 ára. Er blaðamann
og Ijósmyndara bar að garði voru
þremenningarnir að festa tvo sleða
á kerrur, en þriðja sleðann höfðu
þeir skilið eftir í Þrengslum, þar
sem hann hafði orðið bensínlaus.
Höfðu eitt súkkulaði-
stykki með sér
Þeir Jón og Þórhallur sögðu
þetta hafa verið miklu lífsreynslu.
Þeir sögðust hafa komið að Litlu
kaffistofunni um klukkan tíu á
sunnudagsmorgun og farið á sleð-
unum, í frekar slæmu veðri, upp að
Hengli, en að vegna veðurs hefðu
þeir ákveðið að fara aftur upp í
Litlu kaffistofu um tveimur timum
Um klukkan níu í gærmorgun komu vélsleðamennirnir upp í Litlu kaffi-
stofu. Hér eru þeir Jón Valgeir Kristensen og Þórhallur Kristjánsson að
gera sig klára áður en þeir halda í bæinn.
„Vorum ekki
í lífshættu“
síðar. Þar sögðust þeir hafa staldr-
að stutt við því þeir hefðu fljótlega
farið aftur á sleðana og haldið í
austur í átt að Þrengslavegi.
„Um tvöleytið ákváðum við að
keyra að Þrengslavegi og þar var
mjög bjart og gott veður,“ sagði
Jón VaJgeir. „Við ætluðum bara
aðeins að skreppa og skildum því
GSM- og NMT-símana eftir í bflun-
um, sem og aukaföt og mat. Það
eina sem við tókum í raun með
okkur var eitt súkkulaðistykki,
GPS tæki og síðan höfðum við tölu-
vert með okkur að drekka. Þetta
er í fyrsta og eina skiptið sem við
gerum þetta, því þessi ferð kenndi
okkur að maður getur aldrei verið
viss með veður hór á þessu land og
eins gott að vera alltaf vel búinn.
Við keyrðum Þrengslaveginn til
hálfs og beygðum þar útaf og héld-
um upp að fjalli sem lieitir Geita-
fell. Þar vorum við þar til klukkan
fimm síðdegis, er við ákváðum að
fara til baka, en þá, eins og hendi
væri veifað, skall á brjálað veður.
Það var ekkert skyggni og við
ákváðum því að snúa við og fara
aftur upp að Geitafelli, en fjallið
skýldi okkur fyrir mesta bylnum.“
Voru kaldir og blautir
og sváfú ekki dúr
„Við ákváðum að grafa okkur í
fönn meðan enn væri bjart og þar
dvöldum við frekar kaldir og blaut-
ir - mér var nú aðallega kalt á fót-
unum.
Við sváfum ekki dúr. Félagar
mínir sögðu reyndar að ég hefði
hrotið í eina mínútu, en ég held ég
hafi nú frekar verið hnerra. Við
fórum alltaf út á klukkutíma fresti
til þess að hressa okkur við.
Við reyndum að fara tilbaka í
nótt (fyrrinótt) eftir GPS punkti og
reyndum að nýta okkur Ijósin á
sleðunum, en í birtunni nýttust þau
ekkert. Við sáum hins vegar ekk-
ert og snerum því við og fórum aft-
ur þar sem við höfðum grafið okk-
ur í fönn við Geitafell. Við vorum
þar siðan í alla nótt eða alveg þar
til klukkan átta í morgun (gær-
morgun) er við lögðum af stað til
baka. Við hittum síðan á rútubfl-
stjóra á Þrengslavegi um klukkan
níu og létum þá vita af okkur.
Svona fimm mfnútum eftir það
kom björgunarsveitin."
Jón Valgeir sagðist vilja koma
þakklæti á framfæri til björgunar-
sveitanna.
„Þessir menn hafa staðið sig al-
veg eins og hetjur."