Morgunblaðið - 29.02.2000, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 1 3
FRÉTTIR
Framkvæmdir í flugstöðinni á Akureyrarflugvelli
Isafjarðardjúp
Fimm tilboð bárust
Héldu til í
jeppanum
FIMM tilboð bárust í fram-
kvæmdir í flugstöðinni á Akureyr-
arflugvelli en tilboðin voru opnuð
fyrir helgi. Aðeins tvö tilboðanna
eru undir kostnaðaráætlun en
lægsta tilboðið átti MP Verk og
Vík ehf. Fyrirtækið bauðst til að
vinna verkið fyrir rúmar 36,6
milljónir króna, sem er um 88% af
kostnaðaráætlun verkkaupa.
Kostnaðaráætlunin hljóðar upp á
41,4 milljónir króna.
Trétak ehf. bauð um 40,8 millj-
ónir króna í verkið eða 98,5%,
Tréverk ehf. bauð um 44,8 millj-
ónir króna, eða um 108%, SJS
verktakar ehf. buðu um 45,6 millj-
ónir króna eða um 110% og Tré-
borg ehf. bauð um 49,7 milljónir
króna eða um 120% af kostnaðar-
áætlun.
Fyrirhugaðar framkvæmdir
lúta að endurbótum á miðhluta
flugstöðvarinnar, þ.e. brottfarar-
sal og veitingaaðstöðu, til sam-
ræmis við það sem búið er að gera
í norðurenda og nýbyggingu að
sunnan. Stefnt er að því að hefja
framkvæmdir í mars og ljúka
þeim í sumar en einnig hefur
komið til tals að framkvæmdir
hefjist ekki fyrr en í haust.
Fimm í flugstöðina,
eitt í sundlaugina
Athygli vekur að á sama tíma og
fimm tilboð berast í framkvæmdir
í flugstöðinni, barst aðeins eitt til-
boð í framkvæmdir í Sundlaug Ak-
ureyrar og var það nokkuð yfir
kostnaðaráætlun, eins og fram
kom í Morgunblaðinu í síðustu
viku. Einar Jóhannsson á bygg-
ingadeild Akureyrar taldi ástæðu
þess vera þenslu á vinnumarkaðn-
um í bænum og einnig knappan
framkvæmdatíma. Kostnaðaráætl-
un fyrir Sundlaugina hljóðaði upp
á 63,6 milljónir króna en tilboðið,
sem kom frá Tréverki ehf., hljóð-
aði upp á rúmar 69 milljónir króna
eða um 109% af kostnaðaráætlun.
BJÖRGUNARSVEITARMENN
frá Hólmavík hófu á sunnudag
leit að manni og konu á litlum
jeppa í Isafjarðardjúpi.
Aðfaranótt mánudags komu
þeir að bílnum og komu þeir
ásamt fólkinu til byggða klukkan
5 að morgni mánudags.
Að sögn lögreglunnar á
Hólmavík hafði fólkið lagt upp á
sunnudag og ætlað yfir Stein-
grímsfjarðarheiði en ákvað að
halda til í bflnum og leggja ekki í
heiðina enda vitlaust veður á
þessum slóðum. Ekkert amaði að
fólkinu þegar að var komið.
Patreksfjörður, Bolungarvík, ísafjörður og Siglufjörður
Hús rýmd vegna hættu á snjöflöðum
VEÐURSTOFA íslands ákvað, að höfðu sam-
ráði við sýslumenn viðkomandi staða og al-
mannavarnanefndir, að rýma hús í Bolungarvík,
ísafirði og Siglufirði, í fyrrakvöld vegna hættu
á snjóflóðum og sömuleiðis var ákveðið í gær-
morgun að rýma hús á Patreksfirði. Rýming á
Siglufirði var hins vegar afturkölluð undir
kvöld í gær en það sama var ekki hægt að gera
fyrir staðina á Vestfjörðum.
147 yfirgáfu heimili sín
Á Patreksfirði er um að ræða 14 hús og 48
íbúa við Urðargötu, Mýrar og Hóla, samkvæmt
upplýsingum Almannavarna ríkisins.
í Bolungarvík var ákveðið að rýma tvö svæði
á sunnudag undir Traðarhyrnu, eða sex hús
með 24 íbúum, en á Isafirði var eitt hús rýmt
þar sem tveir búa.
Á Siglufirði voru 22 hús rýmd á þremur
svæðum þar sem búa 73 en eins og fyrr sagði
gat fólkið snúið til síns heima í gærkvöldi.
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
Renault Clio kostar frá 1.188.000 kr.
Hvernig væri að fá sér stærri bíl á frábærum kjörum. Það er ekki mikið að
borga 13.865 kr. á mánuði fyrir jafn góðan bíl* (Meðalgreiðsla á mánuði
með vöxtum og áföllnum kostnaði m.v. 84 mán. bflalán og 284.500 kr.
útborgun (t.d. bfllinn þinn)). Komdu og prófaðu Renault Clio á betri kjönun.
RENAULT