Morgunblaðið - 29.02.2000, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 29.02.2000, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 1 5 LANDIÐ Aðalfundur Félags eldri borgara á Selfossi Stórbæta þarf kjör þeirra sem minnst hafa Selfossi - Félag eldri borgara á Selfossi samþykkti á aðal- fundi sínum 27. febrúar kjara- málaályktun þar sem skorað er á launþegahreyfinguna í landinu, atvinnurekendur og stjómvöld að stórbæta kjör fátækra bamafjölskyldna og einstæðra foreldra, öryrkja og þess hóps eldri borgara sem lökust hefur kjörin. Jafnframt beinir fundurinn því til annarra launþega í landinu að sætta sig við og styðja leiðréttingu á kjöram þessara hópa. „Þar við liggur heiður okkar allra á tímum velsældar og góðæris," segir í kjaramálaályktuninni. Fundurinn skoraði á heil- brigðis- og tryggingamálaráð- herra að hækka grannlífeyri þannig að hann verði 51,7% af dagvinnulaunum verkamanna í stað þess að vera 43,9% og að breytingar á grannlífeyri fylgi launavísitölu Hagstofunnar og komi til endurskoðunar árs- fjórðungslega. Þá skoraði ftmdurinn á ráðherra að beita sér fyrir því að frítekjumörk almannatrygginga og skatt- leysismörk verði alltaf látin fylgja almennri launaþróun í landinu. Þakkir og áskorun Aðalfundurinn samþykkti einnig þakkir til sveitarfélags- ins Arborgar fyrir þá aðstöðu sem byggð hefur verið upp fyrir aldraða og skorar á bæj- arstjórnina að hefja strax und- irbúning að stækkun sam- komusalar við Mörkina sem hýsir íbúðir aldraðra og fé- lagsaðstöðu þeirra á Selfossi. Fagna stækkun sjúkrahússins Fundurinn fagnaði þvi að fjárveitingar hafa fengist til að undirbúa stækkun Sjúkrahúss Suðurlands. Þá er því og fagn- að að ákveðið hefur verið að koma á fót dagvistun fyrir sjúka og aldraða en húsnæði fyrir slíka starfsemi er til stað- ar í Mörkinni. Loks skoraði fundurinn á bæjarstjóm Ár- borgar að hækka tekjumörk þeirra eldri borgara sem njóta afsláttar af fasteignagjöldum og bent er á að Arborg sé nokkur eftirbátur annarra sveitarfélaga í því efni. Lions- klúbbur Sandgerðis gefur sjúkrarúm Sandgerði - Nýlega afhentu Lionsmcnn i Sandgerði Lyngseli, sem er skamm- tímavistun fatlaðra, nýtt og fullkomið sjúkrarúm. Lyng- sel, sem er rétt fyrir sunnan Sandgerði og var tekin í notkun árið 1992, er rekið af Þroskahjálp á Suðurnesjum. Að jafnði eru Qórir til fimm einstaklingar vistaðir i einu og iallt að átján á mán- Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Ástvaldur Jóhannesson, formaður Lionsklúbbsins, afhenti Kolbrúnu Marelsdóttur sjúkrarúmið. Á milli þeirra er Fann- ey Dís, þriggja ára langveik stúlka, sem mun nota rúmið. uði. Forstöðukona Lyngsels er 35 ára nú í febrúar og hef- er Kolbrún Marelsdóttir. ur á undanfömum ámm gef- Lionsklúbbur Sandgerðis ið gjafir til Lyngsels. Morgunblaðið/Ingimundur Harpa Dröfn Skúladóttir hlaut Auðunsbikarinn sem veittur er til minningar um Auðun Hlíðkvist Kristmarsson. Með henni á myndinni er Kristmar J. Ólafsson sem afhenti gripinn. Harpa Dröfn Skúlaclótt- ir hlaut Auðunsbikarinn Borgarnesi - Harpa Dröfn Skúladóttir sundkona hlaut Auðunsbikarinn sem afhent- ur var á íþróttadegi í Borg- arnesi. Hann er veittur til minningar um Auðun Hliðkvist Kristmarsson sem lést af slysförum fjórtán ára gamall árið 1995, en hann var mjög fjölhæfur íþrótta- maður. Foreldrar hans stofnuðu minningarsjóð um hann og er árlega veitt úr sjóðnum viðurkenning til fjórtán ára unglings sem þykir skara fram úr jafnöldr- um sínum. Viðurkenningin er nú veitt í fimmta sinn. í ávarpi sínu við þetta tækifæri ræddi Kristmar J. Ólafsson um hvað lagt væri til grundvallar við valið. Leggja þyrfti huglægt mat á ýmsa þætti og skoða íþrótta- fólkið frá ýmsum hliðum. Oft komi upp í hugann eftir slíka athugun hvað ráði því hvort íþróttamenn nái árangri eða ekki. Ymsir þættir aðrir en líkamlegir þm-ftu að vera til staðar. Að margra áliti skipta andlegir hæfileikar ekki minna máli. Þáttur þjálfaranna og foreldranna er einnig mikilvægur. Hvatti Kristmar foreldra til þess að gefa sér rneiri tíma með börnunum og slá með því tvær flugur, efna börnin til dáða og leggja sitt að mörk- um í íþróttahreyfingunni. Sagði hann að Harpa Dröfn Skúladóttir væri góð fyrir- mynd jafnöldram sínum. Hún hefur náð góðum ára- ngri í sundi, er samviskusöm og leggur sig ávallt fram við æfingar og keppni. Hlynur Bærings- son íþróttamaður Borgarbyggðar Borgarnesi -1 lok íþrótta- dags í Borgarnesi var greint frá kjöri íþróttamanns Borg- arbyggðar fyrir árið 1999. Fyrir valinu varð Hlynur Bæringsson, 17 ára körfu- knattleiksmaður. Hlynur var valinn úr hópi þeirra er til- nefndir vora sem íþróttamenn í sinni grein. Hlynur var kjörinn körfu- knattleiksmaður Borgar- byggðar, en aðrir sem valdir vora í öðram íþróttagreinum vora: Óli Þór Birgisson badm- inton, Haraldur Már Stefáns- son golf, Kristín Þórhallsdótt- ir frjálsar íþróttir, Hrafn Hákonarson hestaíþróttir, Einar Trausti Sveinsson íþróttir fatlaðra, Jakob Hall- geirsson knattspyma og Harpa Dröfn Skúladóttir sund. Hlynur Bæringsson er mjög efnilegur körfuknatt- leiksmaður. Hann leikur með Skallagrími í úrvalsdeildinni og þrátt fyrir ungan aldur hefur hann bæði leikið með unglinga- og A. landsliði ís- lands á þessu ári. Guðrún Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar afhenti viður- kenningar til íþróttafólksins fyrir einstakar greinar, en Örn Arnarson, íþróttamaður ársins 1998, sem var heiðurs- gestur íþróttadagsins, greindi frá kjöri íþróttamanns Borg- arbyggðar og afhenti Hlyn verðlaunagripina. Morgunblaði/Ingimundur Hlynur Bæringsson, íþróttamaður Borgarbyggðar 1999, ásamt Emi Arnarsyni, iþróttamanni ársins hérlendis, en hann greindi frá kjörinu og afhenti verðlaunagripina. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Heimamenn á Þórshöfn og ÁTVR eftir fdtboltaleikinn. Gestirnir náöu aö hefna fyrir slæmt tap í fyrra. ATVR sigrar heimamenn Þórshöfn - Hörkuspennandi fótboltaleikur var spilaður í íþróttahúsinu á Þórshöfn fyrir stuttu en þar áttust við heimamenn og liðsmenn ÁTVR. Eitt ár er liðið frá því að þessi Iið áttust við í bolt- anum og þá unnu heima- menn leikinn með markatöl- unni 14-2 en það var þegar áfengisútsala var opnuð á Þórshöfn og heimamenn buðu ÁTVR mönnum í fót- bolta við það tækifæri. í þetta sinn snerist dæmið við og ÁTVR vann leikinn með 22 mörkum gegn 7 og hafa þeir þá hefnt ófaranna frá í fyrra. Nú er ár sfðan áfengisútsala var opnuð á Þórshöfn og sáu liðsmenn ÁTVR þá tækifæri til að heimsækja staðinn en að þeirra sögn hafa þeir óspart verið minntir á hrakfarir sínar á Þórshöfn í fyrra. Þeir geta því haldið andlitinu f vinnunni eftir nýjustu tölur í fótboltanum og voru hinir ánægðustu eftir leikinn en að honum loknum beið þeirra matarveisla og siðan skoðunarferð um Hraðfrysti- stöð Þórshafnar og loðnu- verksmiðjuna, þar sem nóg er að gera þessa dagana. Heimamenn hafa að von- um leitað skýringa á hrak- smánarlegri frammistöðu sinni gegn liðsmönnum ÁTVR og á leið í búnings- klefann varð einum að orði: „Jæja, strákar mínir, þarna sést hvernig áfengið fer með mann.“ Hyggjast spila á hverjum stað Ekki fékkst þó staðfest hvort sú var raunin að bolta- mennirnir á Þórshöfn hefðu verið svo dyggir viðskipta- vinir nýju áfengisútsölunnar að það hefði á einu ári lamað svona þrek þeirra og getu í fótbolta. Liðsmenn ATVR upplýstu hins vegar að fyrir- huguð væri á þessu ári opn- un nýrra áfengisverslana á landsbyggðinni, á Hvamm- stanga, Búðardal og Hvols- velli. Á þessum stöðum von- ast þeir eftir að taka fótboltaleik með heima- mönnum og helst að gera það að fastri hefð í livert sinn sem ný áfcngisútsala er opnuð á hverjum stað. Heimamönnuin er því holl- ara að æfa af kappi því við öfluga fótboltamenn er að eiga frá ÁTVR.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.