Morgunblaðið - 29.02.2000, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 29. PEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Kvenfélagskonur gáfu kaffið í Þorlákshöfn, Ingveldur Pétursdóttir,
Birna Borg Sigurgeirsdóttir, Ardís Jónsdóttir og Ómar Guðbrandsson
sem sagði að ekki hefði verið Ieiðinlegt að fá frí í skólanum.
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Bergdís Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur stjórnaði aðgerðum.
Grimnskólanum
breytt í fjölda-
hjálparstöð
Þorlákshöfn. Morgunblaðid.
ÞAÐ gerði skyndilega bálhvassa
norðanátt og byl síðdegis á sunnudag
og Hellisheiði lokaðist um kl. 15 en
Þrengslavegi var haldið opnum. Um
kl. 18 hafði safnast saman í Þrengsl-
unum þvílíkur urmull bfla í blindhríð
að ekki varð við neitt ráðið. Um 1.500
manns urðu að dúsa í bflum sínum í
Þrengslunum fram undir morgun.
Björgunarsveitir af Suðurlandi og
Reykjavikursvæðinu unnu að björg-
unarstörfum fram á mánudag og
voru þá margir orðnir lúnir og slæpt-
ir. Mikill fjöldi fólks var fluttur aust-
ur fyrir fjall og fékk gistingu í Þor-
lákshöfn, Hveragerði, Selfossi og
sumir fóru alla leið upp að Flúðum.
Rauði krossinn tók á móti 250 manns
í Grunnskólanum í Þorlákshöfn.
Bergdís Sigurðardóttir hjúkrunar-
fræðingur stjómaði aðgerðum og
sagði hún að nóttin væri búin að vera
ansi erilsöm en það væri gott að geta
orðið þessu hrakta fólki að liði. AJlir
hefðu fengið hressingu og þá að-
hlynningu sem þurfti, nokkrir þurftu
á lyfjum að halda og tókst að útvega
þau. Það sem flestir þurftu hvað
mest á að halda var að komast á klós;
ett eftir langa nótt í bílum sínum. í
grunnskólanum gistu um hundi-að
manns og gekk vel að útvega dýnur,
svefnpoka og teppi þannig að þokka-
lega fór um alla. Þeim sem ekki gistu
í skólanum var komið fyrir í heima-
húsum, því margir Þorlákshafnar-
búar komu í skólann og buðu fram
gistingu og /eða viðlegubúnað auk
þess áttu margir vini eða ættingja á
staðnum sem þeir fengu gistingu hjá.
„Lengsti
sunnudags-
bíltúr sem ég
hef farið í“
Á HEILSUSTOFNUN NLFÍ gistu
vel á annað hundrað manns, sem
ekki komust vestur yfír heiði og
var aukastarfsfólk kallað út í
fyrrinótt til að taka á móti fólkinu.
Áð sögn Árna Gunnarssonar, for-
sljóra Heilsustofnunarinnar, fór
vel um alla og í gærmorgun þegar
fréttaritari Ieit inn var megnið af
fólkinu í morgunmat og lét vel af
sér þrátt fyrir hrakningana.
Svavar Jónsson og fjölskylda
hans fóru að skoða Heklugosið í
fyrradag og átti enginn von á því
að bfltúrinn fengi þennan endi.
Gisti íjölskyldan á HNLFÍ í nótt
og lét vel af ferðinni því þau kom-
ust að hraunjaðrinum og voru
með mola úr hrauninu í fartesk-
inu.
Óskar Svavarsson sagði þetta
lengsta sunnudagsbíltúr sem hann
hefði komist í um ævina. 15 Svíar
voru í hóp er einnig var að skoða
gosið og dvaldi allur hópurinn á
Heilsustofnun. Gunnar Jónsson,
kokkur á HNLFÍ og starfsfólk
hans lét sig ekki muna um að það
þó að hátt á annað hundrað manns
hefðu bæst í matinn og þegar
fréttaritari yfirgaf Heilsustofnun
var verið að leggja drög að hádeg-
isverði fyrir allan hópinn.
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
Svavar Jónsson og synir hans Reynir og Óskar, létu fara vel um sig.
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
15 manna hópur frá Svíþjóð fékk gistingu á Heilsustofnun NLFÍ.
Morgunblaðið/Jón Hafsteinn Sigurmundsson
Frönsku hjónin Guillet Josette og Richard Beriard og Peter Crums frá Hollandi voru björgun og skjóli fegin.
Franskir kennarar í vetrarfríi
Þorlákshöfn. Morgunblaðið.
MEÐAL þeirra sem gistu í Grunn-
skólanum í Þorlákshöfn voru hjón-
in Guillet Josette og Richard Ber-
yard, kennarar frá Frakklandi.
Þau hjónin sem eru í vetrarfríi,
leigðu sér bílaleigubíl og skruppu í
góða veðrinu á sunnudag upp að
Geysi og áttu sér einskis ills von.
Þau höfðu ekki hlustað á veðurspá
enda ætluðu þau ekki að vera
lengi. Guillet sagðist hafa orðið
ansi smeyk á fjallinu, ekki vitað
hvað um var að vera og óttaðist að
bíllinn fyki út fyrir veg, því storm-
ur hefði verið fyrir stuttu í Frakk-
landi og margir bílar fokið út af og
hvolft. Þau hjónin ætluðu að skilja
bílinn eftir og fara með áætlunar-
bíl til Reykjavíkur og láta bílaleig-
una sækja bílinn þegar mokað
verður. Með þeim hjónum gisti
Hollendingurinn Peter Crums,
hann var á ferð á eigin bíl á
ónegldum dekkjum og hugðist
hann halda á eftir áætlunarbílun-
um til Reykjavíkur þegar Hellis-
heiði opnaðist.
Stórfjölskylda
gisti í heimahúsi
Þorlákshöfn. Morgunblaðið.
SKÓLASTJÓRINN Halldór Sig-
urðsson og kona hans Ester Hjartar-
dóttir, sem er kennari við Grunnskól-
ann í Þorlákshöfn, voru búin að lána
frá sér dýnur og sængur þegar
hringt var úr skólanum og beðið um
gistingu. ,Að sjálfsögðu segir maður
já við gamla skólasystur sem á í
vanda,“ sagði Ester, „það er alltaf
hægt að finna pláss og eitthvað til að
liggja við.“ Ester sagði að hjá þeim
hefðu gist sjö manns og vel hefði far-
ið um alla.
Hjónin Þórður Bachmann og
Björg Kristófersdóttir frá Borganesi
buðu dóttur sinni Önnu Bachmann
og foreldrum Bjargar, Kristófer Þor-
geirssyni og Óh'nu Gísladóttur, í
skoðunarferð að Heklu á sunnudag-
inn. Ferðin að Heklu gekk vel, farið
var upp frá Næfurholti og var ágætt
að keyra þar á góðum jeppa. Þrátt
fyrir að skyggni væri ekki allt of gott
sáu þau bæði hraunrennsli og gos-
bólstra. Upp við Heklurætur hittu
þau bræður Bjargar, Gísla og Þor-
geir, sem þama voru í sömu erindum.
Eins og aðrir ferðalangar sem voru á
ferð um sama leyti á Þrengslavegi
komust ferðalangamir ekki lengra
upp úr kl 18.00 og urðu að láta fyrir
berast í bflum sínum uns hjálp barst.
Þau sögðu dvölina í bflunum ekki
hafa verið svo slæma en erfitt var að
Morgunblaðið/Jón Hafsteinn Sigurmundsson
Lengst til vinstri er Ester Hjartardóttir, kennari í Þorlákshöfn, sem hýsti sjö ferðalanga.
Gísli Kristófersson, Vilhjálmur Óskarsson, Kristófer Þorgeirsson, Ólína Gísladóttir,
Björg Kristófersdóttir, Þórður Bachmann, Anna Bachmann og Ingi S. Ólafsson.
fara út því veður var
alveg vitlaust, en
það þurfti að hreinsa
úr púströrinu og
hreinsa af rúðum.
Ferðin til Þor-
lákshafnar var sögu-
leg, íyrsti kaflinn
var í litlum snjóbfl
frá Björgunarsveit-
inni í Mosfellsbæ,
sem ekki er ætlaður
fyrir nema tvo far-
þega. Þrátt fyri það
tróðu þau sér sjö í
snjóbílinn. Annar
áfangi var í Econol-
ine frá Björgunar-
sveitinni í Garðabæ
og síðasti áfanginn
var í áætlunarbfl.
Komið var í Grunn-
skólann í Þorláks-
höfn um kl. 3.00 þar
sem hópurinn fékk
góðar móttökur.