Morgunblaðið - 29.02.2000, Side 28

Morgunblaðið - 29.02.2000, Side 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Reiknað með 40% veltu- aukningu í ár HAGNAÐUR af rekstri Lyfja- verslunar íslands hf. árið 1999 nam rúmum 58 milljónum króna, sem er um 5% aukning frá árinu áður, en þá nam hagnaðurinn 55 milljónum króna. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 38 millj- ónum króna en var 25 milljónir króna árið 1998. Aukning hagnað- ar af reglulegri starfsemi nemur því rúmum 53%. Oreglulegir liðir samanstanda af innlausn hluta hagnaðar vegna sölu framleiðsludeildar félagsins til Delta hf. árið 1998 auk kostnað- ar vegna yfirtöku dreifingar á framleiðsluvörum Delta á seinni hluta ársins 1999. Sturla Geirsson, forstjóri Lyfja- verslunar íslands, segir rekstrar- niðurstöðuna vera mjög vel viðun- andi, sér í lagi í ljósi þess að uppgjör félagsins nú sé það fyrsta eftir að framleiðsludeild félagsins var seld. „Tekið var á ýmsum málum á árinu og starfsemin endurskipu- lögð með áherslu á markaðsmál og dreifingu, en allar deildir okkar hafa verið að vaxa og samkvæmt áætlunum munu þær vaxa áfram. Við erum því bjartsýn og reiknum með um 40% veltuaukningu á milli áranna 1999 og 2000. Veltufé frá rekstri minnkaði ein- faldlega vegna þess að afskriftir hafa minnkað mikið hjá okkur. Það eru breyttar áherslur í rekstrin- um. Afskriftir, launakostnaður og annar kostnaður hafa nú minna vægi í rekstrinum heldur en kostn- aðarverð seldra vara sem eykst að sama skapi. Hins vegar eykst handbært fé frá rekstri úr 62 í 79 milljónir króna og það er það sem reksturinn skilaði okkur í raun. Þá greiddi Lyfjaverslun Islands á árinu 1999 hlutfallslega hæstu arðgreiðslu til hluthafa sinna sem greidd hefur verið af eigin fé fé- lags á Verðbréfaþingi eða sem nam 40,62% af nafnvirði hlutafjár félagsins. Eigið fé félagsins lækk- aði því úr 560 milljónum króna frá árslokum 1998 í 527 milljónir króna við árslok 1999,“ segir Sturla. Aukinnar hagræðingar þörf Smári Rúnar Þorvaldsson, hjá rannsóknum Islandsbanka F&M, segir erfitt að bera saman rekstr- arárangur Lyfjaverslunar íslands á milli áranna 1998 og 1999 vegna þeirra breytinga sem orðið hafa á starfseminni, sem felist nú ein- göngu í lyfjadreifingu. „Hagnaður fyrirtækisins eykst á milli ára en samt sem áður er arð- semi eigin fjár einungis 10,4%. Bréf Fjár- málaeftirlits til skoðunar BANKARÁÐ Búnaðarbanka ís- lands mun annaðhvort í dag eða á morgun koma saman og taka til um- fjöllunar bréf Fjármálaeftirlitsins um brot á verklagsreglum bankans, að sögn Stefáns Pálssonar, banka- stjóra Búnaðarbankans. Eins og fram hefur komið sendi Fjármálaeftirlitið bankanum bréf vegna brota á ákvæðum verklags- reglna um viðskipti starfsmanna með óskráð bréf fyrir eigin reikning. Stefán segir að bréfið sé stílað á bankaráðið og því hafi bankastjóm ekki enn fengið það til meðferðar. Hann vildi að öðru leyti ekkert tjá sig um athugasemdir Fjármálaeftir- litsins. Að sögn Pálma Jónssonar, for- manns bankaráðs Búnaðarbankans, er bankaráðið með bréf Fjármálaeft- irlitsins til skoðunar en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Einnig dregst veltufé frá rekstri saman um tæp 50%. Á heildina lit- ið er uppgjör félagsins því fremur slakt og ljóst að aukinnar hagræð- ingar er þörf í rekstrinum. Sérhæfing á sviði lyfjadreifingar gefur mikla möguleika á að ná fram nauðsynlegu hagræði í rekstrinum en einnig gætu sam- einingar erlendra lyfjafyrirtækja komið sér vel fyrir fyrirtækið," segir Smári. Aðalfundur Lyfjaverslunar ís- lands hf. verður haldinn þann 21. mars nk. á Grand Hótel og mun stjórn félagsins leggja þar til að greiddur verði 10% arður af nafn- virði hlutafjár á árinu 2000. MP Verðbréf skila 30 m.kr. hagnaði HAGNAÐUR löggilta verðbréfa- fyrirtækisins MP Verðbréfa hf. var 29,9 milljónir króna á árinu 1999. Eigið fé félagsins nam 134,4 milljónum króna í árslok sam- kvæmt efnahagsreikningi en nið- urstöðutala hans var 287,5 millj- ónir króna. Eiginfjárhlutfall félagsins var 33,6% í árslok 1999 en má lægst vera 8% og er efna- hagur MP Verðbréfa því afar traustur, að því er segir í fréttatil- kynningu. Ennfremur segir að góðan árangur fyrirtækisins beri að skoða í ljósi þess að fjármála- markaðir voru afar hagstæðir fyrir félög í greininni á síðasta ári. Starfsmenn MP Verðbréfa eru nú 10 talsins í níu og hálfu stöðug- ildi. Lyfjaverslun Islands hf. Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting Rekstrartekjur Milljónir króna 1.647 1.553 +6,0% Rekstrargjöld 1.568 1.436 +9,2% Afskriftir 30 61 -51,9% Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) 3 -16 Tekju- og eignarskattur -15 -11 +34,7% Hlutdeild minnihl. í rekstri dótturfél. 0 -4 Hagnaður af reglulegri starfsemi 38 25 +53,5% Óreglul. tekjur (gjöld) 20 31 -34,5% Hagnaður ársins 58 55 +4,9% Efnahagsreikningur 31.12.99 31.12.98 Breyling Eignir samtals Milljónir króna 1.273 1.269 +0,3% Eigið fé 527 560 -6,0% Skuldir 746 701 +6.4% Skuldir og eigið fé samtals 1.273 1.269 +0,3% Kennitölur og sjóðstreymi 1999 1998 Breyling Arðsemi eigin fjár 10,4% 10,3% Eiginfjárhlutfall 41% 44% Veltufjárhlutfall 1,82 2,74 Veltufé frá rekstri Milljónir króna 58 106 -45,3% „Heilsusamlegt mataræði á unga aldri leggurgrunninn að góðri heilsu" Það er mikilvægt að gera sér grein fyrír samhenginu í heilsufari okkar. Með skynsamlegu fæðuvali frá því móðurmjólkinni sleppir búum við í haginn fyrir framtíð barna okkar og hreysti þeirra, alla ævi. Beinin eru gott dæmi. Þau öðlast styrk sinn á fyrri hluta ævinnar. Börn þurfa því nægilegt magn af þeim efnum sem Ijá beinunum styrk. Þar skiptir kalk höfuðmáli, en D-vítamín er einnig nauðsynlegt til að kalkið nýtist við uppbygginguna. D-vítamín er að finna í lýsi og ýmsum fiski. Langmikilvægasta uppspretta kalks er hins vegar mjólk og mjólkurvörur. „Mjólk" er samheiti yfiralla drykkjarmjólk, nýmjólk, lóttmjólk, undanrennu og fjörmjólk. Einnig má fá kalk úr öðrum mjólkurvörum, s.s. osti og sýrðum mjólkurvörum. -■ ■■ Hollusta styrkir BEINVERND ÍSLENSKUR MJÓLKURIÐNAÐUR Magnús Stefánsson, yfirlæknir á barnadeild FSA 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.