Morgunblaðið - 29.02.2000, Page 30

Morgunblaðið - 29.02.2000, Page 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÚRVERINU Morgunblaðið/Kristánn Loðnulöndun á Eskifirði. Loðnan að nálgast Vest- mannaeyjar KAP VE og Oddeyrin EA voru einu loðnuskipin sem köstuðu í gærmorg- un en er leið á daginn var gangan um 10 til 12 mílur austan við Elliðaey. Loðnan hélt sig við botninn og biðu áhafnir 10 skipa eftir að hún kæmi ofar og vindinn lægði. Kap fékk 650 tonn á sunnudag og fyllti sig með því að fá 250 tonn 13 til 14 mílur austan við Elliðaey í gær- morgun. „Veðrið hefur verið mjög leiðinlegt frá því á sunnudag en það lagaðist aðeins á tímabili í morgun," sagði Helgi Valdimarsson, skip- stjóri. Kap landaði í Vestmannaeyj- um í gær en Helgi sagði að þar sem haldið væri aftur af þeim, til að eiga þróarpláss þegar hrognatakan byrj- ar, yrði sennilega ekki farið aftur út fyrr en árdegis í dag. I vari í rúman sólarhring Nokkrir bátar á leið norður fyrir lentu í vandræðum vegna veðurs. Bjarni Ólafsson AK og Óli í Sand- gerði AK voru með fullfermi í vari við Látrabjarg og gátu ekki hreyft sig fyrir veðri auk þess sem aðrir voru að berjast við Langanesið. Bjami Ólafsson var með um 1.350 tonn á leið til Siglufjarðar en á há- degi í gær hafði báturinn verið veð- urtepptur í rúman sólarhring. „Við erum um hálfa mílu undan bjarginu og veðrið hefur verið snarvitlaust,“ sagði Gísli Runólfsson, skipstjóri, um hádegisbil. „Við sáum Heklugos- ið örugglega betur en jeppakarlamir á laugardaginn og bjarminn var fal- legur en héma erum við fyrst núna að sjá til lands eftir rúman sólai-- hring í vari. Ég hef aldrei þurft að bíða svona lengi vegna veðurs." Víkingur AK landaði 1.400 tonn- um á Akranesi á föstudag og öðm eins á sunnudag en var kominn aftur á miðin aðfaranótt mánudags. Vegna norðvestan brælu var lítið hægt að gera. „Það er lítið að sjá af loðnu,“ sagði Sveinn Isaksson, skipstjóri. „Núna liggur hún á botninum á dag- inn. Ástæðan er sú að það hefur ver- ið svo milrið austurfall að hún á erfitt að hafa sig á móti. Þá tekur hún til þess ráðs að fara alveg niður á botn- inn. En við sáum Heklu fallega þeg- ar hún byrjaði. Við vomm rétt búnir að fylla og vomm að hreinsa niður af dekkinu, þegar við sáum bólstrana.“ Um helgina var tilkynnt um land- anir á um 57 þúsund tonnum af loðnu og em þá um 340 þúsund tonn eftir af heildarkvótanum. Sjávarútvegsnefnd mun fjalla um kvótaþingsskýrsluna j Varpar ljósi á umdeilt mál i j ; EINAR K. Guðfinnsson, formaður ; sjávarútvegsnefndar Alþingis, seg- ■ ist munu beita sér fyrir því að nefndin fjalli sérstaklega um skýrslu um áhrif Kvótaþings og ! Verðlagsstofu skiptaverðs á íslensk- an sjávarútveg sem sjávarútvegs- ráðherra kynnti í síðustu viku. Ein- ar segist sammála megin niðurstöðu skýrslunnar en einnig komi margt í niðurstöðum hennar á óvart. Einar segir skýrsluna varpa ljósi : á umdeilt mál. „Ég held að þegar lögin um Kvótaþing og skyld lög ' voru samþykkt hafi margir gert það með óbragð í munninum. Mér sýnist höfundur skýrslunnar staðfesta að þessi lög hafi ekki haft það í för með sér sem þó sumir væntu. Hins vegar er ýmislegt í skýrslunni sem kemur mér á óvart. Fyrirfram hefði ég til dæmis talið að Kvótaþing hefði meiri áhrif á verð á aflamarki en höfundur skýrslunnar telur.“ Verðbréfaþingsleiðin ekki talin heppileg Einar segist ekki gera sér fylli- lega grein fyrir því hvernig hægt verði að haga uppboðskerfi Kvóta- þings í líkingu við það sem gert er á Verðbréfaþingi íslands, líkt og lagt er til í skýrslunni. Einar bendir á að þegar verið var að undirbúa lögin um Kvótaþing hafi sjávarútvegs- nefnd kannað þessa leið sérstaklega en það hafi þó ekki verið niðurstað- an. Einar segist sammála skýrsluhöf- undi um að takmörkun á framsali aflamarks hafi ekki komið í veg fyrir þátttöku sjómanna í kvótakaupum. Hann segir það þó pólitískt álitamál hvort takmarka eigi viðskipti með aflamark á einhvem hátt. „Sjálfur hef ég talið eðlilegt að skip veiði sem mest af sínum aflaheimildum, enda sé það forsenda þess að veiðiréttur er bundinn við skip.“ Einar segist munu beita sér fyrir því að sjávarútvegsnefnd fjalli sér- staklega um skýrsluna en bendir á að allar stórar ákvarðanir í fiskveiði- stjórnunarmálum bíði niðurstöðu Hæstaréttar í Vatneyrarmálinu svokallaða. „Ég hef áhuga á því að fá höfund skýrslunnar á okkar fund til þess að fara yfir þessi mál. Þau eru flókin og því er nauðsynlegt að sjáv- arútvegsnefnd setji sig vel inn í þau. Það yrði til góða fyrir umræðuna á Alþingi," segir Einar. Austurrísk gíldi Project Syndicate o g ábyrgð Eltir Wolfgang Schússel MYNDUN nýn-ar samsteypu- stjórnar í Austurríki hefur orðið tilefni alþjóðlegrar gagnrýni. Sem kanzlari Lýðveldisins Austurríkis tek ég þessar áhyggjur mjög al- varlega. Hins vegar, við það að fylgjast með erlendum fréttaflutn- ingi, hef ég ekki komizt hjá því að verða þess var, að Austurríki hefur ítrekað verið lýst á óyfirvegaðan og hlutdrægan hátt; með hætti sem stendur í mikilli mótsögn við raun- verulegar aðstæður í landi voru. Síðastliðin fimmtíu ár hefur Austui-ríki ávallt verið ábyrgur og áreiðanlegur samstarfsaðili í Evrópu og alþjóðasamfélaginu öllu. Það mun halda áfram að standa við sín rótgrónu gildi og ábyrgðarhlutverk, sem grundvall- ast á lýðræði, réttarríki, virðingu fyrir mannréttindum, að vera opið íyrir umheiminum, umburðar- lyndi, mannúðlegri samstöðu, að standa af ábyrgð við skyldur sínar og sýna áreiðanleika. Þessi grundvallargildi eru ítrek- uð í formála að stjómarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Hinn 3. febrúar 2000, að viðstöddum forseta lýð- veldisins, Thomas Klestil, undirrit- aði ég hann ásamt formanni Frels- isflokksins, Jörg Haider - sem verður áfram fylkisstjóri í Karnten og tók ekki sæti í ríkisstjóminni. Austurríki á sér fastar rætur í grandvallargildum frelsis, lýðræð- is, virðingu fyrir mannréttindum og réttarríki, sem sameiginleg era öllum aðildanTkjum Evrópu- sambandsins. Það segir sína sögu að tveir þriðju íbúa landsins greiddu inngöngunni í ESB at- kvæði sitt árið 1994. Þessi stuðn- ingur við ESB-aðild var mun meiri en mælzt hefur í nokkra hinna ESB-ríkjanna fjórtán um það leyti sem þau gengu í sambandið. Að áliti Austurríkis mun bandalagið yfir Atlantshafið, sem hefur ein- kennzt af gagnkvæmri virðingu og trausti, einnig hafa miklu hlutverki að gegna við að tryggja frið, stöð- ugleika og velferð um ókomna tíð. Austurríki leggur metnað sinn í alþjóðlega samstöðu með fómar- lömbum pólitískra ofsókna, stríðs og útlegðar. Við opnuðum dyrnar fyrir flóttamönnum árið 1956 og 1968, þegar átök blossuðu upp í Ungverjalandi og Tékkóslóvakíu, og aftur upp úr 1990 þegar yfir 100.000 flóttamenn frá löndum Balkanskagans fundu skjól í landi vora. Sem hlutfall af íbúatölu Aust- urríkis, sem er um 8 milljónir, jafnast fjöldi Balkanlanda- flóttamannanna einn og sér á við að Þýzka- land tæki við yfir einni milljón flótta- manna og Bandaríkin yfir þremur milljón- um. Því verður því ekki á móti mælt að Austurríki hefur á liðnum áratugum - í meira mæli en flest önnur lönd - sýnt í verki mikla félagslega og mannúðlega ábyrgð. Fortíð Austurríkis kallar á mjög gagnrýna og var- færnislega nálgun að órétti, morð- um og ofríki nazistastjómarinnar. Við búum við háþróaða mannrétt- indalöggjöf og rétt- arhefð, sem og sterkt og sjálfstætt réttarkerfi. Austur- ríki hefur fullgilt svo að segja alla al- þjóðlega mannrétt- indasáttmála sem gerðir hafa verið og hefur tekið virkan þátt í mótun margra þeirra. Við höfum stigið mikilvæg skref til að takast á við þessa fortíð og nýja ríkisstjómin mun hiklaust halda áfram á þessari braut. A grundvelli niðurstaðna bráðabirgðaskýrslu sérskipaðrar sagnfræðinganefnd- ar munum við leitast við að þeir sem nazistar neyddu til vinnu í Austurríki fái greiddar skaðabæt- m-, og við ætlumst til að fyrirtækin sem hlut eiga að máli geri sér grein fyrir þeirra hluta ábyrgðarinnar. Til að flýta afgreiðslu þessa máls hef ég skipað sérstakan fulltrúa til að sinna málefnum fyrrverandi nauðungarverkamanna nazista- tímans. Maria Schaumeyer, fyrr- verandi yfirbankastjóri seðlabanka Austurríkis, mun veita nýrri skrif- stofu forstöðu þar sem tekið verð- ur á þessum skaða- bótamálum af festu. Meðal annarra stefnumiða ríkis- stjórnar minnar mun greiðsla skaðabóta til aldraðra fómarlamba Helfararinnar njóta forgangs á næstu mánuðum. Austur- ríska ríkisstjómin mun líka gera sitt til að stuðla að opnu að- gengi að skjalasöfnum ríkisstofnana og beita sér fyrir því að sama gildi um aðrar stofn- anir en ríkisins. Við munum hvetja austur- rísk tryggingafyiirtæki til að taka þátt í starfi Alþjóðanefndarinnar um tryggingabótakröfur frá tímum Helfararinnar. Við munum beita okkur fyrir því að framkvæmd lag- anna um skil á listaverkum frá ár- inu 1998 verði bætt og hvetja til þess að héraðs- og fylkisstofnanir muni grípa til hliðstæðra aðgerða. Ríkisstjóm mín leggur mikið upp úr vemd mannréttinda og bar- áttu gegn kynþáttahyggju og mis- rétti. Við búum við háþróaða mannréttindalöggjöf og réttar- hefð, sem og sterkt og sjálfstætt réttarkerfi. Austurríki hefur full- gilt svo að segja alla alþjóðlega mannréttindasáttmála sem gerðir hafa verið og hefur tekið virkan þátt í mótun margra þeirra. Við höfum reyndar ekki aðeins fullgilt Mannréttindasáttmála Evrópu, við höfum tekið hann í heild sinni inn í stjórnarskrá landsins. Þetta þýðir að hver sá sem býr í Austurríki getur leitað beint til Mannréttinda- dómstóls Evrópu, og úrskurðir hans era bindandi fyrir austurrísk stjómvöld. Austurríki er líka stjómlagalega bundið af Alþjóða- sáttmálanum um afnám allra birt- ingarmynda kynþáttamisréttis. Sem kanzlari Lýðveldisins Aust- urríkis mun ég gera mitt ýtrasta tl að tryggja að formálinn að stjórn- arsáttmálanum og sáttmálinn sjálfur verði virtur í framkvæmd (hann má finna á heimasíðu austur- rísku ríkisstjómarinnar á vefslóð- inni http://www.austria.gv.at.) Sjálfur ætlast ég og aðrir meðlimir ríkisstjórnarinnar til þess að vera dæmdur af verkum okkar frekar en á grandvelli fordóma. Wolfgang Schiissel er kanzlarí Lýðveidisins Austurríkis. Wolfgang Schiissel Ræddu um sameigin- legu hersveitirnar Sintra. AFP, Rcuters. VARNARMÁLARÁÐHERRAR ríkja Evrópusambandsins (ESB) hittust í Portúgal 1 gær til að ræða framkvæmd áætlunar um sameigin- legar hersveitir ESB. Fundurinn var haldinn í framhaldi af ákvörðun leiðtogaráðs ESB í Helsinki á síð- asta ári um að komið skyldi á fót 60.000 manna sérsveitum sem færar yrðu um að stilla til og gæta friðar á svæðum í Evrópu eða í nágrenni álf- unnar. Gert er ráð fyrir að búið verði að koma hersveitunum og yf- irstjórn þeirra á laggimar árið 2003. Sérstök ráðstefna í lok ársins Miðað er við að sveitirnar geti verið tilbúnar til aðgerða á innan við 60 dögum eftir að skipun um það berst og geti verið að störfum í a.m.k. eitt ár. Þær munu fá afnot af tækjabúnaði Atlantshafsbandalags- ins (NATO) en verða að öðru leyti óháðar stofnunum NATO. Ráðherrarnir ákváðu á fundi sín- um í gær að síðar í vikunni komi hernaðarsérfræðingar saman í Brassel til að leggja drög að starfi yfirstjórnar hinna sameiginlegu hersveita. Einnig var ákveðið á fundinum í gær að í lok ársins verði haldin sérstök ráðstefna þar sem ríkin munu tilkynna hvaða mannafla og tækjabúnað þau eru reiðubúin að leggja til sameiginlegu sveitunum. Ekki var rætt um fjármögnun her- sveitanna en bent hefur verið á að sumum leiðtogum ríkja álfunnar muni reynast erfitt að sannfæra kjósendur um að nauðsynlegt sé að veija fé til reksturs þeirra. Sérlegur fulltrúi Evrópusam- bandsins í utanríkis- og varnarmál- um, Javier Solana, sagði í gær að nauðsynlegt væri að ríkisstjórnir aðildarríkjanna létu verða af því að efna það sem um var samið í Hels- inki. Hann sagði að varnarmálaráð- uneyti ríkjanna þyrftu að fá fullt umboð til að hrinda áætluninni í framkvæmd. „Geta ESB í framtíð- inni til að standa vörð um hagsmuni sína er í húfi,“ sagði Solana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.