Morgunblaðið - 29.02.2000, Side 32

Morgunblaðið - 29.02.2000, Side 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Öruggur sigur jafnaðarmanna í Slésvík-Holtsetalandi Osigur CDU minni en margir höfðu spáð Sigurganga Kristilegra demókrata í héraðs- þingkosningum 1 Þýzkalandi var stöðvuð á sunnudag, en Davíð Kristinsson, frétta- ritari í Berlín, segir flokkinn hafa staðist þessa fyrstu kosningaprófraun eftir fj ármálahneykslið stóráfallalaust. Heide Simonis og Volker Ruehe í sjónvarpsútsendingu eftir að fyrstu tölur úr kosningunum höfðu verið birtar. ÞÝSKI Jafnaðarmannaflokkurinn (SPD) sigraði örugglega í landsþing- skosningunum í Slésvík-Holtseta- landi á sunnudaginn. Flokkurinn hlaut rúm 43% atkvæða og jók þann- ig fylgi sitt um 3% frá því í kosning- um 1996. Volker Riihe, frambjóðandi Kristilega demókrataflokksins (CDU), minnti fjölmiðla ítrekað á þá staðreynd að SPD hefði verið spáð allt að 48% fylgi í nýlegum skoðana- könnunum. I kjölfarið voru bjartsýn- ir jafnaðarmenn famir að velta því fyrir sér hvort flokkurinn næði að endurheimta hreinan meirihluta á þingi en jafnaðarmenn stjórnuðu Slésvík-Holtsetalandi einir fram til ársins 1996 en þá mynduðu þeir sam- steypustjórn með Græningjum. Þótt fýlgisaukningin hafi verið mest hjá SPD áttu margir von á enn betri ára- ngri í ljósi þess að CDU er í erfiðri stöðu vegna leynireikningahneyksl- isins. En þótt flokkur Heide Simonis forsætisráðherra hafi ekki staðið undir væntingum bjartsýnustu manna var fylgi SPD þó meira en samanlagt fylgi CDU (35,2%) og FDP (7,6%). Jafnaðarmenn voru því almennt ánægðir með úrslitin og þá sérstaklega með tilliti til þess að Simonis tókst að binda enda á ósigra SPD í landsþingskosningum síðasta árs. Afstaðan til ríkisstjórnar Ger- hards Schröders kanslara er nú mun jákvæðari en á síðasta ári og endur- speglast sú þróun að einhverju leyti í úrslitum sunnudagsins. Flokkurinn virðist nú vera að ná sér upp úr þeirri lægð sem fylgdi í kjölfar sig- ursins í sambandsþingskosningun- um 1998. Ljóst var að jafnaðarmenn myndu bera sigur úr býtum í Slés- vík-Holtsetalandi og Schröder leyfði sér því að njóta rólegrar helgar í heimaborg sinni Hannover. Græningjar anda léttar Jafnaðarmenn höfðu aftur á móti meiri áhyggjur af gengi samstarfs- flokksins. Sökum vinsælda Simonis var eini möguleikinn á breytingum í Kiel sá að Græningjar næðu ekki þeim 5% sem þarf til að fá sæti á landsþinginu. Forystumenn CDU og FDP voru sér meðvitandi um þetta og eyddu því minni orku í að gagn- rýna Simonis en umhverfisstefnu Græningja. Óhagstæðustu skoðana- RITT Bjerregaard matvælaráðherra Dana staðfesti í gær að komið hefði upp tilfelli af kúariðu á kúabúi í Himmerland á Norður-Jótlandi. Kúnni var slátrað nýlega vegna gruns um kúariðu og sýni úr skepnunni staðfestu gruninn. Þetta er annað til- felli í Danmörku af kúariðu en fyrra tilfellið kom upp 1991. Sænsk heil- brigðisyfirvöld sögðu í gær að engin ástæða væri til að grípa til sérstakra aðgerða í þessu sambandi því dönsk yfirvöld virtust taka á málinu af festu. Ritt Bjerregaard tók við embætti í síðustu viku og hefur því strax fengið ærinn vanda við að glíma. Hún lýsti því yfir í gær að öllum kúm á bænum kannanir spáðu Græningjum 4,5% fylgi og því önduðu menn léttar í her- búðum Græningja þegar fyrstu tölur sýndu að flokkurinn væri ekki í „fall- hættu“ og hefði því áfram meirihluta á landsþinginu með jafnaðarmönn- um. Kannski hefur það gert herslu- muninn að Joschka Fischer utanrík- isráðherra fór norður í vikunni til að skokka með Græningjum í fylgd fjöl- miðla. Þótt Græningjar hafi hlotið fleiri atkvæði en fyrmefnd skoðana- könnun spáði fyrir um geta rúm 6% atkvæða varla talist góður árangur og hefur flokkurinn tapað 2% fylgi frá því í síðustu kosningum árið 1996. Þetta kemur ekki á óvart þar sem Græningjar hafa tapað fylgi í öllum kosningum undanfarin tvö og hálft ár. Friðarsinnar hafa snúið baki við flokknum í kjölfar þess að grænn ut- anríkisráðherra studdi árásimar á Kosovo og auk þess hefur umhverfis- ráðherra gengið illa að ná samning- um um lokun kjamorkuvera. Græn- ingjar í Slésvík-Holtsetalandi túlka þá staðreynd að þeir komust aftur inn á þingið svo að kjósendur í Slés- vík-Holtsetalandi hafi verið ósam- mála CDU um að leggja ætti um- hverfismál í sambandslandinu á hilluna næstu tíu árin. Árangur Rtthes veginn og metinn Landsþingskosningarnar í Slés- vík-Holtsetalandi vom fyrsta próf- raun CDU eftir að leynireikninga- hneykslið kom upp í nóvem- bermánuði. Ljóst var að fyrsti ósigur CDU eftir sambandsþingskosn- ingarnar 1998 væri óhjákvæmilegur. Spurningin var aðeins hversu mikið fylgistapið yrði. Frambjóðandi flokksins, Volker Rúhe, hafði lýst því yfir að úrslitin yrðu afgerandi fyrir framtíð hans innan forystu CDU. Þar sem meðalfylgi flokksins hefur í kjölfar leynireikningahneykslisins verið um 30% þótti óviðeigandi að meta árangur Rúhes út frá lands- þingskosningunum 1996 (37,2%) og því einblíndu menn á árangur flokks- ins í sambandsþingskosningunum 1998 (35,7%). Litið var svo á að næði Rúhe aðeins 34% atkvæða væri það mikill skellur. Þegar í ljós kom að CDU í Slésvík- Holtsetalandi hlaut 35,2% atkvæða yrði slátrað, 73 að tölu, en aðrar heimildir sögðu að kýrnar yrðu í sótt- kví fyrst um sinn. Ráðuneytið sendi í gær út tilmæli til búða um að draga til baka nautakjöt með beinum í. Einnig verður reglum um slátrun breytt. . Tilfellið kemur mjög á óvart og dýralæknirinn, sem kom að hinni sjúku kú, sagði í viðtali við danska út- varpið að sér hefði ekki komið í hug að um kúariðu gæti verið að ræða. Tilfellið frá 1991 var í kú af skoskum uppruna en í þetta skiptið var hin smitaða kýr aldönsk. Lítið er vitað um smitleiðir en sjúkdómurinn er ekki bráðsmitandi og því er ekki sennilegt að aðrar skepnur á bænum þótti það að vísu ekki góður árangur en flestir höfðu þó búist við að flokk- urinn myndi tapa meira fylgi í kjöl- far hneykslisins. Rúhe var því frekar ánægður þótt honum hefði ekki tek- ist að fella stjómina. Hann sagði að CDU hefði sigrað örugglega hefði leynireikningahneykslið ekki komið upp og lagði áherslu á að honum hefði tekist að halda fylgishruni CDU í skefjum. Angela Merkel, framkvæmdastjóri CDU, sagði úr- slitin til marks um að flokkurinn væri að ná sér upp úr lægðinni. Rúhe tilkynnti að hann myndi ekki fara fyrir stjórnarandstöðunni á landsþinginu í Kiel heldur snúa sér aftur að sambandsstjómmálum í Berlín. Arangur Rúhe gerir það að verkum að hann er enn helsti keppi- nautur Merkel um formannsstöðu CDU. Niðurstaðan var hvorki of slök til að hann dytti út úr myndinni né nógu góð til að hann næði að auka möguleika sína. Ekki er óalgengt að þýskir stjómmálamenn fari í mikil- væg hlutverk í sambandsstjómmál- um í kjölfar ósigra í landsþingskosn- ingum og því er ósigur Rúhe engin hindrun. Þótt Ijóst sé hver muni stjóma í Kiel næstu fimm árin er enn óljóst hver verður næsti formaður CDU. FDP hagnast á erfiðleikum CDU Þetta voru fjórðu landsþingskosn- ingamar í röð í Slésvík-Holtseta- landi sem standa í skugganum af fjármálahneyksli. Að þessu sinni var það Flokkur frjálsra demókrata sem hagnaðist á leynireikningahneyksli CDU. Líkt og SPD bætti FDP fylgi sitt um 2% og hlaut 7,6% atkvæða. Þetta er besti árangur FDP í lands- þingskosningum frá því 1996 og jafn- framt besti árangur FDP í Slésvík- Holtsetalandi eftir stríð. Það bmtust því út mikil fagnaðarlæti í herbúðum Frjálsra demókrata þegar niður- stöður lágu fyrir. Um þessar mundir er flokkurinn einungis með þingfull- trúa í 4 af 16 sambandslöndum og á hafi verið smitaðar þótt þeim verði fargað. Astæðan fyrir hræðslu við sjúk- dóminn er að vaxandi grunur er um að svokallaður Creutzfeldt-Jacob- sjúkdómur, sem leggst á menn, sé sömu ættar og kúariðan. Af Creu- tzfeld-Jacob-veikinni hefur fundist 51 tilfelli í Evrópu. Sjúkdómurinn leggst á heilann sem líkt og leysist upp og gerir sjúklinginn ósjálíbjarga áður en hann deyr af honum. Ákveðin viðbrögð mikilvæg Kúariða er viðloðandi í ýmsum Evrópulöndum. Einna mesta athygli hefur barátta Breta við sjúkdóminn síðasta ári mistókst flokknum í fimm landsþingskosningum að ná þeim 5% sem þarf til að fá sæti á þinginu. FDP er nú þriðji sterkasti flokkur- inn í Slésvík-Holtsetalandi og for- ystumenn flokksins segja Kristilega demókrata ábyrga fyrir því að flokk- arnir hafi ekki náð nægilega miklu fylgi til að koma á stjómarskiptum. FDP hefur nægilegt fylgi til að stjóma með SPD en forsenda slíkra breytinga var að Græningjar dyttu útafþinginu. Flokkur danska minnihlutans (SSW) gat líka fagnað besta árangri flokksins í hálfa öld. SSW hlaut 4,1% atkvæða (1996: 2,5%) og þeir 50.000 Danir sem búa í Slésvík-Holtseta- landi munu því eiga sér fjóra fulltrúa á landsþinginu. Þrátt fyrir að margir höfðu lýst yf- ir áhyggjum þess eðlis að leynireikn- ingahneykslið gæti leitt til lélegrar kosningaþátttöku var þátttakan inn- an við 4% minni en í síðustu lands- þingskosningum árið 1996 (71,8%). Flokkamir fögnuðu þessari stað- reynd svo og því að hægri öfgamenn (NDP) juku ekki við fylgi sitt. Þýskir kjósendur virðast ekki hafa misst trúna á stjómmál þrátt fyrir hneykslið og áhuginn á stjórnmála- umfjöllun fjölmiðla hefur sjaldan verið jafn mikill. Forystumenn fjörgurra stærstu flokkanna túlkuðu úrslitin í Slésvík- Holtsetalandi sem góða undirstöðu fyrir landsþingskosningarnar í Nordrhein-Westfalen 14. maí. Jafn- aðarmannaflokkurinn hefur stjórnað sambandslandinu í 33 ár og um þess- ir mundir mynda þeir samsteypu- stjóm með Græningjum undir for- ystu Wolfgang Clements for- sætisráðherra. Þótt flokkamir séu almennt bjart- sýnir hafa undanfarnir mánuðir sýnt að staðan í þýskum stjórnmálum getur tekið miklum breytingum á skömmum tíma. Því er að bíða og sjá hvort allir flokkarnir hafi raunvem- lega ástæðu til bjartsýni þegar líða fer að kosningunum. vakið en þar þráuðust yfirvöld um árabil við að viðurkenna vandann og taka á honum á sannfærandi hátt með tilheyrandi viðskiptatjóni. Bæði á ír- landi og í Portúgal eru dæmi um kúariðu. Portúgal lýtur útflutnings- banni til Evrópusambandsins, ESB, vegna kúariðu, en ekki írland, því yf- irvöld þar þykja hafa tekið vel á mál- inu, að sögn danska útvarpsins. Dönsk yfirvöld geta því lært af reynslu annarra að mikilvægt er að taka málið föstum tökum svo að danskar landbúnaðarvörur missi ekki traust erlendis, jafnvel þó að nauta- kjötsiðnaður sé ekki stór hluti af dönskum landbúnaðarútflutningi. Moskvu- búar fátækir YFIR helmingur Moskvubúa telst undir fátæktarmörkum og eykst bilið milli ríkra og fá- tækra stöðugt þannig að 10% borgarbúa eru með 61,3 sinn- um hærri laun en þeir sem verst hafa það, að því er Ljú- dmila Svetsova, sem fer með fé- lagsmál í Moskvu, sagði í viðtali við ÆFP-fréttastofuna. Tölulegar upplýsingar Svets- ovu benda til að 52,2% Moskvu- búa teljist undir fátæktarmörk- um, en laun Moskuvbúa eru nú um fjórum sinnum hærri en landsmeðaltal launa. Áætlað er að lágmarksframfærsla í Rússlandi kosti 980 rúblur, eða um 2.450 krónur á mánuði. Fær stuðning ESB FJÁRMÁLARÁÐHERRAR Evrópusambandsins (ESB) til- kynntu á fúndi sínum í Brussel í gær að þeir hefðu einróma ákveðið að styðja framboð Þjóðveijans Caios Koch-Wes- ers í embætti framkvæmda- stjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins, IMF, í stað Michel Camdessus sem lætur af emb- ætti íljótlega. Olétt kona grýtt til bana ÍSLAMSKUR dómstóll í Fuja- irah í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hefur úr- skurðað að indónesísk þjón- ustustúlka, Karteen Karikend- er, skuli grýtt til bana fyrir að drýgja hór. Elskhugi konunn- ar, sem er indverskur múslími, var sýknaður af allri sök, að því er dagblaðið Al-Khaleej greindi frá, en maðurinn er sagður hafa flúið land. Stúlkan hlaut hins vegar hámarksrefsingu, sem er dauðadómur, eftir að lögregla handtók hanaeftir að hafa bor- ist tilkynning um að Karikend- er, sem er ógift, væri ólétt. Að sögn talsmanns indónesíska sendiráðsins í Abu Dhabi hafði sendiráðinu ekki verið tilkynnt um dómsmálið, en reynt yrði að fá málinu í áfrýjað og Karik- ender útveguð lagaleg aðstoð. Minningar Eichmanns birtar ÍSRAELAR tilkynntu á sunnu- dag að almenningi yrði veittur aðgangur að æviminningum Adolfs Eichmanns, stríðs- glæpamanns nasista. Þá hafa Israelar einnig boðið Deborah Lipstadt, bandarískum fræði- manni, afrit af handritinu, en Lipstadt á yfir höfði sér mála- ferli fyrir að segja breska fræðimanninn David Irving af- neita helförinni. Israelsk yfir- völd hafa haldið handriti Eichmanns í geymslu í tæp 40 ár án þess að veita aðgang að því. Handritið er um 1.300 handskrifaðar síður og er Eichmann sagður hafa skrifað það meðan hann dvaldi í fang- elsi í ísrael. í æviminningunum er Eichmann, sem var einn æðsti skipuleggjandi útrým- ingarherferðar nasista gegn gyðingum, sagður kalla hana einn versta glæp mannkyns- sögunnar. Tilfelli af kúariðu skelfír Dani Kaupmannahöfn. Morgunbiaðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.