Morgunblaðið - 29.02.2000, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 29.02.2000, Qupperneq 52
Jj2 ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 HESTAR MORGUNBLAÐIÐ . Ungu knaparnir vekja athygli Þrátt fyrir tvísýnt veðurútlit lögðu veður- guðirnir blessun sína yfír hestamót helgar- innar sem voru fjögur eftir því sem næst ^■verður komist. Valdimar Kristinsson fylgd- ist með móti Harðar á Varmárbökkum og ræddi við menn um gang mála á hinum þremur mótunum. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Gylfi Freyr f<5r mikinn á yfirferðinni í karlaflokki hjá Herði sem dugði honum í annað sætið. Hann keppti á Stormsson frá Skíðbakka. ------------;------------------------------------------------^ --------rrr,—™ Daði Erlingsson reið Nökkva sínum af miklu öryggi í unglingafiokki sem dugði honum til sigurs á móti Harðar á Varmárbökkum. Sigurður Sigurðarson t.v. var öruggur sigurvegari á Isold frá Gunnars- holti. Hér sækir hann að Brynjari Gunnlaugssyni á Létti frá Krossamýri. FÁKUR hélt mót á laugardag með tötlkeppni og 100 metra fljúgandi skeiði í frábæru veðri, logni og eins stigs hita. Þátttaka var geysigóð og mikið af góðum hrossum í keppninni. 26 konur voru með í kvennaflokki en aðeins sjö mættu tíl leiks í atvinnu- mannaflokk. Allt er „sextugum" fært Líklegur aldursforseti mótsins Ragnar Tómasson, sem er 61 árs, gerði sér lítíð fyrir og sigraði í karla- flokki á Dögg frá Reykjavík sem sýnir vel að aldur í hestamennskunni er mjög afstætt hugtak og hjá Herði sem hélt sitt árlega árshátíðarmót á laugardeginum mættí enn og aftur til leiks í skeiðið. Kristján Þorgeirsson best þekktur sem Stjáni póstur varð þar í þriðja sæti en hann er kominn á níræðisaldur kappinn sá. í atvinnu- mannaflokki sigraði Vignir Jónasson ^ÉÍiryssunni Lilju frá Litla-Kambi. At- hygli vakti að af þeim fimm hrossum sem voru í verðlaunasætí í kvenna- flokki voru fjögur undan Orra frá Þúfu. í karlaflokki tóku þátt 22 kepp- endur, í bamaflokki 10, unglinga: flokki 8 og 12 í ungmennflokki. í skeiðinu voru keppendur 13 talsins. Dómarar voru hinir kunnu tamninga- menn Ólafur Ásgeirsson og Steing- rímur Sigurðsson. Sú hefð hefur skapast hjá Herði í Kjósarsýslu að halda fyrsta mót árs- ins sama dag og þeir halda árshátíð félagsins. Nú stóð mikið tíl því haldið var upp á hálfrar aldar afmæli félags- ins á laugardagskvöldið þar sem stór- hestamaðurinn mikli frá Stóra-Aðal- . florcri í Borgafirði Flosi Ólafsson sá um samkomustjóm eins og honum er einum lagið. Bmgðu Harðarmenn á það ráð að hafa fá skemmtíatriði en láta Flosa um að flytja ýmiskonar skýrslur og annála um afrek félags- manna á undangengnum ámm og nokkrar skiýtlur inn á milli. Var gerð- ur góður rómur að málflutningi Flosa. En á mótinu fyrr um daginn kom fram mikill floti knapa og hesta og var hestakosturinn góður að vanda. Áttí það ekki síður við um yngri flokkana en krakkamir vora mjög vel ríðandi eins og reyndar var einnig og ekki síð- ur hjá Fáki og Mána að sögn. Það virðist vera gegnumgangandi áber- andi á þeim mótum sem haldin hafa verið það sem af er vetri að unga fólk- ið er vel ríðandi. Er ekki ósennilegt að hér sé að koma fram árangur af góðu æskulýðsstarfi sem átt hefur sér skjól í þeim fjölmörgu reiðskemmum sem byggðar hafa verið vítt og breitt um landið. fsold eftirtektarverð Sigurður Sigurðarson mættí til leiks austan úr Rangárvallasýslu með glæsihryssuna Isold frá Gunnarsholtí og sigraði að margra mati ömgglega í kariaflokki. I kvennaflokki var það Barbara Meyer sem bar sigur úr být- um á hryssunni Glóð frá Hömluholti sem eiginmaður hennar Sævar Har- aldsson hefur verið að gera það gott á í tölti á undafomum ámm. Sonur þeirra hjóna, Sebastian, steig sín fyrstu spor í keppni í pollaflokki og sigraði sá stuttí á Flóka en Sævar varð í þriðja sæti í karlaflokki á Tý frá Flagbjamaholti. En það er önnur hefð sem einnig hefur skapast hjá Herði sem gjarnan mætti missa sig. Er þar átt við þann ósið að flytja alla verðlaunaafhend- ingu inn í félagsheimilið að aflokinni keppni. Undirrót þessa fyrirkomu- lags er viðskiptalegs eðlis og fyrir bragðið verður keppnin kollhúfuleg og endaslepp. Þegar gott er veður og góð stemmning er verðlaunaafhend- ing og breiðfylkingarheiðurshringur hápunktur á spennandi keppni góðra hesta og knapa. Það hlýtur að vera hægt að örva viðskiptin í veitingasöl- unni með einhverjum öðmm hætti en að hálfeyðileggja mótsbraginn. Konurnar i Mána vildu kvennaflokk Hjá Mána var þátttakan í dræmari kantinum aðeins tólf í opnum flokki. Konurnar kvörtuðu yfir að ekki skyldi vera sérstakur kvennaflokkur eins og var hjá Fáki og Herði og sagði Atli Geir Jónsson hjá Mána að úr því yrði bætt á árshátíðarmótinu sem verður haldið 18. mars. Um dómstörfin sáu feðgamir Sveinn Jónsson og Jón Páll Sveinsson og sagði Sveinn hestkost- inn góðan þar syðra. Sérstaklega hefðu bömin vakið athygli sína og sagði Sveinn að sigurvegarinn þar, Camilla Sigurðardóttir, sem keppti á Glampa frá Fjalli, hefði hæglega get- að verið í öðm og jafhvel í fyrsta sætí í opnum flokki, svo góð hefðu þau ver- ið. í hestaþættí fyrir viku kom fram að dagsetningar móta hjá Mána vant- aði í mótaskrána. íþróttamót félags- ins verður 19.-20. maí, úrtaka fyrir landsmót 1. júní og gæðingmótið 9- lO.júní. Stórmót á Vesturlandi á næsta ári Fyfirhugað var að Faxi í Borgarfirði héldi mót á sunnudag á Valshamra- vatni en þar sem mikill krapi var á ísn- um reyndist það ekki hægt en þess í stað var völlurinn á Hvanneyri mddur og vatni sprautað á hann og hann gerð- ur nothæfur til keppni. Formaður Faxa, Baldur Bjömsson, sagði að þátt- takan hefði verið heldur léleg. Veður- útJitið var heldur slæmt um morguninn og taldi hann að það hefði sjálfsagt dregið úr mönnum að mæta. Eigi að síður hefðu þeir einu sem kepptu í bamaflokki ekki látíð sig muna um að koma sunnan úr Kjós. I samtalinu við Baldur kom fram að öll félög í fjórðung- num virtust nú sammála um að halda bæri stórmót í fjórðungnum á næsta ári hvort sem það yrði kallað fjórðung- smót eða eitthvað annað. Það væri eig- inlega lífsspursmál fyrir fjórðunginn að halda slík mót öðm hvom ef þeir ætl- uðu hreinlega ekki að missa endanlega af lestinni í bæði ræktun og reið- mennsku. í umræðunni um stórmót á Vesturlandi em þrír mótsstaðir inni í myndinni, í fyrsta lagi Kaldármelar sem hafa til þessa gegnt hlutverkinu síðan 1980. Þá em bæði Vindás við Borgames og Æðaroddi við Akranes sterklega inni í myndinni en mörgum vex í augum að setja fjármuni í Kaldár- mela sem nýtast mjög illa samaborið við hina tvo staðina. Um næstu helgi em tvö mót eða viðburðir samkvæmt mótaskrá LH. Geysir verður með annað mót sitt í þriggja móta stígakeppni á laugardag og á sunnudag verður í reiðhöllinni í Víðidal samkoma sem ber heitið Æsk- an og hesturinn. Er hér um að ræða árlegan æskulýðsdag hestamannafé- laganna á suðvesturhominu. Þá verð- ur hin árlega töltkeppni hjá Benedikt Þorbjömssyni á Stað í Borgarfirði haldin á laugardag. En úrslit á mótum helgarinnar verða sem hér segir: Árshátíðarmót Harðar Pollaflokkur 1. Sebastian Sævarsson á Flóka 2. Leó Hauksson á Þrótti frá Borgarhóli 3. Guðbjðm Pálsson á Ömu frá Syðra-Skörðugili 4. Geir U. Skaftason á Rauðku frá Austvað- sholti 5. Guðmundur K. Pálsson á Gleypni frá Syðra-Skörðugili Bamaflokkur 1. Hreiðar Hauksson á Perlu frá Eyjólfsstöð- um 2. Linda R. Pétursdóttir á Fasa frá Nýjabæ 3. Jóhanna Jónsdóttir á Kulda 4. Viðar Hauksson á Klakki frá Laxámesi 5. Þorvaldur Hauksson á Drífu frá Grimsstöð- um Unglingaflokkur 1. Daði Erlingsson á Nökkva frá Sauðárkróki 2. Ragnhildur Haraldsdóttir á Glímu frá Ár- bakka 3. íris F. Eggertsdóttir á Létti frá Öxl 4. Kristján Magnússon á Hlyni frá Leysingja- stöðum 5. Elín G. Einarsdóttir á Fleyg frá Enni Ungmennaflokkur 1. Magnea R. Axelsdóttir á Vafa frá Mosfells- bæ 2. Hrafnhildur Jóhannesdóttir á Saffron frá Laxámesi 3. Birta Júlíusdóttir á Strák 4. Edda Unnsteinsdóttir á Kveikju frá Litla- Dal Kvennaflokkur 1. Barbara Meyer á Glóð frá Hömluholti 2. Guðrún R. Kristinsdóttir á Rimmu frá Ytri- Bægisá 3. Brynhildur Þorkelsdóttir á Álmi frá Reyn- isvatni 4. Bryndís Jónsdóttir á Blesa frá Skriðulandi 5. Birgitta Magnúsdóttir á Hjörvari frá Ár- gerði s ÁÐUR EN LANGT UM LÍÐUR GETUR ÞÚ NÁÐ H R
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.