Morgunblaðið - 29.02.2000, Side 62

Morgunblaðið - 29.02.2000, Side 62
 > 62 ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens ? VEISTU HVAÐ ER AÐ | SJÁUM I \ ÍHEIMINUM NÚ m ÖAGS ? m... j J/ HALAKARTA HEFUR ALÖREI VERIb KOSIN ULFORSETA ÞUERTAÖ VERÐA HETTUR! Grettir Ljóska Ferdinand B Smáfólk 0 tJuu^uuovl fxxt. 'Tltfmk LjjcrU',Tfwmk e iftju., 'j'Jiamk fFU.. \ Kæra amma. Þakka þér fyrír smákökurnar fyrir jólin. Þær voru gdðar. Þakka þér, þakka þér, þakka þér. Hað annað Sendu get ég sagt? nokkur í viðbdt. BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík # Sími 569 1100 # Símbréf 569 1329 Forvarnir - tannvernd Frá Ásgerði Halldórsdóttur: ÞEGAR dóttir mín 14 ára fór í reglu- bundið eftirlit hjá tannlækni fyrir skömmu var mér tjáð að Trygginga- stofnun ríkisins tæki ekki lengur þátt í kostnaði við flúormeðferð bama frá 14 ára aldri. Þetta kom mér verulega á óvart þar sem núver- andi heilbrigðisráðherra hefur verið ákafur talsmaður forvarna í heil- brigðismálum. A árunum kringum 1985-1986 er fyrst byrjað að beita forvörnum kerfisbundið í tannlækningum á ís- landi. Þá er byijað að nota flúorlakk á tennur bama og unglinga tvisvar sinnum á ári, en áður hafði slíkt að- eins verið gert í litlum mæli. A sama tíma er einnig byijað fyrir alvöru að skorafylla bitfleti jaxla. Þessar að- gerðir hafa skilað þeim árangri að meðaltal skemmdra tanna 12 ára barna hefur lækkað um allt að 70% á síðustu 10 ámm. Sonur minn tvítug- ur hefur aðeins einu sinni þurft að láta gera við skemmda tönn, því er þessari forvarnastefnu 1985-1986 að þakka. Frá þessum ámm hefur syk- urneysla því miður frekar aukist en hitt og neysla á gosdrykkjum eykst stöðugt ár frá ári. Sú reglugerð sem ég er að vitna í og boðar stórfelldan niðurskurð á kostnaði Tryggingastofnunar ríkis- ins við forvarnir finnst mér vera í andstöðu við stefnu Tannvemdar- ráðs. Kem ég þá að aðalatriðum í þessari nýju reglugerð. Fyrst skal telja tvennt sem jákvætt er: TR ætl- ar að taka þátt í kostnaði við tann- lækingar allra elli- og örorkulífeyris- þega, hvort sem þeir njóta tekjutryggingar eður ei. Er þetta endurgreiðsluhlutfall frá 50% upp í 100% eftir aðstæðum hvers og eins. Annað sem er jákvætt og jafnframt alger nýlunda er að kostnaðarþátt- taka TR fyrir börn og unglinga leng- ist um eitt ár, þannig að nú er greitt upp að 18 ára aldri. Það sem er neik- vætt og í andstöðu við forvarnar- stefnu hér áður er: 1) Greiðslur til forvarna hjá börn- um og unglingum sem ekki teljast í sérstökum áhættuhópi hvað varðar tíðni tannskemmda era skomar nið- ur. 2) Skoðun hjá tannlækni má ein- ungis endurgreiða einu sinni á ári í stað tvisvar áður. 3) Flúormeðferð barna 12 ára og yngri skal endurgreiða einu sinni á ári í stað tvisvar áður. Fyrir þá sem eru í sérstakri áhættu vegna munn- sjúkdóma er þó heimilt að greiða fyr- ir tvær skoðanir og tvær flúormeð- ferðir á ári hið mesta. 4) Ekki skal taka þátt í kostnaði við flúormeðferð bama frá 13 ára upp að 18 ára aldri, og skal þá einu gilda hvort þau era í sérstökum áhættuhópi eður ei. 5) Þá eru settar takmarkanir á skorufyllur á þann veg að ekki skal lengur greitt fyrir skorafyllur barnajaxla. Heilbrigðar barnatennur era ekki síður mikilvægar einstaklingnum en heilbrigðar fullorðinstennur og ótímabært tap á barnatönn getur oft verið orsök bitskekkju síðar á æv- inni. Að hætta endurgreiðslu á flúor- meðferð fyrir börn frá 13 ára og upp að 18 ára er algerlega óskiljanlegt. Þegar unglingsárin taka við minnkar aðhald og eftirlit okkar foreldra með tannhirðu bama okkar. Unglingar hafa einnig meiri fjárráð og neyta al- mennt meira af sælgæti og gos- drykkjum en yngri böm. Ekki er lengur um að ræða að einungis sé borðað nammi á laugardögum. Flúor eykur mótstöðuafl glerangs gegn sýruleysanleika hvort sem hann er af völdum gerjunar baktería á sykri eða þess að súrra drykkja (gos- drykkir, súrir ávaxtasafar) er neytt, en sýraeyðing af völdum slíkra drykkja hefur færst veralega í vöxt síðari ár. Tannlæknar hafa bent á að ef sýrueyðing er orðin veraleg þarf mjög kostnaðarsamar aðgerðir (krónusmíði) ef tennur eiga ekki að slitna niður á skömmum tíma. Það skýtur því skökku við að TR skuli taka þátt í endurgreiðslu fyrir slíka meðferð en ekki fyrir flúormeðferð sem gæti hugsanlega varnað eða a.m.k. tafið slíka eyðingu. Vona ég að þingmenn og ráðherra skoði þessa reglugerði í ljósi ofan- greindra þátta. Meðan við eigum heimsmet í sykumeyslu er tíma- skekkja að skerða forvarnir. Fyrir mig sem skattborgara og foreldri er það réttlætismál að fjármagn til for- varna verði ekki skorið niður. ÁSGERÐUR HALLDÓRSDÓTTIR, Bollagörðum 1, Seltjamamesi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Stimpilklukkukerfi KERFISÞROUN HF. Fákafeni 11 * Sími 568 8055 http://www.kerfisthroun.is/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.