Morgunblaðið - 29.02.2000, Side 68
> 68 ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLKí FRÉTTUM
MYNPBOND
Dómarinn
og mafían
Falcone dómari
(Falcone)
»RA MA
★★%
Leikstjóri: Ricky Tognazzi. Hand-
rit: Peter Pruce. Aöalhlutverk:
Chass Palminteri, F. Murray Abra-
ham, Anna Galiena, Andy Luotto.
(106 mín.) Bandaríkin. Bergvík,
1998. Bönnuð börnum innan 16 ára.
FALCONE dómari er byggð á
sönnum atburðum sem áttu sér stað
undir lok 9. áratugarins þegar
nokkrir dómarar á Sikiley sögðu
mafíunni stríð á hendur. Veldi mafí-
unnar var ótrúlegt
á þeim tíma og
voru dómararnir
eins og vopnlaus
Davíð að berjast
við Golíat. Giovanni
Falcone var þeirra
duglegastur og
fékk hann óvæntan
liðsauka þegar eitt
af stóru nöfnunum innan mafíunnar
ákvað að leysa frá skjóðunni. Leik-
stjóri myndarinnar er Ricky Togn-
azzi á að baki nokkrar glæpamyndir
og er vel kunnugur þessum geira
kvikmyndanna. Leikaraliðið er mjög
gott og stendur Palminteri sig vel
eins og alltaf þótt hlutverk hans sé
helst til einhæft, hann er góði maður-
inn í myndinni og nánast flekklaus.
Andy Luotto er frábær sem vinur
hans og samstarfsmaður og Abra-
ham sýnir að þegar hann fær bita-
* stæð hlutverk veldur hann ekki von-
brigðum. Helsti galli myndarinnar
er að hún er of löng og líða margar
áhrifamiklar senur fyrir það.
Ottó Geir Borg
Ólík systkini
Millan við ána Floss
(Mill on the Floss)
D r a m a
★★%
Leikstjóri: Graham Theakston.
Handrit: Hugh Stoddart. Aðal-
hlutverk: Emily Watson, Cheryl
Campell, James Frain, Bernard
y*. Hill, Nicholas Gecks. (90 mín) Eng-
land. Myndform, 1997. Myndin er
öllum leyfð.
EMILY Watson virðist vera föst í
hlutverkum kvenna sem ekki passa
inn í þjóðfélagið og fara ávallt sínar
eigin leiðir. Þær geta verið dýrlingar
(„Breaking the Waves“), snillingar
(„Hillary and
Jackie“) og kven-
skönmgar sem láta
karlmenn ekki vaða
yfir sig eins og í
þessari mynd, sem
er byggð á skáld-
sögu rithöfundarins
Geroge Eliot
(„Middlemarch“ og
„Silas Marner").
Watson leikur, Maggie, dóttur myllu-
eiganda (frábærlega leikinn af Bem-
ard Hill) sem hefur í mörg ár barist
við lögfræðing (Nicholas Gecks) um
yfírráð yfir myllunni. Þegar faðir
hennar lýtur loks í lægra haldi fyrir
lögfræðingnum og verður að vinna
hjá honum, byijar bróðir hennar að
leita sér frama í viðskiptaheiminum.
Maggie elskar bróður sinn mikið en
hún verður einnig vinkona sonar lög-
fræðingsins (James Frain), sem bróð-
* ir hennar getur ekki sætt sig við. Til
að gera langa sögu mjög stutta geng-
ur afgangur myndarinnar út á að
Maggie reynir að fá samþykki bróður
síns íyrir að vera eins og hún er. Wat-
son er ein af betri leikkonum sem
uppi eru í dag og það er aldrei tímasó-
un að sjá hana leika, þrátt fyrir að
. þessi mynd nálgist ekki hinar mynd-
' imar hennar að gæðum.
Ottó Geir Borg
Johnny Depp er eftirlæti Burton. Hór er Depp í „Sleepy HoIlow“.
Kim Basinger og Miehael Keaton í Batman.
MYNDIR hans eru sannarlega ekki
að allra skapi, jafnvel yfírgengi-
lega sérvitringslegar, en sanna það
jafnframt að til eru skapandi lista-
menn í Hollywood sem geta verið á
allt öðrum nótum en ráðandi tísku-
sveiflur, gefa markaðsrannsóknum
langt nef. Synt á móti straumnum.
Tim Burton (58) heldur sínu striki
hvað sem tautar og raular, enda á
hann jafnan vinsæl „kassastykki"
inn á milli mistakanna og drunga-
legar, persónulegar myndir hans
oftar en ekki líklegar til afreka við
verðlaunaafhendingar. Þessir þætt-
ir halda lífinu í Burton, sem átti
Sleepy Hollow, ágæta og marglof-
aða aðsóknarmynd á síðasta ári og
er að hefja göngu sína hérlendis.
Burton er fæddur í Kaliforníu og
á meðan jafnaldrar hans stunduðu
hafnabolta og ruðning eins og am-
erískum ungmennum ber, lá leik-
stjórinn tilvonandi yfir gömlum
teikni- og hryllingsmyndum í imba-
kassanum. Þessi uppfræðsla hefur
sett mark sitt á ævistarf Burtons,
óhugnaðurinn er sjaldnast langt
undan, búningar og leiksvið hannar
hann gjaman sjálfur og em tals-
vert sérstæð fyrir drunga og jaðar-
kenndan fáránleika. Rúmlega tví-
tugur hlaut hann námsstyrk við
California Institute of the Arts,
sem er í eigu Disney-veldisins,
þangað sem Burton hvarf að loknu
námi.
Tímabilið í kringum 1980 var
magurt hjá teiknimyndarisanum,
langt í framtíðarsmellina sem byrj-
uðu með Litlu hafmeyjunni, (89).
Spenna lá í loftinu, óöryggið al-
gjört, uppsagnir daglegt brauð.
Burton fann sig ekki í rislitlum
verkefnum einsog The Fox and the
Hound, (81), sá ekki framtíðina í að
teikna sæta refi og hundstíkur. Yf-
irmenn hans sáu heldur ekkert í
myrkum hugmyndum og verkum
Burtons. Neituðu að dreifa Frank-
enweenie, (84), næstfyrstu stutt-
myndinni hans, á þeim forsendum
að hún væri ekki við hæfi bama. Sú
fyrsta, Vincent, (82), sem hann
gerði til heiðurs hrollvekjuleikar-
anumVincent Price, átrúnaðargoði
sínu, fékk einnig kaldar kveðjur
hjá kvikmyndaverinu.
Laus úr prisundinni hjá Disney,
tók við áður óþekkt frelsi. Ekki síst
Tim Burton
í samvinnunni við
Paul Reubens, sem
var á höttunum eftir
leikstjóra til að gera
mynd um „hina hlið-
ina“ á sér, Pee Wee
Herman. Útkoman
varð Pee Wee Herm-
an ’s Big A dven ture,
(85), fyrsta mynd
Burtons í fullri
lengd. Burton gerði
hana í leiknum
teiknimyndarstfl og
öllum á óvart varð
hún ein mest sótta
mynd Wamer á fyrri
hluta 9. áratugarins.
Vinsældirnar leiddu til Bectlcjuice,
(88). GálgahúmorshroIIvekju sem
fór sigurför um heiminn og setti
Burton í leikstjórnarstól Batman,
(80), fokdýrrar brellumyndar sem
var fyrsta stórverkefni leikstjórans
og jafnframt það best sótta.
Nú var Burton orðinn mikilsmet-
inn A-myndaleikstjóri og gat valið
sér verkefni. Hann fann
það næsta hjá 20th
Century Fox, útkoman
hin seiðmagnaða
Edward Scissorhands,
(90), sem minnir meira
en lítið á Frankenween-
ie. Utkoman er snilld,
og nú kom Disney á
hnjánum til hins fyrrum
brottrekna lcikstjóra,
sem var lofað algjöru
frelsi, og sneri hann
aftur. The Night Before
Christmas, (93), átti þó
erfiða fæðingu og gekk
ekki eins vel og við var
búist, þrátt fyrir já-
kvæða dóma. Myndin er eins ná-
lægt því að vera hin fullkomna
Burtonmynd og hugsast getur,
enda fékk hann að ráða öllum
mögulegum og ómögulegum hlut-
um sem máli skiptu.
Burton hefur ekki alltaf gengið
sem skyldi. Hann framleiddi hörm-
ungina Cabin Boy, (94), einnig
Tim Burton
Family Dog, (93), mislukkaða
teiknimyndaþætti fyrir sjónvarp.
Þá fékk eitt öndvegisverkið hans,
Ed Wood, (94), afspyrnulélega að-
sókn þrátt fyrir afburða dóma.
Því næst lauk Burton við fram-
haldsmyndina Batman Forever,
(95) , og sneri síðan að framleiðslu
teiknimyndarinnar James and the
GiantPeach, (96), hún hlut góða
dóma og aðsókn. Mars Attack!,
(96) , átti súia spretti en yfir höfuð
var þessi ómarkvissa blanda gam-
ansemi, hryllings og vísindaskáld-
skapar, ómerkileg, stjörnum hlaðin
leiðindi.
Sleepy Hollow, sem nú er að
heQa göngu sína hér og í Evrópu,
hefur verið fírna vel tekið og var
ein af mest sóttu myndunum vestra
í vetur. Gamaldags hrollvekja um
hauslausan morðingja sem lætur
öllum illum látum á öldinni sem
leið, reyndist upplagt efni handa
sérvitringnum. En hvað skyldu
menn segja um nýjustu fréttirnar
af Burton, og prýða vefsíður iðnað-
arins í dag (23.02), að Fox hyggist
fela honum stjórn endurgerðar
myndar sem á risavaxinn aðdá-
endahóp, hér sem annars staðar,
Apaplánetunnar! Það renna nú á
mann tvær grímur...
Sígild myndbönd
Eddi klippikrumla - Edward
Scissorhands, (90) ★★★ %
Enga persónu mynda sinna hef-
ur Burton tekist að glæða jafnmikl-
um tilfínningum og Edda klippi-
krumlu (Johnny Depp. (Strákinn
sem er fóstur bijálaðs vísinda-
manns í kastalanum (Vincent
Price). Er hann fellur frá verður
pilturinn, sem hefur skæri í stað
handa, að reyna að bjarga sér sjálf-
ur. Er tekinn í umsjá húsmóður í
úthverfí (Diane Wiest). Þar kynnist
hann ástinni (Winona Ryder) og
kemst að því fullkeyptu að lífíð er
enginn leikur í heimi raunveruleik-
ans. Einstök mynd, ótrúlega fersk
og frumleg og Depp er stórkostleg-
ur í titillhutverkinu. Grín og hroll-
ur fléttast óaðfínnalega saman uns
kemur að endlok
unum sem eru óþarflega yfír-
gengileg.
Beetle Juice (89)
★★★ V2
Ein albesta draugagamanmynd
sögunnar, með mörgum þeim er
gerðu seinna „Batman". Fram-
úrstefnuleg fjölskylda frá New
York flytur í draugahús í sveitinni
og ætlar að græða á draugagangin-
um þar til Bjölludjúsinn kemur til
sögunnar. Gersamlega ómótstæði-
legur hræringur af vinalegum
draugum og vondum, óborganleg-
um grínútgáfum af flottræfilsleg-
um stórborgarbörnum í sveitinni,
glimrandi tæknibrellum og það
besta af öllu; hinum brjálæðislega
Bjölludjús, einskonar frumgerð
Jókersins í Batman. Gamanmynd
sem kemur sannarlega á óvart.
Batman, (89) ★★★ V2
Stórglæsilegt, myrkt og ógnandi
útlit Gothamborgar eftir leik-
myndahönnuðinn Anton Furst,
einkar góð tónlist Danny Elfman,
kröftug leikstjórn Burtons og síð-
ast en ekki síst stórkostlegur of-
leikur Nicholsons í hlutverki
Spaugarans, breiða að mestu yfir
vankanta handritsins. Eftir stend-
ur voldug, frumleg og á tiðum
glæsileg bíómynd. Nicholson tekst
að stela gersamlega senunni frá tit-
ilpersónu myndarinnar, sem er
skiljanlega frekar dauflega leikin
af Michael Keaton, og útmálar á
einstaklega broslegan hátt geðsýki
illskunnar. Besta Batman-myndin
til þessa dags.
Sæbjörn Valdimarsson
20 ára afmælisferð Hrekkjaloma
Hrekkjaldmar láta
gott af sér leiða
I LOK þorra fóru Hrekkjalómar í
hefðbundna skoðunarferð til höfuð-
borgarinnar, fyrst og fremst til að
gefa öndunum brauð og skemmta
sér og öðrum. Að þessu sinni létu
lómar gott af sér leiða, færðu þeir
Styrktarfélagi krabbameissjúkra
barna 100.000 krónur að gjöf. Þá
heimsóttu þeir Frumheija og
kynntu sér starfsemina og þáðu
góðar veitingar. Um kvöldið var síð-
an haldin árshátíð félagsins á Grand
Hótel og var Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra heiðursgestur kvölds-
ins, sem fram fór í mesta sprelli og
gríni. Á laugardeginum var farin
ógleymanleg ferð til Grindavíkur og
þau heiðurshjón Dagbjartur og
Birna tóku á móti hópnum með
glæsilegum veitingum og stórkost-
legri skemmtun þar sem þau hjón
fóru bæði á kostum og sérstaklega
húsbóndinn sem kvað lóma alla með
Árna Johnsen í broddi fylkingar í
kútinn með frábærum leik og söng,
er óhætt að segja að hrekkjalómum
verði þessi heimsókn minnisstæð.
Ekki gátu lómar farið um Suðurnes
án þess að koma við í Bláa lóninu, og
fengu nokkrir þeirra sér sundsprett
með von um bjartari tíð í útliti eða
öflugri orku á sál og líkama. Síðasta
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónsson
Hreklgalómar í nýja félgasgallanum sem er Stoke-galli.
góðverk þessarar ferðar var heim-
sókn til forsætisráðherra þar sem
við vildum færa ráðherranum að
gjöf farmiðann góða sem hann þarf
á að halda er sjoppunni verður lokað
eftir að Vatneyrardómurinn fellur,
því miður var ráðherran upptekinn
en skilaboðinn og miðann fékk hann.
Ýmis önnur atriði voru á dagskránni
sem hver lómur upplifði á sinn hátt,
vakandi eða sofandi. Áður en hópur-
inn hélt til Eyja á sunnudegi var far-
ið í heimsókn til Árna Johnsen og
Halldóru eiginkonu hans þar sem
snúið var ofan af hópnum, fólki gefið
gott að borða jóraspjall að hætti
þingmannsins og spilað billjard.
Ógleymanlegri ferð Hrekkjalóma
lauk síðan með góðum svefni um
borð í Herjólfi og góðri heimkomu.