Morgunblaðið - 29.02.2000, Page 76
JRffgtmliIfifetfe
Texas
Instruments
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/Kristinn
Fjöldi fóiks mætti með skóflur og vann við að losa bíla í Þrengslunum í gærkvöldi. Vegagerðin hreinsaði veginn jafnóðum og bílarnir hurfu á braut.
1.500 manns sátu fastir í bflum næturlangt í Þrengslunum
Islandsflug
hættir sam-
keppni í inn-
anlandsflugi
FLUGFÉLAG íslands mun leigja
tvær flugvélar íslandsflugs frá og
með 1. apríl næstkomandi og mun
íslandsflug hætta áætlunarflugi til
Akureyrar, Egiisstaða og Vest-
mannaeyja frá þeim tíma. Þar með
fellur niður samkeppni í áætlunar-
flugi innanlands eftir að hafa staðið í
tæp þrjú ár.
1. júlí 1997 var farþegaflug gefíð
fijálst á öllum helstu flugleiðum inn-
anlands og lækkaði verð á flugmið-
um umtalsvert í kjölfarið.
Að sögn Ómar Benediktssonar,
framkvæmdastjóra íslandsflugs,
verður 32 af 160 starfsmönnum Is-
landsflugs sagt upp í Reykjavík, á
Akureyri, Egilsstöðum og í Vest-
mannaeyjum, aðallega starfsfólki í
afgreiðslu og þjónustu við áætlunar-
flugið. Ekki kemur til uppsagna
áhafna flugvélanna þar sem vélamar
eru leigðar samkvæmt svonefndri
blautleigu sem þýðir að íslandsflug
mun áfram annast rekstur og við-
hald þeirra auk þess sem áhöfn fylg-
ir með.
Jón Karl Helgason, framkvæmda-
stjóri Flugfélags íslands, segir að
ekki verði um að ræða breytingar á
fargjöldum innanlands til skemmri
tíma litið en einhverjar breytingar
verði á ferðatíðni til áfangastaðanna
þriggja sem um ræðir.
■ Samkeppni/12
Skjótt brugðist við tilmæl-
um um að sækja bílana
BILEIGENDUR brugðust skjótt
við tilmælum lögreglu og Vega-
gerðarinnar, síðdegis í gær, um að
sækja bíla sína í Þrengslunum. Um
kvöldmatarleytið var stanslaus
straumur bíla til höfuðborgarinnar,
sem losaðir höfðu verið.
Síðdegis á sunnudag brast á hið
versta veður í Þrengslunum með
þeim afleiðingum að bílar festust
þar hundruðum saman. Er talið að
um 1.500 manns hafi setið fastir í
bílum í allt að 14 klukkustundir á
meðan beðið var aðstoðar björgun-
armanna.
Unnið báðum megin frá
* Að sögn Þorsteins Hoffritz, lög-
reglumanns frá Selfossi, sem var að
líta eftir í Þrengslunum, „fluggekk“
að losa bílana í gær og sagði hann
að tilkynningin til bíleigenda hefði
vart verið send út þegar þeir fyrstu
mættu á staðinn.
Fjöldi fólks, vopnaður skóflum,
startköplum og dráttartógum var í
norðannepju og skafrenningi að
gangsetja og losa farartæki sín.
Hreinsa þurfti snjó úr vélarhúsum
fjölda bíla og margir voru raf-
magnslausir. Nokkrir bílar voru
með dældir að framan, líklega eftir
aftanákeyrslur í sortanum. Utan
vegar óku jeppar á stórum hjól-
börðum og drógu sumir á eftir sér
bíla sem síður voru búnir til akst-
urs í snjó.
Snjóruðningstæki Vegagerðar-
innar voru bæði austan megin og
vestan í Þrengslunum og ruddu
veginn jafnóðum og bílarnir losn-
uðu úr viðjum skaflanna. Þar var
einnig dráttarbíll sem dró kyrr-
stæða bfla úr veginum. Að sögn
iBook-alvöru
fartölvafcáApple
149.900 kr. stgr.
Bjama Stefánssonar, rekstrar-
stjóra hjá Vegagerðinni, var opnuð
leið í gegnum Þrengslin í gærkvöld.
Vegurinn var þó lokaður fyrir al-
mennri umferð og gæti verið lokað-
ur fram eftir morgni vegna vinnu
við hreinsun leiðarinnar. Lokunin
náði ekki til þeirra sem voru að
sækja bfla sína.
Aldrei Ient í öðru eins óveðri
Haraldur Logason, frá Selfossi,
var búinn að losa sinn bíl og var
önnum kafínn við að moka harð-
fenni undan bfl, sem stóð í veginum.
Hann sagðist hafa ekið nær dag-
lega milli Selfoss og Reykjavíkur
undanfarin 25 ár, oftast yfír Hellis-
heiði, en stundum um Þrengslin.
Hann sagðist aldrei hafa lent í jafn-
slæmu veðri og því sem geisaði að-
faranótt mánudags. Rúðuþurrkurn-
ar hættu að vinna og safnaðist 5 cm
þykk klakabrynja á gluggann.
■ Óveðrið/12/20/22-24
Banaslys
í Súðavík
BANASLYS varð í Súðavík í gær
þegar karlmaður á sextugsaldri lenti
undir vélsleða fyrir ofan gömlu
byggðina.
Svo virðist sem maðurinn hafi ekið
vélsleða sínum fram af um þriggja
metra hárri hengju með fyrrgreind-
um afleiðingum. Talið er að hann
hafí verið látinn þegar að var komið,
að sögn lögreglunnar á Isafírði.
Vegfarandi tilkynnti lögi-eglunni
um slysið kl. 17.38 en ekki er vitað
með vissu hve löngu áður það hafði
orðið. Lögreglan fór á slysstað með
björgunarbáti frá ísafirði þar sem
vegurinn til Súðavíkur var ófær.
Ekki er hægt að greina frá nafni
mannsins að svo stöddu.
Louisa Matthíasdóttir látin
LOUISA Matthíasdótt-
ir listmálari lést á
sjúkrahúsi í New York
sl. föstudag, 83 ára að
aldri.
Louisa fæddist í
Reykjavík 20. febrúar
árið 1917, dóttir hjón-
anna Matthíasar Ein-
arssonar yfirlæknis og
Ellenar Johannessen.
Sautján ára hélt Louisa
til Kaupmannahafnar
og stundaði þar nám í
auglýsingateiknun og
listhönnun í þijú ár.
Sumarið 1938 hélt hún
til Parísar og stundaði
þar nám hjá Marcel Gromaire um
veturinn. Louisa hélt til New York
síðla árs 1942 til áframhaldandi
náms í myndlist hjá Hans Hofmann,
en hann var þekktur málari og
Morgunblaðið/Einar Falur
kennari í Greenwich
Village.
Louisa giftist árið
1944 bandaríska list-
málaranum Leland Bell
og áttu þau fast heimili í
New York. Líf þeirra og
starf var alla tíð sam-
tvinnað. Leland lést ár-
ið 1991.
Louisa var meðal
virtustu málara vestan-
hafs. Hún hélt sína
fyrstu einkasýningu í
Jane Street Gallery árið
1948 og árið 1958 í
Tanager Gallery, auk
þess sem hún tók þátt í
fjölda samsýninga. Árið 1993 efndu
Kjarvalsstaðir til sýningar á verk-
um Louisu og hún var einnig meðal
28 íslenskra listamanna sem áttu
verk á sýningunni Islensk málverk á
20. öld í Hong Kong og síðar í Pek-
ing árið 1998. Hún átti einnig verk á
sýningu tólf kvenna í Norræna hús-
inu árið 1998 og það sama ár var
fyrsta sýning á pastelmyndum
hennar í Hafnarborg í Hafnarfirði.
í september 1996 var Louisa
sæmd menningarverðlaunum The
Ameriean-Scandinavian Foundation
fyrir árið 1996. Árið 1998 var hún
kjörin í Bandarísku lista- og bók-
menntaakademíuna. í akademíuna
eru einungis valdir fremstu lista-
menn Bandaríkjanna og hefur eng-
inn annar íslenskur myndlistarmað-
ur hlotið slíka sæmd.
Louisa var sæmd riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu árið 1988.
Dóttir Louisu og Leland Bell er
Emma Bell, listmálari og húsfreyja í
Bandaríkjunum.
■ Louisa/34