Morgunblaðið - 14.04.2000, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ATVR
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
Úr ársreikningi 1999
Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna 11.781,6 10.907,3 +8,0%
Rekstrargjöld 8.556,8 7.907,2 +8,2%
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) -30,2 50,3
Hagnaður af reglulegri starfsemi 3.194,6 3.050,5 +4,7%
Aðrar tekjur og (gjöld) 0 -143,5
Hagnaður ársins 3.194,6 2.907,0 +9,9%
Efnahagsreikningur 31.12.99 31.12.98 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 2.745,4 2.570,9 +6,8%
Eigið fé 1.843,8 1.467,4 +25,7%
Skuldir 901,6 1.103,4 -18,3%
Skuldir og eigið fé samtals 2.745,4 2.570,9 +6,8%
Heildarsala áfengis
nam 8,8 milljörðum
króna í fyrra
VÖRUSALA ÁTVR á árinu 1999 var
8,8 % umfram áætlun en vörunotkun
9,1 %. Hagnaður ársins nam 3.195
milljónum króna eftir að vextir og
verðbætur af lífeyrisskuldbinding-
unum að upphæð 35,6 milljónir höfðu
verið færðar til gjalda.
Heildarsala áfengis á síðasta ári
nam 8.782 milljónum króna. Áfengi
seldist í 11,6 milljón lítrum. Þar af
var bjórsala 9,1 milljón lítrar, en árið
áður var heildarsala áfengis 10,5
milljónir lítra og þar af bjórsala 8,1
milljón lítra. Heildarsala vindlinga
nam 361.557 þúsundum stykkjum
sem er 3,3% meira en árið áður og á
vindlum 12.439 þúsund stykkjum. Af
neftóbaki seldust 10 tonn.
Á aðalfundi ÁTVR sem haldinn
var í gær kom fram í máli Hildar
Petersen, formanns stjómar ÁTVR,
að aukin vörusala verði fyrst og
fremst skýrð með þeirri aukningu
veltu sem varð í þjóðfélaginu. Álagn-
ing opinberra gjalda á vöru, svo og
álagning ÁTVR var óbreytt frá því
sem varárið 1998.
Hildur sagði Ijóst að neyslumynst-
ur áfengra drykkja breyttist ört, og
sala á léttum vínum og bjór væri í
stöðugri aukningu en sala á sterkum
vínum dregst saman.
„Á sama tíma eykst áhugi almenn-
ings á léttum vínum og má nema
mikla fróðleiksfýsn í þjóðfélaginu í
dag á gerð og eðli léttra vína. Stjórn
ÁTVR mun leggja metnað sinn í að
stuðla að bættri vínmenningu og
uppfylla þá þörf sem er fyrir fræðslu
á þessu sviði,“ sagði Hildur
Söknuðu utandag-
skrárumræðu um
Vatneyrardóm
ÞINGMENN stjómarandstöð-
unnar gerðu í gær athugasemd við
það að ekki skyldi hafa verið sett á
dagskrá umbeðin utandagskrár-
umræða Frjálslynda flokksins um
sjávarútvegsmál í kjölfar dóms
Hæstaréttar í Vatneyrarmálinu í
síðustu viku.
Það var Guðjón A. Kristjánsson,
formaður þingflokks Fijálslynda
flokksins, sem kvaddi sér hljóðs
um störf þingsins og lýsti mikilli
óánægju sinni með að fá ekki að
ræða þessi mál við Ama M.
Mathiesen sjávarútvegsráðherra.
Tóku þingmenn annarra stjóm-
arandstöðuflokka undir þessa
skoðun Guðjóns, enda væri nú ljóst
að sjávarútvegsmálin kæmu ekki á
dagskrá fyrr en eftir páskahlé,
fyrst þau ekki voru rædd í gær.
Halldór Blöndal, forseti Alþing-
is, gerði grein fyrir því að sjávar-
útvegsráðherra hefði lýst sig
reiðubúinn að ræða um Vatneyrar-
dóminn strax síðasta föstudag,
daginn eftir að dómurinn féll, en
Sverrir Hermannsson, formaður
FF, sem farið hafði fram á umræð-
una, hefði ekki verið tilbúinn til
þess þá. Sjávarútvegsráðherra
hefði síðan verið erlendis að sinna
skyldustörfum sínum. Sagði Hall-
dór að stjórnarandstæðingum
hefði verið í lófa lagið að ræða
þessi mál síðasta föstudag og gætu
því vart kvartað yfir því að hafa
ekki staðið það til boða.
THE TIMES ATLASOFTHE W0RID
Kortabókin frá Times hefur alltaf verið í sér-
flokki og þessi útgáfa af Times Atlas - í tilefni
aldamótanna - er í einu orði sagt stórkostleg
sem vísar þér veginn um allar álfur heims.
Erlendar bækur
daglega
\\iiiiiiitisson
• 11 110 * kmmi
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Æfa stjórn gúmbáta
MIKIÐ var um að vera í útfalli Dyrhólaóss á dögun-
um. Gúmbátum var siglt fram og til baka. Tilefnið
var þriggja daga námskeið sem Slysavarnaskóli sjó-
manna hélt fyrir björgunarsveitirnar í Vík og Álfta-
veri. Björgunarsveitarmenn æfðu sig meðal annars í
því að stjórna bátunum og bjarga mönnum úr sjó.
Þeir voru að aðgæta reykmerki í sjónum þegar
myndin var tekin.
Stefna Ernis Snorrasonar á hendur deCODE genetics
fyrir dómstól í Bandarikj unum
Forsenda stefnu að
Ernir hafí ekki verið
starfsmaður
í STEFNU Emis Snorrasonar, eins
af stofnendum fslenskrar erfðagrein-
ingar, á hendur móðuríyrirtækinu
deCODE genetics í Bandaríkjunum,
er því haldið fram að Emir hafi ekki
verið starfsmaður hjá fyrirtækinu.
Forsenda þess að deCODE hafi getað
nýtt sér endurkauparétt á hluta af
bréfum Emis í íyrirtækinu, sam-
kvæmt sérstökum stofnfjárfesta-
samningi þar um, var sú að hann væri
starfsmaður fyrirtækisins, að því er
fram kemur í stefnu Emis. „[Emir]
Snorrason var aldrei ráðgjafi sem
fékk greidd laun hjá félaginu fyrir
nokkurs konar ráðgjafaþjónustu.
[Emir] Snorrason var aldrei starfs-
maður félagsins," segir orðrétt í
stefnunni sem er á ensku. Jafiiframt
er greint frá því í stefnunni að Emir
hafi ekki verið boðaður á hluthafa-
fundi í félaginu sem sé brot á ákvæð-
um í þeim stofnfjárfestasamningi.
Decode hf. stofnað
á íslandi
Emir Snorrason, Kári Stefánsson,
núverandi stjómarformaður
deCODE, og tveir aðrir aðilar stofn-
uðu Decode hf. á íslandi síðla árs
1995. Ernir og Kári áttu hvor 35%
hlut í fyrirtækinu en hinir tveir sam-
tals 15%. Stuttu eftir stofnun fyrir-
tækisins leituðu stofnendur þess eftir
fjárfestiun til að tryggja rekstur fé-
lagsins. Þar sem þeir töldu sig ekki
geta tryggt hagsmuni sína nægilega
vel vegna ákvæða í íslenskum lögum
stofnuðu þeir í ágúst 1996 fyrirtækið
deCODE genetics í Bandaríkjunum.
Þeir framseldu sína hluti í Decode á
íslandi til bandaríska fyrirtækisins
sem varð þá móðurfyrirtæki Decode
hf., sem seinna var kallað íslensk
erfðagreining. I stefnunni er tilgreint
að með þessu móti hafi stofnfjárfestar
tryggt sér hluti í móðurfyrirtækinu,
sem ekki hefði verið hægt með sama
móti undir íslenskri löggjöf. Um þetta
hafi verið gerður stofnfjárfestasamn-
ingur 21. ágúst 1996, og sé sá samn-
ingur grunngagn í stefnu Emis.
Meintum samningi um
ráðgjafasamband sagt upp
Samkvæmt þessum samningi haf-
iEmir átt að fá 481.200 bréf í fyrir-
tækinu. í janúar 1999 hafi honum
borist helmingur bréfanna. Ákvæði í
stofnfjárfestasamningnum kveði á
um að deCODE genetics hafi endur-
kauparétt á bréfum hluthafa að upp-
fylltum vissum skilyrðum, sem \
stefnunni segir að séu ekki til staðar í
þessu máli. I ársbyrjun 1999 hafi fyr'
irtækið tilkynnt Emi að það segi upp
meintum samningi við hann um ráð-
gjafasamband (consultant relation-
ship), og nýti sér jafnframt ákvæði
stofnfjárfestasamningsins til að end-
urkaupa bréf hans. í stefnunni kemui-
fram að enginn ráðgjafarsamningur
hafi verið gerður við Emi og eigi end-
urkaupaákvæði í stofnfjárfestasamn-
ingnum ekki við. Emir hafi aldrei
fengið greitt fyrir ráðgjafastörf fyuú'
fyrirtækið og aldrei verið starfsmað-
urþess.
Þá segir í stefnunni að deCODE
genetics hafi brotið gegn 10. grein
stofnfjárfestasamningsins með því að
boða Emi ekki á hluthafafundi félags-
ins. Þess er krafist í stefnunni að
deCODE gefi út þessi bréf til Emis,
alls 256.637 talsins, og jafnframt er
krafist viðurkenningar á því að þessi
bréf séu ekki háð slíkum endurkaupa-
rétti. Þess er krafist að stofnfjárfesta-
samningurinn sé bindandi og tilraun
deCODE til endurkaupanna sé ógild-
Loks er farið fram á ótilgreindar
skaðabætur þar sem Ernir hafi beðið
af þessu fjárhagslegt tjón.
/ I P t K s
ií * eÉÉÍÍÍ* ,F í I
Morgunblaðið/fiolli
Útför Halldórs Halldórssonar
ÚTFÖR Halidórs Halldórssonar prófessors var gerð
frá Dómkirkjunni í Reykjavfk í gær að viðstöddu fjöl-
menni. Séra Ámi Bergur Sigurbjömsson jarðsöng. tir
kirkju báru kistu Halldórs Gunnlaugur Ingólfsson
orðabókarritsljóri, Baldur Jónsson prófessor, Jón G.
Friðjónsson prófessor, Ragnar Sigurbjömsson prófess-
or, Guðmundur Jónsson, fyrrverandi hæstaréttardóm-
ari, Helgi Bemódusson, skrifstofustjóri Alþingis, Guðni
Guðmundsson, fyrrverandi rektor, og Jón Aðalsteinn
Jónsson, fyrrverandi orðabókarritstjóri.