Morgunblaðið - 14.04.2000, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 9
FRÉTTIR
Húsavík stærsti hvalaskoð-
unarstaður í Evrópu
„HÚSAVÍK er orðin stærsti ein-
staki hvalaskoðunarstaðurinn í
Evrópu," segir Ásbjörn Björgvins-
son, forstöðumaður Hvalamiðstöðv-
arinnar á Húsavík. Rúmlega 35 þús-
und ferðamenn fóru í
hvalaskoðunarferð á árinu 1999 eða
16% fleiri en á árinu 1998. Boðið var
upp á hvalaskoðunarferðir á vegum
10 fyrirtækja á Norður-, Vestur- og
Suðvesturlandi á síðasta ári.
I skýrslu um hvalaskoðun 1999,
sem Asbjörn tók saman, er áætlað
að heildartekjur þjóðarbúsins af
hvalaskoðunarferðamennsku fyrir
árið 1999 hafi numið ríflega 900
milljónum króna. Beinar tekjur af
hvalaskoðunarferðum á síðasta ári
eru áætlaðar vera um 561 milljón
króna. Hátt í 100 manns hafa beina
atvinnu af hvalaskoðunarferðum.
Reglubundnar hvalaskoðunar-
ferðii- hófust árið 1995 og fóru þá
2.200 ferðamenn í skoðunarferð.
Algengast er að hrefnur og höfr-
ungar sýni sig ferðamönnum en
töluvert sést til steypireyðar vestan-
lands. Segir Ásbjörn að hvergi í
heiminum geti menn verið jafnvissir
um að sjá stórhveli og út af Snæfells-
nesi enda spáir hann því að vinsæld-
ir hvaðaskoðunarferða þaðan muni
aukast til mikilla muna á næstunni.
Fram kemur í skýrslunni að tæp-
lega 80% erlendra ferðamanna sögð-
ust, í skoðanakönnun sem gerð var
sumarið 1998, vera andvígir hvala-
veiðum. Segir Ásbjörn að þeir sem
bjóða upp á hvalaskoðunarferðir
hafi áhyggjur af að atvinnugreinin
muni hljóta skaða af ef stjórnvöld
ákveði að hefja hvalveiðar að nýju.
Hvetja þeir til þess að langtíma-
rannsóknir á hvölum og lifnaðar-
háttum hvala verði efldar til muna
áður en ákvörðun um hvalveiðar
verður tekin.
Morgunblaðið/Ásdís
Á síðastliðnu ári fóru rúmlega 35 þúsund farþegar í hvalaskoðunarferð.
Þá bendir Ásbjörn á að algengt sé ins og ferðamennskunnar vegna, að
að siglt sé fram á rusl af ýmsu tagi stemma stigu við slæmri umgengni
og að mikilvægt sé, bæði umhverfis- um hafið.
Stúdentad ragti r
TESS
frá
Voneðst við Dunhaga, Opið virka daga frá kl. 9-18,
—A sími 562 2230. laugardaga frá kl. 10-14.
Húsgögn í sumarbústaðinn
Opið mán. til fös. frá kl. 10-18
Opið laugardag frá kl. 10-14 Armúla 7 Sfmi 533 1007
Eitthvað fallegt
fyrir páskana
ENGÍABÖRNÍN
Laugavegi 56 Gdtiminl
W
ŒH
hönnun
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mánud.-föstud. kl.12-18,
laugardaga kl. 11-14.
Solusyning
á nýjum og gömlum handhnýttum, austurlenskum
gæðateppum á Grand Hótel Sigtúni
í dag, sunnudag,
kl. 13-19
sending
10% staðgreiðslu-
afsláttur
^ófratep/^
sími 861 4883
HÓTEL
REYKJAVIK
SE
RAÐGREIDSLUR
Seljum næstu daga
eldri samkvæmiskjóla og brúóarkjóla
á hagstæöu verði.
Fataleiga Garðabæjar,
sími 565 6680
Útskriftarklæðnaður
og sportlegur ferðafatnaður
hfaQfámfhhiMi
Engjateigi 5, sími 581 2141..
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
SUMARNÁMSKEIÐ í FrÖNSKU
hefjast 2. maí.
í boði eru hraðnámskeið og taltímar,
námskeið fyrir börn og eldri borgara.
Stuðningskennsla fyrir skólafólk
Nýtt: Ferðamannafranska
10 tíma hraðnámskeið til að undirbúa
Frakklandsfara fyrir dvöl í Frakklandi.
Upplýsingar í síma 552 3870 frá kl. 11.00 - 18.00.
Netfang: af@ismennt.is, Austurstræti 3.
| I ALLIANCB FRANCAISE