Morgunblaðið - 14.04.2000, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 14.04.2000, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Formaður allsherjarnefndar á umræðufundi SUS um ættleiðingar samkynhneigðra Stjúpættleiðingar samkyn- hneigðra verði heimilaðar Morgunblaðið/Jim Smart Fjölmennt var á umræðufundi um ættleiðingar samkynhneigðra, sem var sá þriðji í fundaröð SUS um jafnréttismál undir yfirskriftinni „Með réttlæti gegn ranglæti". ALLSHERJARNEFND Alþingis hefur samþykkt að leggja til að lög- um um staðfesta samvist verði breytt á þann veg að stjúpættleið- ingar samkynhneigðra verði heimil- aðar. Þessu greindi Þorgerður Kat- rín Gunnarsdóttir, alþingismaður og formaður allsherjarnefndar Alþing- is, frá á umræðufundi Sambands ungra Sjálfstæðismanna um ættleið- ingar samkynhneigðra. Fundurinn var sá þriðji í fundaröð SUS um jafn- réttismál undir yfirskriftinni: „Með réttlæti gegn ranglæti". Framsögu- menn á fundinum, auk Þorgerðar, voru Guðni Kristinsson, formaður Félags samkynhneigðra stúdenta, og Rannveig Traustadóttir, dósent í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Islands. Með stjúpættleiðingum er átt við að þeir sem stofna til staðfestrar samvistar ættleiði barn eða börn maka síns. í framsögu sinni sagði Þorgerður frá þeirri umræðu sem átti sér stað innan allsherjarnefndar þegar lá fyrir að breyta ættleiðingar- lögum á síðasta ári. Þar hafi sjónar- miðum samkynhneigðra verið komið á framfæri en hún sagði að pólitísk sátt hefði ríkt um að fresta því að heimila samkynhneigðum að ætt- leiða börn, fyrst og fremst vegna þess að sú breyting hefði verið laga- tæknilega ómöguleg. Þá hefðu Iögin um staðfesta samvist ekki staðist, en þar segir að ákvæði ættleiðingarlaga um hjón gildi ekki um staðfesta sam- vist. Því hafi orðið að undirbúa breytingu á lögum um staðfesta samvist til að þetta yrði framkvæm- anlegt og fór sú undirbúningsvinna nýlega fram í allsherjarnefnd. Gerir ráð fyrir að tillagan hljóti góðan hljómgrunn á Alþingi Þorgerður sagði að í síðustu viku hefði nefndin samþykkt að leggja til breytingu þess efnis að stjúpættleið- ingar samkynhneigðra verði heimil- Á umræðufundi SUS um ættleiðingar sam- kynhneigðra kom meðal annars fram að alls- herjarnefnd Alþingis hefur samþykkt að leggja til þá lagabreyt- ingu að stjúpættleiðing- ar samkynhneigðra verði leyfðar. aðar og kemur tillagan til kasta Al- þingis eftir páska. Hún sagðist gera fastlega ráð fyrir því að tillagan hlyti góðan hljómgrunn á þingi þótt búast mætti við að einhverjir þingmenn sætu hjá í atkvæðagreiðslu um mál- ið. Þorgerður tók fram að þverpóli- tísk sátt hafi ríkt um það innan nefndarinnar að samþykkja þessa breytingu. Hún tók einnig fram að sátt hafi ríkt um að taka aðeins þetta skref núna, en ekki að leggja til breytingu sem leyfði frumættleið- ingar samkynhneigðra. I umræðum að loknum framsögum sagðist Þor- gerður telja nokkuð líklegt að innan fimm ára yrði lagt fram frumvarp á Alþingi þess efnis að heimila fru- mættleiðingar samkynhneigðra, þótt ekki væri víst að það yrði samþykkt. Frumvarpið yrði þá líklega háð sömu skilyrðum og í Hollandi, sem er eina landið sem heimilar fi’umættleiðing- ar samkynhneigðra. Þar eru þær leyfðar innan Hollands eingöngu til að koma í veg fyrir að önnur lönd sem Hollendingar ættleiða frá banni ættleiðingar þangað. Snýst ekki síst um mannréttindi barna samkynhneigðra Guðni Kristinsson, formaður fé- lags samkynhneigðra stúdenta, sagðist fagna þessu skrefi sem tekið væri með tillögum allsherjarnefnd- ar, en spurði jafnframt hvers vegna skrefið hefði ekki verið tekið til fulls. Hann hefði viljað sjá tillögu þess efn- is að frumættleiðingar samkyn- hneigðra yrðu heimilaðar og þá að sjálfsögðu með sömu skilmálum og í Hollandi vegna þeirra fordóma sem ríktu í öðrum löndum. Guðni sagði að vissulega væri staða samkynhneigðra á íslandi mun betri en í öðrum löndum en hann kvaðst samt vilja sjá ísland ganga enn lengra og vera í fararbroddi í þessum málum. Þetta væri spurning um mannréttindi samkynhneigðra og ekki síst barna samkynhneigðra en hann benti á að á Islandi væru um þúsund börn sem stæðu réttindalaus gagnvart samkynhneigðum foreldr- um sínum og stjúpforeldrum. Hann sagði óréttlæti felast í því lagaákvæði sem segði að ákvæði ætt- leiðingarlaga um hjón og laga um tæknifrjóvgun giltu ekki um stað- festa samvist og að það gæfi þau skilaboð að samkynhneigðir væru ekki hæfir foreldrar. Rannsóknir hefðu hins vegar sýnt fram á að ekk- ert í fari samkynhneigðra gerði þá að óhæfari foreldrum og að börn þeirra kæmu jafnvel betur út ef eitthvað væri, væru oft á tíðum opnari, for- dómalausari og víðsýnni. Kynhneigð hefur ekki áhrif á hæfni fólks sem foreldra Rannveig Traustadóttir, dósent við HÍ, benti á að á síðustu 20 árum hefðu farið fram viðamiklar rann- sóknir innan félagsvísindanna á sam- kynhneigðum foreldrum og börnum þeirra. Niðurstöður þeirra væru á þann veg að kynhneigð fólks hefði ekkert með það að gera hvernig for- eldri það væri og einnig kæmi fram að börn samkynhneigðra væra ekki öðruvísi en börn gagnkynhneigðra, nema að því leyti að í sumum tilfell- um kæmi í ljós að þau væra víðsýnni og fordómalausari. Ekki hefði heldur komið í ljós að félagsleg tengsl þess- ara bama við jafnaldra sína væra öðravísi en annarra barna. Hún sagði að flestar þessar rannsóknii’ hefðu verið gerðar í Bandaríkjunum og Bretlandi og að auðvelt væri að nálgast niðurstöður þeirra í bókum, tímaritum og á Netinu. Rannveig sagði að varlega áætlað mætti reikna með að um þúsund samkynhneigðir á íslandi ættu börn. Hún sagði að niðurstöður íslenskra rannsókna sem gerðar hefðu verið á þessu sviði væra sambærilegar við þær erlendu. Helsta vandamál fjöl- skyldna hér á landi þar sem foreldr- ar eru samkynhneigðir væru for- dómar samfélagsins, en hún sagði alla mismunun samkynhneigðra og gagnkynhneigðra byggða á van- þekkingu og fordómum. I Háskoli fslands og Landmælingar Morgunblaðið/Jim Smart Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra og Páll Skúlason, rektor Háskóla íslands, staðfesta samning um samstarf Landmælinga Islands og Verk- fræðistofnunar Háskólans á sviði fjarkönnunar. Samstarf á sviði fj arkönnunar SIV Friðleifsdóttir, umhverfisráð- herra og Páll Skúlason, rektor Há- skóla íslands, hafa staðfest samn- ing um samstarf Landmælinga íslands og Verkfræðistofnunar Háskóla íslands á sviði fjarkönn- unar. í frétt frá Landmælingum segir að um nýtt sérfræðistarf sé að ræða, sem stuðli að samvinnu stofnana um notkun fjarkönnunar- gagna vegna brýnna verkefna á sviði umhverfisvöktunar og nátt- úrurannsókna með fjarkönnunar- tækni. Fram kemur að rúmur ára- tugur er síðan fyrsta fjarkönnunargervitunglinu var komið á braut umhverfis jörðu. Örar tækniframfarir síðustu ára hafi gert gervitungla- og flug- myndatökur ásamt tölvustuddri úrvinnslu myndefnis að sífellt vænlegri kosti til umhverfísrann- sókna og eftirlits með náttúruauð- lindum. Bent er á mikilvægi náttúruauð- linda, sérstætt náttúrufar og víð- feðma lögsögu landsins sem kalli á öfluga fjarkönnun. Auknar kröfur séu gerðar um skipulag og korta- gerð, verndun náttúrunnar og vöktun umhverfisins þarfnist áætl- unargerðar þar sem krafist er bestu fáanlegra gagna. Með fjar- könnun verði hægt að rannsaka og vinna á hagkvæman hátt úr upp- lýsingum frá víðáttumiklum svæð- um, fylgjast með breytingum og bæta þekkingu á náttúrufari lands, lofts og hafs. Vatnajökull víða ófær ÝMSAR leiðir, sem farnar hafa ver- ið um Vatnajökul, eru nú ófærar vegna sprungna, að sögn Jöklarann- sóknafélags Islands. I fréttatilkynningu frá félaginu segir að gosin á Vatnajökli á síðustu áram og framhlaup skriðjökla hafi valdið miklum breytingum á ákveðn- um svæðum og vegna þess séu ýms- ar leiðir sem farnar hafa verið um jökulinn nú ófærar vegna sprangna. „Síðastliðinn vetur hófst fram- hlaup í Dyngjujökli en hann er einn af skriðjöklum Vatnajökuls og fellur til norðurs milli Bárðarbungu og Kverkfjalla. Af þessum orsökum er leið á Vatnajökul um Dyngjuháls nú ófær,“ segir í tilkynningunni og jafn- framt að hið sama eigi við um allt svæðið norðan línu sem afmarkar það svæði sem sýnt er á meðfylgj- andi korti. Þá segir að eftir gosið í Gríms- vötnum í desember 1998 hafi jarðhiti aukist mikið í og við vötnin og í kjöl- far þess hafi myndast miklir sigkatl- ar norðan og austan við Grímsfjall þar sem áður lá leið upp á fjallið að skálum Jöklarannsóknafélagsins. „Sú leið er nú alveg ófær og lífs- hættulegt að reyna að fara hana. Síðastliðið haust fannst leið upp á Grímsfjall úr austri, nokkru sunnar en eldri leiðir. Einnig hafa myndast sprangur vegna aukins jarðhita vestar á Grímsfjalli, milli Vestari Svíahnúks og Hábungu, auk stækk- unar sigkatla suðvestan við Eystri Svíahnúk. Vegna þessara breytinga era eldri GPS leiðarpunktar vara- samir og fólki ráðlagt að leita sér upplýsinga um færar leiðir áður en lagt er í ferðir um Grímsvötn eða í skála Jöklarannsóknafélagsins á Grímsfjalli," segir í tilkynningunni. I næstu viku og um páskana standa Jöklaferðir fyrir ferðum í Kverkfjöll, Öræfajökul, Eyjabakka, Esjufjöll og Mávabyggð. Tekið er íram í frétt frá ferðaskrifstofunni að ekki verður farið á Grímsfjall nema tryggt sé að leiðin þangað sé öragg. Ljósm/Magnús T. Guðmundsson Sóð yfir Dyngjujökul í lok janúar sl. með Kverkfjöll í baksýn. Dyngjuháls Kbtufcll vseði vegna líips Dyngjujökuls ingusvæði Gjálpar Köldukvíslar> jökull Grímsvötn Nýir sigkatlar við Grímsfjall vegna jarðhita cj Grímsfjall VAT N AJ Ö KU LL Pálsfjall , Þórðarhyrna , 20 km Tungnaár■ jökull Esjufjöll 11
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.