Morgunblaðið - 14.04.2000, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 14.04.2000, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ i_. ® Símenntunarsvið Jarðfræði íslands: Eldvirkni og jarðhiti Námskeið fyrir almenning Á námskeiðinu verður jarðfræði íslands, eldvirkni og saga eldvirkninnar tekin til umfjöllunar. Einnig verður fjallað um orkubúskap íslendinga í nútíð og framtíð. Farið verður í dagsferð í Mývatnssveit og Kröflu. í ferðinni verður sagt frá jarðfræði svæðisins, jarðhitanýtingu, skoðuð eldvirkni og ný- leg ummerki hennar á svæðinu. Kennari: Dr. Bjarni Gautason, jarðfræðingur og sérfræðingur hjá Orkustofnun. Tími: Fyrirlestrar þriðjudaga og fimmtudaga frá 25. apríl til 4. maí kl. 20.00-22.00, samtals 4 skipti. Ferð 20. maí kl. 9-17. Verð kr. 11.000. Skráning: Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri til 25. apríl, sími 463 0570, faxnúmer 463 0571, tölvupóstur: mariast@unak.is Morgunblaðið/Þorsteinn Pétursson Á myndinni eru f.v. Ólafur Ásgeirsson, Geir Baldursson, Klemens Klemensson, Ólafur Kjartansson, Smári Sig- urðsson, Hermann Karlsson, Gunnar Knútsen, Þórir Magnússon, Jóhann Olsen, Páll Þorkelsson, Ólafúr Ólafs- son, Sigurður Sigurðsson, Sigurður Sæmundsson, Hreiðar Hreiðarsson, Ólafur íshólm og Jóhann Gíslason. Lögreglumenn í vélsleðaferð LÖGREGLUMENN frá Akureyri héldu í tveggja daga ferð á vélsleðum inn á hálendið á dögunum. Hópurinn fór inn í Laugafell, þar sem gist var eina nótt og þang- að komu einnig þrír lögreglumenn frá Selfossi. Með í för voru vanir fjallamenn, þeir Smári Sigurðsson og Hreiðar Hreiðarsson og einnig rafvirki, málari og slökkviliðsmaður, svona rétt til öryggis. Smári og Hreiðar fóru með hópinn í dagsferð í Vonarskarð en myndin af ferðalöngunum var tekin við Deilir við Snapadal. Þorsteinn Pétursson lögreglumaður á Akur- eyri sagði að innan lögreglunnar væru menn sem gætu hæglega tekið að sér löggæslu á hálendinu á vélsleðum. Stjórnarkjör Eining-Iðja auglýsir hér með eftir listum eða tiliög- um um menn í stjómarsæti vegna kjörs stjómar og trúnaðarráðs fyrir starfsárið 2000/2001 að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðsiu. Ber samkvæmt því að skila lista skipuðum formanni, varaformanni, ritara og gjaldkera ásamt 65 manns í trúnaðarráð, tveimur skoðunarmönnum reikninga og einum til vara eða tillögur um menn í eitthvert, ein- hver eða öll stjórnarsætin, sem kjósa skal til. Hverjum framboðslista eða tillögu skulu fylgja meðmæli minnst 80 fullgildra félagsmanna. Listum eða tillögum ber að skila á skrifetofu félagsins, Skipagötu 14, Akureyri, eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi miðvikudaginn 19. april 2000. Akureyri 12. apríi 2000. Stjóm Elningar-Iðju. Fulltrúakjör Samkvæmt iögum Einingar-Iðju fara kosningar fuil- trúa félagslns á 13. þing Landssambands iðnverka- fólks fram að viðhafðri allsheijaratkvæðagrelðslu 1 samræmi við reglugerð ASÍ um slíkar kosningar. Félagið hefur rétt til að senda 9 fulltrúa á þing Lands- sambandsins, sem haldið verður á Grand hótel í Reykjavík dagana 12.-13. maí nk. Framboðslistum eða tillögum til þessa þings, þar sem tilgreind eru nöfn aðaifulltrúa í samræmi við fram- anskráð og jafn margra til vara, ber að skila á skrifetofu félagsins, Skipagötu, 14 Akureyri, eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi miðvikudaginn 19. april nk. Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli 100 full- gildra félagsmanna. Akureyrí 12. apríl 2000. Stjóm Einingar-Iðju. Þjóð- og dægurmálakönnun Rannsóknar- stofnunar Háskólans á Akureyri Yfir 60% telja að sveitar- félög í Eyjafirði sameinist YFIR 60% Akureyringa telja ör- uggt eða miklar líkur á að Eyja- fjarðarsvæðið verði orðið að einu sveitarfélagi eftir fimm ár. Hugur Akureyringa til sameiningar sveit- arfélaga á Eyjafjarðarsvæðinu var kannaður í þjóð- og dægurmála- könnun Rannsóknarstofnunar Há- skólans á Akureyri sem gerð var í síðasta mánuði, en nokkrar um- ræður hafa verið um málið síðustu misseri. Sett hefur verið á laggirn- ar viðræðunefnd með fulltrúum sveitarfélaga á svæðinu um grund- völl sameiningar. Alls lentu 600 manns, búsettir á Akureyri, í úr- taki og svöruðu um 80% þeirra könnuninni. Niðurstaða könnunarinnar var sú að 37% Akureyringa telja ör- uggt að öll sveitarfélög í Eyjafirði verði sameinuð í eitt eftir fimm ár og um 24% töldu að möguleiki væri fyrir hendi á sameiningu, þannig að um 61% Akureyringa telja að sameining Eyjafjarðar sé hugsanleg eða verði að veruleika á næstu fimm árum. Nokkur hópur manna er óviss í afstöðu sinni til þessa máls, en um 28% trúa því síður eða alls ekki að Eyjafjörður verði eitt sveitarfélag eftir fimm ár. Trú kvenna á sameiningu er nokkru meiri en karla, en um 45% kvenna trúa því að sveitarfélögin sameinist en 39% karla. Hvað varðar aldur virðist trú manna á sameiningu aukast eftir því sem aldurinn færist yfir, en fólk í elstu aldurshópunum höfðu meiri trú á sameiningu innan fimm ára en þeir yngri. Um 21% hyggur á flutning, flestir vegna náms í könnuninni var einnig spurt um búferlaflutninga og framtíðar- sýn Akureyringa, en spurt var hvort fólk hygði á brottflutning úr bænum á næstu 2-3 árum. I ljós kom að 21% þeirra sem spurðir voru höfðu flutning í hyggju, en 79% ekki. Þeir sem eldri eru hyggja síður á flutning í burtu, en þeir sem eru á förum eru flestir í aldurshópnum 18 til 25 ára. í flest- um tilvikum var um að ræða að fólk ætlaði í burt til að stunda nám annars staðar. Fjölskyldutekjur svarenda höfðu áhrif á áætlanir manna um flutn- ing að því marki að þeir sem voru með lægstu tekjurnar ætluðu í meira mæli en þeir sem höfðu hærri tekjur að flytja á brott. Ekki kom á óvart að þeir sem ætla að flytja eru flestir á förum á höfuðborgarsvæðið, eða 69% hóps- ins, 25% hyggjast flytja af landi brott, en 6% til annarra staða á landsbyggðinni. Flestir fara í burtu vegna náms, hærri launa, vegna nýs starfs eða vegna fjöl- skyldu. Þátttakendur voru einnig beðnir um að svara því hvernig þeir sæju bæinn fyrir sér eftir fimm ár og töldu tæp 18% að Akureyri yrði mun stærri en nú, þ.e. fleiri íbúar, og 48% töldu að bærinn yrði eitt- hvað stærri. Aðeins 5% þeirra sem tóku þátt í könnuninni töldu að bærinn yrði minni en nú. Einnig kom fram í könnuninni að því meiri trú sem fólk hafði á vöxt Akureyrar því síður ætlaði það að flytja í burtu. Blaðbera vantar í Stapasíðu/Tungusíðu Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig. ► I Morgunblaðið, Kaupvangsstræti 1, I Akureyri, sími 461 1600. Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínu'm vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 i Reykjavik þar sem eru yfir 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrífstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.