Morgunblaðið - 14.04.2000, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 25
VIÐSKIPTI
KASK
með 103
milljónir í
hag’nað
HAGNAÐUR Kaupfélags Austur-
Skaftfellinga (KASK) nam 103
milljónum króna á síðasta ári en
árið 1998 nam tap félagsins 118
milljónum króna. Tap af reglulegri
starfsemi eftir skatta og fjár-
magnsgjöld nam 51 milljón króna
samanborið við 84 milljón króna
tap árið á undan. Aðrar tekjur fé-
lagsins námu 153 milljónum króna
en KASK seldi hlutabréf sín í
Borgey hf. á árinu og innleysti
verulegan söluhagnað. KASK
keypti meirihluta í sláturfélaginu
Príhyrningi hf. á miðju árinu og
seldi síðan Þríhyrningi hf. eignir
sínar í slátrun og vinnslu fyrir síð-
ustu sláturtíð og tók Þríhyrningur
við starfseminni frá þeim tíma. I
september 1999 var gerður samn-
ingur við Kaupás hf. um kaup á
rekstri þriggja dagvöruverslana
KASK á Höfn og á Djúpavogi og
tók Kaupás hf. við rekstri þeirra
eftir síðustu áramót.
Rekstrartekjur lækkuðu lítillega
milli ára og voru 814,1 milljón
króna. Rekstrarkostnaður nam
816,2 milljónum. Tap fyrir afskrift-
ir var 2,1 milljón, afskriftir námu
21,7 milljónum og fjármagnskostn-
aður nettó var 22,9 milljónir.
43,5 milljóna króna tap
af landbúnaðarstarfsemi
Rekstrartap af landbúnaðar-
starfsemi var 43,5 milljónir króna.
Til samanburðar var tap af land-
búnaðarstarfseminni 33,7 milljónir
króna árið áður. Aukið tap skýrist
af því að félagið hætti starfsemi í
landbúnaði fyrir síðustu sláturtíð
og bar fastan kostnað af starfsem-
inni mestan hluta ársins en naut
ekki hagnaðar af sláturtíðinni eins
og árið áður, að því er fram kemur
í fréttatilkynningu.
Eigið fé í árslok nam 403,1 mil-
ljón og jókst um 119,1 milljón frá
árinu áður. Eiginfjárhlutfall var
42,3% í árslok 1999 en var 23,6% í
árslok 1998.
Samruni við önnur
félög hugsanlegur
I fréttatilkynningu kemur fram
að KASK á nú um 90% eignarhlut í
Þríhyrningi hf. „Mikilvægt er að
halda áfram þeirri vinnu sem hafin
er við að efla rekstur Þríhyi-nings,
hugsanlega með frekari samruna
við önnur félög í sömu grein. Að
auki hyggst félagið selja eignir,
bæði fasteignir og hlutabréf, til að
lækka skuldir og fjármagna bygg-
ingu nýs verslunarhúss. Eftir þess-
ar skipulagsbreytingar hjá KASK
verður félagið með talsvert minni
umsvif í rekstri en áður, en eigna-
staða félagsins er sterk sem gefur
möguleika á arðbærum rekstri og
þátttöku í nýjum atvinnutækifær-
um í framtíðinni," að því er fram
kemur í fréttatilkynningu.
NÓATÚN
-eru viðurkenndar
umbúðir
til geymslu matvæla
-er endur-
vinnanlegt
efni
n 40p ^meira geymsluþol:
IU“*I U j lokuðum umbúður
i umbúðum
við 0-4°C helst matvaran
fersk mun lengur
0
-gott er
að frysta
matvæli í
umbúðunum
-eftir notkun
taka þessar
umbúðir 80%
minna rými
Við hjá Nóatúni
kynnum algjöra nýjung
í afgreiðslu matvæla úr kjötborði.
Pack 2000 eru
sérhannaðar umbúðir
og loftþéttar -
ferskleiki vörunnar og útlit
helst mun lengur.
15mg. plástur14stk.
pr.dag
NlCQRefTE
U,,W&/16^r ^
DeP«tplast,-e
Reyklaus árangur
NICDRETTE
íiH
hi
f
I
y *
ti
ApótekiðSmáratorgi-S. 564 5600» Apótekið Nýkaup Mosfellsbæ - S. 566 7123® Apótekið Smiöjuvegi - S. 577 3600»Apótekiðlðufelli -S. 577 2600
Apótekið Firði Hafnarf.- S. 565 5550 sApótekið Hagkaup Skeifunni - S. 563 5115« Apótekið Suðurströnd - S. 561 4600 «Apótekið Spönginni - S. 577 3500
Apótekið Nýkaup Kringlunni - S. 568 1600*Apótekið Hagkaup Akureyri - S.461 3920