Morgunblaðið - 14.04.2000, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 14.04.2000, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 29 ÚRVERINU Fundur Frjálslynda flokksins um sjávarútvegsmál í kjölfar Hæstaréttarddms „Dómurinn er ekki heilbrigð- isvottorð“ LEGGJA verður fiskveiðistjórnun- arkerfið undir dóm þjóðarinnar í næstu alþingiskosningum, enda er kerfið enn óréttlátt þrátt fyrir dóm Hæstaréttar í Vatneyrarmálinu svokallaða. Þetta kom fram á fundi Frjálslynda flokksins að Borgatúni 6 á miðvikudagskvöld um sjávarút- vegsmál i kjölfar dóms Hæstaréttar. Frummælendur á fundinum voru fimm, Guðmundur G. Þórarinsson, Guðjón Arnar Kristjánsson, Markús Möller, Valdimar Jóhannsson og Óskar Þór Karlsson. Fundarstjóri var Sverrir Hermannsson. Sverrir Hermannsson, fonnaður Frjálslynda flokksins, sagði í upp- hafi fundarins að dómur Hæstarétt- ar í Vatneyrarmálinu væri síður en svo heilbrigðisvottorð fyrir íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið. Sagði Sverrir núverandi kerfi meingallað. Það hefði verið sett á í skjóli fiskverndunar en nú hefði hinsvegar komið á daginn að allir stofnar hefðu skroppið saman og því væn höfuðforsenda kerfisins brost- in. I kerfinu væri síður en svo fólgin hagræðing. Það sæist best á því að skuldir sjávarútvegsins hafi á síð- ustu fimm árum aukist um 50 millj- arða króna. Hagsældin væri heldur ekki meiri en svo að brottkast nemi nú um 200 þúsundum tonna á ári að mati virtra aflaskipstjóra. Auk þess ætti sér engin nýliðun stað í kerfinu og þannig yrði Stýrimannaskólinn senn minnisvarði liðinna tíma. Sagði Sverrir að í niðurstöðu Hæstaréttar fælist að þjóðin ætti auðlindina en fengi hennar ekki notið, heldur að- eins fáir útvaldir. Ekki mikilla breytinga að vænta Guðmundur G. Þórarinsson verk- fræðingur taldi að þegar aðgangur að auðlind er takmarkaður sé ekki hægt að úthluta afnotarétti til lengdar nema á markaði. Önnur leið væri einfaldlega ekki fær. Hann sagði það nú stjórnmálamannanna að taka höndum saman og breyta núverandi kerfi. Sagði Guðmundur að á meðan núverandi stjórnarflokk- ar væru við völd væri þó ekki mikilla breytinga að vænta. Enn væru heil þrjú ár til kosninga og hætt væri við' að þá yrði þjóðin búin að gleyma mikilvægi málsins. Hann hvatti því menn til að láta ekki deigan síga í baráttunni við kvótakerfið, því gæfa þjóðarinnar væri í veði. Markús Möller hagfræðingur sagði dóm Hæstaréttar valda sér vonbrigðum. Hann sagðist ósáttur við niðurstöðuna, enda gæti hann ekki fallist á að úthlutunarreglurnar frá árinu 1984 væru málefnalegar. Markús sagði að enn væri ein áfrýj- un eftir, áfrýjun til þjóðarinnar. Andstæðingar kerfisins hefðu nú þrjú ár, eða fram til næstu kosninga til að brýna kutana og hita brenni- mörkin. Þennan tíma ætti að nota til að benda almenningi á að íslenska þjóðin ætti að njóta arðsins af fisk- istofnunum og það mætti einfald- lega ekki umbylta undirstöðuat- vinnu byggðarlaganna með sama hætti og gert hefði verið undanfarin ár. Sagði Markús að ríkisstjórnin hefði í blindni trúað á þær raddir sem héldu því fram að afhenda ætti kvóta til eignar, þrátt fyrir að virtir hagfræðingar víðs vegar um heim hefðu haldið öðru fram. Með græðgina að leiðarljósi Guðjón Arnar Kristjánsson al- þingismaður sagðist hafa efasemdir um að hagur almennings og kvóta- lausra byggðarlaga hafi verið hafður að leiðarljósi í dómi Hæstaréttar. Hinsvegar væri margt í greinar- gerðum dómsins sem segi að ýmis- legt megi laga í kvótakerfinu. Guð- jón tók undir það að kerfinu yrði ekki breytt nema með kosningum. Islendingar yrðu að átta sig á því að ekki dygði lengur að láta í Ijósi skoð- anir sínar í leynilegum skoðana- könnunum, heldur yrðu þeir að þora að stíga fram og segja hinu siðlausa og óréttláta kerfi stríð á hendur. Hann sagðist ekki skilja það lánleysi útgerðarmanna að þekkja ekki sinn vitjunartíma og leita sátta um nýja fiskveiðistjórnun, en halda í stað þess áfram kvótabraskinu með græðgina að leiðarljósi. titboð eykur arðsemi um 30 milljarða Óskar Þór Karlsson, formaður Samtaka fiskvinnslu án útgerðar, taldi dóm Hæstaréttar ekki skipta sköpum um tilvist kerfisins í fram- tíðinni, það myndi hvort eð er leggj- ast af áður en langt um liði. Hann sagði niðurstöðu dómsins í meginat- riðum byggjast á röngum forsend- um. Núverandi fiskveiðistjórnunar- kerfi þjónaði ekki almannahags- munum, heldur ynni gegn þeim í ríkum mæli. Óskar sagði aðeins eina leið færa þegar kæmi að úthlutun verðmætra réttinda sem takmarka Valdimar Sveinsson seldur kvótalaus ÓSBÚÐ ehf. í Vestmannaeyjum hef- ur gengið frá kaupum á dragnóta- og netabátnum Valdimai' Sveinssyni VE, sem var í eigu Bergs-Hugins hf. í Vestmannaeyjum. Öllum skipverjum að skipstjóranum undanskildum var boðið skipspláss áfram og er gert ráð fyrir að tveir hásetar þiggi boðið, að sögn Esjars Stefánssonar, eins eig- anda Ósbúðar, en skipið verður gert út frá Höfn í Hornafirði. Skipið var selt kvótalaust en nú- verandi eigendur ætla að leigja kvóta. Að Ósbúð standa Saltfiskverk- unin Marvík í Garði, Reynir Guð- bergsson og fjórir Hornfirðingar og er Valdimar Sveinsson fyrsta skip fyrirtækisins, en sömu menn að stór- um hluta eiga tog- og netabátinn Jóa Bjarna SF. Nafninu á Valdimar Sveinssyni hefur reyndar verið breytt og heitir báturinn, sem er 207 tonn, nú Beggi á Tóftum VE en hann fer á þorskveiðar í net. Öllum 11 skipverjunum hafði áður verið sagt foimlega upp en að sögn Magnúsar Kristinssonar, fram- kvæmdastjóra Bergs-Hugins, voru þeir aðeins ráðnir út vertíðina enda ekkert fyrir þá að gera þegar veiði- heimildirnar væru búnar. Eins og Morgunblaðið greindi frá fyrir skömmu keypti Bergur-Huginn félagið Hörgeyri á dögunum og með því skipið Valdimar Sveinsson. Kaup- in voru liður í hagræðingu fyrirtækis- ins en Magnús segir að reynt verði að koma til móts við þarfir viðkomandi manna óski þeir eftir að starfa áfram hjá fyrirtækinu. Nú væru komnar heimildir á eitt skip allt árið í stað þess að vera með heimildir í hálft ár á tveimur skipum og ljóst væri að hag- ræðingin væri mikil gagnvart útgerð- inni og mannskapnum. Morgunblaðið/Jim Smart Frá fundi Ftjálslynda flokksins í Borgartúni 6. Fundarmenn voru tæplega 200 talsins og meðal þeirra kom fram mikil andstaða við núverandi stjórnkerfi fiskveiða. þyrfti á einhvern hátt, menn yrðu að fá að keppa um þau á markaði. Ávinningurinn af útboði þvingaði fram arðsemi í greininni. Sagði Osk- ar að þannig myndi þjóðhagsleg arð- semi af sjávarútvegi hækka um 30 milljarða króna á ári. Mikil óánægja Valdimar Jóhannsson lýsti í er- indi sínu mikilli óánægju með niður- stöðu Hæstaréttar í Vatneyrarmál- inu. Taldi hann nauðsynlegt að breyta fiskveiðistjórnuninni i grundvallaratriðum og að kvóta- kerfið í núverandi mynd stæðist alls ekki lög. I umræðum að loknum framsögu- erindum kom fram mikil óánægja með stjórnun fiskveiða, en skiptar skoðnir um það hvernig eigi að breyta henni. Á fundinum var eftir- farandi ályktun samþykkt: „Almennur fundur, haldinn í Borgartúni 6 í Reykjavík 12. apríl árið 2000, fagnar sérstaklega þeirri einróma niðurstöðu Hæstaréttar að nytjastofnar á íslandsmiðum séu sameign íslenzku þjóðarinnar og að úthlutun veiðiheimilda - kvótinn - myndi ekki eignarrétt eða óaftur- kallanlegt forræði einstakra manna yfir þeim. Fundurinn vekur athygli á þeirri staðreynd að upphaflegur tilgangur núgildandi fiskveiðistjórnarlaga hefur í framkvæmd mistekist í grundvallaratriðum: • í stað fiskverndar hefur nytjaT stofnum miðanna stórhrakað. • í stað hagræðingar vaxa skuld- ir sjávarútvegs hröðum skrefum. • Kerfið knýr menn til ógnar- legrar sóunar með brottkasti afla. • Nýliðun í greininni útilokuð. • Byggðir landsins brotna saman ein af annarri. • Þjóðin fær ekki notið auðlindar sinnar, heldur fáir útvaldir. Úrlausn þessa þjóðháskalega vanda vísar Hæstiréttur til Alþingis. Það er skoðun fundarins að löggjafarsamkundunni beri að taka sjálfan grundvöll fiskveiðistjórnar- innar, úthlutun kvótans, til endur- skoðunar þegar í stað.“ Nú eru frábær tilboð í Byggt og búið - meðan birgðir endast! Hnífaparataska með 72 hlutum. Sparaðu 2.505 kr. Verð aðeins: Dulux lampi er falleg fermingargjöf. Verð aðeins: Bilaryksuga ~ á frábæru tilboði aðeins: QQQ Þú sparar meira en 2000 kr. Þú sparar 1.000 kall! KitchenAid skál og hveitihlíf Sparaðu meira en 1.400 kr. Steikin bregst aldrei með kjöthitamæli. Verð aðeins: Babyliss sléttujárn 500 kr. afsláttur Buzil 30% afsiáttur gólfhreinsir er dugnaðarforkur I vorhreingerningarnar Verð aöeins: ...aifir^ Það sem ungar dömur vilja i dag! Mark ferða- kassettutæki nk Flott fermingargjöf! ^HVerð aðeins: 30% afsláttur! Rýmingarsaia á kertum. Margar stærðir, gerðir og litir. Ótrúlegt verð! Sparaðu 2.388 kr. Fjölnota deig- og rjómasprauta með mörgum mynstrum 30% afsláttur Skelltu Doro Petit stmanum á tölvuna. Litill og nettur sími sem kostar aðeins:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.