Morgunblaðið - 14.04.2000, Síða 30
30 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Fundur Eystrasaltsráðsins í Kolding í Danmörku
Ahersla á viðræður við Rússa
og „norræna vídd“ ESB
Davíð Oddsson forsætisráðherra og Gerhard Schröder, kanslari Þýska-
lands, takast ■ hendur á fundi Eystrasaltsráðsins í Kolding.
Kolding. AP, AFP.
MIKIL áhersla var lögð á mikilvægi
samstarfs við Rússland á tveggja
daga fundi Eystrasaltsráðsins, sem
lauk í Kolding á Jótlandi í gær og
létu margir fulltrúar í Ijós áhyggjur
af átökunum í Tsjetsjníu . „Það var
lögð sérstök áhersla á viðræðurnar
við Rússa,“ sagði Jerzy Buzek, for-
sætisráðherra Póllands, þegar hann
var spurður um óformlegar viðræð-
ur fundarmanna.
Fundinn sátu leiðtogar og ráð-
herrar þeirra ellefu ríkja er aðild
eiga að ráðinu. Þá sagði Paavo
Lipponen, forsætisráðherra Finn-
lands, að fulltrúi Rússa hefði fullvis-
sað þá um að hin nýja stjórn Vladi-
mírs Pútíns Rússlandsforseta myndi
fylgja markaðsstefnu í efnahagsmál-
um.
Göran Persson, forsætisráðherra
Svíþjóðar sagði að ríkin myndu
halda áfram að efla samstarf sitt til
að auka mikilvægi Eystrasaltssvæð-
isins í framtíðinni. Þar væri að finna
ung hagkerfi, mikinn hagvöxt og brú
yfir til Rússlands.
Jens Stoltenberg, forsætisráð-
herra Noregs, sagði að lögð hefði
verið áhersla á nauðsyn þess að finna
friðsamlega lausn í Tsjetsjníu og að
Rússar virtu mannréttindi. „Sam-
hliða þessu teljum við það þó ekki
vera rétta stefnu að einangra Rúss-
land,“ sagði Stoltenberg.
Andrei Shapovalíant, efnahags-
málaráðherra Rússlands, sem var
fulltrúi Rússa á fundinum, sagði að
menn gætu rætt öll málefni Eystra-
saltssvæðisins í rólegheitum.
„Vandamálin er tengjast Tsjetsjníu
eru hins vegar rússneskt innanríkis-
mál,“ sagði ráðherrann.
í lokayfirlýsingu fundarins er
hvatt til aukinnar samvinnu ríkjanna
á sviði efnahagsmála og umhverfis-
mála auk þess að leggja áherslu á
mikilvægi þess að sporna við því að
skipulögð glæpastarfsemi og smit-
sjúkdómar berist frá fyrrverandi
Sovétríkjunum. Þá segir í yfirlýsing-
unni að sú fjölgun aðildarríkja
Evrópusambandsins, sem framund-
an er, muni efla stöðugleika og ör-
yggi í Evrópu. Kemur fram að leið-
togamir telja að Eystrasaltssvæðið
geti orðið eitt helsta vaxtarsvæði álf-
unnar þar sem jafnframt verði lögð
rík áhersla á umhverfismál.
Beita sér fyrir norrænni vídd
Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, sagði að loknum fundin-
um að hann myndi beita sér fyrir
stuðningi Þýskalands við áform um
að byggja upp norræna vídd innan
Evrópusambandsins, þar sem tekið
væri tillit til sterkrar efnahagslegrar
stöðu svæðisins og pólitískrar sér-
stöðu.
„Við höfum tekið virkan þátt í
þessu starfi og munum beita okkur
enn frekar í framtíðinni," sagði
Schröder við blaðamenn. Hann sagð-
ist persónulega ætla að leggja
áherslu á mikilvægi þess að fram-
kvæmdastjórn ESB reyndi að þróa
frekar hinn efnahagslega og póli-
tíska þátt hinnar norrænu víddar og
að slíkt gæti veitt ríkjum í suður-
hluta Evrópusambandsins jákvætt
aðhald.
• •
Onnur
kosn-
ingaum-
ferð í
Perú
Lima. AP.
ALBERTO Fujimori, forseta
Perú, vantaði brot úr prósentu-
stigi til að fá 50% atkvæða í for-
setakosningunum sl. sunnudag.
Vegna þess kemur til annarrar
umferðar milli hans og helsta
keppinautsins, Alejandros Tol-
edos.
Fujimori og ríkisstjórnin
hafa verið sökuð um margvís-
leg kosningasvik en yfirkjör-
stjórn segir, að niðurstaða
kosninganna sl. sunnudag hafi
verið sú, að Fujimori hafi feng-
ið 49,84%, Toledo 40,31% og
afgangurinn skipst milli ann-
arra frambjóðenda. Vegna þess
verði efnt til annarrar umferð-
ar seint í maí eða í byrjun júní.
Stuðningsmenn Toledos hafa
staðið fyrir miklum mótmæla-
aðgerðum síðustu daga og
halda því fram, að hann hafi í
raun borið sigur úr býtum í
kosningunum enda bentu út-
gönguspár til þess. Fögnuðu
þeir vel tíðindunum um aðra
umferð og Toledo sagði, að
tryggja yrði, að hún færi heið-
arlega fram.
Tengdapabbi
Blair talar máli
þjóðarinnar
Reuters
Heróín-
salar hand-
teknir
UM 1.500 kólombískir lög-
reglumenn réðust til atlögu gegn
helsta heróínhringnum í landinu sl.
miðvikudag og handtóku 49
manns. Meðal þeirra var Nicolas
Urquijo Gaviria, frændi kókaín-
kóngsins Pablo Escobar Gaviria en
hann féll í átökum við lögregluna
fyrir nokkrum árum. Voru menn-
imir leiddir fyrir fréttamenn í
fyrradag en þeir voru handteknir á
sama tíma og Andres Pastrana,
forseti Kólombfu, hvatti banda-
ríska þingmenn til að styrkja Kól-
ombíustjóm í stríðinu við eitur-
byrlarana með 124 milljörðum ísl.
kr. Ystur til vinstri á myndinni er
Nicolas U. Gaviria.
London. Morgunbladid.
FJÖLGUNIN í lávarðadeildinni
hefur enn og aftur beint sjónum
fólks að vandræðagangi stjórn-
málaflokkanna í sambandi við skip-
an lávarðadeildarinnar. Deilurnar í
kring um lávarðartign Michael
Ashcroft, gjaldkera Ihaldsflokks-
ins, og gagnrýnin á Tony Blair,
þegar lávarðalisti Verkamanna-
flokksins var birtur, hafa ýtt undir
kröfur um að veitingarvaldið verði
tekið frá forsætisráðherranum og
þess í stað verði kosið til lávarða-
deildarinnar.
Það ofurkapp, sem William Hag-
ue, formaður Ihaldsflokksins, lagði
á lávarðartign til handa Ashcroft
var sett í siðlaust sviðsljós þess
fjármagns, sem hann hefur lagt
flokknum til, og þótti auk þess fjar-
stæða í ljósi þess, að Ashcroft hef-
ur haft fasta búsetu í öðru landi og
verið fulltrúi erlendrar ríkisstjórn-
ar hjá Sameinuðu þjóðunum. Hann
hefur nú sagt af sér sem sendi-
herra Belís og ætlar að taka upp
fasta búsetu í Bretlandi fyrir ára-
mótin. Hugmyndum hans um að
verða lávarður af Belís hefur verið
hafnað.
En þingmenn Verkamanna-
flokksins gátu ekki lengi velt sér
upp úr vandræðum íhaldsmanna.
Þegar lávarðalistinn var birtur,
þótti mörgum sem forsætisráð-
herrann hefði farið offari í að velja
jámenn sína á listann og einnig var
bent á, að þar væru ýmsir, sem
hafa lagt Verkamannaflokknum til
fé.
Báðir flokkar í súpunni
Þar með sátu báðir flokkarnir í
súpunni og fólk horfði agndofa á
aðfarirnar. Það má segja, að
almannarómurinn hafi eins og svo
oft áður kristallast í teikningu
Matt hjá The Daily Telegraph, þar
sem rúmföst móðir segir við börnin
sín tvö, sem hafa farið í bæinn og
Færeyskir kennarar í sínu fyrsta verkfalli
Skólastarfið að mestu
lamað í fímm vikur
Þórshöfn. Morgunblaðið.
ALLT skólastarf í Færeyjum hefur
nú verið lamað í meira en fimm vikur
vegna verkfalls kennara og litlar
vonir eru um, að það leysist í bráð.
Tilraunir sáttasemjara til að finna
einhverja lausn á deilunni hafa eng-
an árangur borið og í svipinn ræðast
deiluaðilar ekki við, fulltrúar kenn-
arasambandsins og landsstjórnar-
innar. Þetta er fyrsta verkfallið í
sögu færeysku kennarasamtakanna
en kennarar krefjast þess að fá sömu
launahækkun og aðrir opinberir
starfsmenn hafa fengið og auk þess,
að þeim verði greitt fyrir þá auknu
vinnu, sem kveðið er á um í nýjum
skólalögum. Þá vilja þeir, að vinnu-
tíminn verði styttur. Viðsemjandi
þeirra, Karsten Hansen, sem fer
með fjármálin í landsstjórninni,
svarar því til, að landsstjómin og
samfélagið hafi ekki efni á að verða
við þessum kröfum.
Verkfallið nær ekki til kennara,
sem eru í bandalagi opinberra starfs-
manna, en félagar í kennarasam-
bandinu hafa komið í veg fyrir, að
þeir geti stundað sitt starf með því
setjast upp í skólunum. Vegna þessa
ástands er nú farið að horfa illa með
prófin, einkum hjá elstu nemendun-
um, sem hafa fylkt liði til að mót-
mæla því, að þeir skuli vera hafðir
sem eins konar gíslar í þessari deilu.
Einn lögþingsmaður, Jákup
Sverri Kass í Sjálfstýriflokknum,
ætlar að taka máUð upp á þingi og
leggja til, að deilan verði leyst með
lögum. Anfinn Kallsberg lögmaður
er hins vegar andvígur því.
Elsa Birgitte Petersen, formaður
Kennarasambandsins, segir, að fær-
eysku kennararnir hafi fengið mik-
inn stuðning frá starfssystkinum sín-
um á Norðurlöndum. Eigi það ekki
síst við um íslensku kennarana, sem
hafi veitt þeim ríflegan fjárstuðning.
„Ég ætla ekki að nefna upphæðina
en hún var há. Við fengum hana fljót-
lega eftir að verkfallið hófst og það
kom sér vel,“ segir Petersen.
keypt blóm handa mömmu: „Blóm!
Þið áttuð að kaupa lávarðartign
handa mér!“
Og í bréfi, sem birtist í The
Times orðar Tony Booth, tengda-
faðir forsætisráðherrans, þetta á
þá leið, að með því að fella erfða-
réttinn í lávarðadeildinni úr gildi,
hafi brautin aðeins verið rudd fyrir
strengjabrúður Tonys og peninga-
menn Williams.
Og hann bendir á, að ef ríkis-
stjórn Verkamannaflokksins hefði
staðið við loforð flokksins um rót-
tækar breytingar í átt til hlutfall-
skosninga með breytingum á lá-
varðadeildinni í kjörna þingdeild,
hefði hún forðað þjóðinni frá því að
horfa upp á þetta ógeðfellda sjón-
arspil.