Morgunblaðið - 14.04.2000, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. APRÍ L 2000 31
ERLENT
Rannsókn þýzka þingsins á leynireikningahneyksli CDU
Schauble endurtek-
ur ásakanir á hend-
ur fv. gjaldkera
Scháuble og Baumeister hugsanlega yfirheyrð saman í dag
Reuters
Bólivískur Iögreglumaður skýtur táragasi að námsmönnum, sem efndu
til mótmæla í höfuðborginni, La Paz, í fyrradag.
Sex manns létu lífíð í átökum í Bólivíu
Mótmæli vegna
hærri vatnsskatts
La Paz. AP, AFP.
MIKIL spenna hefur verið í Bólivíu
síðustu daga, einkum í höfuðborg-
inni, La Paz, og Cochabamba og ná-
grenni, vegna fyrii'hugaðrar hækk-
unar á vatnsskatti. Mótmæli og átök
um síðustu helgi kostuðu sex menn
lífið og a.m.k. 40 særðust.
Um 10.000 bændur, margir vopn-
aðir sveðjum, streymdu til Cocha-
bamba á mánudag en þá hafði ríkis-
stjómin lýst yfir neyðarástandi í
borginni og gefið hernum aukin völd
til að kveða niður mótmæli. Jafn-
framt féllst stjómin á að endurskoða
aðild að mjög dýmm vatnsveitu-
framkvæmdum en þær átti að fjár-
magna m.a. með hærri vatnsskatti.
Við það dró úr spennunni og mót-
mælendur fóm að snúa aftur til síns
heima. I gær vom skólar og verslan-
ir opnuð aftur.
Astandið í vatns- og skolpræsis-
málum í Cochabamba, sem er við
rætur Andesfjalla, er mjög slæmt og
var fyrirhugað að ráðast í miklar
íramkvæmdir til að bæta úr því. Um
leið átti að hækka vatnsskattinn, eða
á bilinu 20 til 80%. Olli það mikilli
óánægju og mótmælum, sem beind-
ust einnig að atvinnuleysi, háu elds-
neytisverði og öðmm þrengingum.
Segir eiturlyQasala
kynda undir
Ronald MacLean, upplýsingamál-
aráðherra Bólivíu, sakaði fyrr í vik-
unni eiturlyfjasala um að hafa kynt
undir mótmælunum. Sagði hann, að
þeir vildu stöðva áætlanir stjórn-
valda um að uppræta kókaakrana,
uppsprettu kókaínframleiðslunnar.
Hefur sú áætlun svipt marga bænd-
ur lífsviðurværi sínu og einkanlega í
nágrenni Cochabamba.
Alþjóðlegt iyrirtæki í eigu Breta,
Spánverja og Bólivíumanna ætlaði
að annast vatnsveituframkvæmdirn-
ar í samræmi við ný lög um einka-
væðingu vatns- og skolpræsislagna.
Talið er, að það kosti stjórnvöld á
áttunda hundrað milljóna króna að
hætta við þær.
Berlín. Morgunblaðið.
WOLFGANG Scháuble, fyrrverandi
flokksformaður kristilegra demó-
krata í Þýzkalandi (CDU), endurtók
í gær ásakanir í garð fyrrverandi
gjaldkera flokksins, Brigitte Bau-
meister, í vitnisburði sínum fyrir
sérskipaðri rannsóknamefnd þýzka
þingsins. Nefndin hefur það hlutverk
að rannsaka hvort tengsl hafi verið á
milli leynilegra fjárframlaga í sjóði
CDU á síðustu valdaámm Helmuts
Kohls, fýrrverandi kanzlara, og póli-
tískra ákvarðana ríldsstjómar hans.
Útlit var fyrir það í gær að Scháuble
yrði stefnt aftur fyrir nefndina í dag,
á sama tíma og Baumeister, og þau
yrðu yfirheyrð saman.
Misræmi í frásögnum Scháubles
og Baumeister af því hvemig 100.000
marka fjárframlag frá vopnakaup-
manninum Karlheinz Schreiber
barst í sjóð CDU haustið 1994 var
eitt veigamesta atriðið sem varð til
þess að Seháuble sagði af sér flokks-
embættum sínum í febrúar sl.
Fulltrúar Jafnaðarmannaflokks-
ins, SPD, í nefndinni boðuðu í gær að
þeir myndu fara fram á að Scháuble
yrði kallaður aftur fyrir nefndina í
dag, þrátt fyrir að hann hafi í gær
setið í fjóran og hálfan tíma fyrir
svömm hennar. Baumeister hafði
áður verið boðuð á fund nefndarinn-
ar í dag. Að viðbættum stuðningi
fulltrúa græningja var búizt við því
að meirihluti yrði iyrir því að þau
yrðu látin bera vitni samtímis.
Scháuble mótmælti þessum
áformum. I vitnisburði sínum í gær
ítrekaði hann fyrri frásögn sína þess
efnis að hann hefði hinn 22. septem-
ber 1994 - er kosingabaráttan fyrir
Scháuble fyrir rannsóknar-
nefnd þýzka þingsins í gær.
þingkosningar þá um haustið var í
hámarki - tekið við 100.000 marka
framlagi í reiðufé frá Karlheinz
Schreiber. Þetta fé hafi hann síðan
látið Baumeister í hendur. Hún hef-
ur hins vegar haldið því fram, að hún
hafi í október 1994 tekið í Bæjara-
landi við umslagi frá Schreiber með
100.000 mörkum. Þetta umslag hafí
hún síðan fengið Scháuble.
Scháuble bar fyrir rannsóknar-
nefndinni að sér væri hulin ráðgáta
hvers vegna Baumeister héldi fast
við þessa frásögn sína. Hann vildi
heldur ekki velta vöngum yfir því op-
inberlega hvað henni gengi til með
því.
Hann sæi heldur ekkert vit í írá-
sögn hennar; hefði hún látið sig fá
þessa peninga hefði hann spurt: „Til
hvers ertu að láta mig fá þetta?
Þú ert gjaldkerinn."
Seháuble, sem þar til fyrir nokkr-
um vikum var bæði flokksleiðtogi og
formaður þingflokks CDU, lítur svo
á að hann hafi orðið fórnarlamb ein-
hvers konar samsæris. Sagði hann
að málið minnti sig sterklega á Bar-
schel-hneykslið svokallaða, sem árið
1987 varð til þess að Uwe Barschel,
þáverandi forsætisráðherra Slésvík-
ur-Holtsetalands, neyddist til að
segja af sér.
Scháuble staðfesti í vitnisburði
sínum að hann hefði lýst því yfir í
samtali við Helmut Kohl fyrir afsögn
sína í febrúar, að hann tryði því ekki
að gefendur nafnlausra leynifram-
laga, sem Kohl hefur sagzt hafa tekið
við, væru í rauninni til.
Kiep sagður hafa talað
máli Schreibers
Dagblaðið Bild vitnaði í gær í bréf
sem Walter Leisler Kiep, annar fyrr-
verandi gjaldkeri CDU, kvað hafa
sent Kohl, þar sem hann, Kiep,
hvatti til þess að stjómin styddi út-
flutning þýzkra „Fuchs“-bryndreka
til Sádi-Arabíu, að beiðni Karlheinz
Schreibers. Að sögn Bild kvittaði
Kohl á bréfið með athugasemdinni
„athuga og taka afstöðu til“ og vísaði
því til Friedrichs Bohls, þáverandi
yfirmanns kanzlaraembættisins.
Haft var eftir Kohl í gær að
Schreiber hefði ekki haft nein áhrif á
ákvörðunina um að heimila útflutn-
ing bryndrekanna. Hann neitaði því
hins vegar ekki að bréfið væri til.
Volker Neumann, formaður rann-
sóknamefndarinnar, staðfesti einnig
að bréfið væri til, en það væri trúnað-
armál. Scháuble útilokaði í vitnis-
burði sínum að framlög í flokkssjóð-
inn hefðu nokki’u sinni haft áhrif á
ákvarðanir ríkisstjórnarinnar.
Staða Prodis iiinan framkvæmdastj órnarinnar sögð veik
Orðrómi um hallarbylt-
ingu vísað á bug
NEIL Kinnock, annar
fulltrúa Breta í fram-
kvæmdastjórn
Evrópusambandsins,
vísaði í gær á bug orð-
rómi um að til stæði að
velta Romano Prodi,
forseta framkvæmda-
sljórnarinnar, úr
sessi.
Sagði Kinnock að
grein í þýska dag-
blaðinu Frankfurter
Allgemeine Zeitungí
siðustu viku um yfir-
vofandi hallarbyltingu
væri „kjaftæði".
í greininni voru
nefndir tveir hugsanlegir arftakar
Prodis, þeir Chris Patten, sem fer
með utanríkismál, og Kinnock, en
hann fer með málefni stjómsýsl-
unnar í framkvæmdastjórninni.
Kinnock sagði að það væri fárán-
legt að halda því fram að verið væri
að grafa undan Prodi. Hann væri
virkur og hæfur forystumaður
framkvæmdastjórnarinnar. „í ein-
staka aðildarríkjum má finna
menn, sem af öðrum ástæðum vilja
ráðast á Evrópu og það leiðir til
árása á framkvæmdastjórnina og
Prodi.“
Margir hafa undanfarna daga
velt vöngum yfír stöðu Prodis.
Þýska tímaritið Der
Spiegel birti fyrir
skömmu grein þar sem
Prodi er lýst sem
„mest einmana mann-
inum í Brussel". Þar
voru talin upp íjöl-
mörg stefnumál Prod-
is, sem fengið hafa
óblíðar móttökur hjá
leiðtogum ESB-
ríkjanna. Ekki bætti
síðan úr skák er
Frankfurter AU-
gemeine Zeitung birti
á forsíðu sinni grein
þar sem því var haldið
fram að Prodi þætti
aumur leiðtogi og að valdabarátta
væri ylírvofandi innan fram-
kvæmdastjórnarinnar. Voru Bret-
arnir tveir í framkvæmda-
stjórninni, Kinnock og Patten,
sagðir fúsir til að taka við stjórn-
inni. Talsmaður framkvæmda-
stjórnarinnar vísaði þessum full-
yrðingum þegar í stað á bug og
sagði það vera fyrir neðan virðingu
dagblaðs á borð við FAZ að birta
vangaveltur af þessu tagi.
Lokaður fundur
án embættismanna
Hins vegar vakti það athygli að
Prodi kallaði skömmu síðar fram-
kvæmdastjórnina á lokaðan fund án
þess að nokkrir embættismenn
væru til staðar. Ekki einu sinni
túlkar sátu fundinn og eru mjög fá
fordæmi fyrir slíku í sögu fram-
kvæmdastjórnarinnar. Ricardo
Levi, talsmaður Prodis, sagði að
fundinum loknum að hann hefði
einkennst af samstöðu en flestir
sérfræðingar töldu engu að síður
að það væri merki um taugaveiklun
að boða til fundarins á annað borð.
Þá virðist, að sögn BBC, sem
Prodi hafi verið ráðlagt að tjá sig
einungis á sinni eigin tungu, ít-
ölsku, þar sem mál hans þykir oft
verða óljóst og ruglingslegt er
hann tjáir sig á ensku eða frönsku.
Sjálfur hefur Prodi lýst þessu máli
öllu sem „stormi í tebolla" og segist
ætla að sitja sem fastast, enda mik-
ilvæg verkefni framundan hjá
framkvæmdastjórninni.
Þegar blaðamenn gengu á hann á
blaðamannafundi (síðustu viku og
spurðu hvort eitthvað væri hæft í
því að þrýst væri á hann að segja af
sér svaraði hann einfaldlega: „Eruð
þið hálfvitar?" Síðar sagði hann að
hann teldi málið allt hafa styrkt
stöðu sína og einnig hafa nokkrir
leiðtogar ESB-ríkja, þ.á m. Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands,
lýst opinberlega yfir stuðningi við
Prodi.
Romano Prodi
HÚSASMIÐJAN
Stmi 525 3000 • www.husa.is