Morgunblaðið - 14.04.2000, Page 32

Morgunblaðið - 14.04.2000, Page 32
32 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Ásdís Rico Saccani hljómsveitarsljóri drekkur tónlist meistara Verdis í sig á æfingu í Háskólabíói. TÓNLIST SEM GRÍPUR HJARTAÐ Mezzósópransöngkonan Ildiko Komlosi er frá Ungverjalandi. Sinfónmhljómsveit ís- lands, einsöngvarar og -----7---------------- Kór Islensku óperunnar flytja Sálumessu Gius- eppes Verdi á Páskatón- leikum í Háskólabíói í kvöld kl. 20 og á morgun kl. 16. Orri Páll Ormarsson heyrði hljóðið í stjórnandanum, Rico Saccani, og Krist- jáni Jóhannssyni tenór- söngvara sem raunar gekk úr skaftinu á elleftu stundu vegna veikinda. SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands er eins og veðrið á norðurslóð - engin logn- molla. Það fer því vel á að hún leggi til atlögu við tvö af þrek- virkjum meistara Verdis, verk átaka og tilfinninga, í íslenskum tónleika- sölum á þessu vori - vori sem lengi verður minnst, fyrir umhleypinga og æðibunugang í Kára. Fyrst var það Alda í Laugardalshöll og nú Sálu- messan í Háskólabíói. Það er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Þannig er Sinfónían. „Sálumessa Verdis er að mínu mati fremsta tónverk sinnar tegund- ar sem samið hefur verið - meistara- verk. Það er raunar ekki hægt að bera hana saman við Sálumessu Mozarts en Verdi segir meira á níu- tíu mínútum en önnur tónskáld á heilu klukkutímunum,“ segir Rico Saccani, aðalhljómsveitarstjóri Sin- fóníuhljómsveitar íslands, sem stjórna mun flutningnum. Kí'istján Jóhannsson er á sama máli. „Sálumessan er yndisleg tónlist - grípur hjartað. Hún er líka öðruvísi en margar þessar messur, melódísk og með aríum fyrir alla fjóra ein- söngvarana, sem er einstakt. Helst að Stabat Mater eftir Rossini sé í þessa veru. Það er mikil tilbreyting í þessu verki, hraðabreytingar og ann- að. Sálumessan er litríkt verk, meist- araverk í orðsins fyllstu merkingu." - Nú voru undirtektir dálítið mis- jíifnar þegar verkið var frum- flutt á sínum tíma. „Er það ekki alltaf þegar meistaraverk eru annars vegar? Menn eru hræddir og fullir efa í fyrstu, til dæmis var púað á margar óperur Verdis þegar þær voru frumfluttar, en í dag gætu menn ekki lifað án þeirra. Sama má segja um Wagner og Puccini. Síðan var Verdi sífellt að koma á óvart, fór til dæmis að skrifa gaman- óperu kominn á grafarbakkann," segir Kristján. Veisla fyrir söngvarana Saccani segir verkið veislu líkast fyrir einsöngvarana fjóra og kórinn. „Verkið er frábærlega skrifað fyrir raddirnar. Þá þurfa söngvararnir ekki að hafa áhyggjur af leikrænni tjáningu, hreyfingu og búningum - geta einbeitt sér alfarið að tónlist- inni, fegurð hennar og ástríðu. Það er valinn maður í hveiju rúmi, fjórir einsöngvarar í fremstu röð, að ógleymdum Kór Islensku óperunn- ar. Hann er sem íyrr frábær og ég fæ ekki fullþakkað Garðari Cortes kór- stjóra hans framlag. Enn og aftur sannar hann hæfni sína á sviði söng- þjálfunar. Ber ægishjálm yfir aðra á Islandi hvað það varðar.“ Tenórhlutverkið er stórt og álítur Kristján að það sé dramatískt. „Það þarf mikla þykkt í þetta, en um leið mýkt, alveg niður í pianissimo, eins og Ótelló krefst líka. Sálumessan er semsé ekki fyrir lýrískan tenór held- ur dramatískan. Besti tenór sem ég hef heyrt gera þetta er stórvinur minn Carlo Coss- utta, en hann lést skyndilega úr hjartaslagi fyrir hálfum mánuði, ekki sjötugur. Blessuð sé minning hans. Við bárum mikla virðingu hvor fyrir öðrum. Besta hljóðritun sem ég hef heyi't á Sálumessunni var sú sem hann gerði með von Karajan 1971 eða ’72. Cossutta var líka frábær Ót- elló. Eg söng síðast með honum fyrir þremur árum og þá var hann í fullu fjöri. Eg held hann hafi verið að syngja fram undir það síð- asta, hann var frábær söngvari og góður vinur.“ Flutningurinn verður hljóðritaður með alþjóðadreif- ingu í huga, með- al annars í Bandaríkjunum. „Við höfum hugsað okkur að nota geislaplötuna með Sálumess- unni meðal annars til að plægja ak- urinn vestra fyrir tónleikaferð okkar í haust,“ segir Saccani. Hann segir vitaskuld eftirsjá í Kristjáni en við veikindi verði ekki ráðið. „Þetta eru vonbrigði fyrir hann og aðdáendur hans. Röddin er hins vegar viðkvæmt hljóðfæri og veikindi geta alltaf komið upp á. Eg get sveiflað sprotanum þó ég sé með hálsbólgu en söngvarar geta ekki sungið þannig á sig komnir. Við því er ekkert að gera.“ Og stjórnandinn stappaði stálinu í söngvarann. „Ég sagði honum að hafa ekki áhyggjur af þessu. Nú var bara röðin komin að honum að fá í hálsinn. Menn storka ekki örlögun- um. Það er heldur ekki eins og þetta sé eina tækifæri íslendinga til að hlýða á Kristján. Hann er mjög dug- legur að syngja á heimaslóð og er næst væntanlegur í júní til að syngja á stórtónleikum í Laugardalshöll. Ef ég þekki hann rétt, bætir hann fólki þetta upp þar, ríflega." Kristján er líka, þrátt fyrir veik- indin, kominn með fiðring í magann. „Svo sannarlega, þetta verður mikil hátíð, landsliðið svokallaða saman- komið. Þetta verður í fyrsta sinn sem ég syng með Rannveigu Fríðu [Bragadóttur mezzósópran- söngkonu] enda syngjum við mjög ólíkt fag. Það er helst að koma okkur saman á svona tónleikum. Ég hef heldur ekki sungið með Kristni vini mínum [Sigmundssyni bassasöngv- ara] eftir að hann gerðist bassi fyrir alvöru. Diddú [Sigrúnu Hjálmtýs- dóttur sópransöngkonu] hef ég raun- ar oft sungið með og það hefur alltaf verið jafn ánægjulegt, þótt við séum fremur langt hvort frá öðru, hún lýr- ískur sópran og ég að verða þessi skriðdreki.“ Maðurinn sem leysa mun Kristján af hólmi á tónleikunum, brást skjótt við, heitir Gianni Mongiardino og er frá Italíu. Mongiardino er ungur að árum, hefur verið nemandi Carlos Bergonzis og unnið til verðlauna á fjölmörgum söngkeppnum undan- farið. Samkvæmt beiðni Ricardo Mutis var hann staðgengill Plácido Domingos á Listahátíðinni í Ravenna á síðastliðnu ári. Sigldir gestir Auk hans syngja þrír nafnkunnir einsöngvarar á tónleikunum; Georg- ina Lukács, Ildiko Komlosi og Edward Crafts. Ungverska sópransöngkonan Georgina Lukács nam píanóleik og söng við Tsjajkovskíj tónlistarakade- míuna í Moskvu. Tvítug að aldri kom hún fram í fyrsta sinn á óperusviði hjá Þjóðaróperunni í Budapest í hlutverki Leonóru í II trovatore eftir Verdi. Eftir þá frumraun stóðu henni flestar dyr opnar. Hún söng í óper- unni Vald örlaganna á listahátíð í Aþenu, í Tosca eftir Puccini í Basel og Linz, og Þýska óperan í Berlín réð hana í hlutverk Desdemónu í nýrri uppfærslu á Óþelló. Þýska óperan endurréði hana síðan til að syngja í Tosea og var hún við það tækifæri yngsta söngkonan til að taka það hlutverk að sér við óperuhúsið. Auk ofangreindra óperuhúsa hefur Luk- ács sungið í Vínaróperunni, í Covent Garden-óperunni í London, í Karlsruhe, við Kölnaróperuna og San Francisco-óperuna. Sálumessu . Verdis hefur hún sungið undir stjórn Rafael Frúhbeck de Burgos í Berlín og Bern og ennfremur undh' stjórn Colin Davis í Barbican Center í Lon- don. A síðasta starfsári hefur hún sungið aðalsópranhlutverkið í mörg- um óperuhúsum á meginlandinu, m.a. í nýrri uppfærslu á Valdi örlag- anna við La Scala-óperuna í Mílanó, undir stjóm Ricardos Mutis. Söngferill ungversku mezzósópr- ansöngkonunnar Ildiko Komlosi hófst þegar hún vann í hinni alþjóð- legu Luciano Pavarotti-söng- varakeppni árið 1986. f beinu fram- haldi af þeim sigri var henni falið að syngja mezzósópran hlutverkið í Sálumessu Verdi með Pavarotti und- ir stjórn Lorins Maazels. Tilboð um óperuhlutverk bárust Komlosi frá þekktustu ópemhúsum heims þar sem hún tókst á við flutning helstu hlutverka óperutónmenntanna fjrír hennar raddsvið. Meðal þeirra óp- eruhúsa í Evi'ópu sem Komlosi hefur sungið í má m.a. nefna óperuhúsið í Frankfurt, Stuttgart, Brussel, Lon- don, París, Hamborg, Vín og La Scala og í Bandaríkjunum óperuhús- ið í New York, Houston, Fíladelfíu og Cleveland. Af óperum sem hún hefur sungið í má nefna Carmen, Ariadne auf Naxos, Der Rosenkaval- ier, Jeanne d’Arc, Don Carlos, Barbe Bleue, Lucrezia Borgia auk fjölda annarra. A þessu starfsári hefur Komlosi sungið í Trieste, La Scala, í Mannheim (með Editu Gruberovu), Vín og Hamborg. Bassa-barítonsöngvari Metropol- itan-óperunnar Edward Crafts er talinn vera í fremstu röð á sínu sviði. Tónlistargagnrýnandi Los Angeles Times kallar hann „fullkomlega sannfærandi og gefandi söng-leik- ara“ auk þess sem hann er sagður vera „sannur hetjubaríton“ hins hefðbundna þýska skóla. Meðal hlut- verka sem hann hefur sungið í bandarískum óperuhúsum eru hlut- verk Donners í Das Rheingold eftir Wagner, hlutverk Sarastros í Töfra- flautunni, Colline í La Boheme og Commendatore í Don Giovanni. Af öðrum Wagnerhlutverkum hans má nefna Wotan, Kurvenal, Hollending- inn, Orsini og hlutverk Jokanaans í óperu Richards Strauss, Salome. Auk þeirra óperuhlutverka sem Crafts hefur sungið hefur hann sungið á tónleikapalli í sálumessu Brahms, Britten og Verdi, í Missa Solemnis, níundu sinfóníu Beethoven og áttundu sinfóníu Gustavs Mahler. Tónleikarnir eru liður í dagskrá menningarborgarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.