Morgunblaðið - 14.04.2000, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 14.04.2000, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. ÞEKKINGAR- ÞJÓÐFÉLAGIÐ UMMÆLI Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra á ársfundi Rannsóknarráðs íslands í fyrradag um grunnrannsóknir og fjármögnun þeirra voru ánægjuleg. Kvaðst hann telja að ríkinu bæri að leggja höfuðáherslu á að styrkja grunnrannsóknir og stuðla að menntun ungra vís- indamanna. Ennfremur sagði ráðherra: „Sé litið til þessara tveggja höfuðþátta yrði hlutverk ríkisins annars vegar að fjármagna öfluga sjóði til að styrkja grunnrannsóknir og hins vegar að stuðla að meistara- og doktorsnámi á háskóla- stigi. Aðrir þættir rannsókna- og þróunarstarfs hvíldu á herðum einkaaðila eða sjóða, sem veita fé til nýsköpunar og áhættufjárfestinga." Þetta er sami skilningur á hlutverki ríkisins í fjármögnun rannsókna og margir aðrir hlutaðeigandi aðilar hafa haldið fram. Hér var til dæmis fyrir nokkru bent á nýja og athygl- isverða skýrslu Ingu Dóru Sigfúsdóttur félagsfræðings og Þórólfs Þórlindssonar, prófessors við Háskóla Islands, þar sem fram kemur að framlög til rannsóknastarfs hafa aukist hérlendis á síðustu árum en áherslan verið á hagnýtar rann- sóknir. Ummæli menntamálaráðherra í fyrradag benda til þess að aukin áhersla verði lögð á framlög til grunnrannsókna en áður. En jafnframt er það fagnaðarefni, að hér eru að koma til sögunnar fyrirtæki, sem leggja mikla fjármuni í rannsóknir, þótt engin vissa sé fyrir hendi um, að það fjármagn skili sér síðar meir. Það á ekki sízt við um Islenzka erfðagreiningu, sem hefur gjörbreytt öllum viðhorfum hér til rannsóknar- starfa enda er fyrirtækið sjálft risastór rannsóknarstofa, a.m.k. á íslenzkan mælikvarða og þótt víðar væri leitað. Hitt atriðið sem ráðherra benti á, menntun ungra vísinda- manna með eflingu meistara- og doktorsnáms, er lykillinn að því þekkingarþjóðfélagi sem víða er nú lögð höfuðáhersla á að skapa. Á fundinum var bent á hættumerki sem væru á lofti hér um ungt fólk í vísindum. Framhaldsskólinn virtist til að mynda ekki veita nægilega góðan undirbúning fyrir nám í raunvísindum sem væri ástæða þess að of fáir legðu slíkt nám fyrir sig. Að auki leitaði ungt menntafólk í annað en að fást við grunnvísindin, þekkingarsköpunina sjálfa. Var bent á að það þyrfti að markaðssetja nauðsyn menntun- ar almennt á yngri skólastigum til að byggja upp íslenskt þekkingarþjóðfélag. Grundvallaratriði er þó að það er sameiginlegt verkefni ríkis og atvinnulífs að styrkja þannig menntakerfi og vís- indastarf í landinu að íslendingar verði áfram framsækin og skapandi þjóð. BJARTAR HORFUR SKÝRSLA Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um stöðu efnahags- mála í heiminum gefur ástæðu til bjartsýni. Horfur í efna- hagsmálum eru bjartar nánast hvert sem litið er í heiminum og virðist fátt benda til annars en að svo muni verða áfram næstu misseri. Fyrst og fremst er það hinn mikli kraftur, er einkennt hefur bandarískt efnahagsltf, sem veldur þessu. Þrátt fyrir að reglulega hafí þar í landi komið upp hrakspár um að kollsteypa væri handan homsins, eru engar vísbendingar enn sem komið er um að eitthvert lengsta hagvaxtartímabil þessarar aldar sé að renna skeið sitt á enda. Spá skýrsluhöfundar því að alþjóð- legur hagvöxtur í heiminum verði 4,25% á þessu ári að meðal- tali. Það er þó áhyggjuefni að þessi mikli vöxtur nær ekki til fá- tækari ríkja í sama mæli og þeirra ríku og hafa forráðamenn IMF og Alþjóðabankans lýst því yfir að það verði eitt af helstu verkefnum ársfundar þessara stofnana á sunnudag að finna leiðir til að innlima fátækustu svæði heims inn í hið alþjóðlega hagkerfi. Hefur James Wolfensohn, bankastjóri Alþjóðabank- ans, bent á að lítið dugi að aðstoða þessi ríki við að auka fram- leiðslu sína ef markaðir iðnríkjanna eru lokaðir fyrir afurðum þeirra. Það hlýtur því að vera ein helsta forsenda árangurs á þessu sviði að iðnríkin dragi úr hömlum og tollavemd til að auð- velda innflutning frá þróunarríkjum. Einnig er athyglisvert að skýrsluhöfundar benda á að ofmat á hlutabréfum, ekki síst í Bandaríkjunum, auki hættuna á harkalegum sveiflum á fjármálamörkuðum. Þær breytingar, sem orðið hafa á gengi tæknifyrirtækja á Nasdaq undanfamar vikur, em vísbending um þetta. Fjárfestar virðast margir orðn- ir uggandi yfir himinháu gengi hlutabréfa fyrirtækja er mörg hver hafa aldrei skilað krónu í hagnað. Eflaust eiga slík varnað- arorð einnig við hér á landi. Þrátt fyrir allar þær breytingar er kunna að felast í tilkomu hins nýja hagkerfís, breytist vart sú staðreynd að þegar upp er staðið verða fyrirtæki að skila hagn- aði, eigi þau að vera arðbær fjárfesting tíl lengdar. Samningar Verkamannasambandsins og Landssam atvinnulífsins til tæplega fjögurra ára und FRÁ undirritun samninga í gærmorgun. Talin frá vinstri Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, ) skrifstofustjóri ríkissáttasemjara, Þórir Einarsson, ríkissáttasemjari, Snær Karlsson, hjá Verkamannasambandinu, ( Lægstu laun hi 34,5% á samning Verkfalli frestað til miðnættis ac ÝIR kjarasamningar Verkamannasambands íslands og Landssam- bands iðnverkafólks við Samtök atvinnulífsins til næstu tæpra fjögurra ára voru undirritaðir snemma í gærmorgun eftir nætur- langan fund og hefur verkfalli aðild- arfélaga sambandanna, sem hófst á miðnætti í fyrrinótt, því verið frest- að til miðnættis aðfaranætur 4. maí. í millitíðinni verða atkvæði greidd um kjarasamninginn og verða at- kvæði talin í hverju félagi fyrir sig. Talning atkvæða fer fram 29. apríl næstkomandi. Launakostnaðarauki samfara samningnum er talinn nema 19,8% á samningstímanum, sem er ríflega einu prósentustigi hærra en í samningum Flóabanda- lagsins, en samningurinn er til nokkuð lengri tíma eða til ársloka árið 2003. Samningurinn gildir frá 1. apríl til ársloka 2003, eins og fyrr sagði, og felur í sér meðal annars að lægsti launataxti hækkar á samn- ingstímanum um 34,5%. Samið er um uppbyggingu nýrrar launatöflu í stað gamla kauptaxtakerfisins, sem samninganefnd VMSÍ telur að komi til með að hafa jákvæð áhrif á kjör verkafólks, en markmiðið með nýju launatöflunni sé að auka sveigjan- leika og launaskrið sem geti skilað sér til verkafólks í formi tilfærslna milli launaflokka og starfsaldurs- þrepa. Við undirskrift samningsins hækka laun um 3,9-8,9%, auk til- færslna í launaflokkum. Hinn 1. jan- úar 2001 hækka laun um 3-6,5% og sambærileg hækkun verður í árs- byrjun árið 2002 og loks hækka laun um 2,75-5,75% hinn 1. janúar árið 2003. í kjarasamningnum er kveðið á um tekjutryggingu sem tryggir verkafólki 18 ára og eldra að lág- marki 77 þús. kr. í laun fyrir dag- vinnu frá undirritun. Tekjutrygg- ingin hækkar í 85 þús. 1. jan. 2001, í 90 þús. 1. jan. 2002 og í 93 þús. hinn 1. janúar 2003. Þá er í samningnum gert ráð fyr- ir að 140 milljónir króna verði lagð- ar í sérstakt starfsmenntaverkefni, en samningsaðilar lýsa sig sammála um að sérstakt tillit verði tekið til meiri kostnaðar vegna starfsmenn- tunar á landsbyggðinni. Samið er um viðbótarframlag í líf- eyrissjóð og getur launamaður ákveðið hvort framlagið fer í sam- eignar- eða séreignarsjóð. Orlofs- réttur eykst eftir tíu ára starf úr 27 dögum í 28 daga og orlofsprósenta hækkar úr 11,59% í 12,07%. Ákvæði er um viðbótarrétt vegna veikinda í orlofi á EES-svæðinu og veikinda- réttur verður tveir mánuðir eftir tveggja ára samfellt starf, þar af einn mánuður á staðgengilslaunum og einn mánuður á dagvinnulaunum. Veikindarétturinn lengist síðan aft- ur um einn mánuð eftir fimm ára samfellt starf. Þá er réttur vegna veikinda barna aukinn og slysa- og örorkubætur hækka, auk margra annarra atriða. Starfsaldursþrepum fiskvinnslufólks fjölgar Einnig er í samningunum að finna sérákvæði sem varða einstaka starfshópa. Þannig kemur sérstök launahækkun til sérhæfðs fisk- vinnslufólks með langa starfs- reynslu, starfsaldursþrepum þess er fjölgað um þrjú, úr tveimur í fimm, samkomulag er um frekari þróun starfsmenntunar fiskvinnslufólks og fleira. Sérákvæði er einnig að finna hvað varðar kjör ræstingafólks, starfsfólks í mötuneytum, bygginga- verkamanna, bifreiða- og tækjast- jórnenda, hópferða- og sérleyfisbfl- stjóra, vaktmanna, starfsfólks í sláturhúsum, starfsfólks í veitinga- og gistihúsum og bensínafgreiðslu- fólks. Sambærileg tryggingaákvæði eru í þessum samningi og í samningum Samtaka atvinnulífsins við Flóa- bandalagið. í frétt frá VMSÍ og LI segir að það sé ljóst að samningur- inn feli ekki í sér þær launahækkan- ir sem krafist hafi verið. „Það er hins vegar mat samninganefndar- innar að lengra hafi ekki verið kom- ist. Náðst hefur verulegur árangur varðandi hækkun lægstu launa og ný launatafla og tilfærslur í launa- flokkum færa fjölmörgum einstakl- ingum umtalsverðar kjarabætur," segir ennfremur. Sáttur í Ijósi aðstæðna Hervar Gunnarsson, starfandi varaformaður Verkamannasam- bands íslands, sagði að hann væri sáttur við niðurstöðu samninganna í ljósi aðstæðna. Lengra hefði ekki verið hægt að ná án mikilla átaka og því hefði verið talið eðlilegt að leggja þetta fyrir í atkvæðagreiðslu meðal þeirra sem verið væri að semja fyrir. Hann ætti von á því að í heildina tekið yrðu samningamir samþykktir. Það væri hins vegar ekki óvanalegt að samningar væru felldir í einstaka félögum, en von- andi yrði það bara í undantekning- artilvikum, ef um það yrði að ræða. Hervar sagði aðspurður að það væri alveg rétt að þetta væri tals- vert langt frá því sem þeir hefðu ætlað sér að ná fram, en það mætti
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.