Morgunblaðið - 14.04.2000, Síða 47

Morgunblaðið - 14.04.2000, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 47 MINNINGAR + Hólmfríður Berg- þórsdóttir fædd- ist að Krókum í Þor- kelshólshreppi, V- Hún. hinn 26. maí, 1914 . Hún lést á Sól- vangi í Hafharfirði 5. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Elínborg Jó- hannsdóttir og Berg- þór Guðmundsson. Þau skildu. Eftir skilnað foreldra hennar ólst hún upp á Klömbrum V-Hún. hjá Guðmundi Guð- mundssyni föðurbróður sínum og Helgu Þórarinsdóttur konu hans. Eftir lát Guðmundar var Hólmfríð- ur árin 1922-28 á Tittlingastöðum (nú Laufás) Þverárhr., V-Hún. hjá Helgu og fóstursyni hennar Áma Guðjónssyni. Hún fór síðan að Kaupangi í Eyjafírði með þeim, en þaðan lá leiðin til Reykjavíkur. Fríða, eins og hún var alltaf köll- uð, giftist Þorsteini Agúst Jóns- syni, f. 11. ágúst 1914, d. 9. nóvem- ber 1966. Þorsteinn átti ættir að rekja til Jámgerðarstaða í Grinda- vík. Fríða og Þorsteinn eignuðust þijár dætur: Elín, f. 6. ágúst 1939, búsett í Reykjavík; Erla Jóna, f. 14. Bóndarósin hennar Fríðu tengda- móður minnar er að vakna af vetrar- dvalanum. Fríða ræktaði blómin sín undir húsveggnum í litla garðinum sínum í Ásgarði. Bóndarósin bar af öðrum blómum í garðinum. Fríða þurfti að yfirgefa heimili sitt eftir að sambýlismaður hennar til 25 ára ágúst 1943, búsett í Hafnarfirði, og Mar- grét, f. 12 júlí 1948, búsett í Bandaríkjun- um. Bamabörnin era fimm og barnabarna- börnin fimm. Elín- borg, móðir Fríðu, var í heimili hjá henni þar til hún lést ríflega rn'ræð. Upp úr 1970 tók Fríða upp sambúð með Sveini Sigurðs- syni frá Siglufírði og bjuggu þau saman þar til hann lést 1966. Sveinn og Fríða vora mjög samrýmd, höfðu ánægju af ferða- lögum og áttu góð ár saman með- an heilsan leyfði. Fríða vann með heimilisstörfum um ævina. Fyrir hjónaband vann hún við sjúkrahúsið Hvítaband á Skólavörðustíg. Hún tók heim sauma og varð eftirsótt, hún vann fyrir Alþingi við þrif í Þórshamri og var vel liðin af alþingismönnum sem hún kallaði strákana sína, hún pijónaði lopapeysur fram á síð- ustu ár. Útfór Hólmfríðar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Sveinn Sigurðsson lést árið 1996. Fyrst kom Fríða á heimili okkar Elínar og var það góður tími hjá okk- ur öllum. Það var eitthvað svo indælt að hafa hana. Það kom fyrir að Fríða þyrfti að vera ein þegar við hjónin og sonur okkar, Björn Þór, vorum að heiman. Þar kom að hún datt og lær- brotnaði og ljóst varð að betra yrði fyrir hana að vera á sjúkraheimili. Hún fékk inni á Sólvangi í Hafnar- firði og þar leið henni vel enda er þar frábært starfsfólk sem hugsaði vel um hana. Á það fólk bestu þakkir skildar. Garðurinn í Ásgarði fór í hálfgerða órækt og enginn bjó í húsinu í heilt ár. Það varð að samkomulagi við hin- ar dætur Fríðu, þær Erlu og Mar- gréti, að við Elín flyttumst í Ásgarð. I stað þess að hlúa að blómunum hennar Fríðu undir húsveggnum, voru þau nú tekin upp og þau sett ut- ar í garðinn. Þar voru þau látin dúsa í heilt ár á meðan gerður var trépallur með tilheyrandi skjólveggjum fast upp að húsveggnum. Þar sem enn leyndist líf með bóndarósinni var hún nú sett í veglegt leirker og flutt inn í skjólgarðinn. Og viti menn, í sumar sem leið kom hún með eitt stórkostlega fallegt blóm sem ég færði Fríðu að sjúkrabeði hennar á Sólvangi. Þá brosti hún blítt. Fríðu kynntist ég fyrst í kringum 1973. Þá var hún orðin ekkja, frá ár- inu 1966, eftir mann sinn Þorstein Ágúst Jónsson, en þau hjón höfðu eignast dæturnar þrjár þær Elínu, Erlu Jónu og Margréti. Elín bjó þá hjá móður sinni í Ásgarði með börnin sín tvö, þau Elísu Olöfu og Þorstein Ágúst. Um svipað leyti hafði Fríða kynnst sambýlismanni sínum Sveini Sigurðssyni. Sveinn var togarasjó- maður á þessum árum, greinilega mikill dugnaðarmaður. Fríða bjó honum gott heimili og Sveinn fór í land og fór að vinna í Áburðar- verksmiðjunni en hann var vélvirki að mennt. Þau vora höfðingleg hjá þeim matarboðin í Ásgarðinum. Fríða verður jarðsett í gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu og á leiði hennar mun blómstra í sumar og næstu sumur hennar fallega bóndarós. Jón H. Björnsson. HÓLMFRÍÐUR BERGÞÓRSDÓTTIR ANNA SIGRÚN WIIUM KJARTANSDÓTTIR + Anna Sigrún Wii- um Kjartansdótt- ir fæddist í Hvera- gerði 19. mars 1972. Hún lést á Rigens- sjúkrahúsinu í Stav- anger 25. mars síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Hveragerðiskirkju 12. apríl. Mig langar til að minnast kærrar vin- konu minnar, Önnu Sigrúnar Wiium Kjartansdóttur. Anna var fyrsta vinkona mín, við kynntumst fjög- urra ára gamlar á leikskólanum í Hveragerði. Anna þekkti staðinn svo vel því Stebba frænka hennar var fóstra þar, hún sýndi mér leik- skólann og leiktækin og upp frá því passaði hún alltaf vel upp á mig. Við áttum góða æsku í Hveragerði. Anna var alltaf uppfinningasöm og hugmyndarík og við gátum dundað okkur endalaust sam- an. Þegar við vorum fjórtán ára segir Anna mér að hún og fjöl- skylda séu að flytja til Noregs, ég man enn þann dag í dag skýrt hvar við vorum stadd- ar þegar hún tilkynnti mér að hún væri að fara. Ég reyndi að sjálfsögðu að telja henni hugarhvarf því ekki vildi ég missa bestu vinkonu mína til Noregs en auðvitað réð ég engu um það. Við héldum auðvitað sambandi, skrifuðum hvor annarri löng bréf, ég heimsótti hana til Noregs og hún kom til íslands. En það sem var einkennandi, var að alltaf þeg- ar við hittumst, þó að bréfaskriftir dyttu stundum aðeins niður, þá var alltaf allt óbreytt á milli okkar. Anna var mjög hæfileikarík stelpa og skapandi. Þegar við vin- konurnar vorum unglingar vildum við allar verða fatahönnuðir en Anna Sigrún var sú eina sem stóð við það og lærði fatahönnun í Ósló. Anna var einstaklega smekkvís og var alltaf mjög smart. Ég frétti um jólin 1998 að Anna væri komin með krabbamein og þegar hún skrifaði mér um það þá gerði hún ekki mikið úr sínum veikindum þó að þau væru alvarleg og bar ekki vott um sjálfsvorkunn. Reyndar fékk hún mig til að trúa með bjartsýni sinni að hún væri ekki svo veik sem raun bar vitni. Það var mér og Patrick ómetanlegt að fá að hitta Önnu og Chris um síðustu jól, sérstaklega að sjá hvað hún átti góðan unnusta. Það var ekki fyrr en ég sá hana með eigin augum að ég gerði mér grein fyrir hvað hún var í raun og veru mikið veik en henni tókst að blekkja mig næð bjartsýni sinni og gleði. Ég minnist yndislegrar stelpu með söknuði í hjarta en minning hennar á eftir að lifa áfram sér- staklega þegar skoðaðar eru gaml- ar myndir af okkur. Eins og Anna Sigrún skrifaði mér einu sinni: „Vinur er það besta sem þú getur átt og það besta sem þú getur ver- ið.“ Ég votta Chris og fjölskyldu Önnu mína dýpstu samúð. Megi Guð gefa ykkur styrk í sorg ykkar. Megi Guðs englar vaka yfir þér, Anna mín. Hrafnhildur Linda. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. + Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, ANNA VIGDÍS ÓLAFSDÓTTIR, Miðleiti 7, Reykjavík, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund mið- vikudaginn 12. apríl. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 25. apríl kl. 13.30. Ólöf Vigdís Baldvinsdóttir, Kristinn R. Gunnarsson, Anna Vigdís Kristinsdóttir, Baldvin J. Kristinsson, Ragna S. Kristinsdóttir. + Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, HALLDÓRS BACHMANN, Grænumörk 5, Selfossi, fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 15. apríl kl. 15.30. Anna Marfa Guðmundsdóttir, Fjóla Bachmann, Vígsteinn Gíslason, Guðlaug Bachmann, Þórhallur Árnason, Rósa Bachmann, Sigurgeir Aðalsteinsson, Inga Lára Bachmann, Ólafur Haraldsson, Jónfna Bachmann, Eyþór Geirsson, Halldór Bachmann, Hanna Guðbjörg Birgisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Systir okkar og frænka, KRISTÍN RÓBERTSDÓTTIR frá Sigríðarstöðum í Ljósavatnsskarði, sem andaðist sunnudaginn 9. apríl sl., verður jarðsungin frá Hálsi í Fnjóskadal laugardaginn 15. apríl kl. 14.00. Arnfríður Róbertsdóttir, Kristján Róbertsson, systkinabörn og aðrir ástvinir. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ERNST P. SIGURÐSSON, Grænumörk 3, Selfossi, sem andaðist miðvikudaginn 5. apríl. verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 15. apríl kl. 13.30. Kristín M. Sigurðsson, Einar L. Gunnarsson, Margrét Sigurðsson, Baldur Jónasson, barnabörn og barnabarnabarn. + Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR, Raftahlíð 23, Sauðárkróki, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 15. apríl kl. 14.00. Jens Kristjánsson, Sigríður Jensdóttir, Emil Hauksson, Guðmundur Jensson, Sigríður Stefánsdóttir, Erlingur Jensson, Line-Maria Hansen og barnabörn. + Bróðir okkar og vinur, INGIMUNDUR H. KRISTJÁNSSON frá Svignaskarði, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju laugar- daginn 15. apríl kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Dval- arheimili aldraðra, Borgarnesi. r*- Vandamenn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu við fráfall bróður okkar, SIGURBJÖRNS GUÐLAUGSSONAR. Sérstaklega þökkum við þá miklu og margvíslegu aðstoð, hjálpfýsi og góðvild er okkur var sýnd. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd systkina hins látna, Lilja Guðlaugsdóttir, Georg Guðlaugsson. r

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.